Tíminn - 18.03.1986, Side 4
4 Tíminn
Bretar bíða með öndina í hálsinum:
Eru þau loksins trúlofuð, Andrew
prins og Sarah Ferguson?!
NÝLEGA BIRTUM við hér
í speglinum mynd og smá-
grein um Andrew prins og
núverandi vinkonu hans, Sarah
Ferguson (7. febr.) Þar var sagt frá
bollaleggingum hinna konungshollu
Breta um kvonfang prinsins, - hvort
hann hefði nú lundið hina einu réttu
konu.
Nú um síðustu helgi varð uppi fót-
urogfit í Englandi, því aðþærfréttir
(óstaðfestar að vísu) bárust, að nú
Susan Barrentcs nióðir Söru er gift
argentínskum pólóspilara og millj-
ónamæringi. Hún hefurekki mikið
samband við dóttur sína.
væri parið trúlofað, og ntyndi innan
skamms gifta sig í Westminster Abb-
ey. Það eru nú að verða 5 ár síðan
síðast fór fram konunglegt brúðkaup í
Englandi, en það var þegar Karl
prins og Diana giftu sig í júlí '81.
Sarah Ferguson var nýlega í skíða-
ferðalagi með þeim Karli og Diönu á
meginlandinu, og voru þá blaða-
menn og Ijósmyndarar á fleygiferð
upp og niður skíðabrekkurnar að
reyna að ná myndum af fólkinu og þá
ekki síður að ná tali af því og kallað-
ar voru spurningar til þeirra, m.a.
um trúlofun Andrew ogSögur. Pað
fengust engin svör, en blaðafólkinu
kom saman um að stúlkan væri svo
hamingjusöm á svipinn, að hún
væri áreiðanlega trúlofuð!
Bæði Andrew og Sarah voru yfir
helgina í Windsor kastala, og höfðu
fréttamenn fyrir satt, að þau hefðu í
santráði við drottningu verið að á-
kveða giftingardaginn ogjafnvel sett
upp hringana. „Þegar einhverjar
fréttir eru og eitthvað til að segja frá,
munum við tilkynna það," sagði tals-
maður hirðarinnar við ágenga blaða-
menn eftir helgina.
Sjálf fór Sarah Ferguson til vinnu
sinnar á mánudagsmorgun og svar-
aði ekki fréttamönnum og Ijósmynd-
urum sem þar biðu hennar öðru en
„Góðan daginn", svo cnn er breskur
almeningur engu nær um málið.
Andrew prins er fjórði í röðinni
um þjóðhöfðingjatign á Bretlandi.
Andrew prins og Sarah á Derby-
veðreiðunum.
Sarah Fcrguson er 26 ára og þykir
hin fallcgasta stúlka. Foreldrar
hennar skildu fyrir 11 árum, og
Susan móðir hennar giftist aftur til
Argentínu, en Ferguson, major og
uinsjónarmaður með verðlauna-
hestum hirðarinnar, giftist aftur
ungri konu (sem líka lieitir Susan)
og hefur eignast þrjú börn með
henni. Yngst cr Eliza litla, á fyrsta
ári, en guðforeldrar hennar eru
Karl prins og Diana.
Þriðjudagur 18. mars 1986
UTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
PARIS — Laurent Fabius
forsætisráðherra Frakklands
bauðst til að segja af sér eftir
að Ijóst var að kosningabanda-
lag hægriflokkanna, sem eru í
stjórnarandstöðu, hafði unnið
nauman sigur í kosningunum
síðastliðinn sunnudag.
STOKKHOLMUR
Sænska útvarpið sagði mann
þann sem handtekinn var í síð-
ustu viku vegna gruns um þátt-
töku í morðinu á Olof Palme
hafa verið formlega ákærðan
fyrir að hafa átt aðild að morð-
inu.
SINGAPÚR — Björgunar-
menn náðu að draga tvær kon-
ur lifandi úr rústum hins fallna
hótels í Singapúr. Þá hefur
fimmtán manns verið bjargað
úr rústunum en í gær var fjöldi
látinna sagður tíu manns.
JÓHANNESARBORG
— Alls létu sautján manns lífið í
átökum í Suður-Afríku um
helgina og virðist svo sem mót-
mælaaðgerðir svarta meirihlut-
ans gegn aðskilnaðarlögum
landins fari vaxandi.
VATIKANIÐ — Jóhannes
Páll páfi mun heimsækja sam-
kunduhús gyðinga í Róm í
næsta mánuoi og sögðu heim-
ildarmenn innan Vatíkansins
að með þessari heimsókn yrði
brotið blað í samskiptum ka-
þólsku kirkjunnar og gyðinga.
Páfi mun heimsækja sam-
kunduhúsið, sem er í miðborg
| Rómar, á eftirmiðdegi þann 13.
apríl næstkornandi.
LISSABON — Einum 176 út-
lendingum sem skæruliðar UN-
ITA-hreyfingarinnartóku hönd-
um fyrr í þessum mánuði hefur
verið gefið frelsi og eru nú
komnir heilu og höldnu til Zaire.
NYJA DELHI — Þrátt fyrir
gífurlega leit hefur lögreglunni
ekki tekist að hafa uppá Char-
les Sobhraj, alþjóðlegum
glæpamanni sem tókst að
laumast út úr öryggisfangelsi á
Indlandi.
BAHREIN - Siglingafulltrúi
sagði flutninqaskip frá Kýpur
hafa orðið fyrir flugskeytaárás'
að hálfu Iraka og hefði kviknað
í skipinu. Hið 118.475 tonna
tankskip var að flytja olíu frá
Khargeyju, sem er aðal-
olíustöo Irana við Persaflóann.
GENF — Ráðherrar OPEC
ríkjanna sem nú þinga í Genf
virðast ekki hafa komist að
neinu samkomulagi um sam-
ræmda stefnu í framleiðslu-
málum. Þeir leystu úr vanda
þessum á vanabundinn hátt í
gær þegar sett var á laggirnar
nefnd sérfræðinga sem kanna
á málið í heild sinni.
LUNDUNIR — Bretar iðuðu
í skinninu í gær eftir nánari
fréttum frá Buckinghamhöll eft-
ir að fréttir bárust út þess efnis
að prinsinn Andrew og vinkona
hans Sarah Ferguson hefðu
trúiofað sig og myndu giftast í
Westminsterkirkjunni seinna á
þessu ári.
TOKYO — Japanskir emb-
ættismenn reyndu að stöðva
lækkun dollarans með því að
hóta miklum kaupum á gjald-
miðlinum.