Tíminn - 23.02.1986, Síða 4

Tíminn - 23.02.1986, Síða 4
4 Tíminn Sunnudagur 23. febrúar 1986 - Jú, það hefur verið töluvert flakk á mér, sagði Atli. Ég kom til móts við liðið í leikjunum gegn Þýskalandi og Sviss og spilaði fjóra leiki í desember hér heima, fór síðan út 14. desember, kom heim um jólin og fórsíðan út 26. desember. Síðan fór ég til Danmerkur á Baltic Cup og kom heim með liðinu eftir mótið og hef tekið þátt í undirbúningnum síðan. - Þú hefur tekið hvað mestan þátt í undirbúningnum af útlendingun- um? - Já, við Palli höfum verið mest með. Leikirnir milli jóla og nýárs voru þeir einu sem við misstum af. - Eru þá einhver ákvæði í samn- ingum ykkar sem gera ráð fyrir að liðin hliðri til fyrir landsliðinu? - Nei, þetta eru í raun engir samningar, hvorki hjá okkur né öðrum. Þeir eru munnlegir og þó svo, það fylgi þeim ýmis hlunnindi þá eru menn enn áhugamenn, svo það er ekki hægt að standa á einhverjum samningum. En það hefur verið mjög góð til- færsla hjá Gunzburg. Það getur varla talist normalt að menn geti verið í burtu í þrjá mánuði. - Nú hefur Bogdan og fíeiri gefið' það í skyn að undirbúningur íslenska liðsins sé mun minni en annarra þjóða, en er hann svo mikið minni en Vestur-Evrópu þjóða? - Nei, alls ekki. Þjóðverjarnir byrjuðu eins og við 15. janúar og Danir hafa haft rriun minni tíma til undirbúnings. Hver leikmaður hjá þeim fékk reyndar heim með sér prógram til að æfa eftir. - En ef miðað er við austantjalds- þjóðirnar? - Við náum þeim aldrei. Þeir eru vanir að æfa tvisvar á dag og auka svo æfingarnar upp í þrisvar á dag fyrir stórmót. Þar er líka öll áherslan lögð á svona mót og deildunum hliðrað til fyrir landsliðið. Þeir eru saman allt að sex mánuði fyrir svona mót. - Hvað er það sem freistar manna til þess að fara út í hálf-atvinnu- mennsku, eru það peningar eða betri handbolti? - Það eru nú flestir í einhverju námi með þessu. Við fáum stuðning frá félögunum, íbúðir, bíla og slíkt. Það eru afskaplega fáir sem lifa al- gerlega af þessu. Ég vinn t.d. hjá skrifstofufyrirtæki og þó ég hafi ver- ið lítið við frá því um miðjan des- íslenska landsliðið í handbolta heldur utan í dag til Sviss þar sem það tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í hand- bolta. Undirbúningur liðsins hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum. Það hafa verið tíðir leikir, bæði hér heima og erlendis, fyrirtæki hafa verið iðin við að auglýsa styrki sína til liðsins og fjölmiðlarnir hafa lagt drjúgt undir fréttir af undirbúningnum. Þó væntingar manna um árangur séu nú mun dempaðri en fyrir heimsmeistarakeppnina í Danmörku fyrir átta árum, þegar menn sættu sig ekki við minna en heimsmeistaratitilinn, þá eru töluverðar vonir bundnar við liðið. Hand- boltamenn hafa alltaf verið krafnir um mun betri árangur en þeir sem stunda aðrar íþróttagreinar, kannski að skák undanskilinni ef menn vilja kalla hana íþrótt. Bogdan landsliðsþjálfari hefur nú tilkynnt hverjir skipa sextán-manna hópinn sem fer til Sviss. Af þeim er helming- urinn útlendingar, eins og leikmenn með erlendum liðum eru kallaðir. Þeir hafa tekið mismikinn þátt í undirbúningn- um og tveir þeirra, Alfreð og Þorbergur, munu koma fyrst til móts við liðið úti í Sviss. Til að forvitnast um undirbúninginn og möguleika íslenska liðsins í keppninni fékk Tíminn Atla Hilmarsson, lands- liðsmann í smá spjall. Atli hefur sýnt mjög góðan leik með liðinu að undanförnu og verður sjálfsagt til alls líklegur í Sviss. Hann hefur ferðast á milli íslands og Þýskalands á meðan á undirbúningnum stendur en hann leikur með v-þýska Jiðinu Gunzburg. Atli var fyrst spurður að því hvort síðustu mánuðir hefðu ekki verið æði strembnir. ember þá vinn ég vanalega á milli átta og fjögur. Maður hefur það gott en það er langt frá því að maður sé einhver milljónamæringur. En maður þarf ekki að hafa neinar áhyggjur. Síðan spilar maður í einni bestu deild í heimi og það getur verið gaman. Ég hef verið á þremur stöðum í Þýskalandi, kynnst mörgu fólki og haft gott af þessu. En ég græði engar stórar fúlgur. Þetta er allt annað en í knattspyrnunni. - Gunzburg gengur ekki vel í Bundcsligunni? - Nei, við erum í botnbaráttunni sem er mjög skiljanlegt. Það mæta ekki nema tíu manns á æfingar og við erum með tvo átján ára til þess að fylla upp í liðið. Það er ótrúlegt að slíkt viðgangist í Bundesligunni. - Svipað lið og Þór frá Akureyri? - Nei, ég segi það ekki. Við erum með ágæta fyrstu sjö, en það má lítið útaf