Tíminn - 31.01.1984, Side 6
6f______________
T spegli tímans
flféjmirm þriðjudagur 31. janúar 1984
■ Úr 200 ára afmælismyndinni um byggð
INDHNMN „ULFSFOTUR" ER
■ Duane Loken er fallega vaxinn og vígalegur Indíáni, en það keinur ekki af sjálfu
sér. Þjálfun og íþróttir eru nauðsynlegar til þess að geta haldið sér sem Indíáninn
„Úlfsfótur".
■ ... - svo er hann líka í popp-bransanum
■ „Ulfsfotur“ er hann Duane Loken
kallaður í sjónvarpsþáttunum „Villta
vestrið“, og sem Ulfsfótur varð hann
frægur sem ekta Indíáni, - en það er
hann reyndar ekki, því að afi hans og
amma í föðurætt höfðu ættarnafnið
Jacobsen og voru ættuð frá Löken í
Nittedal í Noregi, en fluttu til Ameríku.
Seinna breyttu þau nafni sínu í Löken
(eftir heimabæ sínum), en í munni
Ameríkana varð það að Loken, og það er
ættarnafn Indíánans Duanes Loken
„Ulfsfotar“.
Móðir Úlfsfótar eróblandaður
Indíáni af Comancheættflokkin-
um, svo það er í móðurætt sem
Duane hefur sótt indíánaútlit
sitt. Hann hefur leikið í kvik-
myndum, bæði í „Villta vestr-
inu“ og einnig lék hann í kvik-
myndinni, sem gerð var í tilefni
200 ára afmælis stofnunar
Bandaríkjanna, en þar er saga
byggðarinnar rakin og samskipt-
in við frumbyggja landsins.
Duane Loken átti að koma til
prufuupptöku, er hann sótti um
að leika sem „Úlfsfótur" í Villta
vestrinu. Þá hafði hann um
morguninn verið í sínu venjulega
morguntrimmi í skógi nálægt
kvikmyndaverinu, Loken leggur
áherslu á það, að það þurfi
stöðuga þjálfun til þess að leika
Indíána-kappa. Það verður að
æfa eins og fyrir íþróttamót,
segir Duane. Þarna um morgun-
inn, þegar hann var að hlaupa úti
í skógi, rakst hann á stúlku og
mann í skóginum, og maðurinn
hafði ráðist á stúlkuna og reyndi
að nauðga henni. Hann ógnaði
henni með hnífi og var hinn
vígalegasti. Duane var ekki lengi
að hugsa sig um, en réðist á
ofbeldismanninn og bjargaði
stúlkunni úr klóm hans. I viður-
eigninni fékk hann hnífstungu í
handlegginn, en hún var ekki
alvarleg, og hann hélt beint á
fund framleiðanda myndarinnar
um „Úlfsfót“.
Þegar stjórnendur kvikmynd-
arinnar sáu Duane Loken sögðu
þeir: „Við þurfum ekki að leita
lengur, - hér er Úlfsfótur
kominn!“
Duane Loken „Úifsfótur“
hefur þrisvar komið til Noregs,
og síðast sl. sumar. I þessari
þriðju ferð hans til heimalands
föður síns kom hann til Noregs
sem popp-stjarna. Hann ferðað-
ist með norskri hljómsveit í
mánuð og tróð upp víðs vegar.
Duane Loken varð frægur „á
einni nóttu“ eins og sagt er.
Það byrjaði í Svíþjóð þegar
Duane var þar á ferð 1980 til
þess að auglýsa sjónvarpsmyndir
sínar. Fólk stoppaði hann á götu
og vildi fá eiginhandaráritun
hans, og lá við að fötin væru rifin
utan af honum af aðdáendum.
Þá komu til sænskir spekúlantar
og sáu að þetta var réttur tími til
að notfæra sér þessa frægðar-
bylgju hans, og létu Duane
syngja eitt lag inn á plötu. Lagið
hér „Only Love“ og var eftir
tvær vikur komið á toppinn í
Svíþjóð. í sumar kom út stór
plata með söng hans og heitir
hún „Running Hot".
vidtal dagsins
,3ÁKÁHUGI SVÍd
EKN f ÚNNGU VIÐ
ÞAD SEM HÉR GERIST"
— rætt við sænsku skákkonuna Piu Cramling
■ Búnaðarbankamótið í skák
er komið í fullan gang. Eins og
venjulega þegar alþjóðleg skák-
mót fara fram á íslandi fyllast
áhorfendasvæði af mönnum sem
fylgjast stíft með sínum
mönnum, skákmenn á íslandi
þurfa ekki að kvarta yfir því að
í þrótt þeirra eða list sé sýnt
áhugaleysi. Nú hefur hins vegar
farið svo að einn útlendu kepp-
endanna hefur nánast stolið sen-
unni frá íslendingunum, það er
sænska stúlkan Pia Cramling.
Hún er eina konan meðal kepp-
enda og þegar þrem umferðum
er lokið er hún ein í efsta sæti
með2Vivinning. Hún vannJón
L. Árnason í 26 leikjum, gerði
jafntefli við Knezevic í annarri
umferð og vann Shamkovic í
þeirri þriðju, en þeir tveir síðar-
nefndu eru stórmeistarar og Jón
er stigahæstur allra íslenskra
skákmanna um þessar mundir.
„Jú ég er auðvitað hæst ánægð
með árangurin hingað til“, sagði
Pia, þegar blaðamaður spjallaði
við hana í gær, „hann er betri en
ég átti von á, því að þetta er
sterkasta mót sem ég hef tekið
þátt í. Jón L. tefldi veikt gegn
mér í fyrstu umferðinni, en í
skákinni við Skamkovic átti ég
við mörg vandamál að etja, þeg-
ar hann lék ónákvæmt og mér
tókst að ná frumkvæðinu.“
Þú stefnir auðvitað að sigri á
mótinu?
„Nei, það get ég ekki sagt, ég
er ánægð með hvern hálfan
vinning, sem ég fæ.“
Fari nú svo að þú verðir ekki
sigurvegari, hver heldurðu að sé
sigurstranglegastur?
„Það er erfitt að segja, en ég
álít de Firmian og Helga Ólafs-
son sigurstranglega. Og Alburt
að sjálfsögðu.
Hvenær byrjaðir þú að tefla?
Ég held ég hafi byrjað þegar
ég var 10 ára. Bróðir minn er
góður skákmaður, svo að þetta
er í fjölskyldunni. Faðir minn
teflir raunar líka, þótt hann sé
ekki sérlega sterkur.
■ Pia Cramling. Á borðinu fyrir framan hana er biðstaðan úr skák
hennar við Shamkovic, sem stórmeistarinn ákvað að gefa án þess að
tefla hana frekar. Tímamynd Róbert.