Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 2
2______
fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANUAR 1984
Wimm
■ Ólafur Kristjánsson, form. Sambands sveitarfélaga á Vestfjörðum hefur væntanlega getað frætt Davíð
borgarstjóra eitthvað um dýrð Vestfjarðanna, því ýmislegt er þarað sjá og heyra ekki síður en í Reykjavík.
■Egl ' 'zr ,
ix W 1
■ Davið Oddsson, borgarstjóri ávarpaði gesti á Reykjavíkurkynningu í Hnífsdal. Sagði hann mönnum frá
menningu og öðru áhugaverðu sem höfuðborgin hefði upp á að bjóða, og hvatti Vestfirðinga til heimsókna.
■ „Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur“, sungu Davíð og fleiri Reykvíkingar
fullum hálsi með Vestfirðingunum.
Tímamyndir Finnbogi.
Davíd og Reykjavík-
urmenningin gera
innreið á ísafirði
samkvæmisfatnað og sumartískuna
1984. Dansstúdíó Sóleyjar sýndi. Hópur
frá Islensku óperunni kynnti hana í tali
og tónum. Hermann Ragnar Stefánsson
kynnti dagskrána og stóð fyrir fjölda-
söng. Fjöldi manns sótti samkomu þessa
og skemmti sér hið besta. -FK/HEI
■ Borgarstjóri Reykjavíkur Davíð
Oddsson brá sér vestur til fsafjarðar um
helgina með fríðu föruneyti til að kynna
mönnum þar höfuðborgina þeirra og
hennar dýrð.
Efnt var til samkomu í Félagsheimil-
inu í Hnífsdal. Hófiðhófst með hanastéli
og síðan var sest að hlöðnum veisluborð-
um. Borgarstjóri ávarpaði gesti og
minnti þá m.a. á að í Reykjavík hafi orði
upphaf byggðar á íslandi'. Þá sá Model
’79 um tískusýningu fyrir verslanirnar
Eplið á Isafirði, verslun E.G. í Bolung-
arvík, Silfurtorgið og Sporthlöðuna,m. a.
■ íris Hreinsdóttir og Jóna Lárusdóttir í Dansstódíói Sóleyjar sýndu dans með tilþrifum.
■ Sýningarfólk úr Model ’79 sýndi glæsifatnað frá verslunum a Vestfjörðum og sjáum við ekki betur en
að það sé Karvel Pálmason sem gjóar augum á glæsilega stúlku klædda híjalíni.
MJÓLK SKÖMMTUD í KAUPFÉLAGINU Á ÓLAFSVÍK
■ Símasambandið í Ólafsvík hefur
heldur lagast, samkvæmt því er við
fréttum hjá Hjörleifi Sigurðssyni hjá
Vegagerðinni í Ólafsvík. Hann kvað
sérfræðing að sunnan hafa komið vestur
nú nýlega. Að hans sögn væri ástæða
erfiðleikanna sú að símstöðin væri allt of
lítil og búin of úreltum og slitnum
tækjum til að þau þyldu það álag sem nú
er. Eitthvað sagði Hjörleifur hann þó
hafa gert til úrbóta, því miklu betra hafi
verið að ná sambandi en verið hafi að
undanförnu - þegar það gat tekið allt að
2-3 líma að ná sambandi milli húsa.
Það kom fram hjá Hjörleifi að snjó-
ruðningsmenn sem staðið hafa í ströngu
þar vestra voru ekki allskostar ánægðir
með frásögn Þóris Jónssonar hjá Kaup-
félaginu í Ólafsvík af því hve illa gengi
að halda opnu. Hjörleifur sagði stórhríð
hafa verið þar vestra mánudag fyrir viku og
fram til kl. 4 á þriðjudag, eftir það hafi ver-
ið byrjað að moka inn í Grundarfjörð fyrir
rútuna og eina 10 bíla aðra, sem tekið
hafi tæpa 6 klukkutíma. Við þetta hafi
verið 3 tæki og einn maður á hverju, auk
stjórnanda, þannig að höfðatala ruðn-
ingsmanna hafi verið töluvert rífleg hjá
Þóri. Hjörleifur sagðist ekki efast um að
ódýrara væri að flytja mjólkina með bát,
þ.e. ef eingöngu væri verið að hugsa um
hana, en fjöldi annarra bíla þurfi að
komast á milli.
