Tíminn - 12.04.1984, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 19ÍU
2
fttM
fréttirl
Steingrímur Hermannsson:
STADH) VHI MARKMW UM STOBUGT
GENd OG 10% VERÐBÓLGU A ArINU
■ Ríkisstjórnin mun standa við markmið sín um að verðbólga verði ekki yfir 10 af
hundraði í árslok og gengið verður ekki fellt umfrain það 5% mark scm ríkisstjórnin
hefur sett sér. Ríkisstjórnin er nú að gera ráðstafanir út af hallarekstri ríkisjóðs og
jafnframt vcrða gerðar ráðstafanir til að draga úr þenslu í peningamálum.
Þetta kom fram hjá Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra, er hann
svaraði fyrirspurnum frá Svavari Gests-
syni, en hann kvaddi sér hlóðs utan
dagskrár í neðri deild í gær og gcrði að
umtalsefni frétt Tímans, sem hirtist
undir fyrirsögninni „Ríkisstjórnin fjallar
um fjárlagadæmið: Gengisfelling ef ekki
tekst að fylla gatið?"
Þar er haft eftir forsætisráðherra, að
þenslan í peningamálum sé langalvarleg-
asti þátturinn í baráttunni við verðbólg-
una og verði ríkissjóður rekinn með
miklum halla ofan í þensluna í banka-
kerfinu hljóti það að lokum að leiða til
þess að þrýstingurinn á gengið valdi
meiri gengisbreytingu en ríkisstjórninn
hafi hugsað sér.
Svavar Gestsson kvað óeiningu ríkja
innan ríkistjórnarinnar um hvernig fylla
cigi fjárlagagatiö og lítið samræmi sé í
yfirlýsingum ráðherra um þau mál og
vitnaði í ummæli Þorsteins Pálssonar og
Alberts Guðmundssonar um að til greina
komi að auka crlendar lántökur og
hækka skatta.
Steingrímur Hermannsson benti á að
framsetning ræðu Svavars væri öll sam-
hengislaus og drægi hann rangar álykt-
anir af því sem eftir sér væri haft. Hann
sagði fyrirsögn Tímans á fréttinni ekki
frá sér komna og einnig væri spurninga-
merki á eftir gengisfellingartalinu. Það
sem eftir sér væri haft í fréttinni væru
aðeins hagfræðilegar staðreyndir um það
hvað verða myndi ef látið yrði skeika að
sköpuðu og ekki gerðar ráðstafanir til að
mæta hallarekstri á ríkissjóði og sporna
við þcnslu á pcningamarkaðinum.
Þá vísaði hann á bug að óeining væri
í ríkisstjórninni um þessi mál.
Þorsteinn Pálsson sagði að þessi ríkis-
stjórn hafi ekki veriö mynduð til að
Atvinnumálanefndir og einstaklingar
Stofna iðnþróunarfélag
á Suðurnesjum í kvöld
■ í kvöld klukkan 8 boöar Atvinnu-
málanefnd Suöurnesja til stof'nfundar
lönþróunarfélags í KK húsinu í Keflavík.
Félagi þessu er fyrst og fremst ætlaö aö
varöa félag áhugamanna uin uppbygg-
ingu atvinnu og iönþróun á Suöurnesjum
og er gert ráð fyrir aö starfsemin mótist
aö nokkru af lögum um iönráðgjafa
landshlutanna. Sveitarfélög, félaga-
samtök, fyrirtæki og einstaklingar geta
gerst aðilar að félaginu og mun þaö njóta
framlags úr ríkissjóöi sem nemur launum
eins starfsmanns.
Á fundinum í kvöld tala mcöal annars
Ingólfur Falsson formaöur atvinnumála-
ncfndar Suöurnesja og Jón E. Unndórs-
son iönráögjafl Suöurnesja sem ásamt
atvinnumálanefndum sveitarfélaganna
hefur að undanförnu unniö að kynningu
á þcssum væntanlega félagsskap á opn-
um fundum víðsvcgar um Suðurnesin.
gefast upp og myndi halda áfram að
takast á við þann vanda sem að steðjar
og tryggjá greiðslujöfnuð ríkissjóðs.
Verulegur halli á rekstri ríkissjóðs
mundi leiða til óðaverðbólgu sem óhjá-
kvæmilega mundi hafa kjaraskerðingu í
för með sér. Hann kvað ekki hlaupið að
því að ná saman endum og tæki það
eðlilega nokkurn tíma að finna leiðir til
efnahagslegs jafnvægis. Þorsteinn sagði
að það væri ekki í samræmi við mark-
iniðin að skera niður, en það væri
óhjákvæmilegt að hluta og ekki yrði hjá
því komist að afla nýrra tekna. Ekki væri
hjá því komist að þeir sem njóta opin-
berrar þjónustu yrðu að greiða hærri
hlut en verið hefur og að einhverju leyti
yrði að auka erlendar lántökur til að
endar nái saman.
Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir
köldum staðreyndum og vandinn verður
ekki leystur nema hann sé viðurkenndur
og brugðist sé rétt við.
Fyrirspyrjandi taldi svörin ófullnægj-
andi. Utandagskrárumræðan hélt áfram
fram á kvöld. - O.Ó.
Sinfóníuhljómsveit Islands í kvöld:
Frumflytur verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson
■ Nýtt íslenskt tónverk verður frum-
flutt á 14. áskriftartónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskólabíói í
kvöld, Díafónía eftir Þorkel Sigur-
björnsson. En hvað er díafónía? Um
það segir tónskáldið í efnisskrá: „Þetta
er sinfónía í hnotskurn, þar sem and-
stæðir þættir eru felldir saman í cinn. ...
Hún er samin fyrir tiltölulega litla hljóm-
sveit, (tvöfalda blásararsveitjog allt á að
vera fremur gagnstætt og einfalt í
sniðum. Af tillitssemi við öll þau stór-
virki sem bera heitið sinfónía, finnst mér
að heitið „díafónía" sé við hæfi."
Önnur verk á tónleikum kvöldsins
verða Adagio fyrir strengjasveti eftir
Samuel Barber, 5. sinfónía Schuberts í
B-dúr, og Sálmasinfónía fyrir kór og
hljómsveit eftir Igor Stravinsky, en í því
verki kemur Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð fram með hljómsveitinni, en
stjórnandi kórsins er Þorgerður lngólfs-
dóttir. Stjórnandi á tónleikunum í kvöld
verður aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, Jean-Pierre Jaquillat.
Tónleikarnir verða helgaðir minningu
Björns Ólafssonar fyrsta konsertmeist-
ara Sinfóníuhljómsveitar íslands, sem
andaðist nú fyrir skömmu.
-JGK.