Tíminn - 18.03.1986, Side 12

Tíminn - 18.03.1986, Side 12
12 Tíminn BÍLASALAN BLIK s/f Við vorum að fá AKTIV CRIZZLY 2ja belta snjósleða, henta sérstaklega á skíðalöndum fyrir og bændur. Góð greiðslukjör ef samið er strax. Til sýnis og sölu á Bílasölunni Blik, Skeifunni 8, sími 686477. Hundahald í Reykjavík Leyfisgjald 1986-1987 Gjaldið, sem er kr. 4800,- fyrir hvern hund greiðist fyrirfram og óskipt fyrir allt tímabilið fyrir eindaga sem er 1. april 1986. Verði það eigi greitt fyrir þann tíma fellur leyfið úr gildi. Um leið og gjaldið er greitt skal framvísa leyfisskírt- eini og hundahreinsunarvottorði, ekki eldra en frá 1. september 1985. Gjaldið skal greiða í einu lagi hjá heilbrigðiseftirlit- inu, Drápuhlíð 14. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis. Lögmenn Aðalfundur Lögmannafélags íslands 1986 verður haldinn að Hótel Esju 2.hæð á morgun föstudaginn 21. mars og hefst kl. 14.00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf skv. 19. gr. samþykkta félagsins. Árshóf félagsins verður haldið að kvöldi aðalfund- ardags á Naustinu og hefst kl. 19.00. Stjórnin. Barnaheimilið Litla kot Vantar stuðningsfóstru í 4 til 6 tíma á dag, eða starfsmann allan daginn. Upplýsingar í síma 19600 - 297 alla virka daga frá kl. 8.00-16.00. Reykjavík 17.3.1986. Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd byggingadeildar borg- arverkfræðings óskar eftir tilboöum í aö fullgera lóö umhverfis Borgar- leikhúsiö í Reykjavík. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000 skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuð á sama stað fimmtudaginn 10. apríl n.k. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍXURBORGAR Frfkirkjuv«gi 3 — Sfmi 25800 Bændur athugið Óska eftir dráttarvél með ámoksturstækjum. Verð- hugmynd 30 til 80 þúsund. Upplýsingar í síma 98- 2945 eftir kl. 20. Þriðjudagur 18. mars 1986 iilllllliilllliiiiil- íþróttir . .......................................... ..............- ■ ................... ;,:j!iiii:: niniiii- ^iííí^ ....................................... Maradona heldur Napólí á floti. Hann skoraði úr víti um helgina. Evrópuknattspyrnan: Af íslendingum Arnór Guðjohnsen stóð sig vel um helgina er hann kom inná í leik Anderlecht og Waregem í belgísku 1. deildinni f knatt- spyrnu. Arnór kom inná fyrir Lozano og náði að skora niark. Það var þriðja mark Anderlect í leiknum sein endaði 3-1. Arnór átti færi til að bæta við marki en það tókst ekki. Ragnar Margeirsson varð að fara af velli í 0-0 leik Waterschei og Searing. Það voru búnar um 10 mínútur af síðar hálfleik þegar hann varð fyrir smávægilegum meiðslum. Leikurinn var þóf- kenndur og slakur. Sigurður Grétarsson og Ómar Torfason'léku báðir með Luzern í jafnteflisleiknum gegn Grass- hoppers en tókst ekki að skora frekar en öðrum leikmönnum á vellinum. Guðmundur Þor- björnsson varð að bíta í það súra epli að tapa lcik enn einu sinni með Badcn. Pétur Pétursson var heldur ekki á skotskónum er Hercules tapaði fyrir Sporting í spænsku knattspyrnunni 0-1. Hercules er nú komið í alvarlega fallhættu i deildinni. Roma lagði Juve - og nú munar aðeins þremur stigum á liðunum - PSG tapaði líka og Nantes vinnur á - Anderlecht lætur forystuna