Tíminn - 17.01.1986, Page 19
Föstudagur 17. janúar 1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
flokksstarf
Tíminn 19
Nikkelfjallið
Að loknum seinni fréttum Sjón-
varpsins í kvöld. nánar tiitekið kl.
22.45 hefst sýning föstudagsmynd-
arinnar sem að þessu sinni er ís-
lensk-bandarísk, gerð 1984.
Nikkelfjallið (Nickcl Mountain)
heitir hún og er byggð á skáldsögu
eftir John Gardner. Framleiðandi
er Jakob Magnússon og hljóðsetn-
ingu annast Sigurjón Sighvatsson.
Aðrir þátttakendur sem tilgrcindir
eru eru bandarískir: leikstjóri
Drew Denbaum og í aðalhlutverk-
um Michael Cole. Patrick Cassidy
og Heather Langenkamp.
Jakob Magnússon Stuðmaður,
m.fl. er framleiðandi Nikkelfjalls-
ins, föstudagsmyndar Sjónvarpsins.
Sjónvarp kl. 22.45:
Hljómsveitin Rikshaw rokkar í Sjónvarpinu í kvöld.
Sjónvarp ki. 20.40: Táningatónlistarþáttur
R II KS 1 iAl V
í kvöld kl. 20.40 hleypir Sjónvarpið af stokkun-
um nýjum tónlistarþætti fyrir táninga. Honum hefur
verið gefið nafnið Rokkarnir geta ekki þagnaö og
verða þar kynntar íslenskar rokk- og ungiinga-
hljómsveitir. Kynnircr Jón Gústafsson.
í þættinum í kvöld er það hljómsveitin Rikshaw
sem rokkar en liana skipa Richard Scobie (söngur),
Ingólfur Sv. Guðjónsson (hljómborð), Sigurður
Gröndal (gítar), Dagur Hilmarsson (bassi) og Sig-
fús Örn Óttarsson (trommur).
Björn Emilsson annast upptökustjórn.
Rás 2 sunnudag kl. 15.00-16
T ónlistarkrossgátan
Á sunnudaginn kl. 15 verður44. Tónlistarkrossgátan á
Rás 2. Stjórnandi er Jón Gröndal.
Föstudagur
17. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Stelp-
urnar gera uppreisn" eftir Fröydis
Guldahl Sonja B. Jónsdóttir les þýðingu
sína (10).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik-
ar, þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurður G. Tómas-
son flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dagblaöanna
10.40 „Ljáðu mér eyra" Umsjón: Málfríður
Sigurðardóttir. (Frá Akureyri).
11.10 Athvarf fyrir aldraða Sigurður Magn-
ússon talar
11.25 Morguntónleikar Tom Krause syng-
ur lög eftir Jean Sibelius. Irwin Gage leik-
urmeðápianó.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Ævintýramaður11.
af Jóni Ölafssyni ritstjóra Gils Guð-
mundsson tók saman og les (12).
14.30 Upptaktur Guðmundur Benedikts-
son.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar a. Sellókonsert I
a-moll op. 129 eftir Robert Schumann.
Christina Walevska leikur með hljómsveit
Óperunnar I Monte Carlo; Eliahu Inbal
stjórnar. b. „Lítil sinfónía" eftir Benjamín
Britten. Kammersveitin i Prag leikur; Li-
bor Hlavácek stjórnar.
17.00 Helgarútvarp barnanna Stjórnandi
Vernharður Linnet.
17.40 Úr atvinnulifinu - Vinnustaðir og
verkafólk. Umsjón Tryggvi Þór Aðal-
steinsson.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál Margrét Jónsdóttir flytur
þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Alþýðufróðleikur Hall-
freður Örn Eiríksson tekur saman og
flytur. b. Kórsöngur Kór Átthagafélags
Strandamanna syngur undir stjórn Magn-
úsar Jónssonar frá Kollafjarðarnesi. c.
Búskapur minn á Jökuldalsheiðinni
Guðríður Ragnarsdóttir les frásögn eftir
Björn Jóhannsson úr bókinni „Geymdar
stundir". Umsjón Helga Ágústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir Sveins-
son kynnir tónverkið „Hugleiðingar" eftir
Jórunni Viðar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 Kvöldtónleikar Fiðlukonsert I G-dúr
K. 216 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Anne-Sophie Mutter leikur með Filharm-
oníusveitinni i Berlín, Herbert von Karaj-
an stjórnar.
22.55 Svipmynd Þáttur Jónasar Jónasson-
ar. (Frá Akureyri)
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur. Tómas R. Einarsson.
01.00 Dagskrárlok
Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00.
Föstudagur
17. janúar
10.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll Þor-
steinsson og Ásgeir Tómasson.
12.00 Hlé
14.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis Gunn-
arsdóttir
16.00 Léttir sprettir Jón Ólafsson
18.00 Eystrasaltskeppnin í handknattleik
i Danmörku. Island-Pólland Ingólfur
Hannesson lýsir leik íslendinga og Pól-
verja.
19.15 Með matnum Stjórnandi: Margrét
Blöndal.
20.00 Hljóðdósin Stjórnandi Þórarinn Stef-
ánsson
21.00 Kringlan Kristján Sigurjónsson kynnir
tónlist úr öllum heimshornum.
22.00 Nýræktin Snorri Már Skúlason og
Skúli Helgason stjórna þætti um nýja
rokktónlist, innlenda og erlenda.
