Tíminn - 16.03.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Sunnudagur 16. mars 1986
Hrafn Gunnlaugsson: „Ætlum aö
forðast þvottahúsa-realismann.“
Tfmamynd Sverrir
Tristan
og
r
Isold
Hrafn Gunnlaugsson
þegar farinn að undirbúa gerð
nýrrar kvikmyndar.
Karl Júlíusson
hannar sviðsmynd og búninga
Hrafn Gunnlaugsson og samstarfsmenn hans eru nú
að hefja undirbúning að nýrri kvikmynd sem meðal ann-
ars byggir á sögunni um Tristan og ísold.
Nú þegar hafa sex erlend fyrirtæki lýst yfir áhugasínum
að taka þátt í gerð myndarinnar og fjármögnun hennar
þar á meðal EMI, sænska kvikmyndastofnunin, Viking
film og Ab Film Teknik.
Forvinna
„Það er enn engan veginn búið að
ganga frá hvaða fyrirtæki koma til
með að vinna með okkur og í raun-
inni hcfur endanleg ákvörðun um
gerð myndarinnar ekki enn verið
tekin. Það sem við erum að gera er
að forvinna verkið, setja fram hug-
myndir sem síðan cr liægt að nota
sem grundvöll að sjálfri kvikmynda-
gerðinni," sagði Hrafn Gunnlaugs-
son þegar Tíminn innti hann eftir
þessu vcrkefni.
Nýjasta kvikmynd Hrafns,
„Skækjan og böðullinn" er smám
saman að sjá dagsins ljós og eru
klippingar vel á veg komnar.
„Eftir að hafa rætt.við Karl Júl-
íusson scm unnið hefur með mér síð-
ustu tvær myndirnar ákváðum við að
hrinda undirbúningsvinnunni af stað
en hún lendir rcyndar mikið á
honum. Ég legg fram grunnhug-
myndina og síðan hefur hann sínar
frjálsu listamannshendur til að
hanna búninga og alla umgjörð
verksins. Hann sýndi það í þessari
sænsku mynd sem nú er að verða til
að hann er vandanum vaxinn en þar
hannaði hann og saumaði alla þá
búninga sem notaðir voru."
Enn aðeins hugmynd
Hrafn segir það óskadrauminn að
geta fengið íslenska aðila til að fjár-
magna myndina að hálfu á móti ein-
hverjum hinna erlendu aðila sem til-
búnir eru í slaginn. Við bíðum einnig
eftir því hvernig Kvikmyndasjóður
tekur í málið. Þessi kvikmynd er því
enn aðeins hugmynd."
Við spurðum Hrafn hvort hér væri
um að ræða einhvers konar framhald
af kvikmyndinni Hrafninn flýgur.
„Það má segja að hún tengist
henni. Frásagnartæknin er ekki ólík
eins og ég sé hana fyrir mér á þessu
stigi. Miglangar til aðstílfæraákveð-
inn tíma sögu okkar í lit og formi og
gefa honum þann styrk sem hug-
myndaflugið hefur. Það cr líka nauö-
synlegt að komast út úr þvottahúsa-
realismanum sem einkennt hcfur ís-
lenskar niyndir frá þessu timabili og
færa sig yfir í póesíuna."
Hvað áttu við með
þvottahúsarealisma?
„Jú það er einskonar hefðbundið
íslenskt göngulag t' vaðmáli. Ég vildi
gjarnan brjóta þetta upp og fá menn
til að rétta úr bakinu þegar það á við.
Var það ekki Steinn Steinarr sem
sagði citthvað á þá leið aö álútir
skulu menn ganga, Itoknir í hnjánum
og horfa með festu á íslenska jörð.
Ef af þessari þvikmynd verður þá
ætlum við að reyna að forðast þetta
göngulag.
í alvöru talað þá væri gaman að
reyna að ná þessum hráa. skemmti-
lega raunveruleika sem einkennir
miðaldir í sögu okkar. Að búa til
ntynd sem endurspeglar hann en um
leið að færa hann ofurlítið í stílinn."
Heillandi verkefni
Eins og fyrr segir hefur Karl Júl-
íusson þegar hafið vinnu við að móta
búninga og umgjörð myndarinnar.
Að vísu er flest af því enn á teikni-
borðinu. Það er greinilcgt að Kalli
Júl, eins og hann er kallaður, er í ess-
inu sínu þegar við förum að ræða um
búninga og forna lifnaðarhætti.
Karl er búinn að hafa Ieðursmíði
og saum að atvinnu sinni síðastliðin
17 árogeröllum hnútum kunnugurí
þessu ævaforna handbragði.
„Það má segja að það sé umgjörð
verksins sem ég er að fást við að
skapa og það er heillandi verkefni.
Ég er búinn að skoða á undanförn-
um árum það helsta sem vitað er um
búninga til forna og það er Ijóst að
hvað þá snertir hafa mennirnir ekki
breyst svo mikið. Við höfum alla tíð
vcynt að leggja okkur fram við að
ganga eins vel til fara og við höfum
getad og haft efni á. Mikið var lagt
upp úr því til dæmis að búningar
hermanna mögnuðu upp styrk þeirra
og kraft. Og svo hefur reyndar vcrið
til skamms tíma.
Föt manna hafa líka alltaf endur-
speglað fjárhag þeirra og þannig
mætti lengi telja.
Það liggur beinast við að nota mik-
ið leður enda öruggt að það hefur í
gegnum tíðina verið eitt sterkasta
efnið sem menn höfðu tiltækt bæði í
skó og fatnað. Fornleifafundur í
Norður-Evrópu og á Norðurlöndun-
um benda til þess að fatnaður hafi
verið vandaður ekki síður en annað
sem forfeður okkar fengust við að
búa til.
Það er þó ekki ætlunin að fylgja
eftir í smæstu atriðum því sem var
heldur verður myndin fantasía innan
ákveðins ramma. Ég hef líka verið
að skoða vopn og verjur og leggja
fram hugmyndir að smíði þeirra auk
skartgripa og alls þess sem við þarf
að hafa," sagði Karl að lokum.
Ef ákveðið verður að ráðast í þetta
verkefni munu tökur ekki hefjast
fyrr cn á seinni hluta næsta árs og að
öllum líkindum mun Toný Fossberg
sjá um kvikmyndun en Hrafn leik-
stýra verkinu.
Kostnaðarhliðin er að sjálfsögðu
óþekkt stærð enn sem komið er en
ætla má að myndin kosti ekki undir
40 milljónum króna.
1 ll MLX» v :3
101 K' % i
f*r Wm nkivi
|;4
Karl Júlíusson á vinnustofu sinni þar sem fyrstu búningarnir eru að líta
dagsins IjÓS. Tímamynd Árni Bjarna