Tíminn - 12.04.1984, Síða 11
10
FIMMTUDAGUR 12. APRIL 1984
íþróttir
EM bikarhafa:
HflUFT LH)
UTD. HÉLT JÖFNU
— Aberdeen kemst líklega áfram
■ „Ég er sérlega ánægAur nieð mína
menn, þeir börðust vel. 3-1 hefði gciið
rétta mynd af leiknum. Ég kvíði engu
leiknum á Ítalíu“, sagði Ron Atkinson
„stjóri" Manchester United eftir leik
liðs lians við Juventus Tórínó í EM
hikarhafa á Old Trafford í gær. „Ég er
ánægður með úrslitin, en þau cru um
lcið stórhættuleg. Það á ekki við Juvent-
us að spila upp á 1-0 eða 0-0 í seinni leik.
En við mætum með alla okkar bestu
menn heima“, sagði Trappatoni „stjóri“
Juventus.____________________
Spánverjar
unnu Dani
■ Spánvcrjar unnu Dani í vináttu-
landsleik í knattspyrnu á Spáni í gær-
kvöld 2-1. Eriksen skoraði fyrir Dani, en
Santillan og Senor fyrir Spánverjana.
-SÖE
Án allra tengiliða sinna, Miihren,
Robson og Wilkins, var Unitedliðið
hálfhalt. Þeir Remi Moses, Arthur Gra-
hani og gamlinginn John Gidman léku,
og Gidman varð að fara útaf vegna
meiðsla snemma. í stað hans kom Alan
Davies, sem skoraði jðfnunarmarkið á
35. mínútu. Paolo Rossi skoraði á 15.
mínútu eftir stórgóða sendingu frá Pól-
verjanum Boniek, skaut í varnarmann
og inn.
United átti allan leikinn. f lokin voru
nær allir mennirnir á vellinum í vítateig
Juventus. Frank Stepleton brenndi
hroðalega af í lokin, skaul í slána af 5
metra færi.
í Portó í Portúgal unnu heimamenn
Aberdeen 1-0. Markaskorarinn Gomez
skoraði á 14. mínútu.
Allgóðar líkur eru því á breskum
úrslitaleik í EM bikarhafa.
-Gka/SÖE
EM meistaralida:
LEKHR BRESKRA
UGGIA TIL RÓMAR
óvænt hjá
á Anfield
Dundee - 1 mark
Eiverpool-Dynamó Búkarest . 1-0
■ Rúmenarnir í Dynamó Búkarest
gætu átt það til að slá Liverpool út,
eins og þýsku risana HSV. Rúmen-
arnir lágu í vörn allan leikinn á
Anficld Road, og Liverpool skoraði
bara einu sinni. Lítið gaman hjá
áhangendum Liverpool. Búkarest
átti þú citt gott færi í fyrri hálfleik,
cinn Rúmeninn komst inn fyrir, og
skaut í stöng. Sammy Lee skoraði
sigurmark Liverpool á 25. mín. mcð
skalla.
Dundee Utd. - AS Roma ... 2-0
Það óvænta gcrðist í llundee, að
skoska liðið sigraði 2-0 og á því góða
I
I
L
Allir
möguleika á að slá út sterka Ítalíu-
meistarana. Fyrri hálfleikur var
fjörugur, en i síðari hálfleik tóku
Skotar völdin. Richard Gough gaf
vel á Davic Dodds í upphafl hálfleiks-
ins, og Dodds skoraði af 8 metra
færi. A 60. mínútu kom svo rothögg-
ið, Derek Stark gaf vel á Paul
Sturrokk, sem skoraði með glæsi-
skoti af 30 metra færi.
„Leiðir breskra liða liggja til
Rómar", sögðu Bretar eftir leikinn,
og vilja meina að bresku liðin, Liver-
pool og Dundee leiki til úrslita í
keppninni í Róm í vor.
-GKa/SÖE
I
■ Dæmigerð mynd úr leiknum í gær,
þar sem þreytan réði miklu í sóknar-
leiknum, en mcst var iagt í varnarleik-
inn. llór er Guðríður Guðjónsdóttir
tekin óblíðum tökum af frönskum.
Tímamynd Arni Sæberg.
