Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 13

Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANUAR 19M Zico og Platini skoruðu - Juventus efst á Ítalíu ■ Brasilíski knattspyrnusnill- ingurinn Zico, var á skotskónum um helgina, þegar lið hans Udi- nese mætti Avelllino. Zico skoraði bæði mörk liðs síns í 2-ln sigri. Það l'yrra úr víta- spyrnu, en það síöara beint úr aukaspyrnu. Zico er nú marka- hæstur á ítaliu með 15 mörk. Frakkinn Michel Platini, skor- aði mark Juventus gegn Napolí, er liðin gerðu jafntefli 1-1. Mark- ið gerði hann beint úr auka- spyrnu. Hann hefur nú skorað 13 mörk, og er annar markahæst- ur. Eftir 18 umferðir í ítölsku knattspyrnunni er Juventus efst með 26 stig, Torino er með 24, Fiorentina með 23 og Udinese, Roma og Verona eru með 22 ■ Atli Hilmarsson stóð sig vel í leikjunum gerð Norðmönnum um helgina. Hér sést hann stökkva him- inhátt í leiknum á sunnudag og skot hans hafnaði í marki Norðmanna. Atli var að mestu tekinn úr umferð í síðasta leiknum, á sunnudag, en hann skoraði grimmt í hinum lcikjun- um tveimur, meðal annarsjöfnunar- mark íslands á laugardag. Tímamynd Arni Sæberg “íisSWÍ? GÓÐUR SIGUR f SfÐASTA LEIKNUM ■ íslendingar kvöddu Norðmenn með virktum í síðasta leik þjóðanna í hand- knattlcik að þessu sinni á sunnudag, og sigruðu þá 25-20. Þar með er vinnings- hlutfall Islendinga gegn Norðmönnum í góðu lagi, landinn hefur unnið 13 sinnum í 31 viðureign þjóðanna, Norðmenn 11 sinnum, og 7 sinnum hefur orðið jafn- tefli. Það var fyrst og fremst barátta og kraftur sem gaf íslendingum þennan sigur, góð vörn lengst af, fallcgt einstakl- ingsframtak í sókninni og góð mark- varsla í fyrri hálfleik. Leikurinn fór vel af stað. íslendingar komust i 3-0. Norðmenn hófu þá að leika vörnina með 2 menn frammi. sem tóku skyttur úr umferð, og riðlaðist þá nokkuð sóknarleikur íslendinga. Norð- menn jöfnuðu 3-3, en þá bætti Bogdan við skyttum í stað hornamanna, og íslendingar sigu fram úr í 5-3, og héldu tveggja marka forskoti fram eftir hálf- leiknum. Eftir að Norðmenn komust í 7-8, tóku Islendingar góðan sprett í lokin og staðan í hálfleik 12-8 íslending- um í hag. Norðmenn skoruðu tvö fyrstu mörkin í síðari hálfleik, 10-12, þá varð 13-11, 14-11, og Norðmenn náðu svo að jafna 14-14. íslendingar komu þá góðu skipu- lagi á sóknina að nýju. skoruðu tvö mörk, og 'höföu ao jainaöi tvö rnörk í fórskot uns staðanvar 19-17. Þá skoruðu íslend- ingar 20-17. Norðmenn minnkuðu mun- inn í 19-20, en stórgóður lokakafli færði íslendingum sigur, 25-20. Kristján Arason var bestur íslcndinga í þessum leik, skoraði 8 mörk, þar af 5 úr vel útfærðum vítaköstum. Kristján var aðalmaðurinn í vörninni, varði þá hvert skotið á fætur öðru, svo lang- skyttur Norðmanna komust oft lítt áleið- is. Þá lék Steinar Birgisson besta lands- leik sem undirritaður hefur séð hann leika, mjög yfirvegað í vörn og sókn. Sigurður Gunnarsson og Þorbergur Aðalsteinsson áttu góða spretti, svo og Þorbjörn Jcnsson í vörn og á