Tíminn - 12.04.1984, Blaðsíða 5
■ Kjartan Ásmundsson útbreiðslustjóri ávarpar blaðburðarbörn Nútímans hf. á fjölmennum fundi hins nýja útgáfufyrirtækis
í Austurbxjarbíói. Tímamynd Árni Sæberg
Fjölmennur fundur
í Austurbæjarbíói
■ Á fimmta hundrað blaðburðarbörn
Nútímans hf. mættu á fund í Austurbæj-
arbíói þar sem forsvarsmenn hins nýja
útgáfufyrirtækis kynntu fyrirhugaðar
breytingar á útgáfu blaðsins. Það var
Kjartan Asmundsson útbreiðslustjóri
blaðsins sem ræddi við krakkana en að
loknum umræðum um nýja blaðið bauð
Nútíminn hf. upp á gotterý og Clint
Eastwood lét sjá sig á hvíta tjaldinu í
myndinni Viltu slást.
Það var góð stemmning í bíóinu enda
ekki á hverjum degi sem hasarmyndirnar
bjóðast ókeypis og hvað þá að maður
megi drekka kók og maula súkkulaði
inni í bíósalnum.
-b
Húsnæðisstofnun:
Sjötíu milljón-
ir greiddar út
á næstu vikum
—af nýbyggingarlánum, en ekkert
liggur fyrir um (
■ Stjórn Húsnæðisstofnunar ákvað í
gær næstu útborgunardaga í 4 lánaflokk-
um í sambandi við nýbyggingar, samtals
að upphæð 70,4 millj. króna. Ákvörðun
var hins vegar ekki tekin um útborgun
svonefndra G-lána sem sótt var um fyrir
1. okt. s.l., eða á tímabilinu júlíogágúst
og september 1983 og fólk hefur því
verið að bíða eftir tilkynningu um frá
því í aprílbyrjun. Að sögn Sigurðar E.
Guðmundssonar, framkvæmdastjóra
Húsnæðisstofnunar standa vart vonir til
að hægt verði að borga þau lán út fyrr en
síðari hluta maímánaðar.
Sú ákvörðun var hins vegar tekin að í
stað þess að miða afgrciðslu G-lána við
3ja mánaða umsóknartímabil, eins og
verið hefur til þessa, þá verði framvegis
reynt að afgreiða untsóknir mánaðar-
lega, t.d. að allar umsóknir sem berast
nú í apríl verði þá í sömu lánveitingu og
þær sem berast í maí í sömu lánveitingu
og svo framvegis.
Þau lán sem koma til útborgunar á
næstunni eru í þessum lánaflokkum:
Fyrst er að nefna írumlán til þeirra sem
eru að byggja sína fyrstu íbúð og gerðu
fokhelt í febrúarmánuði s.l. Þau lán
koma til útborgunar eftir 15. apríl n.k.
og fær þetta fólk nú útborgað helming
heildarlánsins. Samtals er upphæð þess-
ara lána 9 millj. króna. Frá 15. apríl
koma og til útborgunar 3. hluti venju-
lánin
legra byggingarlána til þeirra sem fengu
frumlán sín útborguð 20. mars 1983.
Samtals eru þetta 12,4 millj. króna. í
þriðja lagi var samþykkt að borga út 3.
hluta byggingarlána frá og með 25. apríl
til þeirra er fengu frumlán 5. apríl 1983,
samtals 28,5 millj. króna. í fjórða lagi
var samþykkt að veita 2. hluta bygging-
arlána til greiðslu frá 25. apríl til þeirra
sem fengu frumlán þann 5. október
1983, samtals 20,5 milljónir króna.
-HEl
Flugfreyju-
verkfall á
miðnætti?
■ Samningat'undur með flugfreyjum
og skipstjórum á flutningaskipum stóðu
enn er við ræddum við ríkissáttasemjara
í gær og kvað hann samninga þá ckki í
sjónmáli. Verkfall flugfreyja á að skella
á á miðnætti í kvöld hafi samningar þá
ekki tekist. Samkomulag vegna skip-
stjórans á Karlsey hefur ekki tckist, en
verkfall skall á á skipinu um miðnætti á
þriðjudag.
