Tíminn - 23.02.1986, Blaðsíða 7
Birting þessa viðtals hafði kost-
að fleiri samviskuspurningar en
nokkurn grunaði þegar það var
ákveðið að setja það í blaðið.
Þegar það var tekið var viðmæl-
andinn á leið út í lífið eftir að hafa
eytt tæpu ári innan fangelsismúr-
anna. Þetta var ekki í fyrsta skipti
sem hann dvaldi á stofnun því
þrátt fyrir að hann hafi verið ein-
ungis átján ára hafði hann eytt
tæplega hálfri ævinni á slíkum
stöðum.
í viðtalinu lýsti hann lífi sínu,
hvernig hann flosnaði upp úr skóla
aðeins tíu ára gamall, kynnist eit-
urlyfjum og afbrotum um tólf ára
aldur og baráttu sinni gegn því að
verða að forhertum útigangs-
manni.
Hann sagði einnig frá vanmátt-
ugum tilraunum samfélagsins til
samfélaginu fleiri sem þannig er
komið fyrir, og enn er hætta á því
að svipuð braut eigi eftir að liggja
fyrir börnum sem „allir gefast upp
á“, eins og drengurinn lýsti sjálfum
sér barnungum.
Við höfum ákveðið að birta við-
talið óbreytt og óstytt, því við það
er engu að bæta nema því að sú
vonarglæta sem drengurinn bar í
brjósti sérer hann vará leið út í líf-
. ið átti eftir að slokkna á hroðalegan
hátt.
Sá sem tók þetta viðtal og bjó
það til prentunar er fyrrverandi
samfangi drengsins. Hann hefur
óskað eftir því að sú þóknun sem
hannfærfyrirvinnu sína verði gef-
in til Unglingaathvarfsins aðTjarn-
argötu og verður það gert.
— gse
að hindra hann á leið til glötunar
sem virtist liggja fyrir honum.
En áður en þetta viðtal komst í
blaðið barst sú frétt á ritstjórnina
að drengurinn sem sagði frá
reynslu sinni hefði látist. Stuttu eft-
ir að hann kom út úr fangelsinu
leiddist hann aftur út í „vesen“,
eins og hann orðaði það, og lést er
hann ók stolnum bíl út af vegi, tæp-
lega nítján ára gamall.
Okkur þykir rétt að birta þetta
viðtal þó það kunni að ýfa sár
þeirra sem stóðu þessum dreng
næst. Með viðtalinu vildi hann
benda á hvernig samfélagið tekur
þeim er villast fljótlega af vegi rétt-
lætisins og allt er það sem hróp um
hjálp sem nú er því miður of seint
að veita. En eins og kemur fram í
viðtalinu þá var þessi drengur ekk-
ert einsdæmi og það fyrirfinnast í