Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 10

Tíminn - 11.03.1984, Blaðsíða 10
10 Tor Ulset: Tvær bækur DAGS SOLSTTAD Dag Solstad, einn af umdeildustu og mest lesnu rithöfundum í Noregi um þessarmundir er væntanlegur tilíslands i næstu viku ogmun m.a. lesa upp úr verkum sínum í Norræna húsinu, í tengslum við kynningarfsem sendi- kennarar í norrænum málum við Háskóla íslands gangast fyrir um þessar mundir, á rithöfundum í heimalöndum þeirra. Norski sendikennarinn á íslandi, Tor Ulset sendi- kennari í norsku hefur skrifað þá kynningu á Dag Solstad sem hér fer á eftir, en þess má geta að skáldsaga Solstads, „Gymnasilærer Pedersens beretning om den store politiske vekkelsen som har hjemsökt várt land,“ var lögð fram afhálfu Noregs í samkeppninni um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir ) tveim árum. Allir munu geta tekið undir það að Dag Solstad er sá norskur rithöfundur sem hvað skýrast hefur haslað sér völl vinstra megin í norskri bókmennta- umræðu síðustu 10-15 árin. Eftir að hann með skáldsögu sinni, Arild Asnes, 1970 stillti sér upp við hlið hins marx-len- iníska flokks, APK-(ml) hefur allt sem hann hefur sent frá sér orðið tilefni umræðna, oft á tíðum bæði ákafra og ástríðufullra. í þessu sambandi verða lesendur að hafa í huga að pólitísk staða APK-(ml) á sér enga hliðstæðu á hinum Norðurlöndunum. Það er talið að um 10.000 Norðmenn hafi gengið þessari hreyfingu á hönd. Flestir þeirra voru menntamenn, sem höfðu tekið mikinn þátt í baráttunni gegn Viet-Nam stríðinu og sáu það samfélag sem var að byggjast upp í Kína Maos, það eina sem hægt væri að sætta sig við. Takmarkið var - þótt það væri ekki í sjónmáli - að koma slíku þjóðfélagskerfi á í Noregi með vopnaðri byltingu. Tíu árum eftir að Arild Asnes kom út gefur Dag Solstad lýsingu á, eða réttara sagt gerir upp við þann pólitíska grund- völl sem hann hefur byggt rithöfundar- feril sinn á. Það gerir hann í bókinni „Gymnasilærer Pedersens beretning om den store politiske vekkelsen som har hjemsökt várt land,“ eða „Frásögn Pe- dersens menntaskólakennara um þá miklu pólitísku vakningu sem hefur heimsótt land okkar.“ Nú er tœkifœrið Gefið konunni pels. nýir glœsilegir pelsar á vœgu verði Upplýsingar í síma 91-78587 Drögum vel úr ferö við blindhæðir og brýr. GÓÐAFERÐ! ^111)^110^11 RAÐ ‘ SÚNNÚDAGUR 11. MARS 1984 ■ Dag Solstad, t.h. tekur við verðlaunum Samtaka norskra gagnrýnenda árið 1969 fyrir bók sína Irr. Gront. Pedersen menntaskólakennari Við hittum fyrir ungan (þrítugan) menntaskólakennara, Pedersen að nafni, sem sest að í Larvik, þarsem hann gerist menntaskólakennari. Kynni hans og eftirlætisnemanda hans, Werner Ludal, verða til þess að Pedersen gengur til liðs við hinn róttækasta hinna kommúnistísku flokka, APK-(ml). Breytingunni á hinum pólitísku högum hans fylgja breytingar á einkahögum hans. Hann giftir sig, eignast son, og skilur síðan við eiginkonu sína. Á bak við þá ákvörðun stendur ung og fögur kona, læknir að mennt, Nina Skátöy, sem kemur til Larvíkur frá Osló. Hún segir skilið við læknisstarfið og byrjar að vinna í verksmiðju, gerist verkamaður af eigin hvötum, sem ekki var óaigengt meðal norskra menntamanna á 8. ára- tugnum. Ástarsamband þeirra