Tíminn - 11.03.1984, Page 15
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984
íslenskum ferðamönnum í London, þá
koma oft upp hinar skemmtilegustu
kringumstæður á flugvellinum, Schiphol
í Amsterdam, þegar ég tek á móti
íslendingum. Til dæmis gerist það oft að
fólk stoppar hjá mér horfir á mig og
segir: „Hvað í ósköpunum ert þú að gera
hér?“ og ég svara „Ég vinn hérna" og fæ
svar til baka „En þú átt að vera í
London." Þetta er oft mjög skemmtilegt,
einkum vegna þess að ég hef kynnst svo
mörgum Islendingum á liðnum árum að
þegar ég er hér á landi, skrepp í
Broadway eðá á einhvern annan
skemmtistað, þá heyri égsömu upphróp-
anirnar: „Hæ, hvað ert þú að gera hér.“
Það er skemmtilegt að kynnast íslend-
ingum, þó að þeir geti oft á tíðum látið
mann fá yfrið nóg að gera. íslendingar
eru svolítið sér á parti, eða það fannst
mér alltaf. Ég man þegar ég vann í
London, og var kannski á göngu um
miðborgina, þá gat ég alltaf sagt til um
það hverjir væru íslendingar án þess að
heyra í þeim - ég einfaldlega sá það, þeir
skáru sig úr. Þegar ég svo kom aftur til
Amsterdam og hugist beita leynilög-
regluhæfileikumínum, sem voru svo til
óskeikulir, þá einfaldlega tókst það ekki
lengur. Ég gat ekki bent á mann og
fullyrti að þar væri íslendingur á ferð-
inni. íslendingar og Hollendingar eru
einfaldlega miklu líkari þjóðir en íslend-
ingar og Englendingar. Þar er ég ekki
eingöngu að tala um útlitið, heldur
lífsmáta og skoðanir. Við erum fremur
hlédrægir, a.m.k. til að byrja með, en
þegar okkur fellur við einhvern, þá
hverfur hlédrægnin líka á augabragði og
eru mjög~ Jákvæðar. Það er reynt að
tengja þetta því, í fréttum og freftaskýr-
ingum, að 1982 hafi Arnarflug hafið
áætlunarflug til Amsterdam , og síðan
hafi fjöldi Islendinga á faraldsfæti í
Hollandi aukist jafnt og þétt.“
- Hvernig hefur þú skýrt það að
íslendingar í svo auknum mæli hafi sótt
land ykkar heim?
„Nú, við byurjum nú á því að segja
okkar eigin landsmönnum að þeir van-
meti landið okkar Holland. íslendingar
sæki okkur heim því þeir hafi komist að
raun um að Hollendingar séu vingjarn-
legt og elskulegt fólk, Holland sé mjög
miðsvæðis, og því auðvelt aðferðast um,
og komast til margra þekktra staða,
enginn eigi í erfiðleikum með að tjá sig
á ensku, því svo til allir Hollendingar tali
ensku og auk þess hafi hið frábæra
sumar í fyrra, en veðrið var beinlínis
stórkostlegt allt sumarið, orðið til þess
að íslenskir ferðamenn sem voru hjá
okkur hafi farið heim til íslands með
nýja og jákvæðari mynd af landi okkar í
huga sér, en þeir höfðu áður. Síðasta ár
fóru um 6 þúsund íslendingar um
Holland, án þess þó að dveljast allir í
Hollandi. Um 3 þúsund íslendingar
dvöldu í sumarhúsum, og hin 3 þúsundin
komu til Amsterdam, dvöldu í hótelum,
fengu sér bílaleigubíl og þar fram eftir
götum, en eftir því sem við komumst
næst var heildarfjöldi íslendinga um 6
þúsund á liðnu ári og við gerum okkur
meira að segja vonir um að fjöldinn frá
íslandi á þessu ári verði meiri, og höfum
það fyrir okkur í þeim vonum að pantan-
ir nú þegar eru orðnar ótrúlega miklar,
þú vilt, þannig að það er engin þörf á því
að hvolfa í sig, áður en lokað verður. Þú
getur hvenær sem er fengið það sem þú
vilt að drekka."
- Heldur þú að fjölgun íslenskra
ferðamanna í Hollandi muni hafa þau
áhrif að fjölda hollenskra ferðamanna á
Islandi fjölgi verulega á næstunni?
„Eg er ekki svo viss um að bein tengsl
séu eða verði þar á milli, en það er hins
vegar staðreynd að áhugi Hollendinga á
íslandi fer vaxandi nú, eins og reyndar
áhugi Hollendinga á öllum Norðurlönd-
unum. Við erum með út um allt Holland
nú fram á vorið sýningar frá Norðurlönd-
unum í öllum stærstu borgum og bæjum
Hollands. Þar sýnum við bæði slides-
myndit og kvikmyndir frá Finnlandi,
Noregi, Svíðþjóð og íslandi. Við erum
nýbyrjuð með ísland í þessum kynning-
um, og við finnum að áhuginn á landinu
ykkar vex geysilega ört.