línunni í. sókn. Jakob Sigurðsson lék nokkuð vel í horninu, og er framtíðarmaður þar. Sigurður Sveinsson lék töluvert mikið með, og virtist nú falla betur í liðsheild- ina en á föstudag. Hann skoraði fallegt mark, og leitaði félaga sína uppi með góðum sendingum. Jens Einarsson lék lengst af í markinu. varði mjög vel í fyrri hálfleik, alls 9 skot, en dalaði í síðari náiiicik. Einar ÞörVárðSÍsOíi iék VCÍ síðustu mínúturnar. Páll Ólafsson hóf leikinn, en virtist kraftlítill, sjálfsagt vegna undafarinna veikinda, og hefði betur hvílt þennan leik alveg. Hann kom ekki meira inn á eftir upphafsmínúturn- ar. Steindór Gunnarsson var í hópnunt. en kom ekki inn á. Hann kom inn í hópinn fyrir Þorgils Óttar. og þá kom Jens að nýju inn fyrir Brynjar Kvaran frá leiknum á laugardag. Atli Hilmars- son var tekinn mikið úr umferð, og kom því fremur lítið við sögu, sjálfsagt hafa Norðmenn fengið nóg af honum. Norðmenn léku baráttuglaðir, en eru ekki af sama getustigi og íslendingar, það er að segja þegar landinn leikur eins og hann á að sér. Bestur þeirra var Káre Ohrvik, sem gerði íslendingum oft erfitt um vik. Leikurinn var hroðalega illa dæmdur, ,og virtust dönsku dómararnir oft vera ansi illa með á nótunum. Norðmenn högnuðust mjög á dómum þeirra, sér- staklega framan af. Sjálfur leikurinn var ágætur á köflum, en mistök inn á milli VUIU LbbLll gugnayndi, svo sem þegar vörn er leikin 4-2. Mörkin: Island: Kristján Arason 8/5, Steinar Birgisson 4, Sigurður Gunnars- son 4, Þorbjörn Jensson 3, Atli Hilmars- son 2. Jakob Sigurðsson 2, Þorbergur Aðalsteinsson 1, Sigurður Sveinsson I. Ohrvik var markahæstur Norðmanna með 7/4mörk,Jan RundhovdeogGunn- ar Petterson 4 hvor, aðrir minna. - SÖE NORDMENN BITU FRA SER ■ Norðmenn koniu vígreiflr til leiks í annan landsleik íslands og Noregs í handbolta á laugardag, cn leikur þcssi var leikinn i íþróttahúsinu í Hafnarfírði klukkan 16, eftir að útséð varð um flug til Akureyrar. íslendingar seni lagt höfðu Norðmennina með níu niarka mun komu til leiksins ekki eins ákveðnir og fyrr, og kom það þeim í opna skjöldu hve vel Norðmenn léku. Jafntefli varð i lciknum, 24-24, og máttu íslendingar vel við una, Atli Hilmarsson jafnaði fyrir ísland þegar 20 sekúndur voru til lciks- loka. Leikurinn fór nokkuð jafnt af stað. þó höfðu íslendingar heldur frumkvæðið og komust í 5-3. Norðmenn jöfnuðu 5-5, en íslendingar höfðu yfir 8-7. Norðmenn komust í 12-10, og höfðu yfir í hálfleik 13-12. Góðir sprettir Norðmanna, og mistök og ráðleysi íslendinga í upphafi síðari hálfleiks enduðu í fjögurra marka for- skoti Norðmanna 13-17. Þá tók landinn á sig rögg og jafnaði 17-17, og síðan var jafnt á öllum tölum. Norðmenn höfðu síðan yfir í lokin 24-23, og Atli jafnaði eins og áður var nefnt-. íslendingar léku ekki vel í ieiknum, miðað við það sem liðið getur. Varnar- leikur liðsins var slakur, og markvarslan eftir því. Einar Þorvarðarson varði það sem varið var í fyrri hálfleik, en síðan heyrði slíkt sögunni til. Atli Hilmarsson