Tíminn - 07.02.1986, Qupperneq 14
14 Tíminn
Föstudagur 7. febrúar 1986
NEYTENDASIÐAN
eftir Svanfríði Hagvaag
Mini - kjöthleifar
750 gr. hakkað nautakjöt
1 lítil dós tómatar
V* bolli saxaöur laukur
1 msk. Worcestershire sósa
Vi tsk. basilikum
1 tsk. salt
Vz tsk. pipar
grillsósa
Látið renna af tómötunum og geymið safann af þeim fyrir grillsósuna.
Blandið saman hakki, tómötum, lauk og kryddi, mótið í sex litla
kjöthleifa. Látið þá á rist yfir ofnskúffu og bakið í 210°C ofni í 20 mín.
Berið fram með grillsósu.
Hið einfaldaSta
getur
veríð t)est
Grillsósa
Safinn af tómötunum
2 msk. edik
1 msk. saxaöur laukur
1 tsk. Worcestershirc sósa
1 msk. púöursykur
nokkrir dropar af Tabasco sósu
Blandið öllu saman í lítinn pott. Látið suðuna koma upp, minnkið
hitann og látið malla í 15 mínútur.
Furstakaka
250 gr. hveiti
50 gr. kartöflumjöl
125 gr. smjörlíki
125 gr. sykur
Vi dl vatn
2 tsk. lyftiduft
Fyllingin
120 gr. ósaltaðar kartöflur
100 gr. sykur
5-6 möndludropar
sulta
Smjörlíkið og sykurinn er hrært hvítt, hveiti og lyftidufti og vatni
blandað út í. Hnoðað. Deigiðer breitt út ogu.þ.b. Sóhlutarþesserusettir
í smurt hringform. Fyllingin er hrærð saman og breidd yfir, síðan eru
skornir strimlar úr deiginu sem eftir er og þeir lagðir ofan á fyllinguna.
Bakað í u.þ.b. 45 mínútur við 180°C.
Húsráð Svanfríðar
Ert þú með
hreinar tennur?
SÍFELLT NART
SKEMMIR TENNUR
Slæmar matarvenjur stuðla að tannskemmdum. Sérstaklega á það við ef
sykurríkrar fæðu er neytt milli mála.
Bakteríur í munninum breyta sykrinum í sýrur, sem leysa upp glerunginn,
svo að holur myndast.
Tennurnar liggja í sýrubaði í u. þ. b. hálftíma í hvert sinn sem sykurs er
neytt.
Hér fyrir neðan eru tvær klukkuskífur.
Rauðu reitirnir sýna hættutímann hjá einstaklingum með ólíkar
matarvenjur.
hAoeqismatur
Sósuráð
Ef sósan verður of þykk, þynnið
hana þá út með meiri vökva.
Ef sósan er of þunn þá eru til
nokkrar aðferðir til að bjarga því.
Besta aðferðin er að sjóða vökvann
upp þangað til sósan er orðin
mátulega þykk.
Ef ekki er tími til þess blandið þá
1 msk. af maizenamjöli út í 'A bolla
af köldu vatni og hrærið út í sósuna
(mátulegt fyrir 1 'A-2 bolla af þunnri
sósu). Sjóðið þangað til sósan
þykknar.
Einnig er hægt að hræra saman
smjörbollu úr 1 msk. af smjöri og 1
msk. af hveiti og blanda út í l‘A-2
bolla af þunnri sósu. Sjóðiðþangað
til sósan þykknar.
Ef sósan verður kekkjótt er
hægt að nudda hana gegnum sigti
eða merja í blandara.
Ef sósan verður of fcit má fleyta
ofan af henni með fiskispaða eða
sigta hana.
í Neytendablaðinu sem kom út í
desember sl. birtist listi yfir fyrir-
tæki sem Neytendasamtökin telja
sig ekki geta mælt með viðskiptum
við. Eins og fram kemur í blaðinu
er ástæðan m.a. sú, að sum þeirra
svöruðu ekki bréfum Neytenda-
samtakanna þar sem þau eru beðin
um að skýra sjónarmið sitt í tiltekn-
um kvörtunarmálum.
Birting þessa lista í Neytenda-
blaðinu og öðrum fjölmiðlum hef-
ur haft þau áhrif að flest fyrirtækj-
anna hafa haft samband við Neyt-
Vansteikt steik
Efsteikin eroflítið steikt skerðu
hana þá í sneiðar og grillaðu þær í
nokkrar mínútur.
Bjargið kartöflunum
Til er ágætt ráð til að bjarga við-
brenndum kartöflum ef tími vinnst
ekki til að sjóða nýjar.
Takið pottinn með viðbrenndu
kartöflunum og hellið þeim sem
lausar eru yfir í hreinan pott með
köldu vatni og dálitlum sítrónu-
safa. Látið suðuna koma upp og
látið sjóða í nokkrar mínútur.
