Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 10

Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 10
Gjald- eyris- forðinn jókst um ■ Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri var gjaldcyrisforði Seðlabanka Islands um áramótin 4.321 milljónir króna og hafði aukist um 230 milljónir reiknað á skráðu gengi í árslok. Á árinu 1982 rýrnaði gjaldeyrisforðinn liins vegar um 2.259 milljónir. Netto gjaldeyrisstaða bank- anna var 2.468milljónir króna í árslok á móti 2.797 í árslok 1982 og hefur því rýrnað um 329 milljónir samanborið við 2.866 milljóna rýrnun árið áður reiknað á gengi í árslok 1983. JÁRN- BLENDI- FRAM- LEIÐSLA EYKST HJÁ NORÐ- MÖNN- UM —verðhækkun á mörgum stærstu mörkuðunum ■ Útflutningur á járnblendi frá Noregi jókst að magni um 6 af hundraði í fyrra miðað við árið þar á undan. Einnig hefur hærra verð á járnblendi á ýmsum mörk- uðum styrkt stöðu norsks járnblendiiðn- aðar til muna og er nú talið að útflutn- ingsverðmætið í fyrra hafi verið rúmum 3 milljörðum norskra króna hærra en það var 1982. Mun árið 1983 vera það fyrsta í langan tíma sem bendir til verulegs bata hjá iðngreininni. Samtals framleiddu Norðmenn um 770 þúsund tonn af járnblendi í fyrra og þá var í fyrsta skipti síðan 1979 um að ræða framleiðsluaukningu milli ára. Stærstu markaðirnir fyrir járnblendi voru í fyrra Efnahagsbandalagslöndin, EFTA-löndin og Japan. Norskur járn- blendiiðnaður framleiðir næstum 15% af öllu járnblendi sem framleitt er í heiminum. ■ Síðastliðið ár var framleiðendum Volvo mjög hagstætt. Nú er verið að kynna nýja tegund af Volvo-bílum, Volvo 740 GLE, sem lítur út alveg eins og 760 bílarnir, en er ekki eins íburðarmikill og þar af leiðandi ódýrari. UM15% SÖUMUKNMG HIÁ VOLVOIFVRRA— fyrirtækið aldrei selt fleiri bíla á einu ári. ■ Um 365 þúsund Volvo-bílar seldust í fyrra og hafa aldrei í sögu Volvo-fyrir- tækisins selst fleiri bílar á einu ári. Salan 1983 var 15 af hundraði meiri í fyrra en 1982, sem líka var metsöluár hjá fyrir- tækinu. Árið 1983 var bílaiðnaðinum í heimin- um nokkuð hagstætt. Alls voru fram- leiddir um 28 milljónir bíla á móti 25 milljónum árið áður. Var aukningin mest í Bandaríkjunum þar sem fram- leiðslan fór úr 5,1 milljón bíla í um 5,8 milljónir. Af þessum tölum má sjá, að Volvo jók markaðshlutdeild sína veru- lega í fyrra á heimsmarkaðnum. Mest seldist af „200 línunni", eða um 232 þúsund bílar, sem er um 12.000 bílum meira en 1982. Af „700 línunni" seldust um 31 þúsund bílarog um 102 þúsund af „300 línunni“, sem framleidd er í Holl- andi. Methagnaður á norskri utan- ríkisverslun ■ Utanríkisverslun Norðmanna skilaði 11,1 milljarði norskra króna í hagnað fyrstu 10 mánuðina í fyrra. Bendir því allt til þess að hagnaðurinn á árinu verði nokkru meiri en hann var mctárið 1981, þegar utanríkisverslunin skilaði 13,2 milljarða hagnaði. Nýtölvudisk- ettustöð frá Svíþjóð —aðeins 5 senti- metrar í þvermál ■ Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður s.f. hefur hafið innflutning á lítilli tölvu- diskettustöð frá FACIT í Sviþjóð, sem nefnist FACIT Micro Floppi 4811. Þessi diskettus'öð er tengd við FACIT 8111 ritvélar, sem notaðar hafa verið um nokkurt skeið hérlendis hjá fjölda fyrir- tækja. Disketturnar, sem notaðar eru, eru aðeins 5 cm í þvermál