var sprækastur íslendinga, lék vel í sókninni. og þeir Kristján Arason og Steinar Birgisson létu einnig vel til sín taka þar. Mörk íslands skoruðu: Atli Hilmars- son 6, Kristján Arason 5, Steinar Birgis- son 4, Jakob Sigurðsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Páll Ólafsson 2, Þorbjörn Jensson 1 og Þorbergur Aðalsteinsson 1. Markahæstur Norðmannanna var Tore Johannessen með 6 mörk, Kare Ohrvik skoraði 5, Vidar Bauer og Gunnar Petterson 4 hvor. aðrir minna. Tvær breytingar voru gerðar á íslenska liðinu eftir fyrsta leikinn. Brynjar Kvar- an kom inn í þennan leik fyrir Jens Einarsson, og Þorbergur Aðalsteinsson leysti Sigurð Gunnarsson af. Það vakti athygli í þessum leik, að Sigurður Sveins- son sat á bekknum allan tíma, Bogdan skipti honum aldrei inn á. Spurningin er, hve það borgar sig að kalla menn eins og Sigurð heim frá útlöndum, ef lítið á að nota þá, en slíkt verður að sjálfsögðu að vera mat þjálfarans. Sigurður féll ekki inn í spil íslenska liðsins á föstudag. -SOE ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984 13 umsjón: Samuel Orn Erlingsson Laugdælir unnu Grindvíkinga - í 1. deild í kröfu ■ Laugdælir sigruðu Grindvíkinga í 1. deild karla í körfuknattleik í leik liðanna um helgina, með 63 stigum gegn 59. Staðan í hálfleik var 38-31 Grindvík- ingum í vil. Unnar Vilhjálmsson varstigahæsturíliði Laugdæla með 21 stig en þeir Lárus Þ. Jónsson og Ellert Magnússon skoruðu 13 stig hvor. Hjá Grind- víkingum skoraði Hjálmar Hallgrímsson mest með 21 stig, Ólafur Jóhannesson skoraði 15 og Eyjólfur Guðlaugsson 12. -BL Wenzel vann í risa-stórsvigi - Podborski vann í bruni ■ Um helgina var keppt í hcimsbikarnum í alpagreinum skíðaíþrótta, í Garmisch-Partenkirc- hen f V-Þýskalandi. f risastórsvigi sigraði Andreas Wcnzél, Lichtenstein, á 1:36,53 mín.,annar varð Pirmin Zurbriggcn, Sviss á 1:36,62 og þriðji varð Hans Enn, Austurríki, á 1:37,55 mín. í bruni sigraði Stcve Podborski, Kanada, á 1:56,95, annar varð Erwin Resch, Austurríki, á 1:57,20 mín. og þriðji varð brunkóngurinn sjáifur. Franz Klammer, á 1:57,44 mín. Staðan í stigakeppni heimsbikarsins er nú sú, að Zurbriggen hefur forystu með 209 stig, annar er, Wenzel með 168 stig og Ingemar Stenmark cr þriðji með 156 stig. -BL Cram í 8. sæti HSV á uppleið í V-Þýskalandi: Skoruðu 7 mörk gegn Dortmund — Rummeniggebræður skoruðu öll mörk Bayern - Bremen komst íhann krappan Frá Gisla Agúst Gunnlaugssyni - íþrótla- frcttamanni Tímans í V-Þýskalandi: ■ Kuldi og snjór í vestan-og norðan- verðu V-Þýskalandi setti talsverðan svip á 19. umferð Búndeslígunnar, sem leikin var á laugardag. lnnan við eitt hundrað þúsund áhorfendur mættu á þá átta leiki sem voru leiknir. Þrátt fyrir kuldann voru skoruð 43 mörk, fleiri en nokkru sinni á einum leikdegi í vetur, og það þó að leik marksæknasta liðsins, Fortuna Dusseldorf, gegn Köln hafi verið frestað. Úrslitin urðu þessi: Mannheim-Braunschweig ..........2-2 „Gladbach"-Offenbach............3-2 