Tíminn - 17.01.1986, Qupperneq 4
4Tíminn
Ljóti andarunginn varð svo sannarlega að fallegum svani. „Stóru“ eyrun eru ekki lengur stór og tennurnar ekki
lengur skakkar.
Flóttastúlkan sem er hæst
launaða fyrirsæta heims
Myndir af Paulina skreyta forsíður
helstu blaða og almanaka heims.
Saga Paulina Porizkova minnir
helst á söguna um Ijóta andarung-
ann. Núna er hún fögur og fræg, og
launin hennar mælast í milljónum
dollara. Þegar hún var lítil hafði
hún minnimáttarkend vegna þess
hvað hún hafði stór eyru og tenn-
urnar voru skakkar. í skólanum var
henni strítt og hún uppnefnd
„kjúklingurinn1- af því að hún þótti
svo pervisin. Og ekki bætti það úr
skák að hún var útlendingur, fædd í
Tékkóslóvakíu en ólst upp í
Svíþjóð.
Foreldrar Paulina, Anna og Jiri
Porizkova, flúðu frá Tékkóslóvak-
íu eftir innrás Rússa 1968, en skiidu
Paulinueftir hjá foreldrum Önnu,
Þau komust til Svíþjóðar og fengu
þar hæli. Barátta þeirra fyrir því að
fá dóttur sína til sín hófst þegar þau
voru komin í öruggt skjól í Lundi
en bar lengi vel engan árangur.
Paulina var ekki nema þriggja
ára, þegar foreldrar hennar geyst-
ust í burt á mótorhjóli og hún
hvorki heyrði þau né sá árum sam-
an á eftir. Hún hugsaði mikið um
hvað hefði valdið því að pabbi
hennar og mamma höfðu yfirgefið
hana án allra skýringa og komst
helst að þeirri niðurstöðu að það
væri vegna þess hvað hún væri með
stór eyru! Hún hafði nefnilega oft
setið í fangi pabba síns á mótor-
hjólinu og hann stríddi henni þá
með því að þessi stóru eyru drægju
úr hraðanum. Á flótta gat það
komið sér illa.
En pabbi og mamma voru síður
en svo búin að gleyma dóttur sinni.
Þau neyttu allra bragða til að vekja
athygli á baráttu sinni við tékknesk
yfirvöld til að fá dóttur sína til sín.
M.a. fóru þau í hungurverkfall á
Sergelstorgi í Stokkhólmi. En ekk-
ert dugði. Anna greip þá til þess
óyndisúrræðis að fá tvo
til að fljúga með sig til Tékkóslóvak-
íu, þar sem hún ætlaði að „ræna“
dóttur sinni. Þessi djarflega áætlun
misheppnaðist auðvitað og Anna
var hneppt í fangelsi, þó að hún
væri gengin 5 mánuði á leið með
soninn Jachym.
Barátta Jiris hélt áfram og nú
voru þau 3 sem hann fór fram á að
fá til sín til Svíþjóðar, Anna, Paul-
ina og sonurinn Jachym, sem hann
hafði aldrei fengið að sjá.
Eftir 6 ára baráttu létu tékknesk
yfirvöld loksins undan þrýstingi
sænsks almenningsálits og fjöl-
skyldan gat loks sameinast. Þá var
Paulina orðin 9 ára, og Jachym var
tveggja ára þegar faðir hans sá
hann fyrst. Það var hrærð fjöl-
skylda sem ætlaði að taka upp
þráðinn á ný eftir langan aðskilnað
og sænska þjóðin fylgdist grannt
með, með hjálp fjölmiðla.
Fljótlega kom þó í ljós að það
var hægara sagt en gert. Hjóna-
bandið fór fljótlega út um þúfur og
Anna sat uppi einsömul með bcrnin
tvö. Paulina saknaði bernskuslóð-
anna í Tékkóslóvakíu og ekki bætti
úr skák að sænskir skólafélagar
hennar stríddu henni og upp-
nefndu. Og ekki þótti henni það
betra þegar hún varð þess vör að
henni var vorkennt á bak. „Vesal-
ings flóttabarnið" sagði fullorðna
fólkið fullt meðaumkunar.
Hún var ekki nema 15 ára þegar
hún lagði land undir fót til Parísar
þar sem beið hennar frægð og frami
í fyrirsætu- og sýningarstúlkustarfi.
Hún er nú hæst láunaða fyrirsæta
heims, aðeins tvítug að aldri, og
býr í lúxusíbúð á Manhattan með
köttunum sínum tveim.
, Allar óskir Paulina eru þó ekki
luppfylltar enn. Hún er ekki ánægð
með vinnuna sína og segist bara
stunda fyrirsætustarfið vegna þess
aðkaupiðségott. Húnersamtekki
eyðslusöm að sama skapi og sitja
bág kjör í uppvextinum greinilega í
henni. Ef hún neyðist til að taka
leigubíl segist hún þjást af sam-
viskubiti!
Öllum frístundum sínum eyðir
hún í að skrifa og teikna og það hef-
ur tekist að toga upp úr henni að
hana dreymi um að semja barna-
bók með eigin myndskreytingum.