og stöðin sjálf vegur ekki nema 1,5 kg. Á þessum diskettum er hægt að geyma í minni allt að 16.000 stafi um aldur og ævi. FACIT rítvélarnar, sem stöðin er tengd við, hefur einnig 16.000 stafa miiíni, svo ef eigandinn kýs að geyma textann til langframa, flytur hann textann yfir á diskettuna úr minni ritvélarinnar. Þegar nota þarf textann aftur, er hann fluttur af diskettunni yfir í minni ritvélarinnar og þar er hægt að breyta honum að vild, áður en hann vélritast á blað. Auk þessara 16.000 stafa er hægt að geyma í minni ritvélarinnar ýmis ávörp, sem algeng eru í verslunarbréfum og einnig uppsetningu verslunarbréfa. ■ Diskettustöðin geymir 16 þúsund stafi um aldur og ævi. Flutningar jukust um 13,8% hjá Ríkisskip ■ Flutningar Skipaútgerðar ríkisins árið 1983 urðu alis 126.500 tonn í fyrra og jukust um 13,8 af hundraði frá árinu aður. Eru þetta mestu flutningar í sögu fyrirtækisins ef frá eru taldir olíuflutningar ms. Þyrils á sjötta áratugnum. Mcst var aukningin í stórflutning- um - áburði, sementi og kísilgúr - eða 32,7% og urðu þeir 50.550 tonn 1983 cn voru 38.087 tonn 1982. Almennir flutningar jukust úr 73.068 tonnum í 75.950 tonn eða um 3,9% Á síðasta fjórðungi ársins urðu flutningar 36.191 tonn á móti 25.680 tonnum 1982, aukningin var 40,9%. Eru það mestu flutningar á einum ársfjórðungi í sögu fyrirtækisins. Skipaútgerðin er nú með þrjú skip í strandferðum. Esju, Öskju og Heklu, og eru hin tvö fyrrnefndu í eigu fyrirtækisins, en Hekla er norskt leiguskip. Skuldum um 60% af þjóðarframleiðslu Bjarni Þ. Jónsson ráðinn til F.í.l. ■ Erlendar langtímaskuldir íslendinga jukust um 2.515 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins í fyrra. Fyrstu bráða- birgðatölur benda til þess að á árinu öllu hafi aukningin numið milli 2.500 og 2.600 milljónum og að skuldastaða er- lendra lána í árslok hafi verið um 60% af þjóðarframleiðslu. Samkvæmt bráðabrigðatölum rýrnaði gjaldeyrisstaða bankanna um 100 millj- ónir á árinu reiknað á meðalviðskipta- gengi. Miðað við.að viðskiptahallinn verði milli 1300 og 1500 milljónir króna, eða 2,5 til 3% af þjóðarfrantleiðslu, og 100 milljóna rýrnun á gjaldeyrisstöðu ætti nettoinnstreymi á fjármagnsjöfnuði að hafa numið 1200 til 1400 milljónum. Sé nettóaukning langra lána áætluð 2.500 til 2.600 milljónir, eins og að framan segir, ætti nettóútstreymi á öðrum liðum fjármagnsjafnaðarað hafa numið 1200 til 1300 milljónum króna og er þar einkum um að ræða skammtíma- hreyfingar. Fyrstu níu mánuði ársins var nettóútstreymi á satnsvarandi liðum 1.900 milljónir. ■ Bjarni Þór Jónsson, fyrrum bæjarstjóri í Kópavogi, hefur verið ráðinn starfsmaður Félags íslenskra iðnrekenda. Hann mun meðal annars sjá um að skipu- leggja aðstoð FÍI við fyrirtæki vegna vörusýninga. Má í því sambandi nefna alþjóðlegu sjáv- ■ Bjarni var nýlega fastráðinn hjá FÍI en áður hafði hann unnið ýmis verkefni hjá félaginu, arútvegssýninguna sem haldin verður í Laugardalshöll næsta haust. Bjarni mun einnig sjá um að auka tengsl milli félagsmanna og stjórnar og starfsliðs með skipu- legri hætti en verið hefur, ekki síst eftir að félagsmönnum utan Reykjavíkur hefur fjölgað veru- lega. Ennfremur mun Bjarni sjá um ýmsa kynningarstarfsemi á vegum félagsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.