Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984 3 Kirkja Óháða safnaðarins. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Óháða safnaðarins syngur. Jónas Þórir við orgelið. Baldur Kristjánsson. Árbæjarprestakall Barnasamkoma í safnaðarheimili Árbæjar- sóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í safnað- arheimilinu kl. 2.00. Félagsvist bræðrafélags Árbæjarsafnaðar á sama stað sunnudags- kvöld 11. marz kl. 20.30. Bingóskemmtun fjáröflunarnefndar Árbæjarsafnaðar í hátíð- arsal Árbæjarskóla, mánudagskvöldið 12. marskl. 20.30. Sr. GuðmundurÞorsteinsson. Áskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11.00 Guðsþjónusta kl. 2.00. Miðvikudaginn 14. marz kl. 20.30 föstumessa. Sr. ÁrniBergurSigurbjörnsson. Breiðholtsprestakall Laugardagur: Barnasamkoma kl. 11.00 í Breiðholtsskóla. Sunnudagur: Messa kl. 2.00 í Bústaðakirkju. Altarisganga. Organleikari Daníel Jónsson. Kaffisala kvenfélags Breið- holtssafnaðar í safnaðarheimili Bústaða- kirkju að lokinni messu. Sr. Lárus Halldórs- son. Bústaðakirkja Barnasamkoma kl. 11.00 sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir, Guðsþjónusta og fjár- öflunardagur Breiðholtssafnaðar kl. 2.00. Prestur sr. Lárus Halldórsson. Fundur kven- félags Bústaðasóknar verður í þetta sinn á fimmtudegi kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra miðvikudagkl. 2-5. Æskulýsfundur miðviku- dagskvöld kl. 20.00 en yngri deild æskulýðs- félagsins fimmtud. kl. 4.30. Bænastund á föstu miðvikudagskvöld kl. 20.30. Sóknar- nefndin. Digranesprestakall Laugardagur: Barnasamkoma í safnaðar- heimilinu við Bjarnhóiastígkl. 11.00. Sunnu- dagur: Guðsþjónusta í Kópvogskirkju kl. 2.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan Messa kl. 11.00. Dómkórinn syngur organ- leikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Þórir Stephensen. Messa kl. 2.00. Ævar R. Kvaran prédikar. Kristinn Þ. Sigmundsson, óperu- söngvari, syngur einsöng. Sr. Hjalti Guð- mundsson. Eftir messuna verður kaffisala kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar á Hótel Loftleiðum. Jónas Þórir leikur létt lög. Strætisvagnaferð frá kirkjunni og til baka. K.K.D. Laugardagur: Barnasamkoma að Hallveigarstöðum kl. -10.30. Sr. Agnes Sig- urðardóttir. Landakotsspítali Messa kl. 11.30. Organléikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. Elliheimilið Grund Messa kl. 10.00. Sr. Lárus Halldósson. Fella- og Hólaprestakall Laugardagur: Barnasamkoma í Hólabrekku- skóla kl. 2.00. Sunnudagur: Barnasamköma í Fellaskóla kl. 11.00. Guðsþjónusta í Menn- ingarmiðstöðinni við Gerðuberg kl. 2.00. Sr. Hreinn Hjartarson. Fríkirkjan í Reykjavík Sunnudaginn 11. marz: Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11.00 Guðspjallið í myndum. Bamasálmar og smábamasöngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega velkomin. Sunnudagspóstur handa börnunum. Fram- haldssaga. Við hljóðfærið Pavel Smid. Ferm- ingarbörn og foreldrar þeirra hvattir til að koma. Þriðjudagur 13. marz, föstuguðsþjón- usta í Fríkirkjunni kl. 20.30. Lesið úr píslar- sögunni og sungnir passíusálmar. Ágústa Ágústsdóttir syngur einsöng. Litania sr. Bjarna Þorsteinssonar. Organleikari Pavel Smid. Skartað hökli og altarisklæði frú Unnar Ólafsdóttur Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja Bamasamkoma kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Organleikari Árni Arinbjarnarson. Æskulýsfundur mánudagskvöld kl. 20.00. Almenn samkoma n.k. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímskirkja Laugardaginn 10. marz: Samvera fermingar- barna kl. 10 - 14. Sunnudagur 11. marz: Barnasamkoma og messa kl. 11.00. Börnin komi í kirkjuna og taki þátt í upphafi messunnar. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Kvöldmessa með altarisgöngu kl. 17.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kvöldbænir í kirkjunni alia virka daga föstunnar kl. 18.15 nema miðvikudaga. Þriðjudagur 13. mars: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum. Spilakvöld í safnaðarheimilinu kl. 20.30. Miðvikudagur 14. marz: Föstumessa kl. 20.30. Fræðslukvöld um trú, „Trúin á skaparann" dr. Einar Sigurbjörnsson talar. Umræður og kaffi. Landsspítalinn Messa kl. 10.