Tíminn - 16.03.1986, Qupperneq 8

Tíminn - 16.03.1986, Qupperneq 8
8Tíminn Sunnudagur 16. mars 1986 - segir Dóra Jónsdóttir, gullsmiður, í spjalli um íslenskt silfur og þjóðbúninginn Það er seinleg vinna að smíða víravirkið. Dóra er í fremstu röð gullsmiða sem leggja stund á þessa grein í iðn sinni. (Tima-mynd Robert) Silfríð var tákn stöðu mæðra okkar Þegar 200 ára afmæli Reykjavíkur nalgast eykst áhuginn á íslenska þjóðbúningnum, al- veg eins og gerðist 1930 á Alþingishátíðinni, 1944 við lýðveldisstofnun og 1974 á þúsund ára afmæii íslandsbyggðar. Þetta staðfestir frú Dóra Jónsdóttir, gullsmiður og hver ætti fremur að verða þess var en hún, því hún er meðal þeirra gullsmiða í Reykjavík sem mest hafa lagt sig eftir að smíða silfrið á þjóðbúninginn og er vel inni í sögu hans og gerð. Dóra er af gullsmiðum komin, en faðir hennar var Jón Dalmannsson, gullsmiður, sem lengi rak verslunina að Skólavörðustíg 21 og var með verkstæði frá 1920-1970. Það liggur því beint við að byrja á að spyrja Dóru hvort kynnin við gull- smíðina í föðurgarði hafi ekki verið orsök þess að hún lagði þessa iðn fyrir sig. „Jú. á sinn hátt,“ segir Dóra,“ en samt hafði cg ætlað mér að fara aðrar leiðir, fara í langskólanám, eins og sagt er. En meiðsli og langvarandi veikindi á sínum tíma komu í veg fyrir það. Ég missti af skóla og fór að vinna hjá símanum, en þótt mér Iík- aði vel þar var það einmitt þá að mér datt í hug að byrja að læra gullsmíð- ar. Auðvitað hafði ég náin kynni af þessu heima á Grettisgötu 6, þar sem við bjuggum og pabbi var með verk- stæðið. Hann hafði keypt það af tveimur gullsmiðum öðrum, sem höfðu átt það í tuttugu ár og eins og þú getur séð á ég hér ýmis áhöld frá þessu verkstæði sem komin eru til ára sinna, sum á annað hundrað ára i görnul. En iðnin var sem sagt alltaf nálæg i mér. Ég hóf námið 1949 og lauk því I 1953. Nei, ekki var ég nú sú fyrsta í þessu. Önnur stúlka var að læra um svipað leyti og ég, var nokkru á und- an mér. Fyrsta konan lauk sveins- prófi sem gullsmiður 1923 á ísafirði. f>að var Sigríður Ásgeirsdóttir. Önn- ur lauk svo prófi 1931, en hún mun hafa flust til Danmerkur og lítið hafa starfað við þetta. Nú fer konum fjölgandi í Gullsmíðafélagi íslands og ég held að við séuni bráðum orðn- ar jafn margar og karlarnir." Hverjir voru helstu viðskiptavinir í verslun föður þíns, þegar þú varst að alast upp? „Þegar ég var að aiast upp var pabbi ekki með verslun, en það var sarnt mikið um að fólk kæmi á verk- stæðið og pantaði hitt og þetta, eink- um til gjafa. Á stríðsárunum voru svonefndir englahöfuðskrossar mjög vinsælir til fermingargjafa og margir kannast við það, því þeir eru víða til. Svo var stöðugt nokkur eftirspurn eftir búningasilfrinu og ýmsum öðr- um hlutum úr víravirkinu. Bresku hermennirnir og síðar hjúkrunar- konur, bæði breskar og kanadiskar vildu kaupa þessa hluti, hringa nælur og annað og muni með goða og guð- spjallamyndum, því þetta þótti þjóðlegt. Nokkuð af þessu var til sölu á Keflavíkurflugvelli og seldist vel og svo var pabbi líka með talsvert af því sem hann smíðaði til sölu í gömlu Baðstofunni við Kalkofnsveg- inn.“ Þegar þú sjálf lýkurnámi leggurþú þig mikið eftir víravirkissmíðinni? „Gullsmíðanámið er fjögur ár og þar kynnist maður allri gullsmíði, jafnt úr gulli sem silfri, -og líka víra- virki. Á tímabili gætti þess nokkuð að sumir vildu komast hjá að læra víravirkið, sögðu að þetta væri að hverfa og til einskis að læra það. En ég sagði við þá sem þetta sögðu að það væri alltaf gott að kunna þetta, því þekkingin gæti komið að notum í ýmsu öðru. Nú.ogsvo hefurþaðfar- ið svo að þjóðbúningurinn og þar með víravirkið hefur sótt á og alltaf nokkur eftirspurn. Já, ég hafði alltaf áhuga á víravirk- inu og loftverkinu svonefnda, sem var mikið í tísku hér áður, t.d. um 1930. Sveinsstykkið mitt var t.d. höfuðspöng með loftverki. Þessi lauf sem þú sérð á henni eru fyrst teiknuð og söguð út, en síðan slegin út og

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.