Tíminn - 18.03.1986, Side 3

Tíminn - 18.03.1986, Side 3
HÖFUNDAR LAGAOGUÓDA Höfundar laga og ljóða í söngvakeppninni voru þessir: Gleðibankann átti Magnús Eiríksson, Ef átti Jóhann G. Þriðjudagur 18. mars 1986 Gleðibankinn fer Slappað af eftir söngvakeppnina, Ema Gunnarsdóttir, Jónas R. Jónsson, Hanne Krogh og Egill Eðvarðsson lyfta glösuni. Tímaimnd: Ární Bjarna. Bobbysocks, norsku stúlkurnar Elisabet Andreason og Hanne Krogh, tóku lagið í sjónvarpinu á laugardagskvöldið, m .a. sungu þær nýtt lag, sem þegar er komið á toppinn i Noregi, og fengu til liðs við sig barnakór úr tónlistarskóla Magnúsar Kjartanssonar. límamynd: Árni Bjama. Fjölbreytt úrval Dæmi um búnað: Snúningshraðastýrðar inn- og útblástursvift- ur sem taka mið af völdu hitastigi hússins, þannig að stöðugt hitastig haldist (í húsinu). Við lágan útihita tryggir hringrásarbúnaður- inn (þ.e.a.s. blöndun fersklofts og innilofts) að hitastig innblástursins liggi aðeins fáum gráðum undir völdu hitastigi hússins og hindrar þannig kuldatrekk. Býður upp á sjálfvirka tengingu upphitunar- búnaðar hússins við valið hitastig. Innblástursvifta Útblástursvifta ©00 Handföng með áföstum togvírum ráða stöðu hringrásarspjalds inn- blástursviftunnar og stýrispjaldi útblástursviftunnar. Einnig fáanleg með sjálfvirkum stýribúnaði. 1) Hringrásarspjald 2) Togvír fyrir hringrásarspjald 3) Togvír fyrir stýrispjald 4) Handföng Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum í síma 38900 Loftræstibúnaður fyrir gripahús Eftir sigurinn í söngvakeppninni: ,,/Etla að taka mér tíma til að semja lög“ -segir Magnús Eiríksson lagahöfundur Magnús Eiríksson, elskulegur og hæglátur maður, á sér langan feril í „poppbransanum" og ótalmörg lög scm hafa átt greiða Ieið að hjörtum íslenskra hlustenda - sest þar að. Hann veit ekki einu sinni sjálfur hvað hann hefur samið mörg lög. Hann var ekki nema I5 ára þcgar hann byrjaöi í þessum svokallaða „poppbransa", fór að spila í hljóm- sveit. Síðan eru 25 ár og niargir straumar hafa leikið um tónlistina. Hann þckkir þá alla en scgir um lög- in sín að með því að kynnast popp- lögum hvers tíma hafi „síast inn að- ferðir við að búa til lög" rétt eins og rithöfundar læra sitt fag á að lesa bækur annarra höfunda. Það lá því beint við að spyrja hvort hann hefði þekkt höfunda einhverra annarra af úrslitalögunufn 10 af stíl þcirra. „Hugsanlega þrjú af þessum tíu en þó var ég ekki viss,“ sagði Magnús. Já, Magnús Eiríksson hefur borið sigur úr býtum í keppninni um þaö íslenska lag sem tekur þátt í söngva- keppni íslenskra sjónvarpsstöðva, „Júróvísíjón". Aö lokum er Magnús spurður hvernig hann ætli að verja 200 þúsund króna innlegginu í „Gleðibankann". „Ég ætla að leyfa mér að taka mér tíma til að semja lög." KL. .. Júróvisíoon! Jóhannsson, Ég lifi í draumi eftir Eyjólf Kristjánsson og Aðalstein Ásbcrg Sigurðsson, Gefðu mér gaum eftir Gunnar Þórðarson og Ólaf Hauk Simonarson, Með vaxandi þrá. eftir Geirmund Valtýsson og Hjálniar Jónsson, Mitt á milli Moskvu og Washing- ton, eftir Jakob Magnússðn. Ragnhildi Gísladóttur og Valgeir Guðjónsson, Syngdu lag cftir Þóri Baldursson og Rúnar Júlíusson, Vögguvísa eftir Ólaf Hauk Símonarson, Þetta gengur ekki lengur eftir Órnar Halldórs- son og Út vil ek eftir Valgeir Guðjónsson. í söngvakeppnina Magnús Eiríksson samdi lag og Ijóð Pálmi syngur sigurlagið með tilþrif- um: Kósí lítiö lag sem gæti gripið þig og hvern sem er. Þú gætir jafnvel unnið Á níunda tímanum á laugardags- kvöld síast fólk inní sjónvarpshúsið inn um hliðardyr. Lögrcglumenn voru við innganga en á íslenska vísu var þeirra hlutverk að vísa fólki til staðar - ekki að hefta för þess. í aðalstöðvum sjónvarpsins var undirbúningur í fullum gangi, að beinni útsendingu á úrslitakeppni um íslenskt lag í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. I hliðar- sal safnaðist saman fólk til að fylgjast með. Þar eru samánkomnir Hclgi Pétursson, púðraður og stressaður, sem tekur viðtöl í útsendingunni, yfirmenn og óbreyttir starfsmenn Ríkisútvarpsins sem taka skömm og heiður af því hvernig til tekst. fulltrú- ar þeirra fyrirtækja sem styðja keppnina og einstaka aðskotadýr. Allir eru penir og prúðir, eins og á skólabekk. Þó eitthvað hafi veriö minnst á það í fréttum að óvissa ríkti því sem næst fram á síðustu stund, vegna upp- sagna rafeindavirkja. dettur ekki né drýpur af þeim starfsmönnum sjón- varpsins sem til sést. Fjórir skermar upp á vegg sýna hvað um cr að vera á elri hæðum. Þar er greinilega allt í gangi. Auglýsingar. Staupasteinn. Klukkan rétt fram yfir auglýstan tíma upphefst það scm allir biðu eítir. Söngvakeppnin í beinni út- scndingu. Þegar upp er staðið er Glcðibankinn sigurvegari. Höfund- ur lags og Ijóðs Magnús Eiríksson. K L. Magnús Eiríks- son, Jónas Jónsson og Pálmi Gunn- arsson „víbra“ af spenningi meðan beðið er eftir úrslitum keppninnar. Tímamynd: Ámi Bjarna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.