Tíminn - 01.04.1984, Síða 14
FOSTUDAGUR 30. MARS 1984
■ íranir brenna fána Bandaríkj anna og Sovétríkjanna i oliubænum Abadan. Bandaríkjamenn álita þeir djöfla, en Rússa telja þeir guðleys ingja.
STTRDHÐ SEM EKKIMÁ ENDA
Stríð Irana og íraka hefur nú staðið í 42 mánuði. Alþjóðlegi vopnaiðnaðurinn
græðir gífurlega og bæði Rússar og Bandaríkjamenn aöstoða stríðsaðila
■ Stríðið kemur inn í stofu til okkar með þungum
dyn og bloðfnyk. íranska ríkisútvarpið leikur „Nótt
á nöktum fjöllum" eftir rússneska tónskáldið
Mussorgsky, en þessi hljómkviða sem samin var
á öldinni sem leið er undirleikur við myndir af
dauðum íröskum hermönnum. Kór stríðsfanga er
leiddur fram fyrir myndavélaraugað og hann for-
mælir forseta þeirra eigin lands hátt og snjallt:
Niður með Saddam!“
Hvern föstudag flytur sjónvarpið
guðsþjónustu, þar sem hinu jarðneska
hatri er blandað saman við hina himn-
esku blessun. „Berjist til síðasta blóð-
dropa!“ er boðskapurinn til hinna trú-
uðu. „Aðeins á vígvellinum finnum við
Guð.“ Múllarnir leggja hægri hönd á
Kóraninn. Vinstri höndin hvílir á þýsk-
um „G-3“riffli.
Úti á vígstöðvunum eru slagorðin úr
sjónvarpinu endurtekin. I landamæra-
borginni Abadan eltir múgurinn erlendu
blaðamennina og steytir hnefann.
„Stríð, stríð, uns sigur rennur upp tíð!“
Hér bjuggu um 300 þúsund manns þegar
stríðið braust út árið 1980, en nú eru
íbúarnir aðeins um 200 þúsund í þessari
stríðshrjáðu borg. íraskir hermenn eru
látnir byggja upp trúarbragðaskóla
Khomeiny. „Trúið mér,“ segir landstjór-
inn í Abadan. „Pótt stríðið standi í 20 ár
enn munum við ekki gefast upp.“
Áður en við leitum skjóls fyrir nýrri
skothríð íraka, setur fólkið dálitla sýn-
ingu á svið fyrir okkur: Fánar eru
■ Eitt fórnarlamba eiturgassárása Iraka.
írakar hugsuðu sér að nota gasið gegn
andstæðingi sem er miklu f jölmennari en
þeir. Aftur á móti virðist þetta enn hafa
hert sóknarhug írana, sem lita á píslar-
vættisdauðann sem æðstu fullkomnun.