Tíminn - 23.02.1986, Síða 14

Tíminn - 23.02.1986, Síða 14
14 Tíminn. Sunnudagur 23. febrúar 1986 Skúli Halldórsson: „Þá kom það sér vel að ég var dá- lítið farinn að kompónera, semja smálög, og það satt að segja bjargaði sálarlífi mínu.“ (Tíma-mynd: Kóbert) alltaf kyssa köttinn Spjallað við Skúla Halldórsson, tónskáld, um músík, Kristnamurti, heimsfílósófíu, og ketti Allir hafa heyrt getið um hið ógnvænlega slys sem varð við Mýrar árið 1936, þegar franska rannsóknaskipið „Pourquoi Pas?“ fórst þar ásamt nær allri áhöfn (einn komst af) og þar á meðal leiðangursstjóranum dr. Charcot. í ár eru liðin 50 ár frá þessum atburði og ■ minningu hins þekkta vísindamanns hyggjast Frakkar efna til margs konar minningarhátíðarhalda, sem við fslendingar munum ekki fara varhluta af. Fregnir hafa borist um að von sé á frönsku her- skipi hingað til lands af þessu tilefni og ef að líkum lætur munu fjölmiðlar rifja þetta upp með ýmsu móti. En hvað merkasta framlag íslendinga í minningu dr. Charcot og manna hans verður án vafa flutningur á kantötu Skúla Halldórs- sonar, tónskálds, „Pourquoi Pas?“ sem hann samdi á sínum tíma vegna slyss- ins við Ijóð Vilhjálms frá Skáholti. Efnt verður til sérstakrar sýningar um dr. Charcot í franska bænum St. Malo og að ósk aðstandenda sýningarinnar verð- ur kantatan flutt þar við opnunina. Einnig er í athugun að kantatan verði flutt hérlendis í haust með Karlakór Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit íslands. Við notuðum þetta tilefni til þess að ræða við Skúla um tónsmíðar hans og í framhaldi af því um sitthvað sem á daginn hefur drifið, lífsviðhorf hans og fleira. Skúli býr vestur á Bakkastíg 1 ásamt konu sinni, Steinunni Magnúsdótt- ur og kettinum Símoni Þórðarsyni frá Hól og þangað er gott að heimsækja hann ■ kafli og nýbakaða hunangsköku. En samt er það hlýtt viðmót og geisl- andi fjör Skúla sem eru bestu traktéringarnar. „Það var fyrir 16 eða 17 árum að þessi kantata um „Pourquoi Pas?“ var fyrst flutt, undir stjórn Páls P. Pálssonar," segir Skúli. „Þetta var ágætur flutningur og mikið búið að æfa þetta af Karlakór Reykjavíkur og hljómsveitinni. En dálítil sorgar- saga tengist þessu samt, því verkið var aldrei flutt á konsert eins og til stóð og er aðeins til í stúdíóupptöku. Já, þetta urðu vitanlega mikil von- brigði fyrir alla aðstandendur, eink- um þó kórinn og svo auðvitað mig. Ég sé hér að þetta hefur verið í júní 1968, sem verkið var fyrst flutt í út- varpi og síðan hefur það heyrst fimm sinnum. Það er langt um liðið frá því það heyrðist síðast, því það var árið 1977, eða fyrir níu árum.“ Ertu að segja að verkið hafi átt erfitt uppdráttar, Skúli? „Blessaður vertu, þetta er nokkuð sem við í tónskáldafélagi íslands erum alltaf að berjast við, að fá auk- inn flutning íslenskrar tónlistar í sjónvarpi og útvarpi. Við höfum flestir fengið að finna fyrir þessu á ýmsan hátt, hvernig íslensk tónverk virðast hvcrfa úr t.d. dagskrá út- varpsins eftir að hafa heyrst fáeinum sinnum. „Pourquoi Pas?“ erekki eina vcrk mitt sem hefur orðið fyrir þessu, skal ég segja þér. Fyrir vikið heldur fólk að Skúli Halldórsson hafi ckki samið nema fáein sönglög, sem oft heyrast, eins og „Smalastúlk- una“, „Smaladrenginn" og „Lindu”, svo ög nefni dæmi. Maður hefur alltaf þurft að berjast fyriraðfá verksín flutt. Ekkifyrirað fá verk sín tekin upp, - fremur að fá þau flutt í útvarpi og á konsertum. Það gengur oft afar erfiðlega. Ég get nefnt mitt fyrsta sinfóniska verk. „Sogið", sem var frumflutt í Þjóð- leikhúsinu undir stjórn Olavs Kiel- land árið 1957. Þctta verk var flutt síðan öðru hverju í útvarpinu, en ekki eftir árið 1973. Svo líka ballett- svítu eftir mig „Dimmalimm kóngs- dóttur", en hún var frumflutt í Há- skólabíói undir stjórn Páls P. Páls- sonar og er í sjö þáttum. Hún hefur ekki verið flutt í útvarpi frá 1973, eða í 14 ár. Égskal halda áfram. Égnefni lagaflokk sem ég samdi við ástarljóð