Eftir margra ára að-
skilnað sameinaðist
fjölskyldan Porizkova
loks í Svíþjóð.
Föstudagur 17. janúar 1986
ÚTLÖND
GEFN — Sovétmenn tóku af skarið í síðustu vopnatak-
mörkunarviðræðum risaveldanna með því að leggja á
borðið nýjar tillögur sem gera ráð fyrir að öllum kjarnorku-
vopnum verði útrýmt af jörðinni fyrir árið 2000.
PARIS — Ali Nasser Mohammed forseti Suður-Jemen á
nú í viðrærðum við fjóra foringja uppreisnarmanna í
sovéska sendiráðinu í Aden að því er vestrænar heimildir
herma. Harðir bardagar milli andstæðra marxistafylkinga
hafa staðið yfir í landinu síðan um helgi.
OSLÓ — Að sögn forsvarsmanns norska varnarmála-
ráðuneytisins var öryggisgæsla kringum stöðvar NATO og
önnur hernaðarmannvirki aukin í Noregi og Danmörku eftir
að varað hafði verið við hugsanlegum árásum skæruliða.
BEIRUT — Elie Hobeika, einn af hernaðarleiðtogum
kristinna manna í Líbanon, flúði landið þegar hersveitir,
sem njóta stuðnings Sýrlendinga, skutu sprengjum að Bik-
faya, heimaborg forseta landsins, Amins Gemayel. Ho-
beika var einn af þeim sem undirrituðu friðarsáttmála fyrir
Líbanon sem Sýrlendingar stóðu fyrir.
DJIBOUTI — Mengistu Haile Mariam forseti Eþíópíu og
Mohamed Siad Barre forseti Sómalíu tókust í hendur í boði
einu þar í borg og sögðu stjórnarerindrekar það þýða að
þeir myndu leita leiða til að draga úr spennu milli þessara
tveggja nágrannaríkja.
TEL AVIV — ísraelskar herflugvélar fóru í veg fyrir far-
þegaflugvél frá Kúwait yfir Gólanhæðum og fylgdu henni út
fyrir flughelgi ísraels að því er herútvarp þar í landi greindi
frá.
STRASSBORG — íhaldssamir meðlimir Evrópu-
þingsins ögruðu Margréti Thatcher forsætisráðherra Bret-
lands með því að krefjast „evrópskar" úrlausnar á vanda-
málum Westland þyrlufyrirtækisins breska.
BADEN-BADEN, — V-Þýskalandi - Frakkar sýndu í
verki skilning sinn á vörnum V-Þýskalands þegar Francois
Mitterrand forseti Frakklands og vestur-þýski kanslarinn
Helmut Kohl hittust á fyrsta fundi þessara ríkja á árinu.
Leiðtogarnir tveir fylgdust með hersýningu sem fór fram við
aðalstöðvar franska hersins.
pAR!S — Eritrískir uppreisnarmenn sögðust hafa eyði-
lagt fjörutíu eþíópískar herflugvélar í fyrrinótt er þeir réðust
á annan stærsta herflugvöll í Eþíóþíu.
FRÉmYFIRLJT
NEWS IN BRIEF
GENEVA — The Soviet Union opened the latest round
of U.S. - Soviet arms control talks by tabling formally a new
proposal to eliminate all nuclear weapons from the earth by
the year 2000.
PARIS — South Yemen President Ali Nasser Moham-
med is holding talks with four rebel leaders in the Soviet
Embassy in Aden after four days of bitter fighting between
rival Marxist fractions, Western diplomatic sources said.
OSLO — Norway and Denmark have tightened security
around NATO bases and other millitary establishments
after warnings of a guerrilla attack, a Norwegian Defence
Ministry spokesman said.
BEIRUT — Christian Militia leader Elie Hobeika, who
signed a Sy rjan-backed peace pact for Lebandon, appar-
entiy tled the country as pro-Syrian forces poured shells
into President Amin Gemayel’s maronite mountain strong-
hold of Bikfaya.
DJIBOUTI — Ethiopian leader Mengistu Haile Mariam
and Somali president Mohamed Siad Barre shook hands at
a reception here and diplomats said it indicated they might
seek to end hostilitied between their neighbouring states.
TEL AVIV — Israeli warplanes intercepted a Kuwaiti
passenger plane over the strategic Golan Heights and esc-
orted it out of Israeli Controled airspace, army radio said.
STRASBOURG —Conservative members of the Eur-
opean Parliament defied British Prime Minister Margaret
Thatcher and called for a European solution for the ailing
Westland helicopter company.
BADEN-BADEN — West Germany - France put its
commitment to the defence of West Germany on Display as
President Francois Mitterrand and Chancellor Helmut Kohl
met for the first Franco-German summit of 1986. The two
leaders watched a parade of tanks, artillery and helicopters
at French military headquarters.
PAR|S — Eritrean rebels said they had destroyed 40 Et-
hiopian air force planes in a night raid on Ethiopia’s second
largest airbase.