ekki af hendi - Hercules lá - Real næsta víst með meistaratitilinn. Roma tókst að minnka muninn á milli sín og Juventus í ítölsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. Roma vann þó Juve 3-0 í Róm og nú munar aðeins þremur stigum á liðun- um. Það voru 64 þúsund áhorfcndur á Ólympíuleikvanginum í Róm er liðin áttust við og áttu heimamenn ekki í vandræðum með efsta iiðið sem var án framherjanna Serena og Briaschi. Markahæsti leikmaður 1. deildarinnar, Roberto Pruzzo hjá Roma var með á nótunum í þessum leik eins og svo mörgum öðrum. Hann skoraði annað mark Roma eft- ir að Graziani hafði náði forystunni með 400asta marki ítölsku deildar- innar í vetur. Mark Pruzzo var hans 16. í deildinni. Þrátt fyrir að hafa yfir 2-0 og að- eins tíu mínútur væru eftir þá var spilað af fullum krafti og Pruzzo gerði þann óþarfa að brjóta illa á Laudrup og var í staðinn rekinn af velli. Þetta hafði engin áhrif á Roma sem bætti við þriðja markinu er Brasilíumaðurinn Cerezo skoraði með góðu skoti úr teignum. Sann- gjarn sigur. Diego Armando Maradona held- ur áfram að skora. Hann gerði eina mark Napólí úr víti í leiknum gegn Inter og Napólí er nú í þriðja sæti deildarinnar. Þá var enski landsliðs- maðurinn Mark Hateley á skotskón- um því hann skoraði bæði mörk AC Mílanó í sigrinum á Udinese. Udin- ese, Bari og Lecce eru neðstu liðin en Pisa er þar rétt fyrir ofan eftir jafntefli gegn Como. Brassinn Dirc- eu skoraði fyrir Coma en unglinga- landsliðsmaðurinn ítalski Paolo Baldiere jafnaði fyrir Pisa. Úrslit leikja: Atalanta-Bari 0-0 Como-Pisa 1-1 Fiorentina-Verona . 0-0 Lecce-Sampdoria . . 0-1 Milan-Udinese . .. . 2-0 Napoli-Inter 1-0 Roma-Juventus .. . 3-0 Torino-Avellino . .. 1-0 Staða efstu liða: Juventus 25 15 8 2 37 13 38 Roma 25 16 3 6 43 21 35 Napoli 25 10 11 4 28 18 31 Milan 25 10 10 5 24 18 30 Torino 25 9 9 7 25 20 27 Inter 25 10 7 8 32 28 27 Fiorentina 25 6 13 6 22 19 25 Verona 25 8 9 8 25 31 25 FRAKKLAND: Það kom að því að Paris Saint Germain tapaði leik. Valsbanar Nantes komu þeim niður á jörðina með 2-0 sigri og um leið skáru þeir forystu PSG í deildinni niður í sex stig og eiga þar að auki leik til góða. Vinnist hann þá er munurinn aðeins fjögur stig og allt getur gerst. Það voru 25 þúsund áhorfendur á leikvelli þeirra Nantes-manna og fögnuðu allir mjög er markamaskína þeirra Vahid Halilhodzic hristi af sér tvo varnarmenn og skoraði með fall- egu skoti framhjá Joel Bats franska landsliðsmarkverðinum í marki PSG. Nantes hélt uppi látlausri sókn í fyrri hálfleik en tókst ekki að bæta við marki. í síðari hálfleik reyndu leikmenn PSG að rétta sinn hlut og voru á góðri leið með það er Burruc- haga skoraði annað mark Nantes og leikurinn var úti. Bordeaux fékk kjörið tækifæri til að komast upp á milli toppliðanna en mátti sætta sig við 0-1 ósigur fyrir Lille og situr í þriðja sætinu. Toulon-Lens .... 0-0 Strasbourg-Nice . 2-0 Monaco-Le Havre 2-2 Bastia-Marseilles 0-3 Lille-Bordeaux . . 1-0 Nantes-PSG 2-0 Metz-Auxerre . . . 2-0 Toulouse-Laval . . 2-0 Rennes-Nancy . . 1-0 Sochaux-Brest. . . Stada efstu liöa: 4-2 ParisS-G 32 20 9 3 59 27 49 Nantes . 31 17 9 5 44 22 43 Bordeaux . 32 16 10 6 45 35 42 Lens . 32 13 10 9 47 39 36 Auxerre . 