Þórir Jónsson kvað það síður en svo
hafa verið meiningu sína að vanþakka
bílstjórum eða tækjamönnum þeirra
störf. Það væri virðingarvert af bílstjór-
unum að leggja nótt við dag til að
komast út á Nesið þegar mögulegt er.
■ Stofnuð hefur verið hér á landi deild
innan Mannréttindanefndar El Salvador,
Comision de Derechos Humanos de El
Salvador, en nefndin hefur á þriðja ár átt
fulltrúa hér á landi.
Með stofnun deildarinnar verður
reynt að efla allt mannréttindastarf fyrir
Mið-Ameríku og E1 Salvador sérstak-
lega en þar hefur eins og kunnugt er ríkt
hörmulegt ástand í mannréttindamálum
undanfarin ár.
Þórir tók fram að hann hefði misminnt
nokkuð um tölu þeirra flutningabíla sem
komið hafi vestur með vörur frá ára-
mótum, þ.e. að sá sem annast flutning-
ana hafi komið fjórum sinnum, en auk
þess hafi hann þrisvar sinnum tekið bíl á
leigu til slíkra ferða. Þeir kaupfélags-
menn fengu bíl með Reykjavíkurvörur
Deildin mun ganga undir nafninu
Mannréttindasamtök El Salvador,
skammstafað MESA og í henni eru
Álfrún Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður
Garðarsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdótt-
ir, Steinar Árnason og Þráinn Hallgríms-
son sem verið hefur fulltrúi Mannrétt-
indanefndarinnar frá 1981.
í tilkynningu frá MESA um þetta mál
segir m.a.:
„Mannréttindasamtök E! Salvador á
vestur á fimmtudag, þannig að Þórir
sagði ástandið nú að verða þolanlegt,
a.m.k. í bili. Vegna veðurspárinnar kom
mjólkurbíll einnig vestur á fimmtudags-
kvöldið. Mjólk var þó skömmtuð í
kaupfélaginu, þar sem mánudagurinn
var einnig inni í dæminu, þ.e. mjólkur-
bílstjórinn reiknaði ekki með að komast
íslandi heita á alla íslendinga að kynna
sér ástandið í mannréttindamálum í Mið
Ameríku og E1 Salvador. Samtökin hér
á landi - MESA - munu á næstunni efna
til fjársöfnunar, en allt fé sem safn-
ast mun verða notað til mannúðar-
verkefna í E1 Salvador og Mið-
Ameríku. Mjög alvarlegt ástand
ríkir um þessar mundir í mörgum flótta-
mannabuðum á þessu svæði og má geta
þess að mikill fjöldi barna í flóttamanna-
á milli á mánudag.
Bíllinn kom m.a. með vörur úr Stykk-
ishólmi sem eiga að fara í Staðarsveit,
sem nú er alveg einangruð. Þórir sagði
einn góðhjartaðan Ólsara ætla að reyna
að koma þeim varningi út í sveitina á
snjósleða.
-HEI
búðum deyr áður en þau ná fimm ára
aldri vegna sjúkdóma og vannæringar.
Samtökin hér munu leggja sérstaka
áherslu á barnahjálp.
Reikningur samtakanna er nr. 101-05-
16500 við Landsbanka íslands, aðal-
banka. Er allur stuðningur við deildina
hér á landi svo og annar stuðningur við
málefnið vel þeginn.“
-FRI
Deild innan Mannréttinda-
nefndar EL Salvador stofnud