Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
enska knattspyrnan
umsjón: Samúeí Öm Eriingsson
BMGHTOM MIIEIIB
BANABITI UVERPOOL
— Liverpool lá 0-2 í Brighton í bikarkeppninni
á sunnudag
■ Eftir aö Brighton sló Liverpool óvíent ót úr bikarkeppninni ensku í fyrra, og
komst síðan í úrslit, þar sem liðiö tapaði eftir tvo úrslitaleiki, hefur Brighton verið
nefnt lið sem er víst til alls. Liðið féll nefnilega á sama tíma í aðra deild. Og svo
sannarlega er Brighton víst til alls, því um helgina sló það stórlið Liverpool öðru
sinni út úr bikarkeppninni á tveimur árum, vann öruggan sigur 2-0 á Goldstone
Ground.
Sigur Brighton á Liverpool nú kom
enn meir á óvart cn í fyrra. Nú er
Brighton búið að há botnbaráttu í
annarri deild í allan vetur, en hefur þó
rétt úr kútnum síðastliðnar vikur, og
er nú um miðja deild. Liðið hefur misst
góða mcnn, Mike Robinson, en liann
var einmitt seldur til Liverpool síðast-
liðið sumar, og Gary Stevens til Tott-
enham.
Leiknum á Goldston Ground var
sjónvarpað um allt Bretland. Jafnt var
í hálfleik, 0-0, en í síðari hálflcik gerði
Brighton út um leikinn. Þá skoraði
Gerry Ryan, landsliðsmaður íra, á 57.
mínútu, og um mínútu síðar skoraði
Terry Connor annað mark. 2-0 og þar
við sat. Aðalhetja Brighton var Joe
Corrigan, gamli enski landsliðsmark-
vörðurinn, hann varði allt hvað af tók,
frá þeim lan Rush og Mike Robinson,
og fleirum.
Graeme Souncss fyrirliði Liverpool
varð að fara af leikvelli í leiknum.
meiddur.
Brighton vann Liverpool 2-1 í fyrra,
en sá leikur var á sjálfum Anfield Road.
Það var í fimmtu umferð. þessi leikur
í fjórðu. -SÖE
IPSWICH FÓR BEINT ÚT í
West Ham náði jöfnu á Selhurst Park - Moran
skoradi sigurmarkið á 90. mínútu - Oxford áfram
• jafnt hjá Everton og Gillingham
Ipstvich, sem hefur átt mjög þokkalegu gengi að fagna í bikarkeppninni ensku
undanfarin ár, var eina iiðið sem slegið var út af liði úr neðri deildum á laugardag.
Annarrardeildarliöiö Shrewsbury Town sló út Ipswich örugglega, 2-0. En fleiri
komust í hann krappan . West Ham gerði jafntefli við Chrystal Palace á
hcimavelli þcss síðarnefnda, Evertun gerði jafntefli á heimavelli við þriðjudeildar-
liöið Gillingham, Southampton náði sigri á elleftu stundu gegn Portsmouth,
annarrar deildarlið Blackburn marði sigur á fjórðudeildarliði Swindon, og
Tottenham og Norwich skildu jöfn á White Hart Lane. Fjórum leikjum var frestað
vegna veðurs á Englandi.
Ipswich var heldur atkvæöameira í
byrjun í Shrewsbury. Annarrar deild-
arlið lét þó ekki rúllast upp, og veitti
fyrstudeildarliðinu harða keppni. Þeg-
ar leið á fyrri hálfleik fór Shrewsbury
meira að láta að sér kveða, og að sögn
fréttamanns BBC fór þá að verða
skiljanlegra hvers vegna Ipswich á við
erfiðleika að stríða í 1. deildinni um
þessar mundir. Mörkin voru þó ósnert
í hálfleik. Þegar 20 mínútur voru til
íeiksioka, var isinn brotmn mcó frá-
bæru marki Shrewsbury, en framundir
það hafði Ipswich' haft öllu betur í
baráttunni, án þess að skapa færi,
Gary Hackett hinn ungi rauk upp
vinstri vænginn. og skaut fallegu skoti
þaðan yfir Paul Cooper í Ipswichmark-
inu, 1-0 fyrir heimamenn. - Ipswich
■ Dave Swindlehurst var hetja
West Ham - jafnaði skömmu fyrir
leikslok
sótti mjög eftir þetta, og virtist allt i
einu orðið hættulegt. John Wark lét
mikið að sér kveða, en ekki gekk.
Tveimur mínútum fyrir leikslok inn-
siglaði heimaliðið svo sigurinn, Colin
Robertson varamaður skoraði þá gott
j mark, og sgur Shrewsbury orðinn
staðreynd.
