Tíminn - 18.03.1986, Síða 19
Tíminn 19
Þriðjudagur 18. mars 1986
lllllUllllllUlll ÚTVARP/SJÓNVARP
Skemmtanabankinn
Þar sem allt er á huldu um
dagskrá og útsendingar Ríkisút-
varpsins í dag og ekki cr vitað hvort
hún stenst eins og í auglýstri
dagskrá er varlegt að fara að kynna
dagskrárliði fyrirfram, sem ef til
vill verður ekki út- eða sjónvarpað.
Pess í stað gefinn gaumur að örfá-
um dagskrárliðum helgarinnar.
Dægurlagakeppnin hafði sinn
gang og var til lykta leidd. Þjóðin
hefur beðið í ofboðslegum spenn-
ingi eftir úrslitunum. Kynningarn-
ar fóru fram í síðustu viku og biðu
allir spenntir eftir að sjá í hvaða
múnderingum söngvararnir kæmu
fram. Þeir voru allir sallafínir að
vanda.
í lokakeppninni voru allir Iíka
svaka fínir, tónlistarmenn, dómar-
ar, áhorfendur og lagasmiðir.
Norsku stelpurnar voru líka flott
og svo kunna þær að syngja, eru
þrælmúsikalskar.
Það var úr óskaplega vöndu að
ráða fyrir dómarana, eins og fram
kom aftur og aftur, enda keppnis-
lögin öll aflrragðsgóð. En besta lag-
ið sigraði eins og allir vita og al-
heimsathyglin mun enn einu sinni
beinast að Islandi þegar söngva-
keppnin fer fram í Bergen í vor.
Útför Olof Palme var í sjónvarp-
inu mikinn hluta laugardags.
Glöggur maður, sem fylgdist með
allan tímann, telur að nú séu
Norðurlandabúar búnir að fá nýjan
Ólaf helga.
Jarðarför forsætisráðherrans
minnti meiráflokkshátíðen venju-
lega jarðarför. Hið eina sent minnti
á að Svíar eru kristin þjóð, er að
vígðir menn fóru með ritningarorð
og bæn við gröfina. Þar voru engir
hljóðnemar nærri.
Gömul upptaka með Savanna-
tríóinu var í sjónvarpinu á sunnu-
dagskvöld. Strákarnir voru hressir
í þann tíð og sungu mörg lög og var
auðvelt að greina á milli þeirra.
Þeir voru ekki einasta lagvissir
heldur kunnu þeir einnig að koma
texta til skila. Það var öldungis
óþarfi að hafa prentaðan texta
með.
Það er meira en sagt verður um
eftirlætisgoð sjónvarpsins á þessum
nýjustu og bestu tíntum. Prentaður
texti verður að fylgja dægurlaga-
söngvurum og Gísla á Uppsölum,
svo að þeir sem læsir eru fái numið
hvað er verið að flytja.
Morgunútvarpið á mánudag var
óvenju áheyrilegt. Þökk sé upp-
sögnum.
Þriðjudagur
18. mars
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Beta,
heimsmeistarinn“ eftir Vigfús
Björnsson. Ragnheiöur Steindórsdóttir
les (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar,
þulurvelurog kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áöur sem Örn Ólafsson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.40 „Ég man þá tíð“ Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liönum árum.
11.10 Úr söguskjóðunni - Viðhorf til
kvenna á 18. og 19. öld. Umsjón: Sigrið-
ur Jóhannsdóttir. Lesarar: Árni Snævarr
og Sigrún Valgeirsdóttir.
11.40 Morguntónleikar. Þjóðleg tónlist frá
ýmsum löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Heilsuvernd
Umsjón: Jónína Benediktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Á ferð um ísrael
vorið 1985“ Bryndís Víglundsdóttir segir
frá (2).
14.30 Miðdegistónleikar. a. Svita á a-moll
op. 10 fyrir fiölu og hljómsveit eftir Christi-
an Sinding. Arve Tellefsen leikur með Fil-
harmóníusveitinni i Osló; Okko Kamu
stjórnar. b. Pianókonsert i a-moll op. 16
eftir Edvard Grieg. Géza Anda leikur með
Fílharmóníusveit Berlínar; Rafael Kube-
lik stjórnar.
15.15 Bariðaðdyrum. EinarGeorg Einars-
son sér um þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Daqskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér - Edvard Fred-
riksen. (Frá Akureyri).
17.00 Barnaútvarpið. Stjórnandi: Kristin
Helgadóttir.
17.40 Ur atvinnulífinu- Iðnaður. Umsjón:
Sverrir Albertsson og Vilborg Harðardótt-
ir.
18.00 Neytendamál. Umsjón: Sturla Sigur-
jónsson.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson
flytur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb. Guðmundur Heiðar
Frímannsson talar. (Frá Akureyri)
20.00 Vissirðu það? - Þáttur í léttum dúr
fyrir börn á öllum aldri. Stjórnandi: Guð-
björg Þórisdóttir. Lesari: Árni Blandon.
