Tíminn - 18.03.1986, Side 5
Þriðjudagur 18. mars 1986
llllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllllllllll
Tíminn 5
Verftur Jacques Chirac næsti forsætisráðherra Frakklands? Flest bendir til
þess en hætt er við aft stjórn hans verði veik og sundurleit.
Frakkland:
Mjótt á mununum
París-Kcutcr
Laurent Fabius forsætisráðherra
Frakklands hefur boðist til að segja
af sér eftir að ljóst varð að bandalag
hægriflokkanna, sem eru í stjórnar-
andstöðu. hafði unnið nauman sigur
í þingkosningum sem fram fóru síð-
astliðinn sunnudag.
Uppsagnarboð Fabiusar var sent
til Francois Mitterrrand forseta
fimmta lýðveldisins sem á næstu dög-
um mun að öllum líkindum fá Jacq-
ues Chirac, leiðtoga stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins RDF eða gaul-
lista, stjórnarmyndunarumboðið í
hendur.
Myndi Chirac nýja stjórn gerist
það í fyrsta sinn í 28 ára sögu fimmta
lýðveldisins að forsetinn og ríkis-
stjórnin standa á sitt hvorum meiði
stjórnmálanna. Sósíalistinn Mitter-
rand mun þá þurfa að glíma við
hægrisinnaða ríkisstjórn sem hefur
nauman þingmeirihluta á bak við sig.
Sigur hægriflokkanna RDF og
UDF í kosningunum á sunnudaginn
var mun minni en búist var við og
meirihluti þeirra á þingi náðist
aðeins með hjálp 14 hægrisinnaðra
en óháðra fulltrúa. Enn á að vísu eft-
ir að telja í nokkrum hjálendum
Frakka en víst þykir að hægrimenn
fái 293 af 577 einstaklingum sem sitja
á franska þinginu.
Líklegl þykir að framundan séu
tvö ár óvissu og örðugleika í frönsk-
um stjórnmálum vegna hins nauma
sigurs hægriflokkanna. Að tveimur
árum liðnum eru forsetakosningar
fyrirhugaðar í Frakklandi og eins og
málin standa nú er Mitterrand forseti
i sterkri aðstöðu til að vinna þær
kosningar bjóði hann sig fram til
endurkjörs.
Sigurvegari kosninganna í gærvar
Þjóðernisflokkurinn sem byggir
stefnu sína á andúð í garð innflytj-
enda. Hann fékk nærri 10% at-
kvæða. Hinsvegar tapaði Kommún-
istaflokkurinn ntiklu fylgi, fékk und-
ir 10% atkvæða ogmámunafífilsinn
fegri. Sósíalistaflokkurinn, sem fékk
hreinan meirihluta í kosningunum
1981, er enn stærsti stjórnmálaflokk-
ur landsins og kom vel útúr kosning-
unum sé tillit tekið til þess að hann
hefur verið í stjórn síðustu fimm
árin.
Hægriflokkabandalagið hafði bú-
ist við því að vinna hreinan meiri-
hluta á þingi án þess að þurfa að
treysta á óháðu fulltrúana og fylgi
þeirra í kosningunum olli þeim því
nokkrum vonbrigðum.
Mitterrand forscti er því ekki al-
veg bundinn af því að láta Chirac fá
stjórnarmyndunarumboðið og raun-
ar er ekki alvcg víst að Fabius for-
sætisráðherra og stjórnmálafélagi
Mittcrrands sé nokkuð á leið úr
forsætisráðherrastólnum á næstunni.
Japan:
Nakasone vinsæll
Tokyo-Reuler
Kína:
Bjórinn
vinsæll
Pckíng-Rcuter
Að sögn dagblaðs eins í Kína
eru framkvæmdir nú hafnar við
byggingu sem kemur til með að
verða stærsta brugghúsið þar í
landi.
Blaðið sagði nýju bjórverk-
smiðjuna í Pekíng vera hannaða
af innlendum sem og dönskum
sérfræðingum og yrði hún tekin í
notkun árið 1988.
Verksmiðjan mun framleiða
bjór í massavís, reyndar svo mik-
ið að hver af hinum lOmilljón íbú-
um Pekíngborgar gctur leyft sér
að innbyrða innihald 30 flaskna á
ári.
Kína er ellefti stærsti bjórfram-
leiðandinn í heimi og hyggjast
stjórnvöld þar í landi tvöfalda
bjórframleiðslu á næstu fimm
árum. Bygging nýja brugghússins
er þáttur í þeirri áætlun.
Brassar
Yasuhiro Nakasone forsætisráð-
herra Japans á miklu fylgi að fagna
um þessar mundir og var það fylgi
staðfest í hinni árlegu skoðanakönn-
un dagblaðsins Asahi Shintbun. Par
kom í ljós að 46% aðspurðra vildu að
Nakasone héldi áfram að gegna
embætti forsætisráðherra cftir að
kjörtímabil hans rennur út þann 30.
október næstkomandi.
