Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 14
14
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984
„Það ö" alveg sama hvað ég fer fram á
- Islendingar vílja allt fyrir mig gera”
— segir hollenska stúlkan Anneke Dekker, sem er eins konar móttökustjóri fyrir
Norðurlandabúa hjá hollenska fyrirtækinu Sunway, en hún var stödd hér á
landi í vikunni til þess að undirhúa heljarmikla Hollandskynningu í næstu viku
■ „Það er bókstaflega alveg sama hvað ég fer fram á, þegar íslendingar eiga í hlut, þeir vilja alit fyrir mig
gera,“ segir Anneke Dekker, framkvæmdastjóri þeirrar deildar hollenska fyrirtækisins Scandinavian Arctic
Sunway, sem hefur með móttöku Norðurlandabúa í Hollandi að gera, þegar ég hitti hana að máli í vikunni, þar
sem hún var að skipuleggja Hollenska daga á Hótel Sögu og í Háskólabíói, sem verða i næstu viku. Anneke
er svo brosmild og elskuleg í framkomu allri, að það er erfitt að ímynda sér að það séu eingöngu íslendingar
sem veita henni sérstaka þjónustu og fyrirgreiðslu þegar hún þarf á að halda, en Anneke fullyrðir að íslendingar
séu alveg sérstakir á þessu sviði.
Anncke hefur um margra ára skeið
starfað að ferðamálum, og sérhæft sig í
móttöku og þjónustu við Norðurlanda-
búai Hún var sex ár í slíku starfi í
London, og hefur nú síðan 1. september
sl. starfað við samskonar ferðamanna-
þjónustu í heimaborg sinni Amsterdam.
Fyrirtæki Annekc, Sunway, er stærsta
ferðaskrifstofan í Hollandi, sem selur
ferðir til Norðurlandanna, og Anneke
segir mér að Sunway bjóði upp á ferðir
til Finnlands, Noregs, Svíþjóðar, og
íslands.
„ísland er eitthvað sem er að vinna sér
sess nú. Við skipuleggjum ferðir til
Islands, og tökum á móti íslenskum
ferðamönnum í Hollandi. Það er ekki
meira en svona ár síðan að íslendingar
fóru að flykkjast til Hollands, og í
kjölfar þess, hefur áhugi Hollendinga
aukist mjög mikið á íslandi. Til dæmis
voru 3 kynningarsíður úm ísland í
bæklingi okkar sl. ár, en í ár eru þær 8.“
- Nú vannst þú m.a. við það þegar þú
starfaðir í London, að taka á móti
íslenskum ferðamönnum í London er
mikill munur fyrir þig að gfl'a slíkt hið
sama í heimaborg þinni Amsterdam,
eða er þetta ósköp keimlíkt?
„Það er ótrúleg fjölbreytni í þessu
starfi, og þar sem ég vann mikið með
■ „Island er eitthvað sem er að vinna sér sess
i Hollandi nú.“
■ „j London gat ég alltaf beitt leynilögreglu
hæfileikum mínum og sagt: Þetta er íslending-
ur...“
■ „En í Amsterdam gat ég það ekki lengur.
íslendingar og Hollendingar eru svo líkir".
■ „Landsmenn okkar vanmeta eigið land,
Holland".