Tíminn - 01.04.1984, Page 8

Tíminn - 01.04.1984, Page 8
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiöslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulitrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaöur Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Fríðrik tndriöason, Guömundur Sv . Hermannsson, Heiöur Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skaftl Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Fiosi Kristjánsson, Guöný Jónsdóttir Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síöumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuöi kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent hf. Skattsvik ■ Ljótt er ef satt er að margflóknar skattaálögur ríkisins séu notaðar sem féþúfa fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Löngum hefur það orð leikið á, að þjófar fari ránshendi um til dæmis söluskattinn, innheimti hann af viðskiptavinum sínum en stingi hluta af honum í eigin vasa og hafi afganginn af ríkissjóði. Þetta skeður á sama tíma og landssjóðurinn hangir á horriminni og hugmyndabankar eru settir á stofn til að ráða fram úr þeim greiðsluvandræðum sem öll þjóðin stendur frammi fyrir. Hugmyndir eru uppi um að skera niður félagslega þjónustu, fresta þjóðhagslega hagkvæmum framkvæmdum og jafnvel að hækka skatta á þeim aðilum, sem aldrei geta skotist undan að greiða keisaranum það sem keisarans er, og einnig að taka upp enn nýja skatta til að stoppa upp í þau göt sem skattsvikararnir láta eftir sig. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra skýrði á hreinskil- inn hátt í viðtali í Tímanum frá því að hann teldi hundruð milljóna sviknar undan söluskatti og sagði, að þegar veltan í þjóðfélaginu og söluskattsinnheimtan væru bornar saman sé ljóst að þarna séu maðkar í mysunni. Tölulegar uppiýsingar um hve háar upphæðir er hér um að ræða liggja ekki fyrir en unnið sé að úttekt á því máli. Ef unnt reynist að ná aftur ránsfengnum gæti það haft veruleg áhrif í þá átt að minnka fjárlagagatið margfræga. Til að renna stoðum undir grunsemdir forsætisráðherra bárust þær fréttir um svipað leyti að Rannsóknarlögreglu ríkisins hafi borist ákæra um stórfellt söluskattssvindl, þar sem grunur leikur á að íyrirtæki hafi svikið háar upphæðir af ríkissjóði, og varð enginn hissa. Hins vegar kom upp í máli þessu nýmæli. Tölvuforriti í bókhaldsdeild fyrirtækisins hafði verið hagrætt á þann veg að mcint svik hafi verið skipulögð og framkvæmd með sjáltvirkum hætti.Enn vekur það nokkra athygli að bókhaldsfróður maóur með þekkingu á tölvukúnstum var búraður inni og yfirheyrður og síðan sleppt, en sá hafði ekki annarra hagsmuna að gæta en að vera vitorðsmaður þeirra sem sagt er að stungið hafi hluta skattsins í eigin vasa. Það gæti verið athugandi fyrir yfirvöld, hvort menn með sérþekkingu á bókhaldi og völundarhúsi skattalaga og framkvæmd þeirra, skuli ekki gerðir ábyrgir að hluta fyrir misferli skjólstæðinga sinna. Varla dettur nokkrum manni í hug að það mál sem hér er minnst á sé eitthvert einsdæmi. Söluskatturinn er einn stærsti tekjuliður ríkissjóðs og innheimta hans er í höndum fleiri þúsund fyritækja smárra sem stórra, og freistingarnar eru margar og mennirnir misjafnir. Ekki bætir úr skák að söluskattsbáknið verður sífellt erfiðara viðureignar með reglugerðarbreytingum og undanþágum, og eftirlit með ráðvendni innheimtuaðila er illmögulegt eins og í pottinn er búið. Það er vafasamur sparnaður að skera framlög við nögl til skattaeftirlits því virkt eftirlit á þessu sviði margborgar sig fyrir rfkissjóð. Söluskattsgreiðendum er ekki treystandi og verður að meðhöndla þá samkvæmt því. Hér ber víst að taka fram að mörg fyrirtæki skila sínum söluskatti samviskusamlega, en það er einfaldlega ekki nóg. Þau eiga að gera það öll með tölu. Auðvitað viðgangast skattsvik annars staðar en varðandi söluskatt og eru ýmis brögð höfð í frammi til að losna við að greiða lögbundin gjöld. En það er eins og fyrri daginn að það er hinn almenni launamaður sem auðveldast er að ná fjármunum frá, og er hann ekki látinn njóta þess í neinu nema því að ganga ótæpt í launaumslögin og jafnvel passað upp á að hluti af kaupi hans gangi