Tíminn - 23.02.1986, Side 9

Tíminn - 23.02.1986, Side 9
Sunnudagur 23. febrúar 1986 Tíminn 9 þar fyrir fangana. Mest allan tímann lá maður þar í iðjuleysi og engir möguleikar eru þar á námi. Reyndar finnst mér að það þurfi að taka fangelsiskerfið ailt í gegn. T.d. á Litla-Hrauni er hrúgað saman geðsjúkum mönnum, forhertum glæpamönnum og unglingsgreyjum sem koma miklu verri út. Enda er raunin sú að flestir þeir sem gista ís- lensk fangelsi eru fastagestir, sem ... á Litla Hrauni er hrúgað saman geð- sjúkum mönnum, forhertum glæpa- mönnum og unglings- greyjum... koma þangað ár eftir ár. Finnst ágætt að vera þar í smátíma, endurnæra sig, læra ný trix og slappa aðeins af. Þetta fyrirkomulag er engum manni til gagns hvað þá gamans. Einnig langar mig að benda á hvað dómskerfið er seinvirkt. Þess eru jafnvel dæmi að menn hafi verið dæmdir í fangelsi 4-5 árum eftir að þeir hættu öllu veseni. Jafnvel þá komnir með konu, börn og bú. Það held ég að geri þjóðfélaginu ekkert gagn, það á að láta menn taka út dóminn strax eða allavega fljótlega. Tölur utan úr heimi sýna að skóla- menntun fanga dregur verulega úr afbrotahneigð þeirra og býr þá vissu- lega undir baráttuna fyrir utan. Það ætti að gefa mönnum kost á að stytta dóminn ef þeir leggja sig virkilega fram og læra eitthvað gagnlegt á meðan á dvöl þeirra stendur í fang- elsi. Oft er ástæðan sú að menn fara aftur inn að þeir kunna ekkert og eru bitrir út í allt og alla og lenda strax í sama farinu. Það ætti að koma upp vinnubúð- um eða setja unga menn t.d. á togara undir handleiðslu góðra manna. Unga menn sem verið er að taka í Þessi mynd er tekin á slysstað þar sem viðmælandi okkar endaði líf sitt eftir að hafa tekið bíl ófrjálsri hendi og ekið hon- um á Ijósastaur. Hann hafði fyrr um kvöldið verið tekinn drukkinn á öðrum bíl en var látinn laus með fyrrgreindum afleiðingum. Það er viðurkennt af þeim sem til þekkja að ótrúlegur fjöldi ungmenna, sem orðið hafa utangarðs í samfélaginu láti lífið fyrir aldur fram, ým- ist beint eða óbeint af völdum áfengis eða vímuefnanotkunar og öðrum þáttum er tengjast lifnaðarháttum þessara ung- menna. Viðmælandi eins af dag- blöðunum, sextán ára stúlka, sagðist hafa séð á eftir hátt í tuttugu félögum sínum í gröf- ina, sem annaðhvort féllu fyrir eigin hendi eða létust sökum slysa er beint má rekja til of- angreindra þátta. Það er kominn ni til að skera upp herör tii þess að stöðva þessar mannfórnir. Við væntum þess að þetta viðkvæma viðtal verði til þess að vekja sem flesta til umhugs- unar um eina af sárustu af- leiðingum nútíma samfélags- hátta. Timainvnd -Sverrir ... það ætti að koma upp vinnubúðum eða setja menn á togara undir handleiðslu góðra manna... fyrsta sinn á að láta vinna ýmisskon- ar þegnvinnu. T.d. ungurmaðursem tekinn er við ölvunarakstur. Það á að láta hann vinna kauplaust á slysa- deild í einn til tvo mánuði, eða vinna að öðrum líknarmálum. Þegnskylda af þessu tagi væri líklega til þess að hræra upp í mönnum og vekja þá til umhugsunar. Glæpir þessara manna eru misjafnlega alvarlegir og ætti að taka á málunum í samræmi við það. Ég er sannfærður um að ef eitthvað af þessu yrði reynt þá myndi það skila sér fljótt til þjóðfélagsins. Viðmælandi okkar er nú á leiðinni út í lífið engu betur búinn en áður. Að honum takist að halda sig réttum megin við lögin verður