Tíminn - 16.03.1986, Síða 6

Tíminn - 16.03.1986, Síða 6
6 Tíminn Sunnudagur 16. mars 1986 ísleifur Jónsson verkfræöingur stjórnar undirbúningi að byggingu raforkuvers í Djibouti KRAFLA í AFRÍKU ísleifur Jónsson var um aldarfjórðung yfirmaður Jarðborana ríkisins en hefur auk þess unnið merkt brautryðjendastarf á vegum Sameinuðu þjóðanna víða um heim. íslenskur verkfræðingur, ísleifur Jónsson, starfar nú á vegum Samein- uðu þjóðanna í Djibouti í Afríku við að undirbúa byggingu gufuraf- orkuvers. ísleifur, sem í 25 ár var yfirmaður Jarðborana ríkisins, er verkefnis- stjóri þessa verkefnis og sagði hann í samtali við Tímann að hér væri um að ræða eins konar Kröfluvirkjun. Aðstæður í Djibouti eru að mörgu leyti líkar því sem gerist á Reykja- nesi. Landið er eldfjallaland og þar er að finna háhitasvæði scm hentug eru til virkjunar. Síðast varð eldgos í Djibouti árið 1978 en þá gaus úr jarðsprungu ekki ósvipað þvi sem átt hefur sér stað í Kröflueldum nema í mun minna mæli. „Eftir tveggja ára undirbúnings- starf erum við nú að fara út í boranir en verkið hefur tekið lengri tíma en áætlað var í fyrstu," sagði fsleifur. „Við búumst við að verkefninu verði lokið eftir um það bil tvö ár og þá verði hægt að fara að framleiða hér rafmagn með gufuafli." Það rafmagn sem nú er til staðar í Djibouti kemur frá dieselstöð en hún framleiðir á milli 30 og 40 megawött. ísleifur sagði að ætlunin væri að bora fjórar holur sem eru nákvæm- lega eins og þær sem boraðar hafa verið á Nesjavöllum við Þingvalla- vatn og við Kröflu. Þær verða um tvö þúsund metra djúpar og við vonumst til að ná úr þeim umtalsverðri orku. Þessa dagana eru ísleifur og að- stoðarmenn hans hins vegar að kanna svæði sem aldrei hafa verið könnuð áður. Þetta er ekki fyrsta verkefnið sem fsleifur vinnur á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hann stjórnaði á sínum tíma bor- un á fyrstu tveim gufuholum sem boraðar voru í Mið-Ameríku og skipulagði síðar jarðhitarannsóknir í Tyrklandi og var auk þess í tvö ár framkvæmdastjóri jarðhitarann- sókna í Kenýa. Þar undirbjó hann meðal annars byggingu fyrstu jarðgufurafstöðvar í Afríku. Eiginkona ísleifs, Birna Kristjáns- dóttir dvelst með honum í Djibouti en þeim til aðstoðar er íslensk stúlka Sólbjörg Sólversdóttir að nafni. Heita vatnið í Djibouti þarf ekki að nota til húshitunar því þetta er einn heitasti staðurinn á allri jörð- inni. Yfir sumarmánuðina frá maí til september fer hitinn mjög sjaldan niður fyrir 30 stig. Aðspurður sagði ísleifur að þau hefðu það gott. Maður hefði viljað að þetta gengi betur en við því er lít- ið að gera. Ef þið skrifið eitthvað um þetta þá verð ég að fá að nota tækifærið og biðja ykkur fyrir kveðjur til ættingja og vina heima á íslandi.“ J.Á.Þ. ísleifur ásamt nokkrum aft- stoðarmanna sinna. Allar aðstæður tii að beisla gufuna eru frumstæðar en þrátt fyrir það miðar verkinu áfram. I Víða í Afríku er að finna óhemju orku í formi jarðhita. Nú er mikið kapp lagt á að nýia þessa orku til raf- orkufram- leiðslu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.