32 14 8 10 37 31 36 Toulouse . 33 15 6 12 52 40 36 Monaco . 33 9 16 7 45 35 35 SPÁNN: Eftir leiki helgarinnar er það orðið nokkuð víst að Real Madrid fagnar sigri í spænsku deildinni. Liðið lék sér að Cadiz á útivelli og sigraði 3-1 á sannfærandi hátt á meðan að Barce- lónumenn urðu að sætta sig við jafn- tefli gegn Celta og dragast þar með níu stigum afturúr Real. Hercules, lið Péturs Péturssonar, varð að sætta sig við enn eitt tapið. Nú á heimavelli gegn einu af topplið- unum, Sporting. Hercules er nú í bullandi fallhættu en öll nótt þó ekki úti enn. Úrslit leikja: Las Palmas-Valladolid.............. 1-0 Cadiz-Real Madrid.................. 1-3 Barcelona-Celta.................... 1-1 Hercules-Sporting.................. 0-1 Sevilla-Sociedad................... 3-1 At Bilbao-Real Betis............... 2-1 Osasuna-Valencia................... 2-0 At Madrid-Espanol.................. 2-0 Real Zaragoza-Racing............... 1-0 Stada efstu liða: Real Madrid ....... 29 23 4 2 68 21 50 Barcelona ......... 29 17 7 5 51 26 41 AtMadrid........... 29 15 7 7 49 32 37 AtBilbao........... 29 15 7 7 39 26 37 Zaragoza........... 29 13 9 7 42 31 35 Sporting .......... 29 11 13 5 30 24 35 Sevilla............ 29 12 9 8 36 25 33 HOLLAND: Það var sannkallaður stórliða- slagur í hollensku 1. deildinni. Efsta liðið, PSV og liðið í öðru sæti, Ajax, áttust við á heimavelli þess fyrr- nefnda. Eins og stórliðaleikur á að vera þá var bæði spenna á leikvellin- um og meðal áhorfenda sem voru um 27 þúsund og troðfylltu völlinn. PSV náði forystu með marki frá Valke en leikmaður ársins og aðal- markaskorari Evrópu, Marco Van Basten sá um að jafna fyrir Ajax er aðeins átta mínútur voru til leiks- loka. PSV heldur því enn forystu í deildinni með 38 stig eftir 21 leik en Ajax er í öðru sæti með 35 stig eftir 22 leiki. Feyenoord vann Deventer og er í þriðja sæti með 32 stig eftir 21 leik. Nokkuð langt er í næsta lið. SVISS: Um síðustu helgi léku þeir Ómar og Sigurður hjá Luzern gegn efsta liðinu Xamax en um þessa helgi var leikið gegn næst efsta liðinu Grass- hoppers. Jafntefli varð 0-0 á heima- velli Luzern og þar sem Sion vann Guðmund Þorbjörnsson og félaga hjá Baden þá hrapar Luzern í fjórða sæti deildarinnar. Xamax er efst með 26 stig eftir 17 leiki en Grasshoppers er með 23 stig eftir jafnmarga leiki. Sion hefur leikið leik meira og er með 23 stig en Luzern er með 22 stig eftir 17 leiki. BELGÍA: Anderlecht lætur ekki forystu sína af hendi í Belgíu og um helgina sigr- aði liðið Waregem 3-1 á heimavelli. Anderlecht er með 45 stig eftir 29 leiki en Club Brugge er með 43 stig eftir sigurinn 5-0 á Lokaren um helg- ina. Þessi tvö lið eru langt á undan öðrum í Belgíu. PORTÚGAL: Porto tapaði stigi um helgina er Iiðið gerði jafntefli gegn Boavista á heimavelli 1-1. Á meðan vann Ben- fica léttan sigur á Chaves 4-0 og þar skoraði Rui Aguas þrennu og Dan- inn Manniche bætti því fjórða við. Sporting varð líka fyrir áfalli eins og Porto því liðið náði aðeins marka- lausu jafntefli gegn einu af botnlið- unum Maritimo. Benfica er nú með 41 stig eftir 24 leiki en Porto er með 40 stig eftir 25 leiki og Sporting er með 36 eftir 25 leiki.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.