23.00 A næturvakt meö Vigni Sveinssyni
og Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar i þrjár mínútur kl.
11.00,15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags
17.03-18.00 Svæðlsútvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MHz
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz
Föstudagur
17. janúar 1986
19.10 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.20 Areksturinn (Sammenstödet) í þorpi
í Nepal fara börnin aö ganga í skóla en
gamla fólkið er ekki sammála öllu sem
þar er kennt. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision - Danska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Sigurveig Jónsdóttir.
20.40 Rokkarnir geta ekkiþagnað 1. Riks-
haw Nýr tónlistarþáttur fyrir táninga.
Kynntar verða íslenskar rokk- og ung-
lingahljómsveitir. Hljómsveitin Rikshaw
rokkar I fyrsta þætti. Kynnir: Jón Gústafs-
son. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
21.40 Derrick Fjórtándi þáttur. Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk:
Horst Tappert og Frítz Wepper. Þýðandi
Veturliði Guðnason.
22.40 Seinni fréttir.
22.45 Nikkelfjallið (Nickel Mountain) is-
lensk-bandarisk biómynd frá árinu 1984
byggð á skáldsögu eftir John Gardner.
Framleiðandi Jakob Magnússon. Leik-
stjóri Drew Denbaum. Aðalhlutverk: Mic-
hael Cole, Patrick Cassidy og Heather
Langenkamp. Kvikmyndun David
Bridges. Hljóðsetning Sigurjón Sighvats-
son. Fátæk stúlka í litlu fjallaþorpi verður
ófrísk eftir auðmannsson sem ekki fær að
gangast við barninu vegna þrýstings úr
föðurhúsum. Þá kemur miðaldra vonbiðill
stúlkunnar tíl skjalanna.
00.25 Dagskrárlok.
Konur Ólafsvík
Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeiö fyrir konur á öllum aldri í
Mettubúð Ólafsvík dagana 17. 18. og 19. janúar. Námskeiöiö hefst kl. 20.00
þann 17. janúar. Veitt verður leiösögn í styrkingu sjádlfstrausts, ræöu-
mennsku, fundarsköpum og framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinendur
veröa Guörún Jóhannsdóttir og Ásdís Óskarsdóttir. Þátttaka tilkynnist í síma
93-6306 eöa 93-6234.
LFK
Vesturlands kjördæmi
Alexander Stefánsson félagsmálaráöherra og Davíð Aöalsteinsson alþingis-
maöur veröa til viðtals á eftirtöldum stööum sem hér segir:
Föstudagur 17. jan. Lindartungu kl. 14-16.
Föstudagur 17. jan. í Dalabúð, Búöardal kl. 20.30-22.
Laugardagur 18. jan. Breiðabliki kl. 14-16
Laugardagur 18. jan. Lýsuhóli kl. 17-19.
Sunnudagur 19. jan. Hellissandi kl. 15-17.
Sunnudagur 19. jan. í Mettubúð, Ólafsvík.
Mánudagur 20. jan í Hamrahlið 4, Grundarf.
Mánudagur 20. jan. í fundarsal Kaupfélagsins Stykkishólmi kl. 20.30-22.
F.U.F. Árnessýslu
Félag ungra framsóknarmanna í Árnessýslu efnir til fundar um „Frjálsa fjöl-
miðlun" og „Svæöisútvarp" á Suðurlandi. Fundur þessi veröur
haldinn í veitingahúsinu Gjáin á Selfossi
þann 18. jan. nk. og hefst kl. 14:00 eh.
Dagskrá:
1. Fundursettur: kl.14:10
Hjörtur B. Jónsson
2. Frummælendur: kl.14:15
Þorgeir Ástvaldsson
Helgi Pétursson
3. Ávörp: kl.14:55
Rödd úr Vestmannaeyjum
Stefán Ómar Jónsson bæjarstj.
Þorleifur Björgvinsson oddviti
Þór Vigfússon rektor FSU
Kristján Friðriksson nemi
4. Frjálsar umræður: kl.15:50
Til fundarins er boðiö fulltrúum frá Ríkisútvarpinu, útvarpsréttarnefnd, úr
menntakerfinu og helstu forsvarsmönnum sveitarstjórna í Suöurlandskjör-
dæmi. En aö sjálfsögöu er fundurinn öllum opin.
Rangæingar - Félagsvist
Félagsvist verður í Hvoli Hvolsvelli sunnudaginn 19. janúarnk. kl. 21.00.
Góð kvöldverðlaun.
Framsóknarfélag Rangæinga
Skagfirðingar - Sauðarkroksbuar
Almennur stjórnmálafundur veröur haldinn í Framsóknarhúsinu Sauðárkróki
sunnudaginn 19. janúar kl. 16.00. Frummælendur veröa alþingismennirnir
Páll Pétursson og Stefán Guömundsson.
Framsóknarfélögin
Spilafólk
Félagsvist verður haldin á Hótel Borgarnesi sunnudaginn 19. janúar nk.
kl. 14.00 1986 . Allt áhugafólk hjartanlega velkomiö.
Framsóknarfélag Borgarnesi
Akranes-Akranes
o
Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna er boðaö til fundar mánudaginn 20. janúar
kl. 21.00.
Fundarefni:
1. Bæjarstjórnarkosningar
2. Önnur mál
Stjórn Fulltrúaráðs
FUF Reykjavík
Aöalfundur FUF í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 23. janúar n.k. og
hefst hann kl. 20. Á dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórnin.