Tíminn - 12.04.1984, Side 1
Fjölmennur fundur bladburðarbarna. Sjá bls. 5
■ FJC OG jS Eö |i
F 8 'immtudagur 12. apríl 1984 8. tölublað 68. árgangur
Siðumúla 15—Pósthólf 370 Reykjavik—Ritstjorn 86300—Augtysingar 18300— Afgreidsla og askrift 86300 — Kvöldsimar 86387 og 86306
FJÖLDAUPPSAGNIR GRUNN-
SKÓLAKEN NARA í HAUST?
— úrslit f skoðanakönnun Kennarafélags Reykjavlkur birt íkvöld
■ „Ert þú reiðubúin (n) til þess
að taka þátt í uppsögn kennara á
komandi hausti til þess að knýja
á um bætt kjör og endurmat
kennarastarfsins?“ Þannig
hljóðar spurning sem lögð er
fyrir starfandi grunnskóla-
kennara í Reykjavík í allshcrjar-
skoðanakönnun, sem Kennara-
félag Reykjavíkur gengst fyrir
um þessar mundir. Skiladagur í
könnuninni var í gær og úrslit
verða kynnt á aðalfundi Kenn-
arafélagsins sem haldinn verður
í kvöld. Þá verður ljóst hvort
stefnir í fjöldauppsagnir kennara
í grunnskólum Reykjavíkur í
haust. 882 félagar eru í Kennara-
félagi Reykjavíkur.
En hvað gerist ef naumur
meirihluti segir já, segir þá rúm-
ur helmingur kennara upp með-
an hinir sitja áfram í stöðum
sínum? „Við höfum reynslu af
svona aðgerðum", sagði Gísli
Baldvinsson formaður Kennara-
félags Reykjavíkur í samtali við
blaðið í gær. „1961 var keimlík
skoðanakönnun gerð og 70%
lýstu sig reiðubúna til að segja.
upp störfum, en þegar til kom
skrifuðu 90% uppsagnarbréf.
Þá var samið við kennara og í
kjölfarið fékk BSRB samnings-
rétt.
Könnuninni fylgdu ýmsar
lagalegar útskýringar til glöggv-
unar fyrir þátttakendur og í
síðustu viku hefur kynning farið
fram í skólunum.
Að sögn Gísla Baldvins-
sonar verða ekki gefnar uppl
niðurstöður fyrir hvern einstak-
an skóla heldur aðeins heildar-
niðurstöðurnar. -JGK.
Fjármálaráðherra
OSKAR OPIN-
BERRAR
Heimsókn Vigdísar
forseta til Finn-
lands hafin
KOIVISTO VAR
FÆRÐ
SKARÐSBÓK
AÐ GJÖF
— en frú Koivisto
fékk íslenskt silf-
urarmband
■ „Það hefur allt gengið eins
og í sögu og samkvæmt áætlun.
Það var lent í Helsinki kl. 13.00
að staðartíma. Þar var stutt mót-
tökuathöfn og síðan haldið til
forsetahallarinnar og þar var
aftur stutt athöfn, þar sem for-
setar Finnlands og Islands skipt-
ust á gjöfum. Því miður veit ég
ekki hvað Koivisto afhenti Vig-
dísi að gjöf, en Koivisto fékk
Skarðsbók að gjöf frá Vigdísi en
frú Koivisto afbenti Vigdísi víra-
virkisarmband úr silfri, sem Jó-
hannes Leifssongullsmiður hefur
gert“, sagði Halldór Reynisson
forsetaritari þegar Tíminn talaði
við hann til Helsinki síðdegis í
gær.
„Eftir athöfnina í forsetahöll-
inni hélt Vigdís til Sandudd, þar
sem hún lagði blómsveig að
minnismerki um Finna sem féllu
í síðari heimstyrjöldinni og einn-
ig lagði hún blómsveig á leiði
Mannerheims marskálks. Að
því loknu var móttaka sem for-
seti íslands bauð til í forsetahöll-
inni fyrir sendimenn erlendra
ríkja og maka þeirra. Samtímis
ræddust við Geir Hallgrimsson
utanríkisráðherra og starísbróðir
hans í Finnlandi.
í gærkvöldi var svo veisla í
forsetahöllinni sem Mauno Koi-
visto og frú héldu til heiðurs
forseta íslands.
„Það er hið fegursta veður
hér í Helsinki, og allar móttökur
og aðstaða í anda þeirrar gest-
risni sem Finnar eru þekktir
fyrir“, sagði Halldór Reynisson.