Nakasone er formaður Frjáls-
lynda lýðræðisflokksins sem fer með
völd í landinu. Formennskan gerir
hann að forsætisráðherra landsinsen
samkvæmt reglum flokksins á Naka-
sone ekki kost á endurkjöri eftir
þetta tímabil scm er hans annað í
röðinni.
Margir sérfræðingar trúa þó að
Nakasone vilji láta breyta reglunum
svo hann eigi kost á að gegna
embættinu áfram. Vinsældir hans í
áðurnefndri skoðanakönnun gætu
átt cftir að ýta undir sannfæringu
Nakasones í þessu efni.
Ekki nóg meft að Nakasone sé vinsæll heima fyrir heldur virftist hann einnig
njóta hylli útlenskra glæsikvenna.
geyma i
sér orma
Bclo Horizonte, Brasilíu-Rcutcr
Ormar leynast í þörmum 60% af
íbúum Brasilíu ser» telja 135 mill-
jónir. Þetta kom fram í rannsókn-
arniðurstöðum sem kynntar voru á
þingi brasilíska hitabeltislækna-
félagsins.
Aðalorsök ormafaraldsins er lé-
legt skolpræsakerfi og einnig rná
nefna óhreint drykkjarvatn svo og
litla fræðslu um heilbrigðismál.
f rannsóknarniðurstöðunum kom
fram að allt að 78,7% fólks á sumum
verndarsvæðum indíána gekk með
orma í þörmum sínum. Svoleiðis
nokkuð veit ekki á gott enda eru
kvillar á borð við blóðskort og
hægðavandræði útbreidd á þessum
svæðum.
Sovétríkin:
Pravda vill meiri
„alvöru“ í listalífið
Moskva-Kcutcr
Pravda, dagblað kommúnista-
flokksins í Sovétríkjunum, birti í
gær grein þar sem listamenn voru
hvattir til að koma fram með hug-
myndaríkari leikrit, kvikmyndirog
bækur. Sagði í greininni að al-
menningur væri orðinn dulítið
þreyttur á öllum þeim miðlungs
„vanaritverkum“ sem flæða yfir
landið.
Blaðið sagði fólk ekki þola öllu
lengur „ómerkilegar lýsingar af
venjulegu lífi og vanabundnum
störfum". Var greinilega verið að
höggva að þreifingum sovéskra
rithöfunda við að lýsa almennu lífi
einstaklingsins án þess að setja það
í pólitískt samhengi.
Listamenn ættu að huga að „al-
varlegum og mikilvægum verkum"
stóð f Prövdu.
Á 27. flokksþingi kommúnista-
flokksins í síðasta mánuði kom
fram að stjórnvöld vildu bæði í
senn lífga við lista- og menningarlíf
landsins og nota það sem beittari
áróðursmiðil - hvernig sem það er
hægt.
Það borgar sig fyrir Indónesíumenn aft vinna af krafti, sérstaklega ef austan
tjaldsþjóöirnar fara að versla við þá af fullum krafti.
Indónesía:
Fara viðskipti
og vinátta saman?
Jakarta-Rcutcr
Hin and-kommúnísku stjórnvöld í
Indónesíu hafa nú hug á auknum
viðskiptum við lönd Austur-Evrópu.
Margir segja þó þá stefnu lítið hafa
að gena mað aukinn vinarhug fndó-
nesíustjórnar til ríkja sósíalismans
heldur sé hér um að ræða mótleik
stjórnvalda við lækkandi olíuverði
og afleiðingum þess fyrir indónesískt
efnahagslíf.
Talsmaður stjórnráðs fyrir verslun
og iðnað (KADIN) sagði 40 manna
sendinefnd frá Indónesíu leggja upp
í samningaferð til Austur-Evrópu-
landi í næsta mánuði. Sagði tals-
maðurinn stjórnvöld í þeim ríkjum
hafa áhuga á indónesískum verslun-
arvörum á borð við te, kaffi pipar,
gúmmí og krossvið.
Stjórnin í Indónesíu, sem nýtur
stuðnings hers landsins, hefur fylgt
harðri and-kommúnískri stelnu síð-
an Kommúnistaflokkurinn þar í
landi var sakaður um að hafa staðið
að baki misheppnaðri byltingartil-
raun árið 1965.
Nú eru stjórnvöld þessa stærsta
múhameðstrúarríkis heims hinsveg-
ar neydd til að leita að nýjunt
, mörkuðum til að selja vörur sínar og
* virðast Sovétríkin og önnur ríki
Austur-Evrópu vera efst á lista í
þessu sambandi.
Suharto forscti Indónesíu heim-
sótti Ungverjaland og Rúmeníu á
síðasta ári til að ræða viðskipti og í
október síðastliðnum fór Yakov
Ryabov varaforsætisráðherra Sovét-
ríkjanna í opinbera heimsókn til
Indónesíu. Hann er hæst setti Sovét-
maðurinn sem komið hefur til Indó-
nesíu í tuttugu ár.