Köln-Dusseldorf.............frestað Bayern Munchen-Bielefeld .......3-1 Nurnberg-Leverkuscn.............2-3 Frankfurt-Úerdingen ............2-2 Hamburger SV-Dortmund...........7-2 Stuttgart-Kaiserslautern .......5-1 Bochum-Werder Bremen ...........3-3 Greinilegt er að lið HSV er á mikilli uppleið efti lægð undanfarinna mánaða. Liðið átti aldrei í vandræðum mcð Borussia Dortmund sem mjög á óvart er nú talið í fallhættu eftir afleita frammi- stöðu í vetur. Hamborg vann stórsigur 7-2. eftir að staðan í hálfleik hafði verið 2-1. Leikmenn HSV tóku frumkvæðið í leiknum þegar í sínar hendur, og komust í 2-0 eftir aðeins 10 mínútna leik. Kaltz skoraði á 8. mínútu úr vítaspyrnu, og Jakobs bætti öðru við með góðu skoti á 10. mínútu. Eftir þessa góöu byrjun dapraðist meisturunum nokkuð flugið, og Rúmeninn Raducanu náði að minnka muninn í 2-1 á 26. mínútu. Nokkuö jafnræði var svo með liðunum það sem eftir var af fyrri hálfleik. í síðari hálflcik voru leikmenn Hamborgaliðsins hins vegar mörgum klössum be.tri, og mörkin létu ekki á sér standa. Wolfgang Wuttke skoraði 3-0 á 51. mínútu, og var það hans fyrsta mark í deildinni i vetur. Mikill styr heíur að undanförnu staðið um þennan leikna sóknarmann, sem keyptur var frá Schaike (14 síðastliðið sumar. en engu líkara var en að töfrarnir væru horfnir úr skóm hans eftir að hann gekk til liðs við þýsku meistarana. Wuttkc bætti við öðru marki sínu í leiknum rétt fyrir leikslok. en önnur mörk Hamborgarskoruðu þeir Hartwig, Grohe og Rolff, en Bittchcr skoraði annað mark Dortmund á 67. mín., þcgar staðan var 4-1. Bayern Munchen lagði Armenia Biel- efeld 3-1 á heimavelli sínum eítir að staðan í hálfleik var 2-0, og haði Michael Rummenigge skorað bæði mörk liðsins. Finninn Rautianinen lagfærði stöðuna í 2-1 á 61. mínútu, en Karl Heinz Rumm- enigge gerði út um leikinn með marki úr vítaspyrnu á 70. mínútu. Udo Lattek þjálfari Bayern var ekki ánægður með leik sinna manna, sem hann taldi að hefðu átt að vinna með talsvert meiri mun, en marktala Munchen cr nokkru lakari en sumra keppinautanna, til dæm- is Stuttgart og Werder Bremen. Leiknienn Werder Bremen lentu í kröppuni dansi í Bochum, þar scm heimaliðið hafði algera yfirburði frani á 75,mínútu. og hafði náð að skora þrisvar sinnum án þess að leikmenn Bremen næðu að svara fyrir sig. Á síðasta korterinu tóku hinir þekktu leikmenn Bremen loks.við sér, og náðu að jafna leikinn með mörkum Neuharths og Völler, og varnarmanns Bochum. Zugcie, sem varö það á að senda knött- inn í eigið mark. Önnur liö í efri hluta deildarinnar unnu leiki sína, en baráttan á botninum verður án cfa ærið hörö. Frankfurt náði aðcins jafntcfli á heimavelli gegn nýlið- um Baycr Ucrdingen sem jöfnuðu 2-2 fimmtán sekúndum fyrir lcikslok. Nurn- bcrg nær lítið að rétta úr kútnunr þrátt fyrir tíð þjálfaraskipti, og skipt hafl verið um mcnn í æðstu stjórn félagsins. Nýju mennirnir Búrgsmuller og Abramczik scm kcyptir voru frá Dortm- und fyrir þctta kcppnistímahil í því augnamiði að rcyna