að teljast frekar ólíklegt en hans vegna skulum við vona það besta. En hvað er til ráða með þessa menn? 777 viðbótar má benda á að þegar drengurinn var leystur úr fangelsi, vissi hann að hann átti eftir að af- plána viðbótardóm, sem ekki hafði verið hirt um að dæma í á meðan hann sat inni. (Pó sat hann í tæplega 9 mán.) Honum var sjálfum ekki sérlega hugað um að losna, þegar hann var leystur út, og hefði verið ánægðari að Ijúka allri afplánuninni íeinu lagi og geta verið laus allra mála þegar út værí komið í stað þess að losna um stundarsakir til þess eins að bíða þess að fara í fangelsi aftur. í Ijósi þeirrar sögu sem hér hefur verið sögð, væri ekki úr vegi aó viðkomandi yfirvöld hugleiddu hvað betur mætti fara í afplánunarmálum unglinga sem þessa pilts og ekki síst hvaða aðstæður þarf að skapa þeim, þcgar þeir eru látnir lausir, svo að þeir eigi möguleika á að hefja heil- brigt líf, í stað þess að lenda sífellt í sama farínu. Meðferðarheimili eru neyðarbragð Viðtal við Kristján Sigurðsson, forstöðumann Unglingaheimilis ríkisins, í framhaidi af sorgarsögunni hér að framan. Kristján Sigurðsson er forstöðu- maður Unglingaheimilis ríkisins sem minnst er á í viðtalinu hér að framan. Sökum þess að viðmæl- andinn í viðtalinu hefur nú látist á voveifilegan hátt er má tengja þeim lifnaði sem hann meðal annars seg- ist hafa kynnst á Unglingaheimil- inu þykir rétt að bera frásögn hans undir yfirmann þeirrar stofnunar, um leið og fólk er varað við því að reyna að gera einn aðila ábyrgan fyrir hinu hörmulega lífi og hroða- legu endalokum piltsins. En Kristján hafði eftirfarandi að segja: „Mér finnst erfitt að ræða um óhappasögu þessa unga manns nú en vil ekki skorast undan beiðni blaðamanns. Ég ætla ekki að afsaka gerðir Unglingaheimiiisins, en pilturinn lýsir þar þó miklum mun harðara lífi en þar er í raun að mínu mati. Á þessum tíma voru að vísu vistaðir 10 unglingar samtímis og hópurinn því stór af unglingum sem áttu allir í meiri eða minni vanda. Nú er til- svarandi vistun mest 7 unglingar samtímis. E.t.v. er þessi lýsing hans á Unglingaheimilinu eðlileg svona eftirá þar eð hann átti í meiri vanda en flestir aðrir og hjálp við hann gekk verr en við flesta aðra. Saga dvalar Þessi piltur kom á Ungl- ingaheimilið 12 ára gamall, þ.e. óvenju ungur, en flestir þar eru á aldrinum 13-16 ára. Hann var bú- inn að vera úti í sveit svo árum skipti án skólagöngu, sem var því miður allt of algengt og hef ég kall- að börn sem svipaða aðstöðu höfðu „nútímaniðursetninga“. Þegar hann kom til borgarinnar reyndist hann ófær að vera með í skóla og einnig í skólaathvarfi, enda algjör- lega ólæs og óskrifandi. Samskipti hans við jafnaldara var barátta. Hann var sterkur og grimmur í bar- áttu sinni og jafn vel eldri drengir urðu að lúta í lægra haldi fyrir honum. Eftir fyrstu örðugleika á Ungl- ingaheimilinu gekk vel um tíma meðferð á þessum dreng. Hann var skemmtilegur og hændist að starfs- fólki, m.a. að mérog vildi kallamig pabba. Við nánari kynni kom þó í ijós að hann virtist hafa tapað hæfni til dýpri tilfinningatengsla og kom hvað eftir annað á óvart með breytni sinni og olli vonbrigðum. Seinni hluta meðferðardvalar hans gekk aftur orðið svo illa að ekki þótti fært að hjálpa honum í þétt- býlinu þar sem margt truflaði utan heimilis m.a. möguleiki á að ná í vín og því fór hann