Bjargið pottinum
Ef brunnið hefur illilega við í
pottinum og ekki er hægt að ná því
sem brunnið er fast úr botninum má
reyna eftirfarandi: Látið u.þ.b. 'A
bolla af uppþvottadufti í pottinn og
fyllið síðan upp með vatni. Sjóðið í
15 mín. Kælið. Þá ætti allt sem við-
brunnið er í botninum að losna
auðveldlega.
endasamtökin og fulltrúar fyrir-
tækjanna komið á skrifstofu sam-
takanna til viðræðna, gert grein
fyrir sínum málum og gefið yfirlýs-
ingar um að framvegis myndu þau
virða milligöngu Neytendasamtak-
anna í kvörtunarmálum.
Af listanum falla því öll fyrirtæki
nema þessi þrjú:
Guðmundur Andrésson gull-
smiður Laugavegi 50, R.vík.
Quadro Laugavegi 54, R.vík.
Verslunin First Reykjavíkurvegi
64, Hafnarf.
Hér á neytendasíðunni hefur áður
verið talað um tannskemmdir sem
orsakast að miklu leyti af slæmum
fæðuvenjum og röngu fæðuvali, t.d.
miklu sælgætisáti á milli mála.
Tannlæknar og aðrir þeir sem bera
tannheilsu fólks fyrir brjósti gengust
fyrir tannverndardegi sl. þriðjudag.
Tilgangur hans var að vekja at-
hygli á því hversu tennur eru mikil-
vægar og hvað má gera til að forðast
miklar tannskemmdir. Flestum
finnst heilar og fallegar tennur mikil
prýði, en skemmdar og illa hirtar
tennur mikið lýti þeim sem þær bera,
auk þess geta skemmdar tennur
valdið öðrum sjúkdómum t.d. í
tannhoidi sem oft eru mjög sársauka
fullir.
Þar að auki eru tannviðgerðir yfir-
leitt mjög dýrar og koma við pyngju
fólks ef það þarf mikið á þeirri þjón-
ustu að halda. Það er því talsverður
sparnaður í því að skipta um fæðu-
tegundir og borða t.d. meira af fersk-
um ávöxtum, harðfiski, mjólk, skyri
og osti og svo alls kyns grænmeti s.s.
gulrófum, tómötum, káli, agúrku og
fleiru. Margir halda því fram að slík-
ar fæðutegundir séu svo dýrar að
ekki sé hægt að auka þær, og því
freistist fólk til þess að kaupa aðrar
vörur t.d. sælgæti, en þetta er mikill
misskilningur. Fyrir utan að áður-
nefndar fæðutegundir eru hollari fyr-
ir tennurnar, eru þær einnig mun hita-
einingasnauðari og því verður
minni hætta á offitu, eða nokkrum
aukakílóum sem alltaf er svo erfitt
að ná af sér, og hver vill ekki vera
grannur og spengilegur?
Tannstönglar
-tannþráður
Tannlæknar segja það mjög hollt
að fara með tannstöngla inn á milli
tannanna þar sem tannburstinn nær
ckki með hárum sínum. Einnig er
gott ráð að fá sér tannþráð í næsta
apóteki og fara með hann þar sem
þrengst er á milli tannanna, og er sér-
staklega mælt með honum fyrir börn
þar sem tannholdið fyllir yfirleitt
ekki alveg upp bilið milli tanna
þeirra.
Hvemíg á tannburstinn
aðvera?
Tannburstinn á að vera mjúkur
með mörgum þéttum hárum. Of
harður tannbursti veldur sliti á tönn-
um og sárum á tannholdinu. Tann-
bursti með slitnum og skældum hár-
um hreinsar ekki tennurnar. Nauð-
synlegt er að skipta um tannbursta
a.m.k. á tveggja mánaða fresti.
Hve oft á að
bursta tennumar?
Tvisvar á dag, að loknum morgun-
verði og að lokinni síðustu máltíð að
kvöldi.
Hversu lengi á að bursta?
Bursta á þar til búið er að hreinsa
tannsýkluna af tönnunum að utan og
innan.
Hægt er að kanna árangurinn með
því að tyggja litartöflur sem fást í
flestum apótekum. Litarefnið sest þá
á fannsýkluna sem sest helst á milli
tanna og við tannholdið og sést þá
greinilega. Ef svo er þarf að bursta
lengur og betur. Töflur þessar eru
ekki dýrar, fjórar í pakka kosta á bil-
inu 15-20 krónur.
Hvaða tannkrem
skal nota?
Margar tannkremstegundir eru á
markaðinum en tannlæknar mæla
helst með flúortannkremi því það
styrkir glerunginn og dregur úr tann-
skemmdum. Einnig gefur það frískt
bragð og gerir munnhirðuna ánægju-
legri.
Hversu oft á að fara
til tannlæknis?
Almennt er talið að gott sé að fara
tvisvar á ári til tannlæknis til skoðun-
ar og viðhalds og tannfræðingar telja
að gott sé að fara með börn fyrst um
þriggja ára aldur til tannlæknis og
síðan reglulega upp frá því. Með því
ætti að vera hægt að koma í veg fyrir
miklar tannskemmdir og þar með að
auka tannheilbrigði hér á landi.
Mikilvægt er að hafa reglu á þess-
um hlutum, hvort sem það er tann-
hirða, tannburstun, notkun tann-
þráðs eða tannstöngla. Gerum þetta
að sjálfsögðum hlutum sem okkur
finnst erfitt að vera án. Með því get-
um við sparað fé og sársauka og bætt
útlit okkar.