ÞRIÐJI SIGURINN SAMT
ísland vann Frakkland 12-10 í sídasta leiknum
■ Þriðji landsleikur íslands og Frakk-
lands sem leikinn var í gærkvöld fyrir
lítinn hóp áhorfenda í íþróttahúsinu í
bestu körfuknattleiksmenn landsins:
STORMOT I KEFLAVIK
■ í kvöld hefst í íþróttahúsinu í Kcfla-
vík svokallað Stórmót Sparisjóðs Kefla-
víkur í körl'uknattlcik. Liðin sem taka
þátt í mótinu eru A-landsliðið, B-lands-
liðið, unglingalandsliðið og Suðurnesja-
úrval. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur
geflð mjög veglegan verðlaunagrip og
mun ætlunin að þetta mót verði árlegur
viðburður. Fyrstu leikirnir verða í kvöld,
þá lcikur unglingalandsliðið við B-lands-
íiðið kl. 20 og A-landsliðið mætir Suður-
nesjaúrvalinu, kl. 21.30. Á sunnudag
verður síöan leikið til úrslita, kl. 20 leika
tapliðin frá því í kvöld og leika þau um
þriðja sætið. Kl. 21.30 mætast síðan þau
lið sem sigra í kvöld og leika til úrslita í
mótinu.
A-landsliðið er skipað eftirtöldum leik-
mönnum: Jón Sigurðsson KR, Torfi Magnús-
son Val, Valur Ingimundarson UMFN, Jón
KR. Gíslason ÍBK. Flosi Sigurðsson, Uni-
versity of Washington, Pálmar Sigurðsson
Haukum, Hreinn Þorkelsson lR, Garðar
Jóhannsson KR, Gylfi Þorkelsson ÍR, Sturla
Örlygsson UMFN, Tómas Holton Val, Jón
Steingrímsson Val.
Þjálfari er Hilmar Hafsteinsson en aðstoð-
armaður hans er Sigurður Hjörleifsson.
B-landsliðið er skipað eftirtöldum leik-
mönnum: Árni Guðmundsson IS, Guðmund-
ur Jóhannsson ÍS, Hálfdán Markússon Hauk-
um, Hjörtur Oddsson ÍR, Þorvaldur Geirs-
son Fram, Kristinn Kristinsson Haukum,
Leifur Gústafsson Val, Ólafur Rafnsson
Haukum, Páll Kolbeinsson KR, Sveinn Sig-
urbergsson Haukum, Unnar Vilhjálmsson
UMFL, Dacarsta Webster Haukum.
Þjálfarar eru þeir Einar Bollason og Krist-
inn Jörundsson.
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í
Suðurnesjaúrvalið: Gunnar Þorvarðarson
UMFN. Arni Lárusson UMFN, Ástþór Inga-
son UMFN, ísak Tómasson UMFN, Ingimar
Jónsson UMFN, Þorsteinn Bjarnason IBK,
Óskar Nikulásson ÍBK, Jónas Jóhannesson
Reyni, Eyjólfur Guölaugsson UMFG,
Hjálmar Hallgrímsson UMFG, Ólafur Jó-
hannesson UMFG.
Þjálfari liðsins er Gunnar Þorvarðarson.
I unglingalandsliðinu leika eftirtaldir leik-
menn: Björn O. Steffensen IR, Karl Guð-
laugsson IR, Jóhannes Kristbjörnsson KR,
Mattías Einarsson KR, Guðni Guðnason
KR, Birgir Mikaelsson KR, Sigurður Ingi-
mundarson ÍBK, Guðjón Skúlason IBK,
Kristinn Einarsson UMFN, Hreiðar Hreið-
arsson UMFN, Teitur Örlygsson UMFN,
Henning Henningsson Haukum.
Þjálfari liðsins er Einar Bollason. . -BL
Hafntirflrði var hálfþreytulegur. tsland
vann 12-10, og segir markatalan nokkuð
um nýtingu færa í leiknum. Bæði liðin
virtust þreytt, og einungis það að jafnt
var á komið með liðunum í því efni færði
íslenska liðinu sigurinn í lokin. Staðan
var 6-5 fyrir Ísland í hálfleik.
íslensku stúlkurnar byrjuðu illa,
skoruðu ekki fyrr en eftir 13 mínútna
leik, þá höfðu þær frönsku skorað 3. Þá
skoraði Guðríður með góðu skoti. ísland
komst síðan í 3-4, og góð barátta og tvö
mörk Ernu Lúðvíksdóttur jöfnuðu leik-
inn alveg, 4-4, og 5-5. ísland yfir 6-5 í
hálfleik. fsland skoraði síðan tvö fyrstu
mörkin í síðari hálfleik, en þá var orkan
búin. Þær frönsku skoruðu fjögur mörk
í röð, og komust yfir 9-8 um miðjan
hálfleikinn, á meðan ísland misnotaði
þrjú vítaköst, Guðríður tvö og Kristjana
eitt.
