Tíminn - 11.03.1984, Page 21
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984
2SSSS&
.UÍ«JN^
SSJÓO^*
'^naU’iM-
UTBOÐ
RÍKISVÍXLA
Ríkissjóöur íslands hefur ákveðiö aö bjóöa út
ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæöi fjár-
laga 1984 og meö hliðsjón af ákvæöum laga
nr. 79/1983. Öllum er heimilt að bjóöa í víxl-
ana.
í boði verða víxlar aö nafnvirði samtals
30.000.000 kr. með útgáfudegi 21. mars 1984
og gjalddaga 21. júní 1984.
Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og
verður innleystur í Seðlabanka Islands á gjald-
daga.
Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af
10 víxlum (þ.e. nafnverð kr. 500.000) og
heildartilboðsverð þeirra skal tilgreint í heilum
hundruðum króna. Allir tilboðsgjafar skulu
láta fylgja tilboði sínu gjaldkeratékka, þ.e. tékki
sem gefinn er út af innlánsstofnun sem tilboðs-
tryggingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð
kr. 10.000,00 og stílaðurá Seðlabanka íslands
v/ríkisvíxlaútboðs. Gangi tilboðsgjafi frá til-
boði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann fjárhæð-
inni, ella gengur hún upp í ríkisvíxlaviðskipti
viðkomandi aðila eða verður endursend sé
tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem ekki
fylgir greind innborgun, skal meta ógilt.
Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru:
Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir,
lífeyrissjóðir, sem viðurkenndir eru af fjár-
málaráðuneytinu, og tryggingafélög, sem
viðurkennd eru af Tryggingaeftirliti ríkisins.
Tilboð má senda á sérstökum eyðubloðum
sem fást í Seðlabanka. Tilboðin berist lána-
deild Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101
Reykjavík, fyrir kl. 14.00 19. mars 1984 og séu
sérstaklega merkt með orðinu "Ríkisvíxlar".
Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað-
festu símskeyti, og skulu þau berastfyrirsama
tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu-
leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið.
Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða
hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting
eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lána-
deild Seðlabankans fyrir kl. 14.00 hinn 19.
mars 1984.
Tilboðsgjöfum verður tilkynnt fyrir kl. 16.00
hinn 20. rpars 1984, hvorttilboðum þeirra hef-
ur verið tekið eða hafnað.
Ríkissjóður áskilur sér rétt til að birta.gild til-
boð án vísunartil nafnstilboðsgjafa.
Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið
verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl.
14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir
eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema
þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn
geymi víxlana.
Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án
þóknunar.
Reykjavík, 9. mars 1984
RIKISSJOÐUR ÍSLANDS