Tíminn - 01.04.1984, Qupperneq 26
26_____________
erlend hringekja
HENTUGT FAR-
ARTÆKI FYRIR
ÍSLENSKA VEGI
■ Það eru margir sem álíta það mikið
verk að fara um lielgar og skola rykið af
bílnum sínum en hvað mundu hinir
sömu segja ef það varri heill skriðdreki
scm þyrfti að þvo. Marten Harwood og
dóttir hans Michelle láta slíka smámuni
ekki fara í pirrurnar á sér en Marten
keypti þennan Shermann skriðdreka á
rúm fjögur hundruð þúsund en hann
var notaður í seinni heimstyrjöldinni til
að berja á óvininum. Að vísu er
drekinn eyðsluscggur á bensín og olíu
en hver pælir í því þegar slíkar
skruggukerrur eru annars vegar. Þau
feðginin búa ásamt móður Michelle í
High Wycombc í Buchkinghamshire á
Englandi og bíða spennt alla vikuna
eftir því að komast í sunnudagsbíltúrinn
eða gandreiðina á drekanum öllu
heldur. Það er þó ekki vandalaust að
aka tækinu því til þess þarf einn að vera
á útkíkki og annar við stýrið. Þegar ekið
cr á öllu útopnuöu kemst farartækið eina
40 km. á klukkustund og ekki þarf að
vanda til leiðanna því drekinn kemst
yfir næstum því hvað sem er. Islenska
vegakcrfið væri t.d. alveg kjörið fyrir
farartæki af þessu tagi jafnvel
troðningarnir í Kópavoginum.
■ Marten og Michelle gera klárt fyrir sunnudagsbiltúrinn.
LÖGLEIÐIÐ ETTUR-
EFNI OG SKJÓHÐ
HRYÐJUVERKAMENN
■ „Ef ég ntætti ráða mundi ég láta
lögleiða sölu og dreifingu fíknicfna
hvaða nafni scnt þau nefnast og ég kann
ágætlcga við rnig undir áhrifum, hátt
uppi eða skakkur eða hvað þið viljið
kalla það. Ég hef aldrei fari dult með
þessar skoðanir mtnar og það má láta
þess getið að ég nota slík efni oft í viku
og santa er að segja um mjög marga
landa ntína. Það cr líka skoðun mín að
terrorista cða hryðjuverkamenn ætti að
taka og skjóta opinberlega Itvar sem þeir
nást."
Svo fórust hinurn kunna bandaríska
kvikmyndaleikara Jack Nicholson orð á
blaðantannafundi sem hann hélt í
Lundúnunt í tilefni af nýrri kvikmynd
hans. „Tcrms of Endearment" sem nú
nýlega var frumsýnd. Vafalaust eru
ntargir ósammála Nicholson og finnst
nóg um öll þau citurefni senr flætt hafa
yfir vesturlönd á undanförnum árum.
Ilvað gera eigi við hryðjuverkamcnn
skal og látið ósagt. Hvað sem því líður
þá er Nicholson ekkert að skafa utan al
hlutunum.
■ Jack Nicholson lætur móð-
an mása á blaðamannafundi i'
Lundunum.
■ „Eg hef alltaf verið dulítið veikur fyrir fötum“, sagði Björn Borg þegar fatalína merkt honum var kynnt í
Kaupmannahöfn nú á dögunum.
1KKUKÓNGUR 0« TENNISSTJARNA
■ Björn Borg, sænski tenniskappinn
og sjarmörinn, hefur lagt spaðann á
hilluna og hyggst nú spila á öðrum
vettvangi. Nýlcga varopnuð í
Kaupmannahöfn mikil tískufatasýning
þar sem öll fötin bera nafn þessa
hcimsfræga íþróttamanns og er hér um
að ræða eins konar vörumerki sem nú
þegar virðist búið að slá í gegn. Fötin
sem einkum eru ætluð karlpeningi eru
sögð hafa yfir sér frjálslegan blæ í anda
útiveru og alrcka og það var Björn
sjálíur sem auðvitað opnaði sýninguna í
versluninni Magasin þarsem fötin verða
á boðstólunum.
Carsten Thomsen sem er einn af
forsvarsmönnum þessara nýju fatalínu í
Danaveldi segir að til að föt seljist verði
þau að hafa persónuleika og vera tengd
einhverju sem kraftur í er auk þess að
bera vott um smekkvísi og allt þetta og
meira til telur hann að finna megi í
Birni bónda. Áætluð sala næstu mánuði
er um tvær milljónir danskra króna og
af því renna tvö og hálft prósent sem
þóknun til Bjarnar. „Ég hef alltaf verið
svolítið veikur fyrir fötum," sagði hann
við opnun sýningarinnar, „en ég er
hættur að spila tennis."
KARNIVAL f
KAUPMANNAHÖFN
■ Dagana 9. til 11. júní verður, eins
og undanfarin sumur, efnt til mikilla
hátíðahalda í Kaupmannahöfn. Er hér
um að ræða eins konar kjötkveðjuhátíð
eða karnival eins og það heitir á
útlenskunni. Borgaryfirvöld í
Kaupmannahöfn hafa stefnt að því að
gera hátíð þessa sem veglegasta og nú
þegar er komin nokkur hefð á þetta
fyrirbæri. Auðvitað laða slíkar
uppákomur ferðalanga til borgarinnar í
þúsundatali og cinkum hafa sænskir
verið ginnkeyptir fyrir gleðinni enda
stutt á milli landanna.
Á hátíðinni s.l. sumar fór
samgöngukerfið milli landanna
algjörlega úr skorðum þar sem
fólksstraumurinn varð svo mikill að
Eyrarsundsbátarnir höfðu hvergi undan
að ferja fólk yfir til borgarinnar við
sundið. Nú hyggjast Svíar taka á
vandamálinu með festu og bátunum er
ætlað að vera í ferðum bæði dag og nótt
á mcðan að menn hlaupa um stekk í
Kaupmannahöfn. Hvorki meira né
minna en 10 flugbátar verða klárir í
slaginn auk ferjanna sem stöðugt halda
uppi samgöngum milli landanna
tveggja. Eini flöskuhálsinn er sá að
sænskir toilverðir ncita að vinna yfir
blánóttina eða frá 2 til 6 og gæti það
orðið mál vandamálanna sérstaklega ef
veðurlag yrði með svipuðu sniði og í
fyrra sumar en þá var úrhellis rigning í
lok hátíðarinnar og fleiri þúsund Svíar
biðu á hafnarbakkanum þar sem
bátarnir leggja að, á meðan tollverðir í
Málmey tóku á sig náðir.
: /..ww, y.o
zsæízmw
Ungar stúlkur hlaupa um stekk á karnival í borginni við sundið.