beint til ríkis og sveitarfélaga. Honum er ekki einu sinni treyst til þess að handfjatla launin sín áður en báknið gleypir sitt. En fyrirtæki valsa eftirlitslítið með skattpeninga og komast jafnvel upp með að hirða af sköttum sem þeim er gert að innheimta. Það er ekki nema von að fjárlagagötin gerist stór. Líklega er það ekki í mannlegu valdi að einfalda skattalög, en hins vegar eru stjórnmálamenn og embættismenn flínkir við að þvæla þau enn betur, enda er og hefur lengi verið eitt uppáhalds- verkefni Alþingis að fjalla um breytingar á skattalögum. En það er líklega í lagi svo lengi sem ríkisskattstjóri skilur þau. En væri það ekki þess virði að einfalda skattalög og gera þau virkari, eða að minnsta kosti að sýna viðleitni í þá átt? -O.Ó. ■ Kristinn Hallsson i hlutverki sinu í „Rakaranum í Sevilla,, Þrjár sýningar hjá Operunni um helgina ■ Um helgina verða þrjár sýningar hja íslensku óperunni. Rakarinn í Sevilla cftir Rossini verður sýndur í kvöld kl. 20.00 og á laugardagskvöld á sama tíma. Á sunnudag kl. 15.00 verður svo sýning á barna- og fjölskylduóperunni Orkin hans Nóa eftir Benjamin Britten. Rakarinn í Sevilla er gamanópera í tveim þáttum og gerist á Spáni snemma á síðustu öld. Segir frá ungum greifa sem reynir að ná ástum yngismeyjarinnar Róst'nu en á við vonbiðil að etja og beitir því ýmsum brögðum í mörgum gervum. Örkin hans Nóa er svokallaður „undraleikur", en þeim var ætlað að veita ólæsum almúga nokkra Biblíu- og trúaruppfræðslu. Efnið er flestum kunn- ugt en annars er það að finna á Biblíunni. I. Mósebók, 6.-9. kapítula. Gallerí Langbrók ■ Á laugardaginn kl. 14.00 verður opnuð í Gallerí Langbrók kynning á nýjum skinnfatnaði eftir Evu Vilhelms- dóttur, skartgripir úr leir og postulíni eftir Kolbrúnu Björgólfsdóttur og kera- mik eftir Borghildi Óskarsdóttur. Kynn- ingin er opin um helgina frá kl. 14.00- 18.00 og á virkum dögum frá kl. 12.00- 18.00. 50. og allra síðasta sýning á Skvaldri ■ Á sunnudagskvöld, 1. apríl, verður 50. og allra síðasta sýning á breska gamanleiknum Skvaldri, eftir Michael Frayn, í Þjóðleikhúsinu. Sýning þessi fékk í haust afar lofsamlega dóma allra gagnrýnenda og aðsóknin hefur verið mjög góð, en nú hafa 20.000 áhorfendur séð verkið. Leikstjóri er Jill Brooke Árnason, leikmynd og búningar eftir Jón Þórisson, lýsing eftir Kristinn Daníelsson, en Árni Ibsen hefur þýtt leikritið. Níu lcikarar á fullri ferð allan tímann. Tómasarkvöld á Litla sviði Þjóð’ leikhússins ■ Sunnudaginn 1. apríl frurnsýnir Þjóðleikhúsið dagskrá sem heitir ein- faldlega Tómasarkvöld. Dagskrá þessi er byggð á Ijóðum og æviatriðum Tómas- ar Guðmundssonar og er þar bæði upplestur og söngur, en lög eftir Sigfús Halldórsson og Gylfa Þ. Gíslason verða flutt. Herdís Þorvaldsdóttir hefur um- sjón með dagskránni, en auk hennar koma fram þau Anna Kristín Arngríms- dóttir, Arnar Jónsson, Edda Þórarins- dóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Helgi Skúlason og Róbert Arnfinnsson; undir- leikari á píanó er Bjarni Jónatansson. Þetta er Ijúf skemmtun, eins og menn geta ímyndað sér þegar Ijóð Tómasar eru annars vegar. Gestir geta fengið létta máltíð á undan dagskránni og veitingar verða á borð bornar meðan skemmtunin stendur. Aðgöngumiðaverð er kr. 325,- með máltíð, en kr. 150,- án máltíðarinn- ar. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 20.30. ■ Myndlistarmennirnir að undirbúa opnun sýningarinnar á Kjarvals- stöðum, en þetta er síðasta syningarheigin Sýning fjögurra myndlist- armanna að kjarvalsstöðum — síðasta sýningarhelgi ■ Myndlistarmennirnir ívar Valgarðs- son, Rúna Þorkelsdóttir, Þór Vigfússon og Rúri hafa sl. tvær vikur verið með sýningu í báðum sýningarsölunum á Kjarvalsstöðum, bæði vestursalnum og Kjarvalssal. Á sýningunni eru skúlptúrar úr mis- munandi efni, umhverfisverk, teikning- ar, málverk, þrykk og collage-verk. Þetta eru allt ný verk, sem sum hver hafa aldrei verið sýnd áður. Öll verkin eru nú sýnd í fyrsta sinn á íslandi. Listamennirnir hafa allir stundað nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og akademíum erlendis. Þetta er síðasta sýningarhelgi. Opið er frá 14-22.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.