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Háteigskirkja Laugardagur: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Sunnudagur: Messa kl. 11.00. Sr. Arngfimur Jónsson. Messa kl. 2.00. Sr. Tómas Sveins- son. Föstuguðsþjónusta miðvikudagskvöld 14. marz kl. 20.30. Sr. Tómas Sveinsson. Borgarspítalinn Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Tómas Sveins- son. NISSAN SUNNY COUPÉ Nissan Sunny — sólskinsbíllinn— er fáanlegur í 14 gerðum. Ein af þeim er Sunny Coupé fyrir þá ungu og ungu í anda. Sunny Coupé er sportlegur og rennilegur með 84 hestafla vél, framhjóladrifi og 5 gira eða sjálfskiptur. NISSAN SUNNY COUPÉ KR. 332.000,- NISSAN SUNNY FÓLKSBÍLL, 4 DYRA, KR. 315.000,- NISSAN SUNNY STATION KR. 331.000,- NISSAN CABSTAR Sendibíll á grind. Þögull vinnuþjarkur. WARTBURG PICKUP Sumt verða menn að sannreyna til að trúa. Eitt af því eru hinir frábæru aksturseiginleikar Wartburg. Er það aðal- lega að þakka sjálfstæðri gormafjöðrun á hverju hjóli, miðstyrktri grind og framhjóladrifi. VERIÐ VELKOMIN OG AUÐVITAÐ VERÐUR HEITT A KÚNNUNNI I: 2 INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560. Bílásýningar laugardag og sunnudag kl. 2-5. Í ÖNDVEGIVERÐA AÐ ÞESSU SINNI: NISSAN MICRA Bíllinn sem Ómar Ragnarsson sagði að væri nánast útilokað að fá til að eyða nokkru bensíni. Yfirskrift greinar Ómars í DV 29/12 um Micra var svona: „Fisléttur, fískur bensínspari sem leynir á sér." En Nissan Micra leynir ekki bara á sér því Micra er gullfallegur og svo hlaðinn aukahlutum að sumir verða að taka upp vasatölvuna til að geta talið þá alla. NISSANMICRAGL 263.000,- NISSAN MICRA DL 251.000,- Kársnesprestakall Laugardagur: Bamasamkoma í safnaðar- heimilinu Borgum kl. 11.00. Sunnudagur: Fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Kór menntaskólans í Kópavogi syngur íguðsþjónustunnni. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja Óskastund barnanna kl. 11.00. Söngur - sögur - leikir. Sögumaður Sigurður Sigur- geirsson Guðsþjónusta kl. 13.30. (Ath. breytan messutíma). Organleikari Jón Ste- fánson, prestur sr. Sigurður Haukur Guð- jónsson. Eldri sóknarbörn sem óska aðstoðar við að koma í kirkju láti vita í stma 35750 milli kl. 10.30 og 11 á sunnudögum. Sóknar- nefndin. Laugarneskirkja Laugardagur 10. marz: Guðsþjónusta Hátúni 10 B, 9. hæð kl. ll.oo. Sunnudagur: Barna- guðsþjónsuta kl. 11.00. Messa kl. 14.00. Altarisganga. Þriðjudagur, bænaguðsþjón- usta kl. 18.00. Sr. Ingólfur Guðmundsson. Neskirkja Laugardagur: Samverustund aldraðra kl. 15.00. Eggert G. Þorsteinsson fyrrverandi ráðherra kemur í heimsókn og spjallar að frjálsu vali. Einnig verður spilað bíngó. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Sunnudagur: Barnasamkoma kl. 11.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14.00. Orgel og kórstjórn Reynir Jónsson. Sr, Guðmund- ur Óskar Ólafsson. Mánudagur: Æskulýðs- fundur kl. 20.00. Fimmtudag: Föstuguðs- þjónusta kl. 20.00. Sr. Guðmundur Oskar Ólafsson. Seljasókn Barnaguðsþjónusta í Seljaskóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í Ólduselsskóla kl. 10.30. Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 14.00. Fundur æskulýsfélagsins þriðjudagskvöld kl. 20.00. í Tindaseli 3. Fundur í kvenfélagi Seljasóknar þriðjudagskvöld kl. 20.30. Sókn- arprestur. Seltjarnarnessókn Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Ungt fólk flytur tónlist. Helga Soffía Konráðsdóttir stud. theol. talar. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði Sunnudagaskólinn kl. 10.30. Æskulýðsguðs- þjónusta kl. 14.00. Jóhann Baldvinsson talar. Börn og unglingar lesa og sýna helgileiki. Safnaðarstjórn. Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudagaskóli kl. 10.30. Messa kl. 14. altarisganga. Séra Steinþór Ingason. Fíladelfíakirkjan: Safnaðarguðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður Lennert Johanson frá Kanada. Almenn guðs- þjónustakl.20. Einar J. Gíslason Auglýsing um styrki og lán til þýðinga á erlendum bókmenntum Á Alþingi 1981 voru samþykkt lög um þýðingarsjóð nr. 35/1981. Samkvæmt þessum lögum og reglugerð um þýðingarsjóö nr. 638/1982 er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna. Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi: 1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur. 2. Upplag sé að jafnaöi eigi minna en 1000 eintök. 3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum. 4. Eðlileg dreifing sé tryggö. 5. Útgáfudagur sé ákveðinn. Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1984 nemur 950 þúsund krónum. Stjórn þýðingarsjóðs skipa þrír menn, einn tilnefndur af Félagi íslenskra bókaútgefenda, einn af Rithöfundasambandi íslands og formaður af menntamálaráðherra án tilnefningar. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6,101 Reykjavík, og skulu umsóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 7. apríl n.k. Reykjavík, 7. mars 1984 Stjórn þýðingarsjóðs

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.