Tíminn - 17.01.1986, Page 20
Leikmenn sovéska tandsliðsins í handbolta voru ekki í I
góðu skapi eftir tapið gegn Dönum í fyrrakvöld, reyndar voru þeir ;
hundillir og það fenau íslensku landsliðsstrákarnir að reyna í gær- ;
kvöldi. Sovéska liðið hreinlega raðaði inn mörkunum meðan okkar ;
mönnum gekk lítið ellegar ekkert að skora. Þegar upp var staðið
höfðu Sovétmenn skorað 27 mörk en íslendingar 12 og það verður
að flokkast undir stórtap.
Danir unnu enn einu sinni í gær, lögðu Pólverja að velli með 28 ;
mörkum gegn 21.
Sjá nánar á íþróttasíðum Tímans í dag.
Tíminn
Föstudagur 17. janúar 1986
Borgarstjórn:
Slökkviliö
Offramleiösla í landbúnaði:
Lifum sæl-
una 87 að
hluta í ár?
Hafnarfjarðar:
Aldrei
fleiri
útköll
Slökkvilið Hafnarfjarðar
var kallað út 149 sinnum á
árinu 1985. Útköll hafa
aldrei verið fleiri, en einnritt
síðastliðið ár. 1 fréttatil-
kynningu, frá slökkviliðinu
í Hafnarfirði kemur fram að
fjölgunin stafar að mestu
leyti af því, að útköll vegna
sinubruna og íkveikju í rusli
fjölgaði gífurlega. Alls urðu
þau 83 á árinu, en voru 31
árið 1984.
- ES
Fyrirsjáanlegt er aö nrikil of-
framleiðsla verður á mjólkuraf-
uröum á verðlagsárinu. Alls
bárust Mjólkurbúi Flóamanna
42,7 milljónir lítra a|' mjólk á
síðasta almanaksári. Fctta er
að sögn Grétars Símonarsonar
mjólkurbússtjóra á Selfossi,
730 þúsund lítrunr meira en
metárið 1978.
Bjarni Guðmundsson að-
stoöarmaður landbúnaðarráð-
herra sagði í samtali við Tím-
ann í gær að allt stefndi í að um
mikla offramleiðslu yrði að
ræða á árinu. „Mesta hættan
fyrir bændur sem nú blasir við,
og þeir hefðu þurft að gera sér
grein fyrir miklu fyrr, er sú að á
næsta ári verður mikið af
mjólkurafurðum fyrir þcirri
framleiðslu sem þeir áttu að fá
fullt verð fyrir.
í ágúst í sumar verða birgðir
osta og smjörs sem verða fyrir
framleiðslu nýja ársins. Viö
erum að lifa að hluta sælu ársins
1987 á árinu 1986,“ sagði
Bjami. Hann benti jafnframtáað!
það ætti ekki að koma neinum á
óvart að offramleiðsla yrði, því
þegar samningurinn um fram-
leiðsluþakið var gerður í ágúst
tók það til einnarmilljón lítra
Fegurðarsamningur
Borgin lokuð á laugardaginn
Lögreglustjórinn i Reykja-
vík ákvað í gær að svipta veit-
ingastaðinn Hótel Borg vín-
veitingaleyfi í tvo daga vegna
brots á reglum um leyfilegan há
ntarksfjölda gesta. Eftirlits-
menn töldu gesti inn og út úr
húsinu á dansleik síðastliðinn
laugardag og kom þá í Ijós að
þeir voru mun fleiri samtímis
innanhúss en lög gera ráð fyrir,
eða 60% of margir.
„Jú, það er rétt að þeir töldu
út úr húsinu hjá okkur og refs-
ingin felst í þessari sviptingu.
En í raun verður ekki lokað hjá
okkur nema á laugardaginn
kemur því að húsið hefur verið
pantað undir einkasamkvæmi á
föstudagskvöldið," sagði Sig-
urður Garðarsson fram-
kvæmdarstjóri Hótel Borgar.
Sigurður sagði að nýlega
hefðu verið gerðar breytingar á
staðnum sent hefðu aukið leyfi-
legan hámarksfjölda gesta en
að svo virtist sem að nauðsyn-
legar upplýsingar hefðu ekki
borist réttum aðilum nægilega
fljótt. Hann sagði að venjan
væri sú að dyraverðir teldu
bæði inn og út, þannig að
venjulega væri alltaf ljóst
hversu margir væru á veitinga
staðnum á hverjum tíma, en
það væri ekki óvenjulegt aö
farið væri 10-15% fram yfir
leyfilegan gestafjölda t.d. á
laugardögum.