Jónasar Hallgrímssonar fyrir sópran, baryton, og hljómsveit, en þetta verk fékk verðlaun í sam- keppni Ríkisútvarpsins. Þctta verk hefur aldrei verið flutt á konsert. Ekki hcldur „Hörpusveinn," hljóm- sveitarverk fyrir baryton við ljóð Jó- hannesar úr Kötlum, cða „Svfta no. 2, - Vor í lofti, Draumur, Elddans." Það vcrk hefur einu sinni verið flutt á konscrt og það var í Ábo í Finnlandi. Það fékk mjög lofsamlega dóma, en hefur aldrei vcrið flutt hér. Svona má halda áfram, en af tólf sinfóniskum verkum eftir mig hafa einungis fimm verið flutt á konsert. Finnska tónskáldið og plötuútgef- andinn Rauno Lethincn gaf út LP- plötu með sönglögum eftir mig árið 1980. Það hafa aldrei verið leiknar nema glefsur af henni hér í útvarpið, aldrei öll platan. Það er greinilega oft undir höggaðsækja á braut tónlist- armanns og tónskálds. Hvers vegna fara menn út í Jretta, Skúli? „Já, það er nú það. Ég skal segja þér að þegar ég var strákur vestur á Flateyri og ísafiröi og karlarnir þar spurðu hvað ég ætlaði að verða. þá svaraði ég alltaf: „Píanóleikari.” Þeir bjuggust við aö maður segðist ætla að verða sjómaður eða bóndi. Það var mikil músík á heimili for- eldra minna, því mamma fékk píanó frá Ameríku árið 1918 og spilaði mikið og síðar tók ég við, þegar ég hafði aldur til, en ég er fæddur 1914. Þetta píanó stendur þarna við vegginn, ég á það enn og hef aldrei fargað því. Nú, og eftir að við flutt- umst frá ísafirði til Reykjavíkur fór ég að læra á píanó, fyrst hjá ínu Eiríks og svo í Tónlistarskólanum, þegar hann var stofnaður. Nei, hann var ekki til þcgar ég kom fyrst suður. Ég fór svo í skólann við stofnun lians og fór þá í tíma hjá Árna Kristjáns- syni og þurfti auðvitað að æfa mig af krafti, en ástæður réðu því að ég varð að hætta í skólanum. Það var vegna þess að maður þurfti að vinna fyrir sér hörðum höndum og það gekk ekki með píanónámi. Þá kom það sér vel að ég var dálítið farinn að kompónera, semja smálög, og það satt að segja bjargaði sálarlífi mínu, - að skapa eitthvað.“ Þér hefur víst þótt hart að verða að hætta í skólanum? „Já, maður lifandi. En svona var þctta. Ég byrjaði fyrst hjá Flugfélagi íslands, (ég segi þér meira um það á eftir), en fékk svo vinnu hjá Tóbaks- verslun íslands h.f. sem svo hét þá árið 1932, á lagernum. Upp úr því fór ég að kcyra hjá þcim út tóbakið og þú getur hugsað þér hvernig mað- ur var að eiga að fara að æfa sig á pí- anó, dauðþreyttur eftir útkeyrsluna. En þótt ég hætti í skólanum. (hann var þá í Hljómskálanum við Tjörn- ina.) þá hætti ég samt ekki að æfa mig á hljóðfærið og árið 1941 settist ég í skólann að nýju. Þá var ég auð- vitað orðinn einn elsti nemandinn. Ég var þá kvæntur og átti tvö börn og enn þann dag í dag skil ég ekki hvernig konan þoldi mér allt þetta pí- anóglamur öll kvöld. En með stríð- inu komu meiri peningar og maður þurfti ekki að vinna aukavinnu, sem létti mikið undir og eins það að þá var ég að vinna á skrifstofunni hjá Strætó, sem var ekki nærri eins lýj- andi og líkamleg vinna. Ogmér tókst að ljúka náminu við Tónlistarskól- ann árið 1948. En manni fannst það hart að hafa ekki getað lokið skólanum fyrr og farið svo út til náms, eins og margir gerðu. Þegar ég var nítján ára bauð ríkur maður hér í bænum mér að kosta mig til tónlistarnáms úti, en þá vildi pabbi það ekki og, ég hef kannski aldrei fyrirgefið honum það alveg." En viðhorfin voru svona þá. Maður var eiginlega eyðilagður sem píanóleikari strax í æsku. Maður þrælaði í sveit á sumrum og var í íþróttum, sem píanóleikari má ekki. Hann má ekki vera sterkur, - allir vöðvar verða að vera grútlinir." En það bætti þér margt upp að þú gast samið lög? „Já, það gerði það. Ég samdi fyrsta lagið mitt aðeins 15 ára gamall, en þaðvar við vísu eftirlang- afa minn Jón Thoroddsen, skáld. - „Brekkufríð er Barmahlíð". Hann hafði ort þetta áður en hann samdi „Hlíðin mín fríða," sem er líka óður til Barmahlíðarinnar. Já, ég hafði sarnið