Crystal Palace og West Ham Utd
verða að mætast að nýju í kvöld, þau
skildu jöfn á laugardag á Selhurst
Fark. ÐáVé Swinu!é!iiií»í VSr uéijS
West Ham, hann jafnaði 7 og hálfri
mínútu fyrir leikslok, en heimaliðið
hafði haft yfir frá 29. mínútu , þegar
liðið skoraði einstætt mark. David
Giles skallaði miklum þrumuskalla á
þverslána eftir fyrirgjöf Kevin
Mabbutt. Giles skallaði aftur er bolt-
inn kom af þverslánni, en nú varði Phil
Parkes markvörður West Ham. Parkes
hélt þó ekki boltanum, og Andy
McCulloch var sekúndubroti á undan
honum er boltinn snerti jörðina, 1-0
fyrir Palace. Sókn West Ham harðnaði
eftir því sem á leið, og síðustu 15
mínúturnar sóttu þeir látlaust. Upp-
skeran varð mark Swindlehurst, og
jafntefli.
Tottenham og Norwich gcrðu jafn-
tefli án marka á White Hart Lane, í
ekki sérstökum leik. „Veggur gegn
vegg", sagði Brian Butler fréttamaður
BBC. Leikurinn var á lágsléttunni
lengst af, og fyrst þegar fimm mínútur
voru eftir uppgötvuðu leikmenn Tott-
enham að þeir voru í bráðri hættu, því
’ bikar leikur á Carrow Road er ekkert
eftirsóknarverður. Sókn West Ham
varð þung, Chris Woods, markvörður
Norwich, gerði eitt til tvö kraftaverk,
en Archibald og co tókst ekki að setja
mark.
Watford lagði Charlton á útivelli á
sannfærandi hátt. Mauricc Johnston
skaut Watford yfir 1-0 með góðu marki
á 19. mínútu.ogJohn Barnes var nærri
búinn að bæta við öðru örskömmu
síðar. Charlton fékk víti í næstu sókn,
en sú spyrna lenti öfugu megin við
stöngina. Watford innsiglaði svo sigur-
inn á 69. mínútu, þegar John Barnes
geystist upp kantinn, gaf vel fyrir svo
George Reilly gat vart annað en
skorað.
Everton varð að sætta sig við marka-
laust jnfníefli á heimavelli sínum Go-
odispn Park gegn þriðju deildar liðinu
Gillingham. Everton átti góð færi sem
lentu rétt framhjá, eða voru varin.
Gillingham, sem lék mjög vel, langt
fyrir ofan þriðjudeildarklassa, átti sín
færi einnig, og mætti eldi með eldi.
Tony Cascarino skoraði meira að segja
mark fyrir þá eftir hornspyrnu en
dómarinn dæmdi markið af, lét endur-
taka hornspyrnuna, og þá bjargaði
Everton á línu. Báðir aðilar virðast
því hafa orðið að sætta sig við jafntefl-
ið.
Birmingham lagði Sunderland 2-1 á
Roker Park í sumieriand. Þetta ’koni
töluvert á óvart, þar eð Birmingham
hefur átt erfitt í vetur í 1. deild, en
Sunderland siglt heldur lygnan sjó. En
lykillinn að þessum sigri var leikmaður
scm Mick Harford. Árið 1977 prófaði
Sunderland þennan pilt, og var hann í
viku við æfingar hjá félaginu. En hann
var ckki nógu góður að því er talið var,
og látinn fara. Pað var Mick Harford
sem söng útfararsöng Sunderland í
bikarnum þetta árið á laugardag, sjö
árum síðar. Colin West kom Sunder-
land yfir í leiknum, eftir 44 mínútur,
og lengst af virtist sem þetta mark
mundi ráða úrslitum. En í lokin rétti
Birmingham úr kútnum, og skoraði
tvö mörk. Á 84. mínútu varði Shaun
Elliott varnarmaður Sunderland á línu
skalla Mick Harford, en það var ekki
nóg, Martin Cool náði frákastinu og
skoraði, framhjá Chris Turner mark-
verði. Harford var svo aftur á ferðinni
skömmu síðar, og skoraði sigurmarkið
eftir góðan samleik Birmingham upp
völlinn. - Þetta var fimmti leikur þess-
ara liða í ensku bikarkeppninni, og
Birmingham hefur unnið þá alla.
Swindon náði forystunni heima gegn
Blackburn Rovers, þrátt fyrir að liðið
væri aldrei líklegt til að vinna leikinn.
Jimmy Quinn skoraði með fallegum
skalla eftir fyrirgjöf í fyrri hálfleik. En
Blackburn var fram að þessu bitlaust
lið, en tók við sér þegar á leið. Simon
Garner jafnaði í síðari hálfleik, og það
kom ekki á óvart. Glenn Keeley skor-
■ Þessir tveir komu við sögu um helgina, og töpuðu báðir. Til vinstri er Shaun
Elliott, varnarmaður Sunderland sem tapaði fyrir Birmingham. Shaun varði meðal
annars á línu í leiknum, en það dugði skammt. Mike Robinson sóknarmaður
Liverpool til hægri féll með sjálfum meisturum deildabikarsins og dcildarinnar út
úr bikarkeppninni, svo ekki verður allt unnið í vetur. Mike og félagar hans í
Liverpool töpuðu fyrir Brighton, og er það annað árið í röð sem Brighton slær út
lið Liverpool. Robinson tapaði þó ekki í fyrra, þá lék hann í bláum búningi
Brighton.
aði svo sigurmarkið, mark sem hefði
ekki þurft að verða tjl. Keeley skoraði
með skalla. meðan tveir varnarmenn
stóðu bara og hort’ðu á.
