Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 21

Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 21
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984 2SSSS& .UÍ«JN^ SSJÓO^* '^naU’iM- UTBOÐ RÍKISVÍXLA Ríkissjóöur íslands hefur ákveðiö aö bjóöa út ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæöi fjár- laga 1984 og meö hliðsjón af ákvæöum laga nr. 79/1983. Öllum er heimilt að bjóöa í víxl- ana. í boði verða víxlar aö nafnvirði samtals 30.000.000 kr. með útgáfudegi 21. mars 1984 og gjalddaga 21. júní 1984. Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og verður innleystur í Seðlabanka Islands á gjald- daga. Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af 10 víxlum (þ.e. nafnverð kr. 500.000) og heildartilboðsverð þeirra skal tilgreint í heilum hundruðum króna. Allir tilboðsgjafar skulu láta fylgja tilboði sínu gjaldkeratékka, þ.e. tékki sem gefinn er út af innlánsstofnun sem tilboðs- tryggingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð kr. 10.000,00 og stílaðurá Seðlabanka íslands v/ríkisvíxlaútboðs. Gangi tilboðsgjafi frá til- boði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann fjárhæð- inni, ella gengur hún upp í ríkisvíxlaviðskipti viðkomandi aðila eða verður endursend sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem ekki fylgir greind innborgun, skal meta ógilt. Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru: Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyrissjóðir, sem viðurkenndir eru af fjár- málaráðuneytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru af Tryggingaeftirliti ríkisins. Tilboð má senda á sérstökum eyðubloðum sem fást í Seðlabanka. Tilboðin berist lána- deild Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 19. mars 1984 og séu sérstaklega merkt með orðinu "Ríkisvíxlar". Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað- festu símskeyti, og skulu þau berastfyrirsama tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu- leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið. Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lána- deild Seðlabankans fyrir kl. 14.00 hinn 19. mars 1984. Tilboðsgjöfum verður tilkynnt fyrir kl. 16.00 hinn 20. rpars 1984, hvorttilboðum þeirra hef- ur verið tekið eða hafnað. Ríkissjóður áskilur sér rétt til að birta.gild til- boð án vísunartil nafnstilboðsgjafa. Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn geymi víxlana. Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar. Reykjavík, 9. mars 1984 RIKISSJOÐUR ÍSLANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.