Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984 7 yfir honum. Sjálfur hafði hann líklega mestar mætur á „Niflungahringnum" og „Aidu“, sem hann söng mjög oft í. Voru j>að ekki mikil viðbrigði að koma til Islands? „Jú, það voru auðvitað mikil umskipti, því við komum frá stórborg þar sem allt sfóð manni til boða, en héma var lítið um að vera. Ég var dálítið hissa á mörgu hér fyrst, en það vandist. Nei, ég held að Pétur hafi ekki kunnað umskiptunum illa. Það var orðið meira en mál til komið að við færum frá Þýskalandi. Ástandið var .orðið þannig þá, Pétur fór að vinna hjá Rafmagn- sveitu Reykjavíkur og það voru mjög lág laun sem hann hafði. En han fór að taka nemendur og kenna söng og það hjálpaði mikið. Pétur lést þann 14. apríl árið 1956 og margt hefur orðið til þess að mér hefur gengið vel að spjara mig einni og nú býr Margrét dóttir mín hérna í grennd við mig og er mér mikil stoð. Af eldri börnunum er það að segja að Per er orðinn doktor í landbúnaðarfræðum, einkum sögu danskrar svínaræktar og starfar að líffræðirannsóknum á svínum en Erika býr í Kanada ásamt manni sínum Skúla Jóhannssyni. Dóttir þeirra er listfræðingur að mennt og hefur að auki eignast veitingastað sem hún sjálf rekur. Auðvitað höfum við mikið og gott samband við bæði hana og Per. Já, það er aldarafmæli Péturs á þessu ári og ég hef heyrt að Þjóðleikhúsið ætli að heiðra minningu hans með því að helga honum einhvem ákveðinn stað í húsinu og vissulega finnst okkur gott að vita til þess.” ■ Skyndrteikning frá árinu 1919. Við hvílum Karen nú á spurningum okkar um stund og spyrjum Margreti hvemig það hafi verið að eiga þennan þekkta mann að föður. Langaði hana ekki sjálfa til þess að verða söngkona? „Pabbi reyndi að segja mér dálítið til í söng, en ég held að mér hafi aidrei dottið í hug að leggja út á þá braut. Mér fannst ég aldrei hafa þá rödd sem mér fannst ég þurfa að hafa sem dóttir Péturs Á. Jónssonar. Jú, ég man vel eftir honum er hann söng opinberlega við ýmis tækifæri og ég var satt að segja hálf feimin við að vera með honum, því hann var svo áberandi sem nærri má geta. Hann var alltaf ákaflega fjörugur og léttur, lék á als oddi. Einu sinni þegar hann var að syngja í Hljómskálagarðinum héldu menn víst að hann hefði fengið sér neðan í því, svo kátur var hann. Hann átti þó til að smakka vín, en alltaf í mesta hófi. Ég man eftir því að þegar ég fermdist bauð hann mér bæði sherry og sígarettu. Hann varð ákaflega ánægður þegar ég sagði „nei“, en hann vildi greinilega að ég veldi sjálf hvað ég vildi. Ég man auðvitað ekki eftir ópemsöng hans úti í löndum, en eins og móðir mín minntist á þá naut ég góðs af vinum þeim sem hann eignaðist þar ytra, einkum kaþólska prestinum Georg. Ég hitti hann í Bandaríkjunum þegar ég fór þangað árið 1948 og hann tók mér með kostum og kynjum, sýndi mér söfn og menningarstofnanir í Washington og í New York og fór með mig á veitingast- aði. Þá hafði hann þó alltaf einhverjar konur með sér auk mín. Hann kom hingað árið 1959 og aftur síðar. Þá bjó ég á ísafirði og hann langaði til að heimsækja mig þangað, en veðrið var þá þannig að það var ekki hægt. Þá var Georg um nírætt. „Ég á sjálf tvær dætur og býr önnur í Kaupmannahöfn og hin í Gautaborg". - AM. itnrnm ÁBURÐARDREIFARAR úrvalið er hjá Globus Áburðardreifarar Kaup á tilbúnum áburði, er einn stærsti útgjalda- liður á hverju búi. Það er því ekki úr vegi að benda á nauðsyn þess að velja vandaðan VICON áburðardreifara til að dreifa áburðinum í vor. VICON dreifararnir eru fáanlegir í þrem stærðum: 300 kg. 600 kg. og 800 kg. Allir VICON dreifararnir eru búnir sem hér segir: Stillanleg dreifibreidd, frá 6-12 m. (Dreifir fræi). Öflugur hrærari í botni. Hverjum dreifara fylgir reiknistokkurtil nákvæmra útreikninga á áburðarmagni pr. ha. Hleðsluhæð er ótrúlega lág, aðeins 90-100 cm. Allir hlutir dreifarans, sem koma í snertingu við áburðinn eru úr ryðfríu efni. Verð: 300 kg. kr. 13.900.- 600 kg. kr. 25.100.- 800 kg. kr. 28.400.- Berið saman verð og gæði Rúmtak 4,2 rúmm. - Stór flot-dekk Stærð: 13,5/75x17 Þessir fjölhæfu mykjudreifarar hafa verið seldir yfir 20 ár á ísiandi, við sívaxandi vinsældir. Hann dreifir öllum tegundum búfjáráburðar, jafnt lapþunnri mykju, sem harðri skán. Og nú eykur þessi nýi stóri enn afkastagetuna. Verð aðeins kr. 81.000.- Eigum einnig fyrirliggjandi HOWARD Spr. 105 2,6 rúmm. Verð aðeins kr. 67.000.- Lásby mykjudreifarinn og haug- dælan eru ódýrustu tæki sinnar tegundar á markaðnum! Við hjá Glóbus völdum mykjudreifara og haugdælur frá danska fyrirtækinu Lásby eftir að hafa aflað tilboða og upplýsinga frá yfir fjörutíu framleiðendum slíkra tækja. Það sem réði úrslitum var þetta: - Lásby-tækin eru mjög vel smíðuð og einföid að allri gerð. - Lásby-mykjudreifarinn er á stórum dráttarvéladekkjum. - Lásby-tækin eru á sérlega hagstæðu verði. - Lásby-tækin hafa reynst frábærlega vel í Danmörku, - t.d. notar þriðji hver danskur bóndi Lásby-mykjudreifara. 4000 lítra Lásby-mykjudreifarar eru fyrirliggjandi, stærri tanka útvegum við með stuttum fyrirvara. Verð kr. 84.000.-. Góðir greiðsluskilmálar. Haugdæla sem afkastar 5-8000 lítrum á mínútu. Verð kr. 57.000.-. Góðir greiðsluskilmálar. Nýju tækin eru til sýnis í sýningarsalnum að Lágmúla 5. VfHOWARD 1550 Stóri mykjudreifarinn Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar nánari upplýsingar um verð og greiðslukjör. Globusn LÁGMÚLI 5, SlMI 81555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.