Tíminn - 16.03.1986, Qupperneq 12
12Tíminn
Sunnudagur 16. mars 1986
Regnbogi þjóðanna:
Þjóðverjar taka
við af Frökkum
í gær lauk franski kvikmynda-
hátíð í Regnboganum og í dag taka
Þjóðverjar upp merkið og halda
áfram að skammta kvikmyndaáhuga-
mönnum citthvað af því sem sjaldan
ratar uppá hvíta tjaldið hérlendis,
nema af sérstöku tilcfni.
f vikunni verða sýndar 10 myndir
og hafa 9 af þeim verið sýndar hér-
lendis áður.
Af öðrum myndum má nefna
„tríalógíu" Fassbinders; Hjónaband
Maríu Braun. Lola og Þrá Veróníku
Voss, París Texas eftir Wim
Wenders, Das Boot eftir Wolgang
Petersen, Hellcr Walin eftir Margar-
ethe von Trotta...
Pað verður því margt um góða
kvikmyndagcrð í Regnboganum
þessa vikuna eins og vikuna á
undan.
Og svo má geta þcss að sendiherra
Atriði úr myndinni „Die Weisse
Rose“ sem sýnd verður við opnun
þýskrar kvikmyndahátíðar í
Regnboganum í dag.
Vestur-Pýskalands á íslandi, Hans verndari hátíðarinnar og það ætti
Hermann Haferkamp, verður varla að vera verra.
„Við vitum að þegar fækka á fólki í fyrirtækjum og stofnunum bitnar það
gjarna á þeim eldri,“ segir Bergsteinn Sigurðsson.
(Tímamynd Kóbcrt)
. Við óskum áhöfninni á ms. Guðmundi Ein-
arssyni til hamingju með giftusamlega
björgun, um leið og við tökum undir hvatn
ingu skipstjórans um að áhafnir æfi sig
reglulega í notkun Markúsametsins.
BJÚRGUNARNETID
Markúsarnetið er fáan-
legt í sérhönnuðu hylki á
allar gerðiír dekkbáta og
skipa.
BJÖRGUNARNETIÐ
MARKÚS HF.
SKÚTAHRAUNI 13c, PÓSTHÓLF 13
222 HAFNARFIROI S (91)51465
Sérhönnuðu hylkin
auka öryggið.
MARKUS ]
L_ J
Besta fjár-
festingin að
nýta krafta
aldraðra lengur
- segir Bergsteinn Sigurðsson, einn
forgöngumanna um stofnun Félags
eldri borgara á Hótel Sögu í dag
„Islendingar eru ekki of margir, okkur vantar fólk. Þess vegna er ætl-
unin að reyna að ná til fólks frá sextugu og upp úr, sem af ýmsum orsök-
um hefur orðið að hætta að vinna, en býr þó yfir nægri starfsorku og þar
að auki ómetanlegri reynslu."
Þetta segir Bergsteinn Sigurðsson,
deildarfulltrúi hjá Borgarverkfræð-
ingi, en hann er einn forgöngumanna
um stofnun Fclags eldri borgara,
sem halda mun stofnfund sinn á
Hótel Sögu í dag, laugardag, kl.
13.30.
„Við vitum að þegar fækka á fólki
í fyrirtækjum og stofnunum bitnar
það gjarna á þeim eldri," segir Berg-
steinn. „Þá feroft svo að menn verða
utanveltu og eiga í vandræðum með
sjálfa sig. Þcir slitna úr tcngslum við
vinnufélaga og vinnustað og hætta að
mæta á fundi í eigin stéttarfélagi. Við
viljuni ná til þessara manna, hvort
sem þeir koma úr verkamannastétt
eða embættismannastétt. Allirkoma
í félagið sem einstaklingar og miðað
við að þeir geti hjálpað sér sjálfir.
Því ég legg áherslu á að það er starfs-
æfin sem við viljum framlengja með
þessu. Ég geri ráð fyrir að aðeins í
Reykjavik séu 15-20 þúsund ein-
staklingar, sem félagið ætti erindi
við.
Um hugmyndina að félaginu má
segja að það voru nokkrir menn hjá
borginni sem fóru að huga að þessu
og urðu strax varir við mikinn áhuga.
Leitað var til ASÍ, sem brást vel við
og þar hafði raunar verið í gangi
nefnd með svipaðar hugmyndir.
Einnig kom til samstarfs Starfs-
mannafélag Reykjvíkurborgar og
Samtök aldraðra, sem hafa einkum
einbeitt sér að byggingum.
Já, við höfum orðið varir við mik-
inn áhuga og við væntum góðrar
þátttöku. Ég held að það sé besta
fjárfesting sem þjóðfélagið getur
gert að halda þessu eldra fólki við
störf, því þess síðar þarf að finna
handa því elliheimilispláss og pláss á
stofnunum.
Hér er byggt í sjálfsbjargarvið-
leitni, en ekki skyldu."
í drögum að lögum fyrir félagið
segir að hlutverk Félags eldri borg-
ara sé að gæta hagsmuna eldra fólks í
hvívetna, m.a. með því:
• að vinna að því að skapa efna-
hagslegt öryggi og gott umhverfi hjá
öldruðum.
• að vinna að úrbótum í húsnæðis-
málum þess.
• að byggja upp féiagsheimili og
vinnuaðstöðu fyrir ýmiss konar starf-
semi félagsins.
• að annast um og koma á vinnu-
miðlun fyrir eldra fólk sem getur og
óskar að miðla öðrum af þekkingu
sinni og starfskröftum.
• að hlúa að hverskonar áhuga-
mannamáluni þess, skipuleggja
námskeið, hópvinnu. föndur og
skemmtanir.
• að stuðla að líkamsþjálfun og
útivist eldra fólks.
• að leitast við að hafa áhrif á laga-
setningu og ákvarðanir. sem varða
hagsmuni aldraðra, með viðræðum
og samningum við stjórnvöld og
stjórnmálaöfl.
Félagið skal vera skipulagslega
óháð stjórnmálaflokkum og hlut-
laust í afstöðu sinni til trúfélaga.