bera. Ég er t.d. næst elstur af leikmönnunum og það segir sína sögu. - En ef við snúum okkur aftur að undirbúningi landsliðsins, hvernig hefur lokaundirbúningnum verið háttað? - Við fengum þriggja daga hvíld eftir seinni leikinn við Norðmenn, bæði hvíld frá hver öðrum og eins frá þjálfaranum og æfingasölunum. Maður gat farið í sund og skokkað úti sem er mjög þægilegt eftir svona törn. Það er mjög notalegt að losna við allt, sérstaklega salinn. Maður fær stundum ógeð á salnum, sérstak- lega þegar það eru tvær æfingar á dag, þá getur verið erfitt að hafa sig af stað. Eftir fríið höfum við einbeitt okk- ur að því að fara í leikinn hjá Suður- Kóreumönnum og ná liðinu saman. En kistuhopp og æfingar með þunga bolta hafa verið aflagðar. - Á ekki að vera óþarfi hjá lands- liðinu að vera með svona þrekæfing- ar, eiga liðin ekki að sjá um þetta? - Jú, sjálfsagt. En það er ekki hægt að ætlast til þess að allir komi eins til þjálfarans. Hann metur ástand manna frá sínu sjónarhorni og valdi þann kostinn að byrja frá grunni. Mér finnst persónulega dá- lítið slæmt að við skulum ekki vera athugaðir hver fyrir sig og þrekið kannað. Það getur jafnvel verið illt að fara í mikið af þrekæfingum ef maður er í góðu forrni fyrir. Síðan getur verið að maðurinn við hliðina á þér hafi verið veikur í tvær vikur. Það væri eðlilegra að haga þrek- æfingunum eftir því í hvernig ásig- komulagi hver og einn væri. - Verðurþjálfarinnekkipersónu- gervingur fyrir þreytu og erfiði, hef- ur ekki verið freistandi að kasta bolta í hausinn á Bogdan? - Það á nú við um alla þjálfara. Bogdan er stífur á sínu, en maður veit að það þarf að gera þetta og það er ekki honum að kenna. Stundum er maður úrillur út í allt og alla og þá ekkert frekar út í þjálfarann en hvern annan. - Hverjir eru möguleikar íslend- inga í Sviss? - Við eigum að vinna Suður-Kór- eu, ég mundi segja að möguleikarnir gegn Tékkum væru 40% á móti 60%, en við eigum litla möguleika gegn Rúmenum. Ef við komumst í milli- riðil og lendum á móti Dönum og Sví- um þá eigum við jafna möguleika á móti þeim þjóðum. En þetta veltur allt á fyrsta leiknum gegn Suður- Kóreu. Við megum ekki vanmeta þá Atli Hilmarsson Tímamynd-Sverrir Atli Hilmarsson, landsliösmaður í handbolta, segir frá undir- búningi liðsins fyrir heims- meistarakeppn- ina í Sviss og möguleikum ís- lendinga þar. því þeir geta verið mjög skæðir. Ég hef tvívegis leikið á móti þeim og veit að þeira eiga ýmislegt til. - Nú hafa menn verið að kvarta yfir vörninni hjá ykkur, stendur hún til bóta? - Bogdan vill meina að það sé vegna þess að menn eins og Alfreð, Þorberg og Sigga Sveins hafi vantað á æfingarnar og því hafi ekki verið hægt að stilla upp tveirrfur jafn sterk- um liðum á æfingum, jjannig að landsleikirnir hafa verið einu æfing- arnar sem vörnin hefur fengið. En þegar liðið kemur saman á þetta að smella saman, enda þekkjast menn það vel og kunna inn á hvern annan. - Nú var talað um „dimma daga i Danmörku“ árið 1978, er ekki hætta á að þær væntingar sem hafa verið bundnar við árangur liðsins í Sviss eigi eftir að bregðast og talað verði um „svarta daga í Sviss“? - Við erum að reyna að koma í veg fyrir það. Við höfum þessa reynslu frá Danmörku þegar allt var skrúfað í botn. Það ætti að vera víti til varnaðar. Það lið sem við höfum núna er mun heilsteyptara og betur undirbúið undir svona stórmót. Mér fannst alltaf fáránlegt þegar menn voru að gefa út yfirlýsingar um að þeir ætluðu að verða heimsmeistarar 1978. - Nú hefur HSÍ lagt á það áherslu að halda ykkur frá öðrum íslending- um í Sviss og jafnvel gefið út yfirlýs- ingar um að blaðamenn fái ekki að koma nálægt ykkur. Bogdan og einn af leikmönnunum eiga síðan að koma fram og gefa opinberar yfirlýs- ingar. - Mérfinnstof langtgengiðefþað á að útiloka blaðamenn frá liðinu. En það hefur hins vegar oft komið fyrir að menn hafa gefið stórar yfir- lýsingar í búningsklefanum í æsingn- um eftir leiki. Menn eru þá annað- hvort langt niðri eftir tap eða hátt uppi eftir sigur og þá er ekki mikið að marka það sem þeir segja. Menn hafa oft fengið þetta síðan í hausinn aftur þegar rennur af þeim æsingur- inn. - Að lokum Atli, hvernig ferðu að því að hanga svona í loftinu? - Þetta er bara einhver eiginleiki sem ég hef og þess vegna er ég lélegri í öðru. Ég hef ekki æft hástökk eða neitt slíkt. Það hefur alltaf legið vel fyrir mér að stökkva og þetta hefur þróast með árunum. gse

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.