Tíminn - 16.03.1986, Side 7

Tíminn - 16.03.1986, Side 7
Sunnudagur 16. mars 1986 Tíminn 7 9:£SE£ Leitin að fjársjóðnum eru grafnir í jöröu á I ■ r Æ I ■ 'ásrrss. endaoi i fangelsi Richard Knight nýslopp- inn úrfangelsinu. „Yfirvöld í Vietnam munu ekki geta fundið fjársjóðinn án minnar hjálpar." Enskur ævintýramaður að nafni Richard Knight hefur í mörg ár verið í fjársjóðaleit. Eitt aðaláhugamál hans hefur verið að finna fjársjóð sem talið er að hinn frægi skipstjóri og sjóræningi William Kidd hafi falið á eyju skammt undan Vietnam. Eftir þriggja ára rannsóknir, sem aðallega fóru fram á bókasöfnum, taldi Knight að hann væri búinn að leysa gátuna. Með því að bera saman gömul sjókort sem Kidd átti að hafa notað og ljósmyndir sem teknar voru úr gervitunglum af eyjunum undan ströndum Kampucheu og Vietnam taldi Knight að ein eyja væri mun lík- legri en allar aðrar sem til greina komu. Þetta var Hon Tre Lon, lítil eyja um 50 sjómílur suðvestur af Vi- etnam. Brösuglega gekk að fjármagna leiðangurinn þar sem flestir töldu að Knight væri ekki með réttu ráði. Flestir könnuðust að vísu við frá- sagnir af Kidd skipstjóra eða kaptein Kidd en að unnt reyndist að finna fjársjóð sem hann hefði hugsanlega grafið á einhvcrri eyðieyju í lok sautjándu aldar væri einum of mikil bjartsýni. Kapteinn Kidd var eins og kunnugt er dæmdur til dauða í Lundúnum árið 1701 fyrir sjórán og væri þessi ellilífeyrir hans því búinn að liggja lengi í jörðu. Samkvæmt rituðum heimildum meðal annars frá sjómönnum, sem höfðu verið samferða Kidd, átti fjár- sjóður sem var afrakstur margra sjórána að hafa verið grafinn í jörðu á eyju í Thailandsbuktinni og var verðmæti hans ekki undir fimmtán milljónum punda eða tæpur mill- jarður íslenskra króna. Knight tókst þó að lokum að út- vega skip í Thailandi til fararinnar en áður hafði hann farið þess á leit við yfirvöld í Vietnam að hann fengi leyfi til grafa eftir fjársjóðnum þar sem hann taldi hann vera. Yfirvöld voru sein á sér að svara þessari beiðni og að lokum lét hann til skarar skríða án þess að hafa til þess formlegt leyfi. i Hjálparkokkurinn sem þreytist aldrei á því að hafa hreint og fínt í kringum sig Effco þurrkan er ómissandi við eldhússtörfin. Hún hjálpar þér að halda eldhúsinu hreinu og fínu,- sama á hverju gengur. Effco þurrk- an gerir öll leiðinlegustu eldhús- störfin að léttum og skemmti- legum leik. Það verður ekkert mál að ganga frá í eldhúsinu eftir elda- mennskuna, borðhaldið og upp- vaskið. En Effco þurrkan er ekki bara nothæf í eldhúsinu. Hotaðu hana til að þrífa bílinn, bátinn eða taktu hana með þér í ferðalagið. Það er vissara að hafa Effco þurrkuna við hendina. Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum og verslunum. ,Ol S Bl VÉLSLEDAMÓNUSTAN Viðgerðaþjónusta fyrir vélsleða og minni háttar snjóruðningstaeki FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N - 200 Kópavogur Sími 64 10 55 Þetta reyndist hin mesta skyssa því Knight og aðstoðarmcnn hans voru handteknir skammt undan strönd Vietnam og dæmdir til fangelsisvist- ar og hárra fjársekta vegna fyrirhug- aðs fornleifagröfts. Eftir eins árs dvöl í fangelsi í Viet- nam tókst Knight að fá sig lausan og hefur nú lagt hugmyndina um fjár- sjóðsleitina að jnestu á hilluna. Fornleifafræðingar frá Saigon rnunu þó í framhaldi af þessari til- raun hafa gert athuganir á cyjunni án þess að. verða nokkurs vísari um fjársjóö kapteinsins. „Það er slæmt að fá ekki að sann- prófa hvort niðurstöður mínar eru réttar. Án þess að hafa þær upplýs- ingar sem ég hcf safnað saman með rannsóknum mínum efast ég um að yfirvöldum í Vietnam takist nokkurn tímann að finna fjársjóðinn ef hann cr þá á annað borð til,“ segir Knight sem enn er sestur að á bóka- söfnunum í Lundúnum í lcit að fjár- sjóðum. Smiðir - húsby ggj endur Hafið þið kynnst PELLOS SPÓNAPLÖTUNUM okkar? Þær eru framleiddar af finnskum snillingum sem kunna sitt fag SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.