Tíminn - 12.04.1984, Side 12
12
Mrmbnvi
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1984
fréttir
■ Ferðalangarnir í ferð þingilokks Framsóknarflokksins virða fyrir sér líkan af byggingum Hitaveitu
Suðurnesja inni í einu stöðvarhúsinu.
■ Af heimsókninni í Fjölbraut Suðurnesja. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, Ágúst B.
Karlsson formaður kjördæmasambands Framsóknarflokksins á Suðurnesjum og Haukur Ingibergsson
framkvæmdastjóri flokksins á tali við iðnema á rafiðnaðarbraut.
«MNGFLOKKUR FRAMSOKNAR-
FLOKKSINS A FARALDSFÆTI
■ Forsvarsmenn þeirra 16 samtaka sem standa að Friðarpáskum í Norræna húsinu dagana 14. til 23. mars á
blaðamannafundi þar sem dagskráratriði voru kynnt.
Friðarpáskar í Norræna
Kúsinu 14. til 23. mars
■ Fyrir skemmstu lagði þing-
flokkur Framsóknarflokksins land
undir fót og brá sér í dagsferð um
Suðurnesin. Kíkt var á fyrirtæki,
■ Ólafur Þ. Þórðarson ávarpar þing-
flokksfundinn i Glóðinni en þar ræddi
hann meðal annars þær hugmyndir sínar
að skipta landinu upp í fjóra sjálfstæða
fjórðunga og Reykjavík yrði sá fimmti
en þjóðríkið héti upp frá því Sambands-
lýðveldið ísland.
Tímamynd G.E.
heilsað upp á bæjarstjórnarmenn
og haldinn þingflokksfundur á
veitingastaðnum Glóðinni, Kefla-
vík að viðstöddum flokksbræðrum
úr kjördæminu.
Meðal þeirra staða sem skoðaðir
voru var Hitaveita Suðurnesja í
Svartsengi en þaðan er veitt heitu
vatni til allra plássa á Suður-
nesjunum að Vatnsleysuströnd-
inni undanskilinni.Þá var litið við
í Fiskmjölsverksmiðjunni á
Reykjanesi sprottið hefur upp á
undraverðum tíma og nýtur orku
frá háhitasvæðinu þarna á skagan-
um. Sjóefnavinnslan 'var skoðuð
og hluti hópsins heilsaði upp á
nemendur Fjölbrautarskóla
Suðurnesja. Þar svaraði Stein-
grímur Hermannsson fyrirspurn-
um nemenda sem voru margar og
báru vott um pólitískan áhuga
ungmennana.
Hádegisverður var snæddur í
Veitingahúsinu Glóðinni en þar
voru mættir auk ferðalanga allir
formenn Framsóknarfélaganna í
kjördæminu, og nær allir sveitar-
stjórnarmenn flokksins. Undir
borðum voru flutt mörg ávörp, og
urðu margir til að minna á nauðsyn
þess að herða róðurinn í pólitísku
starfi flokksins í þessu kjördæmi
þar sem framsóknarmenn hafa
ekki lengur neinn þingmann.
- b.
■ Friðarpáskar 1984 er yfirskrift dag-
skráratriða í Norræna húsinu sem hefjast
á laugardaginn og standa í 10 daga eða
fram til annars í páskum. Um er að ræða
fjölþætta dagskrá í öllum sölum hússins
sem hefjast klukkan þrjú alla daga
vikunnar og standa fram á kvöld. Af
dagskráratriðum má nefna fræðslufundi,
söngskemmtanir, leiklistaruppákomur,
barnatíma, myndlistasýningar og
myndasmiðjur þar sem gestum verður
boðið að taka til við myndræna tjáningu
undir handleiðslu myndlistarmanna. Að
firðarpáskum 1984standa lófriðarhópar
og samtök og má þar nefna Varðberg,
Samhygð, Samtök herstöðvaandsæð-
inga, Friðarhóp kirkjunnar, Friðarhreyf-
ingu íslenskra kvenna, Samtök lækna og
eðlisfræðinga gegn kjarnorku og marga
fleiri.
Friðardagskráin hefst á laugardag með
göngu frá Lækjartorgi að Norræna hús-
inu þar sem dagskráin verður formlega
sett klukkan þrjú. Af helstu dagskrár-
atriðum laugardagsins má nefna bland-
aða dagskrá með söng, ávörpum, upp-
lestri og fleiru og leikþátt um kvöldið
eftir Raymond Briggs í flutningi Guð-
rúnar Stephensen og Róberts Arnfinns-
sonar undir leikstjórn Jill B. Arnasonar.
Sunnudaginn 15. apríl verður auk ann-
arra dagskráratriða fræðslufundur þar
sem fulltrúar Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna gera grein fyrir afstöðu ríkja
sinna til kjarnorkukapphlaupsins og sitja
fyrir svörum gesta.
Samhliða friðarvikunni verður safnað
undirskriftum meðal gesta í norræna
húsinu þar sem skorað er á íslensk
stjórnvöld að taka einarða afstöðu gegn
kjarnorkuvopnakapphlaupinu og því
jafnframt beint til allra kjarnorkuvelda
að þau geri með sér samkomulag um
stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar og kerfis-
bundna afvopnun.
Dagskrá friðarpáska verður eins og
fyrr segir fjölbreytt og segir í erindisbréfi
dagskrárinnar að allir ættu að geta
fundið eitthvða við sitt hæfi hvort heldur
er til að fræðast, láta augu og eyru njóta
eða beita höndum til að skapa. í lok
friðarpáska á mánudaginn 23. apríl verð-
ur haldinn fundur undir yfirskriftinni
Hvert stefnir nú þar sem ræddar verða
niðurstöður og gerð úttekt á friðar-
páskunum.
- b.
Útíhuiöir — Gluggar
Fullkomin samsetnina
Gerum verötilboö Sendum gegn póstkröíu.
TRÉSMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06