Tíminn - 12.04.1984, Qupperneq 3
Vigdís Finnbogadóttir, forseti í veislu finnsku forsetahjónanna í gærkvöldi:
V Gl ETU M E KKI w 1 Gl El fh E)! STOI RA R ÍGJ AF
II R EN VINJ ATl U M Gl n rui lA V IÐ 1 30D IÐ?
■ „Finnland er þrisvar sinnum stærra en ísland með græna skóga og
þúsund vötn. ísland er hrjóstrug eldfjallaeyja úti í Atlantshafí. Samt er
oft sagt að Islendingar og Finnar séu ótrúlega líkir að hugarfari og
skapgerð. Hvernig má það vera? Er það vegna þess að við erumútverðir
Norðurlanda í austri og vestri? Eða er svarsins að leita í því, að mál okkar
eru sérstæð og við verðum að læra tungu nágrannaþjóða til að geta ræðst
við innan þeirrar heildar sem Norðurlöndin eru? Ef til vill er það
einfaldlega vegna þess, að svo margar hliðstæður eru í fortíðinni. Báðum
þjóðunum hefur lengi verið nauðsyn að berjast fyrir frelsi og varðveita
það, - og berjast fyrir eigin sjálfsímynd. Þessi barátta fyrir sjálfsímynd
fór fram næsta samtímis og á sama hátt í báðum löndunum“. Þannig
fórust Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands m.a. orð í ræðu sinni í
veislu, sem fínnsku forsetahjónin héldu henni til heiðurs í forsetahöllinni
í Helsinki í gærkvöldi.
Forsetinn hóf mál sitt með því að vitna
til ráðlegginga Hávamála um að eigi
maður vin skuli maður vitja hans oft
blanda við hann geði. Hún minntist þess
að Finnar og fslendingar hefðu ávallt átt
góð samskipti, friðsamleg og laus við
vanda. Hún minntist einnig heifnsóknar
Ásgeirs Ásgeirssonar fyrrum forseta ís-
lands til Finnlands í forsetatíð Paasikiv-
is, heimsóknar Kristjáns Eldjárns
fyrrum forseta til Finnlands er Kekkon-
en sat á forsetastóli og heimsóknar
Koivistos til íslands 1982. „Þá fengu
þjóðirnar tvær að fylgjast með töluvert
ævintýralegri ferð yðar til sögustaða og
að kynnast atvinnulífi á íslandi. Pá var
ekki lengur hægt að halda því leyndu að
það getur hellirignt og hvesst svo um
munar á eyju stormanna,“ sagði forset-
inn.
Að lokum fór Vigdís Finnbogadóttir
með upphaf Kalevala á íslensku og
erindi úr Hávamálum á finnsku. Síðan
sagði forsetinn:
„Lítil þjóð eins og fslendingar,
240.000 manns, getur ekki gefið stórar
gjafir, - en vináttu getum við boðið.
Leyfið mér aðsíðustu, herraforseti að
skála fyrir yður og velgengni þjóðar yðar
og fyrir órjúfandi vináttu Finna og
íslendinga.
-JGK
■ Finnsku forsetahjónin heilsa forseta
Isiands á flugvellinum í Helsinki í gær.
Polfoto símamynd.
Þú finnur örugglega
bíl fyrir þig á AUTO 84