(Fyrst útvarpaö 1980)
20.30 Að tafli. Jón Þ. Þór flytur þáttinn.
20.55 „Gneistar til grips" Knútur R. Magn-
ússon les úr nýrri Ijóðabók eftir Kristin
Reyr.
21.05 íslensk tónlist. a. Prelúdía, sálmalag
og fúga eftir Jón Þórarinsson. Ragnar
Björnsson leikur á orgel. b. „Canto" eftir
Hjálmar H. Ragnarsson. Háskólakórinn
syngur; höfundur stjórnar.
21.30 Utvarpssagan: „í fjallskugganum"
eftir Guðmund Daníelsson. Höfundur
les (10).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veöurfregnír.
22.20 Lestur Passiusálma (44).
22.30 Frá tónleikum Bach-akademíunnar
í Stuttgart sl. sumar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
IHT
10.00 Kátir krakkar. Dagskrá fyrir yngstu
hlustendurna í umsjá Guðlaugar Maríu
Bjarnadóttur og Margrétar Úlafsdóttur.
10.30 Morgunþáttur. Stjórnandi: Páll Þor-
steinsson.
12.00 Hlé.
14.00 Blöndun á staðnum. Stjórnandi: Sig
urður Þór Salvarsson.
16.00 Sögur af sviðinu. Þorsteinn G. Gunn-
arsson kynnir tónlist úr söngleikjum og
kvikmyndum.
17.00 Hringiðan. Þáttur í umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár mínútur kl.
11.00,15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz.
Þriðjudagur
18. mars
19.00 Aftanstund Endursýndur þáttur frá
10. mars.
19.25 Fjársjóðsleitin. Nýrflokkur- Fyrsti
þáttur. (The Story of the Treasure Seek-
ers) Breskur myndaflokkur í sex þáttum,
gerður eftir sigildri barna- og unglingabók
eftir Edith Nesbit. Sagan gerist fyrir alda-
mótin siðustu Sex systkini reyna með
ýmsu móti að afla peninga til að hjálpa
föður sínum sem er i fjárkröggum. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarpið (Television) 11. Hlátur-
inn lengir lífið. Breskur heimildamynda-
flokkur í þrettán þáttum um sögu sjón-
varpsins, áhrif þess og umsvif um víða
veröld og einstaka efnisflokka. I þættin-
um er rakin saga gamanþátta og gaman-
myndaflokka í sjónvarpi, allt frá Lucy Ball
til Löðurs. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
Þulur Guðmundur Ingi Kristjánsson.
21.30 I vargaklóm (Bird of Prey II). Annar
þáttur. Breskur sakamálamyndaflokkur í
fjórum þáttum. Aðalhlutverk Richard
Griffiths. Tölvufræöingurinn Henry Jay á
enn í vök aö verjast vegna baráttu sinnar
við alþjóðlegan glæpgþring sem hann
fékk veður af í tölvugögnum sínum. Þýð-
andi Bogi Arnar Finnbogason.
22.20 Umræðuþáttur Umsjónarmaður
Helgi H. Jónsson.
23.15 Fréttir i dagskrárlok.
GÁMAFISKUR
England - Frakkland
Tökum á móti öllum tegundum af ferskum fiski til útflutn-
ings í gámum.
Kaupum á föstu verði eða ísum fyrir þá sem það vilja.
Vikulegar sendingar beint til Hull.
Upplýsingar í símum 52699, 51699 og 42078 eftir kl. 19.00
á kvöldin.
HREIFI HF.
Óseyrarbraut 9-11, Hafnarfirði
Tilkynning frá
jarðadeild
landbúnaðarráðuneytisins
Athygli er vakin á því, að afgjöld af jörðum og lóð-
um í ríkiseign, með gjalddaga 31. desember 1985,
falla í eindaga 31. mars nk. Hafi skil ekki verið gerð
fyrir 1. apríl nk., reiknast á þau hæstu lögleyfðu
dráttarvextir.
Landbúnaðarráðuneytið, jarðadeild
14. mars 1986
Innflytjendur,
heildsalar
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, fer þess á
leit við alla aðila, er annast innflutning á insúlín-
sprautum, að þeir hafi samband við lyfjadeild ráðu-
neytisins sem fyrst og eigi síðar en 21. mars n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
13. mars 1986.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrirfebrúarmánuð 1986,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. apríl.
Fjármálaráðuneytið, 17. mars 1986.
Laus staða
Staöa fræðslustjóra í Vestfjarðaumdæmi er laus til umsóknar. Laun
samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík fyrir
15. apríl n.k.
Staðan veitistfrá 1. júní 1986
Menntamálaráðuneytið, 14. mars 1986