Tíminn - 16.03.1986, Side 17
Sunnudagur 16. mars 1986
Tíminn 17
i
t
!
að gleyma öllum kúrum, étur Is-
abella Rosselini eins og hún getur í
sig látið. Meðan verið var að taka
upp myndina ..Hvítar nætur" skófl-
aði hún í sig steiktri lifur með lauk.
enda ofbauð fylgdarmönnum
hennar frá Lancome. Henni hefur
gengið misjafnlega í skiptum við
hitt kynið. - tvö hjónabönd eru að
baki og minnir það á móðurina,
Ingrid Bergman. sem var þrígift.
Hún flissaði aðeins, þegar
minnst var á þær heitu nætur sem
þau Mikhail Baryshnikov áttu
saman, meðan á töku „Hvítra
nótta" stóð. Rússneski balletsnill-
ingurinn. sem sneri sér að hvíta
tjaldinu, hafði svo sem ekkert á
móti að vera orðaður við dóttur
Ingrid Bergman.
Anouschka Renzi, sem er dóttir
Paul Hubschmied og Evu Renzi,
hefur verið í opnunni hjá Playboy
og leikur líka í „Kraftaverkinu;"
guðhrædda Maríu mey ofan úr
sveit. Börnin stækka og það fer
ekki hjáforeldrunum néöðrum. Is-
abella Rosselini segir; „Fyrst eru
það bara axlirnar, sem eru mynd-
aðar, svo er flíkin látin falla neðar
og loks stendur maður kviknak-
inn."
Allir þekkja Raquel Welch, þótt
þær þrjátíu myndir sem hún lék í
þættu ekki allar mikil listaverk.
Dóttir hennar Tahnee, veit ekki
hver áhrif það mun hafa á feril
hennar, að kyntáknið móðir henn-
ar fór að láta frá sér pólitfskar yfir-
lýsingar, sem voru í vinstri-frjáls-
lyndum anda. „Menn eru þjakaðir
af pólitíkusum, sem fá að ráðskast
með þá eins og drasl." Isabella
Rosselini lét líka til sín taka á sviði
kvenréttinda: „Þar að auki tek ég
þátt í mótmælagöngum vegna
utanríkisstefnu Bandaríkjanna,"
ina Vanessu Redgrave á unga
aldri í „ Wetherby“.
segir hún.
Jamie Lee Curtis veit ekki vel
hvort hún á að haldn upp á hcilla-
óskakortið frá Reagan forseta. en
það stendur á arinhillunni hennar.
Kannskc ætti hún að fleygja því í
eldinn. Forsetinn sendi henni ham-
ingjuóskirnar, þegar þau ChrisGu-
cst giftu sig. Pau eru nefnilega
harðir andstæðingar vígbúnaðar-
stefnu Reagans.
Þegar hún var 18 ára skrifaði hún
í dagbókina sína; „Brjóstin á mér
cru svo sem ekkert sérstök, cn þau
tilheyra mér." Hún fékk færi á að
nota leikskólareynslu sína í mynd-
unum „Halloween" og „The Fog".
Anouschka
Renzi leikur i
„Kraftaverk-
inu“ og situr
fyrir hjá
Playboy.
Isabella Rossellini er eilíflega
minnt á módur sina.
Þar var hún látin æpa af skclfingu í
finuu mínútur og var kölluð
„Drottning neyðarópanna”. En
hún þénaði betur á þessu en Tony
faðir hennar gerði nokkru sinni. í
myndinni „Perfect" mun luín sýna á
sérallar hliðar. Húncr framúrskar-
andi snjöll í músíkleikfimi og mun
þarna rykkja sér af krafti ásamt
John Travolta. Enginn vcit hvað
framtíðin ber í skauti sér og ckkert
cr „perfect," cða fullkomið, - ekki
hcldur myndin „Perfect". Því er
rétt að geyma kortið frá Reagan,
því ef kvikmyndaferlinum lýkur
snögglega má alltaf fara í pólitík-
ina.
GULLIBETRI
f
Umsjón: Þórmundur Bergsson, Heimir Bergsson
Innanhússknattspyrna
er nú á krossgötum
- FIFA hefur samið alþjóðareglur og hyggst reyna að
koma leiknum undir sína stjórn
Það er ekki bara á Islandi sem
innanhússknattspyrna nýtur mikilla
vinsæida heldur er íþróttin stunduð
af krafti í flestum löndum heims.
Raunar hefur leikurinn löngum ver-
ið dulítið vandamál því reglur og lög
um innanhússknattspyrnumót hafa
jafnan verið eins mörg og mótin
sjálf.