- JGK. Sjá nánar bls. 3.
Skaftamálið:
Lögregluþjónarnir sýknað-
ir af öllum ákæruliðunum
■ Lögreglumennirnir þrír sem
ríkissaksóknari ákærði fyrir að
hafa staðið ólöglega að handtöku
Skafta Jónssonar, og fyrir að
hafa orðið valdir að meiðsium
sem hann fékk við handtökuna,
voru sýknaöir af öllum ákæruat-
riðum í Sakadómi Reykjavíkur í
gær. Sverrir Einarsson sakadóm-
ari kvað upp dóminn.
í niðurstöðum dómsins segir
m.a. um handtökuna sjálfa að
iögreglumönnunum hafi borið
skylda samkvæmt lögum að hefja
rannsókn málsins, þar sem útlit
og frásögn dyravarðarins sem á
þá kallaði hafi gefið þeim ástæðu
til að ætla að þeir hefðu verið
kvaddir á vettvang vegna
óspekta og árásar Skafta Jóns-
sonar. Liður í rannsókninni
hlaut-að vera viðtal við Skafta
sem var kærður. Bar honum
skýOa til að hlýða fyrirmælum
ákærðu að koma með þeim. Því
neitaði Skafti og þegar af þessum
ástæðum var rétt'af ákærðu að
handtaka hann.
Á það ber þó að líta segir í
dómnum að ákærðu virðast ekki
hafa kynnt sér nægjanlega ástæð-
urnar sem lágu að baki útkallsins
þegar þeir hófu handtökuað-
gerðir sínar. Samt verði að telj-
ast að með hliðsjón af útliti
dyravarðarins, viðbrögðum
Skafta er þeir komu og loks
verksviði og valdsviði dyravarða,
hafi þeim af þeim ástæðum ein-
um verið rétt að fjarlægja hann
úr húsinu. Loks voru viðbrögð
Skafta slík segir í dómnum, er
ákærðu hófu handtökuaðgerðir,
að þeir áttu vart annars úrkosta
en að ljúka þeim. Með hliðsjón
af framansögðu verða ákærðu
því sýknaðir af því að hafa
handtekið Skafta Jónsson án
nægjanlegra ástæðna eða tilefnis
umrætt sinn.
Um áverka Skafta segir í
dómnum að eigi liggi fyllilega
Ijóst fyrir með hverjum hætti
hann fékk þá. Hann veitti mikla
mótspyrnu meðan á handtöku
stóð, og fullyrða ákærðu Guð-
mundur og Jóhann Valbjörn að
hann hafi fallið inn á gólf lög-
reglubifreiðarinnar þegar hann
var settur inn í hana. Er ekki
lögfull sönnun fram komin fyrir
því gegn neitun ákærðu, þrátt
fyrir framburð Skafta og konu
hans, að ákærðu hafi af ásetningi
eða gáleysi orðið valdir að áverk-
um hans. Gæti Skafti eins hafa
hlotið þá fyrir eigin tilverknað.
Ber því að sýkna ákærðu af
ákæru þessari. Sjá nánar bls. 4
RANNSÓKN-
ARÁVERÐ-
MYNDUN
MJÓLKUR-
VARA
■ Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra aftók nteð öllu á
Alþingi í gær að aflétta sköttum
á kakómjólk og skyldum vörum
og kvaðst hafa beðið um opin-
bera rannsókn á verðmyndun á
mjólkurvörum.
Guðrún Agnarsdóttir bað
skýringa á því hversvegna gjöld
væru lækkuð á sykurvatni en
lögð á mjólkurvörur sem væru
börnum hollari og næringar-
meiri.
Albert sagði verð á bragðbætt-
um mjólkurvörunt óeðlilcga
hátt, yfir 50 krónur lítrinn, og
sú skýring væri gefin að verðið
lægi aðallega í umbúðum. Hann
kvaðst liafa beðið um skýringar
á verðmynduninni en ekki fengið
og það væri að sínu viti óhæfa að
selja niöurgreidda afgangsinjólk
á yfir fimmtíu krónur lít-rann .
og mysan væri fjórum sinnum
dýrari. - O.Ó.
■ Mauno Koivisto forseti Finnlands, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og frú Tellervo Koivisto á svölum forsetahallarinnar í Helsinki
við upphaf opinberu heimsóknarinnar í gærdag. Polfoto símamynd.