Tíminn - 16.03.1986, Blaðsíða 2
Sunnudagur 16. mars 1986
A&eins ein kona fékk að vera á kútkmagakvöldinu en það var Dorthie Lyberth frá Grænlandi en hún flutti
ræðu á þinginu en heiðursgestur kvöldsins var Helgi Seljan.
Karlrembu-
hátturinn
fékk að
njóta sín
Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur af kalki f mg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum(2,5dlglös)* Lágmarks- skammtur f mjólkurglösum (2,5dlglös)**
Bðrnl-lOóra 800 3 2
UngHngarll-18ára 1200: 4
Ungtfólkogfullorðið Ófrfskar konur og 800"* 3 2
brjóstmœður 1200**" 4 3
* Hór er gert ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalki komi úr mjólk.
** Að sjálfsógðu er mögulegt að fá allt kalk sem likaminn þarf úr öðrum matvœlum en mjólkurmat
en slíkt krefst nákvœmrar þekkingar á nœringarfrœði. Hór er miðað við neysluvenjur eins og
þœr tíðkast í dag hór á landi.
**' Margir sórfrœðingar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf só mun meiri eða 1200-1500
mg á dag.
**** Nýjustu staðlar fyrir RDS í Bandaríkjunum gera ráð fyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp.
Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundir og auk
þess B-vItamín, A-vítamín, kallum, magníum, zink og fleiri efni.
Um 99% af kalkinu notar Ifkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna.
Tœplega 1 % er uppleyst I líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum,
og er það nauðsynlegt m.a. týrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt,
hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum
efnaskiptahvötum.
Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamín, sem hann fœr
m.a. með sólböðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla
annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en
300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Úr
mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum
af mjólk.
Helstu heimildir: Bæklingurinn Kalk og beinþynning effr dr. Jón Óttar Ragnarsson og Nutrition and Physical Fitness, 11. útg.
eftir Briggs og Calbway, Holt Reinhardt and Winston, 1984
J ji.%
/fo DuiaaöU'íjóuc
þegar vöxturinn er hraður*
Unglingar verða að fá uppbyggilegt fœði vegna
þess hve vöxtur þeirra er hraður á tiltölulega fáum
árum. Par gegnir mjólkurneysla mikilvœgu hlutverki
því án mjólkur, og kalksins sem f henni er, ná
unglingamir síður fullri hœð og styrk.
Komið hefur í Ijós að neysluvenjur unglinga
fullnœgja sjaldnast lágmarks kalkþörf og er þeim
því einkar hœtt við hinum alvarlegu afleiðingum
kalkskorts síðar á œvinni. Sérstaklega eru stúlkur í
hœttu því þeim er hœttara við beinþynningu og
Mjólk í hvert mál
hörgulsjúkdómum í kjölfar þameigna. Kalksnauðir
megrunarkúrar og lélegt matarœði virðist einnig
einkenna neysluvenjur stúlkna fremur en drengja.
Fjögur mjólkurglös á dag innihalda lágmarkskalk-
skammt fyrir unglinga og neysla undir því marki
býður hœttunni heim. Pað er staðreynd sem
unglingar og foreldrar þeirra œttu að festa f minni
því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur
dýrmœtur.
* Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk,
eða undanrenna.
MJÓLKURDAGSNEFND
á kútkmagakvöldi
Lionsmanna á
Akureyri
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri
Haraldi Inga
Það var hálfgerður prakkarasvip-
ur á þeim norðlensku karlmönnum
sem lögðu leið sína á hið árlega kút-
magakvöld lionsmanna, sem haldið
var í Sjallanum s.l. föstudagskvöld.
Framundan voru fáeinir klukkutím-
ar þar sem: „hinn forni íslenski karl-
rembutaktur fengi virkilega að njóta
sín“, eins og einn gestanna orðaði
það. Annar sagði að þetta væri góð
tilbreyting, „strákurinn í viðstödd-
um fengi útrás á annan hátt en þegar
konunar væru með“. „Við erum
miklu frjálsari, og látum meira
fjúka," sagði sá þriðji glottandi.
Hóf þetta, sem eingöngu var ætlað
karlmönnum, hófst kl. 19 með „kok-
dilli“. Leikur íslendinga og Spán-
verja var sýndur á breiðtjaldi í beinni
útsendingu og að honum loknum
skoraði veislustjórinn, Stefán Þor-
láksson, á viðstadda að gera atlögu
að langborði einu miklu sem hlaðið
var ríflega 50 sjávarréttum. Belgdu
menn sig þarna út af hákarli,
hrognum, lifur, svartfugli og hinu
fjölbreyttasta úrvali fiskmetis.
Heiðursgestur kvöldsins var Helgi
Seljan alþingismaður. Flutti hann
gamanmál bæði í bundnu og
óbundnu máli við frábærar undirtekt-
ir. Af öðrum uppákomum má nefna
uppboð, kveðskap „ýmiss konar" og
söng.
Athygli vakti að innan um alla
karlmennina sat ein kona. Við nán-
ari eftirgrennslan kom í ljós að kon-
an heitir Dorthie Lyberth og er frá
Grænlandi. Dorthie er stödd hér á
landi til að kynna land sitt og þjóð,
og þótti norðlenskum karlmönnum
sök sér þótt hún sæti til borðs með
þeim, þar sem vitað var að hún skildi
ekki stakt orð í íslensku. Dorthie
flutti ræðu á móðurmáli sínu, sem að
sjálfsögðu enginn skildi, þótt einn
viðstaddra snaraði mjög frjálslega
yfir á íslensku.
Um miðnætti var svo húsið opnað
eiginkonum, og öðrum þeim er
höfðu hug á að hreyfa útlimina eftir
tónlist Skriðjöklanna fram eftir
nóttu.
Á kútkmagakvöldinu hjá norð-
lensku Ijónunum voru rúmlega 50
tegundir af sjávarréttum allt frá
rækjum upp í hval.