-HEl.
..Mérlíst bara
vel á þetta“
— segir Gudmundur Þór Guðjónsson einn
blaðburðarstráka Nútímans hf.
eftir fundinn í Austurbæjarbíói
■ „Mér leist bara vel á þetta og er
alveg handviss um að ég get selt meira af
nýja blaðinu, miklu meira, sagði Guð-
mundur Þór Guðjónsson einn blaðsölu-
stráka Tímans í spjalli við blaðið. Guð-
mundur ber út inni í Vogum, Langholts-
vegi og smávegis inni í Sundum. í dag
ber Guðmundur út 29 blöð en bætir við
sig í vor þegar skólanum lýkur.
Hvað hefurðu svo upp á mánuði?
„Með lausasölunni eru það svona
1700 krónur á mánuði og þá er ég
hálftíma á dag að bera blaðið út."
Hvað fenguð þið að heyra um nýja
_ blaðið?
„Okkur var sagt að það yrði stærra og
meira af myndasögum í því og ýmislegt
meira sem ég ætla ekki að segja frá.“
Nú voru miklu fleiri á þéssum fundi
heldur en bera út Tímann í dag, voru
það þá krakkar sem ætla að byrja hjá
blaðinu í vor?
„Sumir en ekki allir. Sá sem ég tók
með mér var utan af landi en ég held
ekki að hann ætli að fara að bera út“.
-b
„UGGUR EKM ENN FYRIR
HVAD RÍKISSTJÓRNIN VILL“
— segir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
■ „Það liggur ekki enn fyrir hvað
ríkisstjórnin vill. Það er hún sem á að
leggja tillögur fyrir þingflokka þá er
að henni standa, en hún hefur bara
ekki komist að endanlegri niður-
stöðu“, sagði Þorsteinn Pálsson,
form. Sjálfstæðisflokksins spurður að
hvaða niðurstöðu menn hafi komist á
þingflokksfundi flokksins í gær.
Vegna þess er að framan segir sagði
hann ekki hafa verið stefnt að neinni
niðurstöðu á þeim fundi.
Þorsteinn kvaðst ekki efast um að
hægt sé að leysa vanda ríkissjóðs,
enda hafi þessi stjórn verið mynduð til
að stjórna fjármálum ríkisins en ekki
til að gefast upp við það. í meginlínum
telur hann að það sem beri að gera sé
að skera niður útgjöld til viðbótar
þeim niðurskurði sem þegar er
orðinn, að afla nýrra tekna og láta
neytendur opinberrar þjónustu taka
aukinn þátt í kostnaðinum að ein-
hverju leyti. Síðan sé óhjákvæmilegt
að einhverju, en þó mjög takmörkuðu
leyti, að auka erlendar lántökur ef
menn ætli að finna lausn sem hægt sé
að sameinast um. Eftir sé síðan að
finna jafnvægi milli þessara megin-
leiða.
Þorsteinn sagði menn verða að hafa
í huga að þegar sé búið að takast á við
mjög mikinn niðurskurð. Þrátt fyrir
gífurlega lækkun þjóðartekna frá síð-
asta ári hafi útgjöld ríkisins lækkað,
miðað við fjárlög, úr rúmlega 30%
niður í tæplega 29% sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu. Væru þjóðartekj-
ur íslendinga jafn miklar nú og 1982
þýddi það með sama tekjuhlutfalli af
þjóðarframleiðslu að um 1.500 mill-
jónum meiri tekjur fengjust í ríkis-
sjóð.