MARGIR A APRILMOTI
Eitt fjölmcnnasta júdómút scm haldið
hcfur verið hérlcndis var haldið á Akureyri
um síðustu helgi á vegum Júdóráðs Akureyr-
ar. Þetta var Aprílmút JRA, en þar kepptu
55 júdómenn víðsvegar að af landinu. Keppt
var í 7 þyngdarflokkum karla, og tveimur
kvenna. f stað þyngdarmerkinga voru karla-
flokkunum gefln nöfn.
Hvað hörðust var keppnin í þrekvigt, þar
glímdu til úrslita Jón Oðinn Óðinsson IBA
og Árni Ólafsson frá F.gilsstöðum. Þar var
hart barist, og varð eitthvað undan að láta.
Jón Óðinn varð að lokum að hætta keppni,
þar sem meiðsli sem hann hlaut fyrr í mótinu
ágerðust, en Árni sigraði.
Úrslit í einstökum flokkum uröu eftirfar-
andi:
Dvergvigt:
1. Eyþór Hilmarsson Ármanni,
2. Haukur Garðarsson Ármanni,
3. Gunnlaugur Sigurjónsson IBA.
Lágvigt:
1. Baldur.Stefánsson ÍBA
2. JúlíuS Sigurðsson UMFG,
3. Tryggvi Heimisson IBA.
Léttvigt:
1. Elías Bjarnason Ármanni.
2. Ólafur Herbertsson ÍBA
3. Jón A. Jónsson Ármanni.
Miðvigt:
1. Eiríkur Kristinsson Ármanni,
2. Truusti Harðarson ÍBA,
3. Magnús Kristinsson Ármanni,
3, Árni Ólafsson fBA.
Hávigt:
1. Arnar Harðarson ÍBA,
2. Hilmar T. Grétarsson Ármanni,
3. Kosimo, Egilsstöðum,
3. Ástvaldur Sigurbergsson Ármanni.
Þrckvigt:
1. Árni Ólafsson Egilsstöðum,
2. Jón Óðinn Óðinsson ÍBA,
3. Páll M. Jónsson Ármanni,
3. Halldór Hafsteinsson Ármanni.
Tröllvigt:
1. Sigurður Sveinsson Ármanni,
2. Jökull Hjöðversson Egilsstöðum,
3. Jens Jakobsson ÍBA.
Stúlkur +60:
1. Líneik Sævarsdóttir Egilsstöðum,
2. Ásta Svavarsdóttir Egilsstöðum,
3. Birgitta Óskarsdóttir Reykjavík.
Stúlkur -60:
1. Kristín Snæþórsdóttir Egilsstöðum,
2. Þóra Þórarinsdóttir ÍBA,
3. Hrund Þórarinsdóttir Reykjavík,
3. Svala Björnsdóttir ÍBA.
Mótið gekk mjög vel, mótsstjóri var Þor-
steinn Hjaltason. -SÖE
____________■■■■■■■■
Enn dró þó Erna Lúðvíksdóttir fsland að landi með
góðu marki, 9-9, Kristín Pétursdóttir fiskaði víti og
Ingunn skoraði, og Erla Rafnsdóttir skoraði fallegasta
mark leiksins með hraðaupphlaupi, 11-9, franskar
minnkuðu muninn, en Sigrún Blomsterberg tnnsiglaði
sigurinn rétt fyrir leikslok eftirgóða línusendinguErnu.
Best í íslenska liðinu var Erna Lúðvíksdóttir, hélt ein
fullum kröftum. Þá var Kristín Pétursdóttir góð, fiskaði
þrjú víti, og Erla Rafnsdóttir góð, er hún fékk að spila
á línunni. Það er hins vegar fáránlegt að láta hana spila
í horni, eins og lengi var gert í þessum leik.
Mörkin: Guðríður Guðjónsdóttir 3/2, Erna 3, Sigrún
Blomsterberg 3, Ingunn Bernódusdóttir 2/1, Erla Rafns-
dóttir. 1. Kristín Brandsdóttir varði þokkalega í síðari
hálfleik. Best frönsku stúlknanna var markvörðurinn
Delayat sem varði 12 skot í síðari hálfleik.
Dómarar voru Rögnvaldur Erlingsson og Stefán
Arnaldsson. -SÖE
i GUÐRÚN HEFUR LÍKA
[MISST3 MÓTÚR
IM í frétt Tímans síðastliðinn þriðjudag var grcint
frá því, að baráttan um siuur í kvennaflokki t'
I
I
I
i
I
I bikarkeppninnt á skíðum í alpagreinum stæði milli I
* Guðrúnar H. Kristjánsdóttur og Nönnu Leifsdótt- 1
| ur. Þar var sagt frá því, að Nanna Leifsdóttir hefði |
I misst úr þrjú bikarmót kvenna, sökum þess að hún .
