Tíminn - 17.01.1986, Page 9
Föstudagur 17. 'janúar 1986
HELGIN FRAMUNDAN
Hótel Saga - um helgina
í kvöld, föstudagskvöld, er
einkasamkvæmi í Súlnasal, Átt-
hagasal og á Mímisbar, - en Grillið
og Astra-Bar eru opin til kl. 0.30.
Reynir Jónasson, harmoniku- og
hljómborðsleikari leikur létta og
þægilega tónlist fyrir matargesti.
Laugardagskvöld: Laddi á Sögu í
Súlnasal. Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur fyrir dansi til
kl. 03.00. Á Mímisbar verður Dú-
ettinn André Bachmann og Krist-
ián Óskarsson og leika fyrir gesti,
en einkasamkvæmi verður í Átt-
hagasal.
Fundur FUF í Árnessýslu:
Frjáls f jölmiðlun
og svæðisútvarp
Félag ungra framsóknarmanna í
Árnessýslu efnir til fundar um
hugtakið „Frjálsa fjölmiðlun" og
„Svæðaútvarp" á Suðurlandi. Til-
efni fundarins eru hin nvju lög sem
tóku gildi unt sl. áramót um afnám
einkaréttar Ríkisútvarpsins.
Fundur þessi verður haldinn í
veitingahúsinu „Gjáin“ á Selfossi
laugard. 18. jan. kl. 14.00. Fram-
söguerindi flytja Þorgeir Ástvalds-
son frá RUV og Helgi Pétursson
ritstjóri. Ávörp flytja Þór Vigfús-
son rektorFUS, Stefán Ómar Jóns-
son bæjarstjóri .borleifur Björg-
vinsson oddviti, „Ákveðin rödd úr
Vestmannaeyjum" og Kristján
Friðriksscn nemi.
Umræður öllum frjálsar um mál-
efnið frá kl. 15.50.
Til fundarins er boðið fulltrúum
frá Ríkisútvarpinu, Útvarpsréttar-
nefnd, úr menntakerfinu og helstu
forsvarsmönnum sveitarstjórna.
Fundurinn er öllum opinn.
Mexíkönskveislaá
KRÁKUNNI
Frá veitingahúsinu Krákunni var
hringt og tilkynnt að þar yrði um
helgina gestakokkur, sem sérhæfði
sig í mexíkönskum mat, og segja
forráðamenn Krákunnar, að þar
verði sannkölluð, „mexikönsk
veisla'ó
Gestakokkur að þessu sinni
verður Bryndís Björnsdóttir, en
hún bjó við landamæri Mexíkó um
árabil. Bryndís matbýr þarna Chili
Con Carne, og er mjög fær í hinum
ýmsu Tortilla-fyllingum og Guaca-
mole. Bryndís mætir með frábært
Chili-krydd frá Mexíkó.
Við þetta tækifæri verða
mexíkanskir drykkir á boðstólum.
svo sem mexíkönsk sólarupprás,
mexíkanskt kaffi o.fl.
Mexíkanska veislan hefst á há-
degi á föstudag og henni lýkur á
sunnudagskvöld.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík
heldur félagsvist á morgun, laug-
ard. 18. jan. kl. 14.00 í Skeifunni
17. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Húnvetningafélagið.
Hana-nú genguráný
í Kópavogi
Frístundahópurinn Hana nú í
Kópavogi byrjar aftur í vikuleg -
um laugardagsgöngum eftir jólafrí-
ið. Gangan á morgun 18. janúar
hefst frá Digranesvegi 12 kl. 10.00.
í göngunni á morgun verða ræddar
hugmyndir um nýjar gönguleiðir
og breytt skipulag þegar vorsólin
fer að skína.
Allir Kópavogsbúar, ungir og
aldnir, eru velkomnir í þessarheils-
ubótargöngu Hana nú.
Sýningar um helgina í Þjóðleikhúsinu:
Með vífið í lúkunum
Örn Árnason, Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, Sigurður Sigurjónsson
og Þórunn Magnea Magnúsdóttir í
ærslaleikuunt „Með vífið í lúkun-
um“
Gamanleikurinn Með vífið í lúkunum, eftir Ray
Conncy, verður sýndur tvisvar sinnum á föstudags-
kvöldið, kl. 20.00 og á miðnætursýningu kl, 23.30. 1
helstu hlutverkum eru: Örn Árnason, Sigurður Sig-
urðsson, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Pálmi Gestsson og Sigurður Skúla-
son.
íslandsklukkan í 35. sinn
Nú cru örfáar sýningar cftir á uppfærslu Þjóðleik-
hússins á íslandsklukkunni, eftir Halldór Laxness. 35.
sýning verður á sunnud. kvöld. Með helstu hlutverk
fara: Helgi Skúlason, Tinna Gunnlaugsdóttir og Þor-
steinn Gunnarsson.
Villihunang í 10. sinn
Tíunda sýning í Þjóðleikhúsinu á gamanleiknum
Villihunangi, eftir Anton Tsjékhov og Michael Frayn,
verður á laugardagskvöld kl. 20.00. Mcð helstu hlut-
verk fara Arnar Jónsson, Helga E. Jónsdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Guðbjörn Thoroddsen, Stein-
unn Jóhannesdóttir, Bessi Bjarnason, Róbert Arn-
finnsson, Rúrik Haraldsson, Pétur Einarsson o.fl.