Oxford komst áfram í bikarnum, þó
mjólkurbikarsdraumurinn sé búinn.
Bobby McDonald skoraði fyrsta mark-
ið fyrir Oxford úr vítaspyrnu í fyrri
hálfleik. en Keith Murther jafnaði
fyrir Blackpool í síðari hálfleik. Bobby
McDonald skoraði svo sigurmark
Oxford, aftur úr vítaspyrnu.
Plymouth Argyle komst áfram með
tveimur síðbúnum mörkum, eftir að
hafa verið undir 0-1. John Uzzell og
Gordon Stavenport skoruðu eftir að
Kevin Dodds hafði skorað fyrir Dar-
lington.
Southampton var nærri búið að gera
jafntefli við Portsmouth, enda hafði
Portsmouth átt meira í leiknum ef
eitthvað var. Færi voru nóg, en ekki
kom mark fyrr en markamaskínan
Steve ivioran setii inn eiií á síousiu
mínútu leiksins.
1. deild:
Einn leikur var í 1. deild á laugar-
dag. Stoke sigraði Arsenal 1-0, og náði
í dýrmæt stig í botnbaráttunni. Arsen-
al, undir stjórn Don Howe, fær þó
varla blóm í hattinn fyrir. Mark Stoke
skoraði Paul McGuire úr vítaspyrnu.
- SÖE
Samkvæmt
bókinni
- í Skotlandi um helgina
■ Úrslit urðu samkvæmt bókinni að
mestu leyti í þeim fáu leikjum sern
leiknir voru í skosku bikarkeppninni í
knattspyrnu um helgina. Celtic vann
stóran sigur á Berwick Rángers, en
Glasgow Rangers átti fullt í fangi með
Dunfermline, þó sigur ynnist.
Meadowbank hélt jöfnu heima gegn St.
Mirren. en sá róður verður að líkind-
um þyngri þegar á heimavöll St. Mirr-
en kemur.
Brian McClare og Frank McGarvey
skoruðu fyrir Celtic gegn Berwick.
Dunfermline tók forystuna gegn Ran-
gers með marki Gordon Stewart. en á
síðustu mínútunum náðu Rangers yfir-,
höndinni með mörkunt Colin Mc-
Adams og Ally McCoist. -SÖE ’
Enska bikarkeppnin:
Charlton-Watford 0-2
Chrystal Pal-West Ham .... 1-1
Everton-Gillingham 0-0
Oxford-Blackpool 2-1
Plymouth-Darlington 2-1
Portsmouth-Southampton . . . 0-1
Shrewsbury-Ipswich 2-0
Sunderland-Birmingham .... 1-2
Swindon-Blackburn 1-2
Tottenham-Norwich 0-0
1. deild
Stoke-.Arsenal 1-0
3. deild:
Bristol Rovers-Port Vale .... 0-0
Millwail-Hull 1-0
Walsall-Bolton 1-0
Wimbledon-Southend 3-2
4. deild:
Colchester Utd-Stockport . . . 1-1
Qrew Alexandra-Chester . .. 1-1
Hartlcpool-Briston City .... 2-2
Hereford-Doncaster 0-3
Reading-Rochdale 0-0
Torquaey Utd-Peterborough . 1-0
Skoska bikarkeppnin:
Berwick Rangers-Celtic .... 0-4
Hibernian-East Fife 0-0
Meadowbank-St. Mirren .... 0-0
Rangers-Dunfermline 2-1
2. deild:
Qucens Park-East Sterling . . 1-1
STAÐAN í dcildunum á Englandi
er nú þannig, að Liverpool er efst í
1. deild með 48 stig, Manchester
. United hefur 46, Nottingham Forcst
45, West Ham 43, Queens .Park
Rangers og Southampton hafa 39,
Luton og Coventry 38, Aston Villa
36, Norwich 35, Arsenal 34, Totten-
ham 33, Watford og Everton 31,
Sunderland og West Bromwich Albi-
on 30, Ipswich 29, Leicester 29,
Brimingham 25, Notts County og
Stoke með 20 og Wolves hafa 17 stig.
Staðan í 2. deild cr óbreytt frá
síðustu helgi, en í þriðju deild er
Wálsull efst með 51 stig. í fjórðu
deild er York efst meö 52 stig.
-SÖE