- SS
Samkomulag nokkurra ís-
lcnskra aöila, þar á meðal,
ferðamálanefndar Reykjavík-
urborgar, við Miss World
(Jerscy) Ltd. ollli miklum
ágrciningiá borgarstjórnarfundi
í gærkvöldi.
Fulltrúar Kvennaframboðs-
ins fluttu tillögu um að hætt
yrði viö þcssa samingagerð af
hálfu borgarinnar, og til vara
að samþykkt yrði að vísa á-
kvörðuninni um kaup á rétti á
nafni, titli og framkomu
Hólmfríðar Karlsdóttur til um-
sagnar Jafnréttisncfndar
Rcykjavtkurborgar.
Hvorug tillagan var
samþykkt. Allir kvenborgar-
fulltrúar Sjálfstæðisllokksins
greiddu atkvæði gcgn fyrri til-
lögunni ásamt flokksbræðrum
sínum. Sjálfstæðisflokkurinn
sat hjá viö afgreiðslu síðari til-
lögunnar.
Magdalena Schram Kvcnna-
framboði hóf umræðuna með
því að mótmæla þátttöku
Reykjavíkurborgar í þessu
samkomulagi. Aö mati
Kvcnnaframboösins bryti það í
bága við 11. gr. Jafnréttisiaga
frá 1985. Dagblaðið Tíminn
hefði þcgar leitað umsagnar
Jafnréttisráðs á samkomulag-
inu og borgarstjórn ætti að
minnsta kosti að bíða þeirrar
umsagnar áður cn.til afgreiðslu
samkomulagsins kæmi.
Magdalena sagði að fcgurð-
arsamkeppnir viðhéldu við-
horfum í garð kvenna sem
kvenfrelsiskonur hefðu um
árabil beitt sér gegn. og borgar-
stjórn væri vansæmd af því að
taka þátt í slíku samkomulagi.
Guörún Ágústsdóttir og Sig-
urjón Pétursson lýstu yfir
stuðningi Alþýðubandalagsins
við tillögu Kvennaframboðs-
ins. í hita umræðunnar féllu
mörg orð og sagði Davíð Odds-
son að Kvennaframboöið hefði
hvaö eftir annað unnið jafn-
réttisbaráttunni stórtjón mcð
málflutningi sínum og taldi
hann málflutning Magdalenu
Schram vera forkastanlegan.
Fundarsköp leyfðu Magdalenu
ekki að stíga aftur í pontu.
Borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalags fluttu bókun þar sem
þeir fordæmdu orð borgar-
stjórans í garð Magdalenu og fóru
fram á að hann biðjist afsökun-
ar.
Davíð Oddsson sagði þá að
Kvennaframboðið hefði van-
virt borgarstjórn þegar þær
birtust í „skrípabúningum" í
borgarstjórn á síðsta ári.
Guðrún Jónsdóttir viidi ekki
meina að um „skrípabúninga"
hefði verið að ræða, heldur ná-
kvæmlega eins kjóla og
notaðir væru í fegurðar-
santkeppnum. Jaínframt sagði
hún að þcir hefðu átt að falla
borgarstjóra vel í geð þar sem
hann væri ntikill aðdáandi
kvenlcgrar fegurðar.
Mrún/ES
minna magns en meðaltal síð-
ustu ára.
Bergur Pálsson er einn for-
svarsmapna Félags kúabænda á
Suðurlandi. Hann sagði í sam-
tali við Tímann í gær að stjórn-
völd á íslandi hefðu aldrei mót-
að stefnu í landbúnaðarmálum
á íslandi. „Hún hefurekki ver-
ið til á íslandi, fyrr en nú, á
haustdögum. Þá ákveða þeir
það niagn sem þeir ætla að
standa skil á. Pað er fyrsta
sporið sem stjórnvöld taka til
þess að hafa áhrif á landbúnað-
armál hér á landi," sagði
Bergur.
- ES
Bridgespilarar pússa puttana
Bridgcspilarar frá öllum heimshornum byrjuðu að tínast inn á Hótel Loftleiðir í gær en í kvöld hcfst Bridgehátíð 1986 á Hótelinu.
Margir af þekktustu bridgespilurum heims verða meðal þátttakenda og þessi mynd var tekin af tveim þeirra Svíunum Piu Sundclin og
Sven Olof Flodqvist þar sem þeir voru að skrá sig inn á hótelið í gær. Tímamynd: Ární Bjama
veldur ágreiningi