Nú er Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið (FIFA) hinsvegar komið
með fingurna í málið og hyggst sam-
bandið reyna að ná völdum yfir
stjórnun og skipulagningu leiksins á
þessu ári.
Nefnd á vegum FIFA hefur nýlega
lokið við að koma saman alþjóða-
reglum um innanhússknattspyrnu og
vonast með því að koma íþróttinni
undir sína stjórn.
Hinar nýju reglur eru raunar
byggðar að verulegu leyti á reglum
hins almenna knattspyrnuleiks og
t.d. er í þeim bönnuð notkun borða
við hliðar- og endalínur.
„Við urðum að koma reglu á þessa
óreiðu. Knattspyrnuheimurinn bjóst
við að við gerðum eitthvað í þessu
máli og það höfum við nú þegar
gert,“ sagði Joseph Blatter fram-
kvæmdastjóri FIFA er hann var
spurður um hinar nýju reglur.
Blatter sagði mjög ólíkar reglur
gilda í innanhússknattspyrnu og færi
það mikiö eftir í hvaða hluta heims-
ins leikurinn væri spilaðui. Rcglur í
Evrópu, Suður-Ameríku og
Bandaríkjunum væru til dæmis
mjög ólíkar og það hefði gert verk
nefndarinnar snúiö og vandasamt.
Annars sagði Blatter hugtakið
„innanhússknattspyrna" vera á mis-
skilningi byggt þarsem leikurinn færi
síður en svo alltaf fram innanhúss.
Hann benti á þessu til skýringar að í
borg eins og Hong Kong væri heil
deildarkcppni í míni-knattspyrnu
utanhúss.
„Reglurnar munu því ckki einung-
is eiga við innanhússknattspyrnu
heldur munu þærstanda fyrir „knatt-
spyrna á litlu svæði" í reglubókinni",
sagði Blatter.
Eins og málum cr háttað í dag cr
íþróttin ansi ólík eftirlöndum. í Suð-
ur-Amcríku er t.d. lcikið án hliðar-
og bakborða á mcðan Bandaríkja-
menn og Ástralíumcnn leika svipað
og við íslendingar þ.c. með
„böttum". Aftur á móti hefur leikur-
inn á meginlandi Evrópu nokkra sér-
stöðu því þar eru skipuleggjendur
keppnanna allir með sínar sérreglur
sem þeim þykir sjálfum vænleg-
astar til þess að laða að áhorfendur
og auka þar með gróðann.
Nú vill FIFA reyna að ná völdum
yfir þessari íþrótt og hyggst gera það
með því að fá knattspyrnusamband
hvers lands til að reyna að koma
leiknum undir sína stjórn.
Líklegt þykir þó að þessar tilraun-
ir FIFA komi til með að mæta mikilli
andstöðu, sérstaklega frá Alþjóða-
innanhússknattspyrnusambandinu
(FIFUSA) en þau samtök hafa að-
setur sitt í Brasilíu. Ráðamenn í FIF-
USA segja aðildarríki samtakanna
vera fimmtíu talsins en raunar er
aðeins eitt þessara aðila evrópskt
þ.e. innanhúsknattspyrnusamband
Spánar.
FIFA hugðist kynna nýju reglurn-
ar í innanhússknattspyrnumóti er
halda átti í Hollandi í apríl næstkom-
andi en því hefur nú vcrið aflýst þar
sem Brasilíumcnn hafa hætt við að
koma til mótsins. Viðræður eru nú í
gangi milli FIFA ogFIFUSA og von-
ast ráðamenn fyrrnefnda sambands-
ins til þess að útkoman úr þcim verði
sú að innanhússleikurinn vcrði settur
undir stjórn FIFA en haldi þó sjálf-
stæði sínu gagnvart „alvöru" knatt-
spyrnuleiknum.
Hinar nýju reglur FIFA gera ráð
fyrir að innanhússknattspyrnan cll-
egar smáleikurinn vcrði leikinn á
velli sem er 20 sinnum 40 metrar að
stærð og markverðirnir verja mörk
sem eru 3 metrar milli stanga og 2
mctrar á hæð. Fimm leikmenn eru í
hverju liði og þar af einn í marki.
Leikið er í 2 sinnum 25 mínútur.
Heimsmeistarakeppni í innan-
hússknattspyrnu hefur reyndar þeg-
ar verið haldin af hinum óháðu sam-
tökum, fyrst í Brasilíu árið 1982 og á
Spáni á síðasta ári. Brasilíumenn
unnu í bæði skiptin. Þar var reyndar
byrjað að leika innanhússknatt-
spyrnu árið 1948 og iðka nú um 12
milljónir-njanna lcikinn þar í landi.