Ég hef tekið þátt í nokkrum af þessum
kynningum, m.a. í Amsterdam. Það var
afskaplega skemmtileg kynning sem við
vorum með í Amsterdam, og upp komu
hinar hælgilegustu kringumstæður. Til
dæmis kom til mín fólk, horfði á mig
halfvandræðalega og sagði síðan: „Ég er
með afskaplega einkennilegá spurningu
sem mig langar að bera upp.“ Og ég
svaraði: „Hver skyldi hún nú vera?“ Og
þá kom þessi makalausa spurning: „Við
vildum gjarnan ferðast til Islands. Held-
ur þú að það sé nokkur möguleiki á
því?“ Og ég svara, alveg án þess að
skella upp úr: „Þetta ér alls ekkert
einkennileg spurning. Sjáið bara kynn-
15
(
Finnsk leðursófasett
3 títir
Verð aðeins kr. 46.800.- settið
Húsgögn og
Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simí 86-900
Handbók bænda
1984
í henni er að vanda margvíslegur fróð-
leikur nauðsynlegur öllum þeim sem
vinna við landbúnað.
Handbók bænda 1984 er komin út og
kostar 250.- kr. eintakið. Nokkrir eldri
árgangar eru til á hagstæðu verði.
Sendum gegn póstkröfu.
Bændur geta vitjað bókarinnar hjá for-
mönnum búnaðarfélaga.
Búnaðarfélag íslands
Bændahöllinni
Sími 19200.
Jörð til sölu
Jörðin Eystri-Hóll, Vestur-Landeyjahreppi, Rang-
árvallasýslu er til sölu. Nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu Fannbergs sf.
FANNBERGs/fT>
Þrúóvangi 18, 850 Hellu.
Sími 5028 — Pósthólf 30.
þú býður viðkomandi heim til þín, og
vilt gera svo til hvað sem er fyrir hann.
Mér finnst að svipaða sögu sé að segja
af íslendingum, því þeir eru hálffrá-
hrindandi við fyrstu kynni a.m.k. hlé-
drægir, en um leið og ísinn hefur verið
brotinn, þá er eins og um aldagamla vini
og kunningja sé að ræða.“
- Er það rétt að Hollendingar séu
steinhissa á hinum mikla straumi ferða-
manna héðan til Hollands?
„Já, það er satt, og raunar vægt til
orða tekið. Þeir eru yfir sig hrifnir og
hreyknir vegna þeirrar staðreyndar að
íslendingar streyma til Hollands. Ég hef
nú síðustu vikur þurft að veita mörg
viðtöl í blöðum, útvarpi og sjónvarpi
vegna þessa, þar sem fréttaskýrendur á
sviði ferðamála hafa leitað svara við
spurningunni - hvers vegna sækja íslend-
ingar svo skyndilega til Hollands? Þar að
auki eru blöðin mjög iðin við að skrifa
um ferðamannastrauminn frá íslandi til
Hollands, og þetta eru fréttir sem falla
hollenskum lesendum mjög vel, því þær
og Arnarflug er flug eftir flug fullbókað
til Amsterdam. Þetta er ótrúlega
snemmt. Ég átti t.d. að fljúga heim á
morgun, en þá kom í Ijós að vélin var
fullbókuð og einhver biðlisti."
Eins og ég sagði áðan, þá held ég að
andlegur skyldleiki þjóðanna sé mikill,
og hvað varðar aðdráttarafl Hollands
fyrir íslendinga, þá held ég að það vegi
nokkuð þungt að í Hollandi tíðkast þessi
þægilegu óformlegheit. Þú getur farið
allra þinna ferða, þarft ekki að halda þig
við ákveðnar leiðir eða götur, í Amster-
dam getur þú ávarpað hvern sem er án
þess að þurfa að verða vandræðaleg/ur.
Nú, þetta kann að hljóma hálfilla í
eyrum íslendinga, en svona er þetta.
Annað sem kann að hljóma illa, en hefur
samt sem áður notið vinsælda, ómældra
vinsælda hjá ykkur íslendingum, sem
hafa hrósað Hollandi fyrir meira frjáls-
ræði en Bretlandi, það er opnunartími
ölkránna. Það er enginn banntími um
miðjan daginn, eins og er í London. Þú
getur drukkið hvenær sem er hvað sem
ingarbæklinginn okkar um ísland.“ Og
þá fyrst hefjast nú upphrópanirnar, vaín,
sjáðu, ohh, þetta er stórkostlegt og þar
fram eftir götum.“
Eins og fyrr segir kom Anneke hingað
til lands til þess að skipuleggja eina
allsherjar Hollandskynningu, sem verð-
ur á Hótel Sögu og í Háskólabíói um
næstu helgi. Hingað koma hollenskir
blómasérfræðingar, hótelhaldarar, veit-
ingamenn, ferðamálafrömuðir, Schip-
holsflugvallarfólk, fulltrúar skemmti-
garða, fulltrúar sumarhúsa o.fl. o.fl. Það
verður heilmikil dagskrá á þeirra vegum,
og hyggjast þeir m.a. setja upp eins
konar hollenskan markað í anddyri
Háskólabíós, þar sem sköpuð verður
„hollensk atmosfera" boðið upp á fjöl-
skylduskemmtanir og fleira og fleira. En
ef til vill meira um það síðar. Ég kveð
Anneke að sinni, þess fullviss að það sé
í hæsta máta skiljanlegt að hún með
brosi sínu og skemmtilegum frásagnar-
máta geti talið fólk á að gera svo til hvað
sem er fyrir sig.
Útgerðarmenn -
skipstjórar
Hraöfrystihús Keflavíkur hf. Keflavík leitar eftir aö
komast i'samband viö útgerðarmenn sem hyggj-
ast gera báta sína út á humarveiðar næsta sumar.
Vinsamlegast hafið samband við framkvæmdar-
stjóra i síma 92-2095 og á kvöldin í síma 92-3918
og gefur hann allar nánari upplýsingar.
Hraðfrystihús Keflavíkur hf.
Keflavík