Tíminn - 31.01.1984, Side 22
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 19»4
Þjónn og meistari
frá Prag
ástarsögur: sögu Jakohsogsögu meistar-
■ Stúdentaleikhúsið: JAKOIt OG
MEISTARINN eftir Milan Kundera.
Þýöandi: Friðrik Rafnsson. Lcikstjóri:
Sigurður Pálssoii. i.eikmynd og búning-
ar: Guðný B. Riohrrds
I vandaöri leikskrá seuir aö Milan
Kundera sé einn uesu rithöiundur
Evrópu um þessar mundir. Hvað sem
því líöur er hér á ferö kunnáttusamur
höfundur, n því er enginn vafi. Hann er
Tékki, var se'oir í hann ofiir innrás
Sovétmanna l%8 og hraktist síðar úr
landi.til Parisar. Skommuelti. innrásina
samdi hann þetta leikrit, Jakob og
meistarann, upp úr frægri sögu frá
átjándu öld. Jakoh örlagatrúarmaður
eftir Diderot, franska fjölfræðinginn og
heimspekinginn.
Hvers vegna skyldi þetta verk Didcr-
ots hafa höfðað svo mjög til bannfærðs
höfundar í Tékkóslóvakíu 1968? í leik-
skrá er birt athyglisverð grein eftir
Kundera. Inngangur eða tilbrigði, þar
sem hann lýsir afstöðu sinni til verksins
sem hann kallar „tilbrigði til heiðurs
Diderot". Hann segist hafa reynt að ljá
gamanleik sínum þetta frelsi í forminu
sem skáldsagnahöfundurinn Diderot
fann upp en leikskáldið Diderot kynntist
aldrci.
Jakob og meistarinn eru á ferðalagi og
segja sögur. Þarna er um að ræða þrjár
ans sem eru samfellur. ou söbu Aldin-
fríðar markgreifynju. Kunder.i blandar
þessum sögum þremursaman, þæi veróa
tilbrigði hver við aðra. Og í leikinn er
kvaddur annar meistari, Diderot sjálfur
sem segir til um hvað eigi að gerast,
persónurnar vita sjálfar hvað þær skulu
segja samkvæmt boðinu sem út var gefið
í efra. Hins vegar hvarflar stundum að
þeim að meistarinn í efra sé vont skáld.
Jakob og mcistarinn er fyndið leikrit,
fullt af íróníu. Saga Diderots er skyld
Don Kíkóta og eóða dátannm Svejk,
einsogaöervikiö i fyrrnefndri leikskrár-
grein. Jakob er meistara smum jafnan
klókari. Hann er burðarás verksins.
Meistarinn er að vísu enginn Don Kík-
óti, en þeir geta ekki hvor án annars
verið frekar en riddarinn og skjald-
sveinninn í verki Cervantesar.
Jakob og meistarinn var ásjáleg og
haglega sviðsett sýning undir stjórn Sig-
urðar Pálssonar. Líklega hefur Stú-
dentaleikhúsið ekki fyrr ráðist í jafn
erfitt viðfangsefni og hér. Til að valda
gamanleik eins og Jakob og meistarinn
þarf í rauninni afburða-leikkrafta. Þeim
hefur Stúdentalcikhúv-ð að vísu ekki á
að skipa. En með útsjónarsemi leikstjór-
ans, næmieika a numor og þokka verks-
ins sjálfs tókst að búa til sýningu sem
hafa mátti ósvikna ánægþi af. Sviðs-
myndin í Tjarnarbæ er einföld og stíl-
færð að nútímahætti og búningar leik-
enda vel formaðir. Sýningin er mann-
rnörg og kröfuhörð til allra krafta leik-
hússins. Hér veltur mest á forustu leik-
stjórans og hún bregst ekki.
Helgi Björnsson er sá sem mest mæðir
á í hlutverki Jakobs. Hann er léttvígur
leikari, óefað álitlegur. Hins vegar var
hann of einhæfur í raddbeitingu og
framgöngu, ekki nógu útsmoginn til að
leika á alla strengi hlutverksins. Sama er
að segja um Arnór Benónýsson sem
mejstarann, og framsögn hans er greini-
lega ábótavant. Þessir tveir eru á sviðinu
allan tímann, báðir gervilegir menn, en
skortir reynslu til að skila hlutverkum
sínum samkvæmt þeim ströngu kröfum
sem verkið gerir. En þær er líklega
ósanngjarnt að reisa hér, og vissufega
var sitthvað vel um meóferð þeirra.
Af öðrum hlutverkum eru stærst hlut-
verk húsfreyjunnar á Stóra hirtinum,
Aldinfríðar markgreifynju, riddarans
Sankti Venna og Skramba yngra. Áslaug
Thorlacius var sköruleg húsfreyja og
það sópaði að Ingileifi Thorlacius sem
markgreifynjunni scm vefur markgreif-
anum um íingur sér í kvennamálum
hans. Hann fór Bjóm Kaiisson með og
hallaðist ekki á með þeim hjónum.
Kjartan Bjargmundsson var hæfilega
skoplegur riddari og Ari Matthíasson
heimóttarlegur í hlutverki Skramba
yngra. sem Jakob kokkálar án þess að
hann gruni neitt. Um aöra leikendur cr
tæpast ástæða til að ræða, en allir skiluðu
sínu eins og til stóð undir leiðsögn
leikstjórans.