fær jafn dramatískan endi sem upphaf. Eftir að hafa tekið það upp til umræðu á ársþingi APK-(ml) á Vestfold, sem haldið var á yfirgefnu tjaldstæði í Svíþjóð af ótta við norsku leyniþjónustuna, vill hún ekki lengur hafa neitt með hann að gera. í staðinn tekur hún upp samband við raunverulegan verkamann, Jan Klástad, sem er afar mikilvæg persóna í sögunni. Þar sem hann hefurekki þjóðfélagslegan bakgrunn menntaskólakennarans eða læknisins, verður hann ímynd hins sanna verkamanns. En eftir að hinir fyrstu eldar hinnar miklu vakningar hafa brunnið, virðist svo sem allt það starf, sem „vöku- mennirnir" hafa lagt á sig af fúsum og frjálsum vilja fái engan hljómgrunn innan þess samfélags sem þeir vilja bylta. Það eru haldnar ræður, haldnir fundir, safnað fé til verkfallsmanna, en árangurinn lætur bíða eftir sér. Sú staðreynd bitnar á samheldni hópsins og innviðirnir byrja að bresta. Sorglegasta fórnarlambið er Nina Skátöy. Eftir að hún hefur ákveðið að fórna öllu fyrir áhrif meðal verkamanna og þá einkum verkakvenna, verður hún þess vör að vinnufélagar hennar á vinnustað hafna henni. Henni er sýnd tortryggni og hún kemur engu til leiðar. Endirinn verður sá að hún styttir sér aldur. Starfið í flokknum breytir hins vegar engu um samfélagsstöðu Pedersens. Hann hefur haldið áfram að starfa sem menntaskólakennari. Hann sækir aðeins félagsskap til verkamanna með því að umgangast þá í stað vinnufélaganna á kennarastofunni. Það verður honum því áfall þegar Werner Ludall dregur sig út úr flokknum og gengur til liðs við flokk jafnaðarmanna. Þótt menntaskólakenn- arinn sé í öllum meginatriðum sammála því sem Ludall telur Jafnaðarmanna- flokknum til gildis vill hann ekki stíga sama skref sem hann. Hann getur það einfaldlega ekki. Þannig er þessi saga uppgjör við flokk, sem hefur leikið sitt hlutverk til enda. f umræðum um bókina í Noregi er gjarna spurt; nær þetta uppgjör til þeirra beggja, Dags Solstad og Pedersens kennara. Jafnvel þótt þessar tvær per- sónur eigi margt sameiginlegt svo sem auðvelt er að benda á, er „Frásögn Pedersens..." ekki sjálfsævisaga. Hún er heldur ekki raunsæisleg saga út í gegn. Á einum stað segir til dæmis frá því, þegar meðlimir í APK-(ml) í Vestfold hjóla yfir sjóinn til sumarbúða Háöya. Á 20. öldinni geta þeir sem hafa bjargfasta trú á „hinni miklu pólitísku vakningu" hjólað á vatninu sem meistar- inn gekk á, en Dag Solstad, - varla. Það er mögulegt að halda fram ein- hverju í þá átt að með þessari bók hafi Dag Solstad komið fram með drepandi gagnrýni á byltingarvakninguna í Noregi í fyllingu tímans, en það væri ekki sanngjarnt að ætlast til að hann þar með segði skilið við pólitíska lífsskoðun sína með því að reka hnífinn í eigið bak, ef svo má að orði komast. Bæjarrölt Síðasta bókin sem komið hefur frá Dag Solstad nefnist Sleng pá byen, sem kalla mætti Bæjarrölt á íslensku (Guð- jóni á Þjóðviljanum þakka ég fyrir lánið á nafninu, þýð.) og þótt merkilegt megi virðast er hún eitt af því fyrsta sem hann skrifaði. Bókin er safn smágreina frá því er höfundurinn vann sem afleysingamað- ur við blað í Arendal 1962. Til viðbótar við sín daglegu störf sem blaðamaður var hann umsjónarmaður fasts dálks, þar sem staðarmálefni skyldu