Tíminn - 16.03.1986, Page 24

Tíminn - 16.03.1986, Page 24
Fella tvær oghálfa millj. af kengúrum Áströlsk yfirvöld hafa ákvcðið að drepa 2,68 milljónir af kengúrum á þessu ári og er þaö 700 þúsundum fleira cn á síðasta ári. Þetta eru mestu dýraveiðar í heimi. í Queensland á að fella 1,38 millj- ón dýr og cr það 400 þúsundum minna en stjórnin hafði lagt til. Fjöldi kengúra í Ástralíu hefur auk- ist um 35 prósent frá síðasta ári og ere þær nú taldar vera 17 milljónir. Þær cru því nokkru fleiri en íbúar Ástralíu. Umhverfisverndarmenn scgja að markmiðið með drápunurn á keng- úrunum sc fremur ábati af sölu kjöts og skinna en að koma í veg fyrir spill- ingu lands af þeirra völdum. „Það eru cngar sannanir fyrir því að kengúrurnar séu flciri í Queens- land cn í öðrum landshlutum," segja talsmenn Greenpcace. Qucensland er ncfnilcga með hæsta kvótann, en á eftir kemur Nýja Suður Wales, sem þó mun fella 700 þúsund l'ærri dýr en lagt var til. Pandaneykur fjölbreytni í mataræði Kínverjar segjast nú hafa fundið nýtt fóður handa risapöndunum sín- um frægu og er það mikill sigur, því pandan er í meira lagi matvönd. Segja Kínverjar að vegna þessa minnki hátttan á að stofninn deyi út. Þessir hvítu og svörtu birnir, sem lifa í miðju Kína eru nú ekki nema um eitt þúsund talsins. Þeir hafa til þessa fúlsað við öllu æti nema laufum svoncfnds sverðbambuss, en bamb- usinn er nú orðinn vandfenginn, þar sem hann hefur tekið að blóm’stra og deyja þar mcð. Dýrafræðingar hafa sem sé komist að því að pandan er reiðubúin að éta innfluttan rúg og ætti hann að geta komið í veg fyrir hungursneyð meðal dýranna. Bylgja sjálfsmorða meðal japanskra ungmenna Fimmtán ára gamall japanskur skóladrcngur, sem fyllst hafði ör- væntingu vcgna væntanlegs há- skólaprófs, hengdi sig í herbergi sínu nú á dögunum. Drengurinn hripaði orösendingu á miða scm hljóðaði þannig: „Ég treysti mér alls ekki í prófið." Hann hengdi sig í beltinu af japanska glímubúningnum sínum. Dauði hans var aðeins enn eitt til- • felli í bylgju sjálfsmorða meðal ung- menna í Japan að undanförnu, sem stafa af þeim geigvænlega þrýstingi sem skólakerfið bakar ungmennun- um. Hafa uppeldisfræðingar og for- eldrar reynt að hafa þau áhrif á lög- gjafarvaldið að breytingar til bóta veröi gerðar. Lögreglan segir að kennarar drengsins og foreldrar hafi enga hugmynd haft um þá örvænt- ingu sem hann bar í brjósti vcgna prófsins. Pilturinn var talinn iðinn og samviskusamur. Hann vann jafn- framt námi sínu viö að aka út dag- blaði á kvöldin. Nafn hanshefurekki verið birt. Nokkrum dögum eftir að drengurinn hengdi sig reyndi stúlka að fyrirfara sér vegna prófkvíða með því að stökkva niður á götu af þriðjú hæð. NŒAtHJ HOFUtw! HVAÐ ER BETRA EN KÓKÓMJÓLK 1NESTI HANDA KRÖKKUNUM? Hún er ekki bara góð á bragðið, hún inniheldur einnig ríkulegan skammt af nauðsynlegum næringarefnum. Úr kókómjólkinni fá krakkamir m.a. A- og B-vítamín, prótein, kalk og jám. Ekki veitir af til styrktar vexti og vílja og viðhalds fullu fjöri. NOTAÐU HÖFUÐIÐ OG KAUPTU HOLLA KÓKÓMJÓLK í KASSAVÍS ALÆGRA VERÐ/ N “W

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.