Tíminn - 23.02.1986, Blaðsíða 22
22Tíminn - Sunnudagur 23. febrúar 1986
helgarsp0gi 11 igeqeiBgbH
Helgarblaðið
bregður upp nýjum fleti á:
MJOLKUR-
MÁLINU
/ ,e/diS,ns h ■ ‘7'ore/ , sö
drukHð MlJ Jafn >
Tilraun gerð til að
selja kaupmönnum
stolnar mjólkurafurðir
Helgarblaö Tímans geröi athugun á því nú í vikunni hvernig gengi aö koma
í verð mjólk sem illa væri fengin.
Fariö var í fjölda verslana og kaupmönnum boðin mjólk á lágum prís ef
borgað væri á staðnum. Hér var ekki verið að gera tilraun til að upplýsa mjólk-
urmálið svokallaöa heldur miklu frckar að bregða Ijósi á ákveðna þætti þess í
þeirri von að það mætti leiöa til heildarlausnar.
í stuttu máli er það að segja að kaupmenn brugðust misjafnlcga við tilboði
okkar cn enginn þeirra féll bcinlínis í gildruna.
Allt var reynt til að hlutirnir litu sem eðlilcgast út og fékk blaðamaöur Helg-
arblaðsins meðal annars lánaðar hvítar einkennisbússur og merkta húfu, en
allt kom fyrir ekki. Kaupmenn vildu ekki ódýra mjólk, hverju sem það nú
sætir.
Manneldismál á íslandi tóku á sig
óvænta slaufu þegar uppvíst varð urn
stórfelldan nijóíkurþjófnað á Stór-
Hafnarfjarðarsvæðinu, nánar tiltekið
í Reykjavík.
Ekki hefur í allri réttarfarssögu
eyjarinnar komist upp um jafn um-
fangsmikinn vætuþjófnað hvað þá að
talað sé um hnupl á nýmjólkinni
hlessaðri.
Óprúttnir mjólkurbílstjórar hjá
Mjólkursamsölunni tóku upp á því
að selja málnytjna upp á eigin spýtur
í nafni einkaframtaksins og hinnar
frjálsu markaðshyggju sem nú tröll-
ríður hugsunarhætti landsmanna.
Fjöldi kaupmanna lét og glepjast
upp á það að geta stritlað fleiri krón-
ur út úr hverjum mjólkurpotti og er
nú Rannsóknarlögregla ríkisins
komin í málið sem er það umfangs-
mikið að grípa hefur þurft til hóp-
yfirheyrslna þar sem þjarmað er að
mörgum í einu til að spara tíma.
Sá hluti Kaupmannasamtakanna
sem hefur slæma samvisku í mjólk-
urmálinu hefur að sögn Ólafs Ólafs-
sonar yfirtrúnaðarmanns Mjólkur-
samsölunnar hótað honum öllu illu
en starfsmenn Mjólkursamsölunnar
komu sér upp lista yfir þá kaupmenn
sem keypt höfðu þá undanrennu
réttlætisins sem hér um ræðir. Kaup-
menn hafa látið ófriðlega og hótað
starfsmönnum Mjólkursamsölunnar
öllu illu ef þeirbirti listann. Sérstak-
lega mun Ólafur yfirtrúnaðarmaður
liafa fcngið loforð um útreið. Sagði
hann í samtali við eitt Reykjavíkur-
blaðanna að verslunareigendur
hefðu hótað honum óskaplegri hegn-
ingu auk þess sem til stendur að gera
Ólaf eignalausan í leiðinni.
Það voru árvakrir starfsmenn í
Mjólkursamsölunni sem áttuðu sig á
því að um „mjólkurleka" var að
ræða en í bókhaldi Samsölunnar
kom ekkert fram senr benti til mjólk-
urstuldar.
Það voru bílstjórar á mjólkurbíl-
unum sem ráku sig á það trekk í
trekk að búið var að keyra út í versl-
anir sem þeir áttu að sjá um og fór þá
að gruna að maðkur væri í mysunni.
Eftir að málið komst í hendur lög-
reglunnar hefur ekkert fengist upp-
lýst um gang þess. Sumir hafa haldið
því fram að ástæðan sé sú að mjólk-
urmáliö muni svo yfirgripsmikið að
það varðaði beinlínis þjóðarhag.
Þeir hinir sömu hafa bent á að ým-
iss rök hnigju að því að hvert
mannsbarn á samlagssvæðinu hefði
einhvern tímann drukkið mjólk sem
tekin hefði verið ófrjálsri hendi og
væri því samsekt.
I afbrotafræðinni er slíkt nefnt
umsnúningur en þá er átt við að þeir
séu fleiri sem brjóta lögin en fara eft-
ir þeim og þá getur verið nauðsynlegt
að grípa til lagabreytinga eða þá að
þagga málið niður ef kostur er.
Þess má líka geta í þessu sambandi
að ýmiss samtök dýraverndara hafa
um áraraðir bent á að öll mjólk væri
tekin með ófrjálsri hendi þegar öllu
er á botninn hvolft þar sem nautgrip-
ir hefðu aldrei gefið formlegt leyfi til
mjalta.
Eins og kunnugt er eigum við ís-
lendingar við það að stríða að alltof
mikið er til af mjólk í landinu. Of-
framleiðslunni verður ekki auðveld-
lega kyngt og nú eru bæði bændur og
búfénaöur beðin að draga úr þeirri
flóðöldu mjólkurafurða sem ausið er
yfir þéttbýlið.
María Hauksdóttir í Geirakoti
kom fram með athyglisverða hug-
mynd á fundi sem haldinn var í
Njálsbúð og mikið hefur verið vitnað
í bæði í ræðu og riti.
María benti mönnum á að hundsk-
ast til að drekka meiri mjólk og leysa
á þann hátt vandann scm að okkur
steðjar.
Hvort hér cr einnig komin lausn á
óheiðarlegu mjólkinni er ekki Ijóst.
Sú kcnning er nefnilega ósönnuð að
aukin mjólkurneysla minnki afbrot.
•
JÁÞ
„Nei, mér líst ekki á þetta,“ sagði
Jóna kaupmaður í Versluninni
Sundaval í Reykjavík þcgar henni
var boðin mjólk á mjög góðu verði.
„Ég versla heldur við strákana hjá
Mjólkursamsölunni, þeir hafa
reynst okkur vel.“
Góðlátlegt yfirbragð
„sölumannsins“ virtist
ekki hafa nein áhrif.
Það gekk með afbrigð-
um illa að koma mjólk-
inni út.
Tímamyndir-Árni Bjarna