Tíminn - 11.03.1984, Side 4

Tíminn - 11.03.1984, Side 4
4 SUNNUDAGUR 11. MARS 1984 PÉTURLJÓNSS 0 ^ I ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Péturs A. Jónssonar. Helgar- Tíminn rifjar hér upp nokkra þætti frægðarferils stórsöngvarans ■ Enn bregður Ijóma yfir andlit margra þegar nafn Péturs Á. Jonssonar, óperusöngv- ara ber á góma. Þeir sem muna eftir söng hans hér heima hin síðari ár hans minnast Ijóðrænnar hetjuraddar hans með töfrandi sönggleði, karlmannlegum þrótti og drama- tískum krafti hins mikla söngvara. Sjálfsagt eru þeir teljandi á fingrum annarrar handar íslensku söngvararnir sem náðu slíkri frægð og áliti og hann, en Pétur söng í áratugi í óperum í Þýskalandi og þá einkum í óperum Wagners, sem eru hinar erfiðustu fyrir söng- vara. Á þessu ári eru 100 ár liðin frá fæðingu Péturs Á. Jónssonar, en hann var fæddur þann 21. desember 1884. Það er því vel við hæfi að rifja hér upp frægðarferil hans, þótt stiklað verði á stóru. Á óperusviði i Bremen. Fullu nafni hét hann Pétur Árni Jóns- son og var fæddur í Reykjavík, sonur hjónanna Jóns Árnasonar, kaupmanns og konu hans Júlíu Bjarnasen,- Foreldrar Jóns kaupmanns voru Árni Einarsson á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum, nafnkunnur atorkumaður og alþingis- maður og kona hans Guðfinna dóttir séra Jóns Austmanns. Foreldrar Júlíönu voru Pétur Bjarnasen, verslunarstjóri í Vestmannaeyjum og kona hans Jóhanne Rasmunssen, dóttir dansks skipstjóra. ■ í hlutverki „THstans". „Slíkur var allur hans persónuleiki og glæsileiki” — segir Magnús Jónsson, óperusöngvari, sem var nemandi * Péturs A. Jónssonar ■ Magnús Jónsson, óperusöngv- ari var einn margra nemenda Péturs Á. Jónssonar og er ásamt Guðmundi Jonssyni óperusöngvara, sá þekkt- asti þeirra. Við hríngdum til Magn- úsar og báðum hann að segja okkur frá kynnum af Pétrí á námsárunum. „Já, mér er alveg sérstaklega Ijúft að ræða um Pétur Á Jónsson," sagði Magnús. „Það hefur verið á árunum 1948-1950 sem ég lærði hjá honum og það verð ég að segja að hann ásamt Stefáni íslandi var sá besti kennari sem ég nokkru sinni hef haft. Ég á honum afskaplega mikið að þakka og ég held að Guðmundur Jónsson mundi segja það sama. Um kynnin af Pétri erþað í stuttu máli að segja að hann var stórkostlegur maður, slíkur var allur hans persónuleiki og glæsileiki. Þeta var töfrandi maður. Þótt fólk hlusti á hann af plötu, þá er það ekki nema brot af því hver hann var sem söngvari. Þótt röddin væri stórkostleg, þá var það framkoman og glæsimennsk- an sem hreif fólkið svo ákaflega. Ég lærði svo ótalmargt af honum, þar á meðal það að menn geta verið nervösir, þótt þeir séu gamalreyndir stórsöngvar- ar. Það var þegar við Guðmundur og Bjarni Bjarnason, læknir, héldum kons- ert með honum á 65 ára afmælinu hans. Við tókum leigubíl niður í Gamla bíó og komum við hjá Pétri, til þess að taka hann með. Sjálfur var ég auðvitað ógur- lega nervös, en varð geysilega hissa, þegar ég komst að því að Pétur var það líka, - þessi veraldarvani maður. En þetta kom mér til góða og síðan vissi ég það að þótt menn verði reyndir söngvar- ar aukast bara kröfurnar sem þeir gera til sín og þeir geta því verið nervösir sem áður. En ég þarf ekki að taka fram að um leið og Pétur var kominn upp á sviðið, þá átti hann húsið og heillaði áhorfendur gjörsamlega að vanda. Pétur fylgdist með mér alla tíð meðan hann lifði, skrifaði mér og gaf mér holl ráð og þótt ég væri miklu yngri maður eignaðist ég vináttu hans. Það var mér mikils virði. Ég held að hann hafi fylgst á sama hátt með Guðmundi og stundum sögðum við í gamni að að við værum svo samrýmdir, þar sem við vorum allir Jónssynir. Pétur kynntist líka foreldrum mínum og heimili og kom oft heim og síst eftir að hann varð blindur, en Pétur fékk hjá okkur saltkjöt og baunir, ekki var blindur hin síðustu árin. ■ Þrír ungir nemendur ásamt meistara sinum, Pétri Á. Jónssyni, óperu- söngvara. Ungu mennimir eru þeir Guðmundur Jónsson, óperusöngvari, Bjarni Bjarnason, lasknir og Magnús Jónsson, óperusöngvarí. Nú er ég að kenna ungum nemendum við söngskólann og ég hef orðið furðu lostinn þegar ég hef komist að því að margir þeirra þekkja ekki Pétur Á. Jónsson, þótt þeir þekki vel ýmsa er- lenda söngvara. Það sýnir okkur að það er sannarlega mál til komið að skrifuð sé íslensk tónlistarsaga“. AM ■ Árið 1911 fór Pétur með dönskum stúdentakór til Bandaríkj- anna. Hér er hann ásamt ameriskrí mill jónaradóttur, miss Ohlson á Mð- inni vestur um haf. i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.