að vinna liðinu þátttökurctt í Evrópukcppni á þcssu tímabili, hafa ckki náð að drífa liöiö til afreka, þrátt fyrir að Búrgsmuller sé jarfnmarkhcppinn og áður, cn hann hefur gert 10 mörk fyrir liðið í vetur. -GÁG/SOE ■ Karl Heinz Rummenigge er markahæstur í V-Þýskalandi og skor- aði eitt mark fyrir Bayern Munchen um helgina. Michael bróðir hans skoraöi hin tvö. ■ Staðan er nú þessi í V-Þýska- landi: Bayern 19 12 4 3 38-17 28 Stuttgart 19 11 5 3 41-17 27 Hamburger 19 11 4 4 39-21 26 W. Bremen 19 10 b 4 42-20 25 „Gladbach" 19 10 5 4 40-27 25 Dusseldorf 18 9 5 4 43-23 23 Leverkusen 19 9 4 5 35-29 22 Uerdingen 19 6 6 6 33-34 20 Köln 18 8 3 7 35-26 19 Bielefeld 19 6 5 8 25-21 17 Mannheim 19 5 7 7 24-34 17 Bochum 19 5 6 8 35-43 16 Braunschw. 19 7 2 10 31-42 16 Kaiserslaut 19 6 3 10 35-43 15 Dortmund 19 5 4 10 25-42 14 Offenbach 19 4 3 12 28-58 11 Frankfurt 19 1 8 10 19-39 10 Niirnberg 19 4 1 14 25-46 9 á Nýja-Sjálandi ■ Heimsmeistarinn í 1500m hlaupi, Steve Cram, keppti í 1500 metrunum á móti á Nýja-Sjálandi ekki alis fyrir löngu. Steve sem ekki hefur tapað slíku hlaupi frá 1981, varð að láta sér nægja áttunda sætið, með tímann 3,42,4 mín. Cram hefur lítið getað æft að undanförnu vegna meiðsla, en cr nú orðinn góður af þeim. Kappinn hefur í hyggju að æfa svolítið betur áður en hann tekur þátt í næsta móti, til að geta staðið sig betur en hann gcrði á mótinu í Hamilton, Nýja-Sjálandi. Markahæstir í Bundesiigunni: ■ Þessir hafa nú skorað flest mörk í v-þýsku Búndeslígunni: K. H. Rummcnigge, Bayern Múnchen............13 Waas, Lcverkusen ........................... 11 Schatzschneide, Hamburger SV ................ 10 Funkel, Uerdingcn ........................... 10 Völler, Bremcn...............................|() Búrgsmuller, Nurnberg ..................... 10 Corneliusson, Stuttgart ..................... 10 Atli Eðvaldsson hefur nú skorað 5 mörk, og Ásgeir Sigurvinsson 4. GÁG/SÖE Frestað hjá Dusseldorf og Fortuna Köln - Frá Gísla Ágúst Gunnlaugssyni, íþróttafrétta- manni Tínians í V-Þýskalandi ■ Nokkrum leikjum var frestað hér í V-Þýskalandi síðastliðinn laugarag, leik FC Köln og Dusseldorf var frestað til 7. febrúar, þar sem völlurinn í Köln var glerháll eftir rigningu og þíðu undanfarinna daga. í annarri deild var einnig nokkrum leikjum frestað, meðal annars leik Osnabruck og Fortuna Köln, en hann mun fara fram í kvöld. -GÁG/SÖE Segöu EUBOS (Jú-boss) i staöinn fyrir sápu! Sennilega er Eubos eitthvað það besta, sem komið hefur á markaðinn fyrir þá sem eru með viðkvæma húð. Eubos kemur nefnilega í stað sápu, sem oft getur verið ertandi fyrir húðina. Tilvalið fyrir þá sem vegna vinnu sinnar, íþróttaiðkana og annarra aðstæðna þurfa oft á tíðum að nota mildari sápu en aðrir. Sumir þola jafnvel ekki að nota sápu. Það eru einmitt þeir, sem eiga að nota Eubos í stað sápu. Eubos fæst bæði í hörðu og fljótandi formi. EUB0S Umboð á íslandi: G. Ólafsson, Grensásvegi 8, Reykjavík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.