Kardemommubærinn
Barnaleikrit Thorbjörns Egners, Kardemommu-
bærinn, verður sýnt á sunnud. kí. 14.00. Soffía frænka,
Bastían bæjarfógeti, Kasper, Jesper, Jónatan og fleira
fólk heldur Kardemommuhátíð og er í hátíðarskapi
allan tímann.
Guðbjörg Thoroddsen og Rúrik Haraldsson í Villihun-
angi effir Tsjékov í Þjóðleikhúsinu.
Leikfélag Reykjavíkur:
Land míns föður
Um helgina verða 65. og 66. sýn-
ingar á söngleiknum Land míns
föður eftir Kjartan Ragnarsson.
Leikritið hefur gengið fyrir fullu
húsi í allan vetur. Rétt er að geta
þess, að sökum þrengsla í Iðnó er
takmarkaður fjöldi sýninga eftir.
Sýning verður í kvöld. föstudags-
kvöld kl. 20.30 og sunnudagskvöld
á sama tíma,-
Leikurinn fjallar um fjölskyidu í
Reykjavík á stríðsárunum, um her-
nám Breta, komu Ameríkana,
kreppu og stríð. Með aðalhlut-
verk fara: Sigrún Edda Björnsdótt-
ir, Helgi Björnsson, Margrdf Helga
Jóhannsdóttir, Jón Sigurbjörns-
son, Aðalsteinn Bergdal, Ragn-
heiður Arnardóttirog Steinunn ðl-
ína Þorsteinsdóttir.
Tvær Reykjavíkurfrúr (Guðrún Ásmundsd. og Soffía Jakobsd.) bregða
sér í bíó með oiTiserum (Jóni Hjartarsyni og Guðmundi Ólafssyni)
Úr sýningu á Sex í sama rúmi í Iðnó.
Sex í sama rúmi
Hinn sprellfjörugi farsi Scx í
sama rúmi verður sýndur einu sinni
um helgina, en tvær sýningar verða
í næstu viku. Leikurinn verður
sýndur á laugardagskvöld kl.
20.30. Vegna þrengsla í Iðnó rnun
leikurinn verða fljótlega fluttur í
Austurbæjarbíói og þá sýnt á mið-
nætursýningum um helgar.
Með helstu hlutverk fara: Þor-
steinn Gunnarsson, Hanna María
Karlsdóttir, Valgerður Dan, Kjart-
an Ragnarsson og Kjartan Bjarg-
mundsson.
Leikmynd og búninga gerði Jón
Þórisson, en leikstjóri er Jón Sigur-
björnsson.
Tíminn 9
Sunnudagsferðir
Útivistar
Dagsferðir sunnudaginn 19. janú-
ar:
Kl. 10.30 - Gullfoss ■ klakabönd-
um. Auk þess verður Geysissvæð-
ið skoðað, gliúfrin við Brúarhlöð,
fossinn Faxi og Ólafsvallakirkja,
en þar er hin fræga altaristafla Balt-
asar. Farið verður frá BSÍ, vestan-
verðu.
Kl. 13.00 - Undirhlíðarvegur.
. Gengin verður gömul þjóðleið úr
Vatnsskarði í Kaldársel. Hluti
gömlu . Krísuvíkurleiðarinnar.
Þetta er þjóðleið mánaðarins, - en
það er ný -tegund Útivistarferða.
Brottför frá BSÍ bensínsölu, far-
miðar við bíl, en frítt f. börn í fylgd
fullorðinna.
Útivistarfélagar, vinsamlegast
greiðið heimsenda gíróseðla fyrir
árgjaldinu.
Ferðafélagið Útivist.
SunnudagsferðirF.Í.
Ferðafélag íslands fer kl. 13.00 á
sunnud. 19. jan. í fcrð um Illá-
fjallavegi: Ekið verður að Rauðu-
hnjúkum (Bláfjallavegi), gengiö
þaðan niður Sandfell, síðan á Sel-
fjall og niður í Lækjarbotna. Þetta
er létt og skemmtileg gönguferð.
Farmiðar við bíl, brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Skíðagönguferð F.í.
Kl. 13.00 á sunnudag veröur
skíðagönguferð á Hellishciði.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin.
Helgarferðir F.í.
14.-16. febr. - Brekkuskógur
göngu- og skíðaferð.
28. febr.-2. ntars Þórsmörk.
Ferðafélag íslands
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands:
Kynnisferð vegna
fiskeldis á
Suðurnesjum
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands fer nú, laugard. 18. jan.
þriöju kynnisferðina vegna fiskeld-
is á Suöurnesjum.
Farið verður frá Norræna húsinu
kl. 13.30, frá Náttúrugripasafninu
Hverfisgötu 116 (gegnt lögreglu-
stöðinni) kl. 13.45 og Náttúru-
fræðistofu Kópavogs Digranesvegi
12 kl. 14.00! Fargjald er 350 kr. og
er innifaliö í veröinu kaffihlaðborð
á veitingastað í Grindavík. Ef veð-
ur leyfir verða larnar örstuttar
gönguferðir. Farið verður um
Straumsvík, Voga, Keflavík, Ósa-
botna, Reykjanes og til Grinda-
víkur.
Leiðsögumenn og fyrirlesarar
verður Eyjólfur Friðgeirsson fisk-
fræðingur, Gunnar Steinn Jónsson
líffræðingur, Jón Jónsson jarð-
fræðingur og Ólafur Rúnar Guð-
varðarson kennari.
Góöa
skapiö má
ekki gleymast
heima undir
nokkrum kring-„*umfercwr
umstæðum. Wrao