Jakob örlagatrúarmaður er einn af
ódauðlegum þjónum heimsbókmennt-
anna. Milan Kundera hefur blásið í hann
nýju lífi. Hann segir í grein sinni í
leikskrá að síðustu: „Þjónninn og hús-
bóndi hans hafa þrammað í gegnum alla
nýöld Vesturlanda. í Prag, borg hinnar
miklu kveðju. heyrði ég hlátur þeirra
fjarlægjast. Af ást og í angist var mér
annt um þennan hlátur, líkt og manni er
annt um brothætta og hverfula hluti,
hluti sem eru dæmdir til að glatast." -
Þetta er nokkuð þunglyndislegt, ogólík-
legt þykir mér að þeir kumpánar, þjónn
og húsbóndi, glatist úr bókmenntunum í
bráð. - Hvað sem um það er hefur
Stúdentaleikhúsið leitt okkur fyrir sjónir
þessa franskættuðu félaga frá Prag. Þótt
sýningin sé ekki með ótvíræðum snilldar-
brag er hún nýr vottur þess hvar þessa
stundina er að finna góandann í leikhúsi
okkar.
Gunnar
Stefánsson ■ U i
skrifar
um leiklist
Óskað er eftir tilboðum í múrverk í hluta áfanga 2A Fjórðungssjúkr-
ahúss á Akureyri. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Reykjavík og hjá verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Glerárgötu
36, Akureyri, gegn skilatryggingu kr. 2.000.- og skal tilboðum skilað
til Innkaupastofnunar ríkisins eigi síðar en kl. 11.00 f.h. þriðjudaginn
7. febrúar n.k. og verða þá opnuð i viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUFASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 28644___
SNJ OMOKSTUR
Tökum aö okkur allan snjómokstur.
Bjóöum fullkomnar traktorsgröfur og
hjólaskónu.
Upplýsingar i sima lilU
Aðalfundur
Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda verður
haldínn í Gróubúð, húsi Slysavarnafélagsins
Grandagarði, laugardaginn 11. febr. n.k. kl. 2.
Stjórnin
Hestamenn
Maður óskast til tamninga og sauðfjárhirðingar.
Upplýsingar í síma 99-6931.
Andrews hitablásarar
fyrirgaseðaolíu
erufáanlegtrífjölmörgum
stærðumoggerðum
Algengustu gerðireru nú fytitiiggjandi
Skeljungsbúðin <
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
STERKASTI HLEKKURINN E H NÝIR KAUPENDUR (j HRINGIÐ! SÍMI 86300 ÍJuiJ / JM ILADiD rEMUR m hæl. mMr LWm
2-12-05
Kvikmyndir
SALUR 1
Frumsýnir stórmyndina
Daginn eftir
(The Day After)
Perliaps The Most
Important Rlm Evcr Made.
Heimslræg og margumtöluð stór-
mynd sem sett helur allt á annan
endann þar sem hún hefur veriö
sýnd. Fáar myndir hafa fengiö eins
mikla umfjöllun i pmiðlum, og
vakiö eins mikla athygli eins og
THE DAY AFTER. Myndin er tekin i
Kansas City þar sem aðalstöðvar
Bandaríkjanna eru. Þeir senda
kjamorkuflaug til Sovétríkjanna
sem svara i sömu mynt.
Aðalhlutverk: Jason Robards, Jo-
beth Williams, John Cullum,
John Lithgow.
Leikstjóri: Nicholas Meyer.
Sýnd kl. 5,7.30 og10
Ath. breyttan sýningartíma
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Hækkað verð.
SALUR2
’ Nýjasta James Bond
myndin
Segðu aldrei
aftur aldrei
Hinn raunverulegi James Bond
er mættur aftur til leiks i hinni
splunkunýju mynd Never say nev-
er again.
Aðalhlutverk: Sean Conrtery,
Klaus Maria Brandauer, Barbara
Carrera, Max Von Sydow, Kim
Basinger, Edward Fox sem „M“.
Byggð á sogu: Kevin McClory,
lan Fleming. Framleiðandi: Jack
Schwartzman. Leikstjóri: Irvin
Kershner. Myndin er tekin i
Dolbv Sterio.
Sýnd kl. 5,7.30 og 10
Ath. breyttan sýningartíma „
SALUR3
Skógarlíf
og jólasyrpa af
Mikka mús
Einhver'sú aifrægasta grínmynd
sem gerð hefur verið. Jungle Book
hefur allstaðar slegið aðsóknar-
met, enda mynd fyrir alla aldurs-
hópa. Saga eftir Rudyard Kipling
um hið óvenjulega líf Mowglis.
Aðalhlutverk: King Louie,
Mowgli, Baloo, Bagheera,
Shere-Khan, Col-Hathi Kaa.
Sýnd kl. 5 og 7.
Píkuskrækir
Djörf mynd. Tilvalin fyrir þá sem
klæðast f rakka þessa köldu vetrar-
daga. Bónnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 9og11
SALUR4
Zorro og hýra sverðið
Sýnd kl.5, 9 og 11
La Travíata
Sýnd kl. 7
Hækkað verð
Ath: Fullt verð í sal 1 og 2
Afsláttarsýningar í sal 3 og 4
i