að Smáratúni í samráði við hann og móður hans. Hann hafði dvalið 8-9 mánuði á Unglingaheimilinu. Að Smáratúni dvaldi hann nokk- uð lengur og undi vel í fyrstu og kom sér vel en hann lýsir því sjálfur, hvernig það endaði. Fljót- lega eftir það kom aftur til kasta Unglingaheimilisins að taka í taumana þá eftir ákvörðun barna- verndarnefndar um algjöra gæslu eftir að hafa ítrekað ráðist á fólk og meitt það. í þetta sinn var hann á lokaðri deild; Neyðarathvarfi ca. mánuð og fékk hann ekkert frjáls- ræði sem er þó óvenjulegt til lengd- ar á Unglingaheimili ríkisins. Ekki er ólíklegt að tilfinningar hans til heimilisins mótist síðan mjög af þessari dvöl. Hann fór í enda þess- arar dvalar í sveit að eigin frum- kvæði. Einsdæmi? Þessi ungi piltur lenti verr úti í lífi sínu en flestir aðrir og virtist þegar hafa orðið fyrir það miklum skaða áður en ég kynntist honum, að erfiðara var að hjálpa honum en flestum öðrum. Hann er þó ekki einsdæmi og hef ég kynnst allt of mörgum unglingum, sem virðast búnir að loka sig fyrir dýpri tilffnn- ingum, hættir að treysta fullorðna fólkinu og er því ekki hægt að hjálpa. Miklu fleiri eru þó þeir sem auðvelt er að aðstoða með meðferð og enduruppeldi sem ég kalla svo. Breytingar til batnaðar? Þess má geta hér að Unglinga- heimilið hefur tekið nokkrum breytingum síðan þessi ungi maður dvaldi þar. Nú eru deildir stofnun- arinnar fjórar auk skóla, þ.e. göngu- deild sem ber heitið Unglingaráð- gjöf, móttökudeild með rannsókn og stuttri meðferðaráætlun, nefnd Neyðarathvarf, Meðferðardeild með lengri vistun og meðferð og Sambýli, einnig lengri dvöl fyrir hinn léttari hluta starfsins. Lögð er áhersla á sam eðlilegast heimilis- umhverfi sérstaklega á tveim síðast- nefndu deildunum. Dvalarstofn- un fyrir unglinga hvort sem hún heitir Unglingaheimili eða geð- deild er þó jafnan neyðarúrræði sem á aðeins að nota þegar öll önn- ur sund lokast og þar hljóta þeir, sem erfiðast eiga og erfiðast er að hjálpa að dvelja saman. Hér skal þó tekið fram að sam- kvæmt könnun á Unglingaheimil- inu virðist ekki hætta á að stofnun- in hafi skemmt unglinga, t.d. þeir, sem orsök vistunar var önnur en afbrot, hafa ekki orðið afbrota- menn eftir dvöl þar. Hvað er hægt að gera betur? Ég tel að huga ætti meir en nú er að því að finna fólk með sérþekk- ingu og reynslu til að taka að sér Tímamynd: Sverrir unglinga á heimili sín og greiða því eðlileg laun fyrir vinnu með þá ung- linga sem þeir taka að sér. Greiðsla fyrir slíkt starf er lítt möguleg í kerfinu í dag. Aðalatriðið er þó að það sem kallað hefur verið fyrirbyggjandi starf eflist og verði betur virkt því að unglingar sem eru í svo miklum vanda að vista þarf þau á stofnun eru mörg hver svo illa leikin á bernskuskeiði, jafnvel á fyrstu árum ævinnar, að þar verður ekki um bætt. Ég vil geta þess að ég tel að þetta fyrirbyggjandi starf hafi farið vax- andi undanfarið. Afbrot sem aðal orsök að vistun á Unglingaheimili ríkisins er mjög á undanhaldi enda hef ég grun um að afbrotum ung- linga hafi fækkað fremur en hitt. Ýmis önnur félagsleg vandamál, vímuefnavandamál o.fl. verða stöðugt stærri hluti í orsök vistunar unglinga á Unglingaheimilinu á hverjum tíma. Finnst mér það meðal annars benda til að fyrr sé tekið á erfiðleikum en áður og er það vel. gse

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.