tekin fyrir. Þessar smágreinar, - 103 að tölu,eru nú allar gefnár út í bók og spyrja má hver meiningin sé með því að safna þeim saman í bók nú. Á það er bent að hér geti að líta fyrstu skref Dags Solstad á rithöfundarferlinum. Og það fer ekki hjá því að menn kannist við marga drætti sem eru einkennandi fyrir seinni verk hans. Eftirtektarsemina, ríkt auga fyrir smáatriðum, hárbeytta kaldhæðnina og síðast en ekki síst fyndnina. Lesandinn getur gert sér í hugarlund að höfundurinn kunni stundum að lenda í vandræðum með að fylla dálkinn, það er ekki svo margt sem hendir í bæ eins og Arendal, sem liggur nánast í dvala yfir vetrarmánuðina og vaknar svo til iðandi lífs nokkra sumarmánuði með ferðamannástraumi meðan á sumar- leyfum stendur. En einmitt þar sem bæjarmálefnin lýsa með fráveru sinni í dálkum Solstads, verður líkingin prósa- safninu Svingstol snúningsstóll frá 1967 augljós. Dæmi: Við höfðum höfuðverk í gær. Það er uppörvandi. Það er nefnilega ekki hægt að hafa verk í tómarúmi. Veðrið hefur alltaf verið kærkomið umræðuefni manna. Það er talað um veðrið, hvernig það er og hvernig það muni verða. En fólk talar ekki um hvernig veðrið var, nema það hafi verið einstaklega gott eða slæmt. Það gerir Dag Solstad hins vegar og kemur að efninu úr kaldhæðnislegri fjarlægð: Við ætluðum að skrifa svolítið um veðrið í gær. En við vitum bara ekki hvað við getum sagt um það. Var kalt eða heitt. Við gengum um bæinn í sólskininu í gær og fundum að sólin vermdi og við hugsuðum að nú væri sumarið að koma og við ætluðum að flýta okkur upp á ritstjórn til að geta orðið fyrstir með þessa stórkostlegu frétt. Jæjá, - hvernig er best að segja það, allt í einu var ekki lengur hlýtt. Það var nánast kalt, við skulfum og okkur var kalt og við fórum að hugsa um stúlkur, og svo byrjaði að rigna í ofanálag. Svo að við vitum ekki hvað við ættum að skrifa um veðrið, en það gerir ekkert til því að við erum þegar búnir að skrifa heilmikið um það eins og sjá má.“ (s. 95-96). Það ber við að það er ekki bara lesandinn sem fær á tilfinninguna að höfundinn skortir efni til að skrifa um. Eftir að hafa fjallað lítillega um hvíta- sunnuna, símkerfið, nýja skó, barna- vagna, og fleira segir SoDa, en þannig merkti Solstad greinar sínar: „Nú höfum við ekkert til að skrifa um og það getur oft verið gaman að skrifa um það. En hvenær sem við höfum skrifað eða munum skrifa um ekki neitt, skrifum við ekki um neitt heldur um eitthvað. Það er rökfræði.“ Það sem gerir „Bæjarrölt” svo mikils virði fyrir hinn almenna lesanda er að bókinni fylgir ítarlegur eftirmáli eftir Jan Erik Wold. Þar er gefið yfirlit yfir þrjú höfuðtímabil á ferli Solstads, 7. áratuginn, þegar hann gerði tilraunir og þreifaði fyrir sér, pólitíska tímabilið á 8. áratugnum og loks hin nýja afslappaða hlið á honum sem kemur fyrst fram í Pedersen menntaskólakennara. Það er þess vegna engin tilviljun að Bæjarrölt kemur út árið 1983. Þótt bókin sé skrifuð 1962 bendir hún fram á við til þess sem einkennir höfundinn nú eftir 1980. En útkoma hennar er jafnframt til vitnis um glaðlegra andrúmsloft í verkum Dags Solstad í næstu framtíð. Viðhlökkum til. JGK snéri úr norsku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.