Ivar erlendis að búa sig undir Ólympíuleikana í |
ISarajevo. Það var hins vegar ekki tekið fram, að ■
Guðrún H. Kristjánsdóttir hefur einnig misst úr 3 I
Ibikarmót, vegna þess að þau rákust á bikarmót f
unglinga sem hún tók þátt í. |
IKeppnin er því mjög hörð milli þessara tveggja ■
stúlkna, Nönnu og Guðrúnar. Guðrún hefur fjög- ■
I urra stiga forskot á Nönnu. og líklcgt er að úrslitin I
Jmuni ráðast á Landsmótinu á skíðum á Akureyri *
| um páskana, þar sem þær keppa báðar. _ §ÖE. |
FIMMTLD.VGUK 12. APRÍL 1984
IX
umsjón: Samuel Örn Eriingsson
HESTAMENN KOMNIR í ÍBR
■ Sambandsstjórnarlundur ISI var
haldinn þann 31. mars síðastliðinn. Með-
al mála sem samþykkt voru á fundinum
var innganga íþróttadeildar Hesta-
mannafélagsins Fáks í íþróttabandalag
Reykjavíkur.
Einnig voru samþykktar samnorrænar
reglur um lyfjaeftirlit og breytingar á
reglugerð ÍSÍ til sérsambandanna. Einn-
ig voru samþykktar nokkrar breytingar
á dóms- og refsiákvæðum ÍSÍ.
Á fundinum var einnig fjallaö um
almenningsíþróttir og margt fleira. Sam-
þykkt var að halda næsta lþróttaþing ÍSÍ
29-30. september 1984 í Reykjavík.
FLUGLEIÐIR
AUGLÝSA
FLUG OG HÚS
J\lEFA-keppnin iÓVÆNTll :
R SIGUR :
iNUn. FOREST i
1 Nottingham Forest-Anderlechl...2-0. ■ ■ Sigur Nottingham Forest kom „út úr 1 myrkrinu“ é City Ground í Nottingham í ■ fyrri ieiknum vid Anderlecht, lið Arnórs 1 Gudjohnsen í Bclgíu, ■' gær. Anderlecht ■ lék vörn meiri hluta leikyins, en án Gary | Birtles var sóknin billaus hjá Forest. ■ Þegar allar sóknaraðferðir höfðu verið 1 nýttar, gaf Gary Mills, nýkoniinn inn í 1 liðið eftir að hann þrífólbrijlnaði fyrir 1 tveimur árum, gúða sendingu fyrir á ^Sleve Hodgc sem skallaði á 85. mínútu, í netið, 1-0. Hodge bælti öðru við mínúlu | fvrir icikslok, 2-0. Hadjuk Splil-Totten- ■ ham...2-l. Tottenham skoraði á 19 mín. gegn ■ gangi leiksins. Mark Falco lók víta- | spyrnu, hún var varin, en Tottcnham ■ náði boltanum. hann kom fyrir og Falco | skoraði. Gudelj jafnaði fyrir Júgúslavana ■ á 67,'mín. og Pesic skoraði sigurmark | þeirra á 77. mín. ■ F.nsku liðin eiga-því góöa möguteika. -SÖE. j
eruþaubesiu,
sem Flugleióir hafa nokkru slnnl boðió
Þau allm bestu!
Dæmi um verð:
Fyrir4 manna fjölskyldu í 2 vikur:
Flug, sumarhús og rútuferðir frá og til Lux:
/rab:48-612"
Flugleiðlr kynna nýjan sumarleyfisstað í Þýskalandi:
Daun í Elfel-héraði, skammt frá Mósel og Rín.
Bílaleigubíllinn biður þin í Luxemborg, og baðan
ekur þú sem leið liggur til Daun, - bar sem þú og
fjölskyldan dveljið í góðu yfirlæti í glæsilegu sumarhúsi.
Dægradvöl og skemmtanir viö allra hæfi.
Bílaleigubíll í viku kostar frá kr. 2.760,-
Þú borgar bensíniö, en allur annar kostnaöur er inni-
falinn.
Eifel-héraö er rómaö fyrir náttúrufegurð, og allt i kring
eru skemmtilegir staðir, - smábæir og borgir, s.s.
Trier, Koblenz, Köln og Frankfurt.
Fjölbreytt og skemmtilegt sumarleyfl allrar fjöl-
skyldunnar.
Á söluskrlfstofum Fluglelða, hjá umboðsmönnum
og á ferðaskrlfstofum eru myndbönd frá Daun-
Eifel, bækllngar, og þar færðu allar frekari upp-
lýslngar.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur. f