-HEI
Stöðuveitingar nýs meirihluta í SHÍ:
Aðstoðarmaður
ráðherra formaður
Félagsstofnunar
— og fyrrverandi ríkisfulltrúi í LÍN inn aftur
■ Vali manna í stöður nýrra valdhafa í
Stúdentaráði er nú lokið og er nú aðeins
beðið eftir skilafundi að nýr meirihluti
umbótasinna og Vöku taki við af Félagi
vinstri manna og umbótasinnum sem
haldið hafa um stjórnartaumana í eitt ár.
Þetta er þá í þriðja sinn að Félag
umbótasinnaðra stúdenta gengur til sam-
starfs við Vöku en með vinstri mönnum
hefur félagið aðeins starfað í eitt ár.
Einna mesta athygli vekur að Finnur
Ingólfsson aðstoðarmaður sjávarútvegs-
ráðherra, fyrrverandi formaður Stúd-
entaráðs og um langt skeið einn helsti
forystumaður umbótasinna tekur nú
sæti stjórnarformanns Félagsstofnunar
stúdenta. Þá mun Hrólfur Ölvisson
stjórnmálafræðinemi sem fyrr í vetur sat
í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna
fyrir hönd ríkisins taka þar sæti sem
fulltrúi stúdenta skipaður af umbóta-
sinnum. Hrólfur sagði sig úr stjórninni
fyrir skemmstu til þess að mótmæla
vinnubrögðum menntamálaráðherra við
gerð úttektar á sjóðnum.
Formaður Stúdentaráðs verður Stefán
Kalmannsson viðskiptafræðinemi og
einn ráðsliða Vöku. Af öðrum stöðum
sem skipaðar eru vökumönnum ber að
nefna að Jóhann Baldursson laganemi
mun sitja í stjórn Félagsstofnunar og
Stefán Guðlaugsson verkfræðinemi
verða fulltrúi ráðsins í ÆSÍ. Stjórnar-
menn í Stúdentaráði frá Vöku verða
Karl Konráð Andersen laganenti og
Guðný B. Eydal félagsvísindanemi sem
jafnframt mun sitja í utanríkisnefnd en
formaður fyrir þeirri nefnd hefur enn
ekki verið ákveðinn. Þar munu sitja
tveir vinstri menn og þrír vökumenn en
umbótasinnar höfnuðu setu í nefndinni.
Formaður menntamálanefndar verður
Páll Björnsson sagnfræðinemi.
Fulltrúar umbótasinna í stjórn SHÍ
verða Jóhanna Margrét Einarsdóttir ís-
lcnskunemi og fyrrverandi ritstjóri Stúd-
entablaðsins sem verður varaformaður í
stjórninni, Hrólfur Ölvisson og Anna
Sigurðardóttir viðskiptafræðinemi. Þá
mun umbótasinninn Dan Brynjarsson
formaður Hagsmunafélags Garðbúa
taka sæti í stjórn Félagsstofnunar og
jafnframt formannsembætti hagsmuna-
nefndar. Formaður funda- og menning-
armálanefndar verður Rögnvaldur Dofri
Rögnvaldsson viðskiptafræðinemi.
-b
Þýsk bókagjöf
til Háskólans
■ Háskóla íslands hefur borist bóka-
gjöf frá Vestur-Þýskalandi. Er hér um
að ræða 700 bindi á sviði læknisfræði,
jarðfræði, orkumála og gagnavinnslu,
og einnig nokkuð af ritum um vestur-
þýskt þjóðlíf og menningu.
Þessi gjöf berst í framhaldi af bókasýn-
ingu sem sýningarsamtök þýskra bóksala
og bókaforlaga stóðu að á Kjarvals-
stöðum í nóveber. Heinz Pallasch sendi-
ráðunautur afhenti gjöfina fyrir hönd
hinna þýsku bókaútgefenda við athöfn í
Háskólabókasafni 9. apríl sl. Á sýning-
unni voru alls 1600 bindi, og gekk
afgangurinn af bókunum til Þýska bóka-
safnsins, Myndlista- og handíðaskólans,
Tónlistarskólans í Reykjavik og Lands-
bókasafnsins.