margt fleira á unga aldri, en þegar ég settist í skólann og fór að læra, þá fleygði ég flestu af þessu. Það breyttist margt við að læra. Ég hef alltaf reynt að vera pers- ónulegur í minni tónsköpun. enda er það keppikefli allra tónskálda. Ég á við að þú heyrir muninn á Mozart og svo Brahms. Þeir hafa sinn stíl. Þú þekkir þá sundur Jónas og Einar Ben. á sama hátt. Nei, ég hef aldrei elt neinar stefnur og ekki farið út í nú ■ tímatónlist, tólftónamúsík, musiceí- ectronik, punktamúsík og þess háttar. Samt finnst mér margt mjög fallegt í nútímamúsíkinni, hef hlust- að á hana og orðið að gera það, enda einu sinni verið í dómnefnd vegna norrænna tónlistardaga í Osló. Ég tek undir með Jóni Leifs sem sagði: „Mér er sama hvernig tónlist er samin. bara ef hún ergóð." En svo við víkjum loks að uppruna þínum. Pú er kom- inn af Thoroddsenum, eins og þú minntist á? „Já, ég er það. Afi minn var Skúli Thoroddsen og amma Theodóra Thoroddsen. Unnur dóttir þeirra var móðir mín. Þetta var merkisfólk, maður lifandi, og það var pabbi líka, en hann var Halldór Stefánsson, læknir á Flateyri og síðar í Reykja- vík. Já, það var mikið um lækna í kring um mig, því Thoroddsenarnir cru mikil Iæknaætt, eins og allir vita. Ég man auðvitað vel eftir ömmu minni, Theodóru, því þegar við flutt- umst suður bjuggum við uppi á lofti í Vonarstræti 12, húsinu sem þau Skúli höfðu látið byggja. Ég átti það henni að þakka að ég komst í fyrstu vinnuna mína, en það var hja Flug- félagi fslands hf. Hún labbaði sér nefnilega með mig einn daginn út í Þórshamar við Vonarstrætið og leiddi mig á fund Alexandcrs Jó- hannessonar, sem þá var formaður félagsins. Hann fékk mér vinnu hjá félaginu. Þetta var ansi eftirminnilegt sumar. Hjá félaginu var þá einn flug- maður, scm hét Símon, og tveir véla- menn sem hétu Wind og Christian- sen. Loks einn starfsmaður sem hét Moritz. Mín störffólust einkum í því að hugsa um ýmsan útbúnað fyrir flugvélina í geymsluskýlinu við Tryggvagötu, (þar sem nú er pylsu- vagninn), flugbúningana og annað, en þessi eina vél félagsins, Súlan, var óupphituð og menn urðu að kapp- klæðast. Svo voru það þrifin á flug- klcfanum, en vélin lét illa í loftinu og óþrif mikil eftir flugveika farþega. Þetta var auðvitað sjóflugvél og það þurfti sífellt að vera að gera við flot- holtin, sem voru úr tjörguðum segl- dúk og voru sífellt að bila og leka. Vélin var geymd í Örfirisey, en lá stundum á innri höfninni við akkeri og þangað fór ég auðvitað oft til vinnu minnar. Einu sinni gleymdu þeir mér um borð og það má ham- ingjan vita hve lengi ég hefði mátt dúsa, ef ekki hefði borið að menn á báti, sem tóku mig í land. Alla vega missti ég af sunnudagssteikinni, því þetta var á sunnudegi. Einn brandara verð ég að segja þér sem varð til um þá Símon og Vind og birtist í Speglinum á þessum árum. Þetta er áreiðanlega eftir Pál Skúlason, ritstjóra hans. Sagan var um það að þeir hefðu orðið að nauð- lenda uppi á Mýrum og að ræningja hefði borið að sem tóku Vind og bundu. Bar þá að Símon sem bjarg- aði vini sínum og „leysti Vind“! Þetta tengist nú fyrstu minningun- um mínum um ömmu og komuna til Reykjavíkur. Ég var settur í Ingi- marsskólann um haustið, en þá voru það yfirleitt börn fátæklinganna í Reykjavík sem í þann skóla fóru, (þar voru engin skólagjöld), en íhaldsbörnin í Ágústarskóla. Það voru þó engir aukvisar, kennararnir þarna, því Þórbergur Þórðarson kenndi íslcnsku. Brynjólfur Bjarna- son náttúrufræðina og dr. Guðni Jónsson ensku. Og ekki má gleyma skólastjóranum, séra Ingimar. Svo lá leiðin í Verslunarskólann, en þaðan lauk ég prófi 1932." ^þkúli, þú hefur sinnt áhugaefnum áfleiri andleg- um sviðum en í tónlist. Pú ert umboðsmaður sjálfs Krisnamurti á íslandi? „Já, og það kom til af því að móðir mín var mjög andlega sinnuð, var mjög snortin af kenningum Krisn- amurti og fór á hverju ári til bæjarins i©.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.