Tíminn - 18.03.1986, Page 20
Sykurlausar
ATLI HILMARSSON handknatt-
leiksmaöur varö fyrir því óláni aö þaö slitnaði í
honum hásin í leik um helgina. Það er víst aö
hann verðiir frá í þaö minnsta þrjá mánuði.
Þetta kemur sér illa fyrir Atla svo og íslenska
landsliðið í handknattleik sem sennilega mun
spila landsleiki strax í lok apríl. Liö Atla,
Gunzburg, sigraði þó í leiknum.
Þriðjudagur 18. mars 1986
y
Fimm efstu
í Njarðvík
Um helgina fór fram sam-
eiginlegt prófkjör Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks í Njarðvík. •
Hjá framsóknarmönnum
kusu 101. 5 atkvæði voru
ógild.
Niðurstaða prófkjörsins
varð sú að Steindór Sigurðs-
son fékk flest atkvæði í fyrsta
sæti, Hrefna Kristjánsdóltir
og Ólafur Þórðarson hlutu
jöfn atkvæði í annað sæti.
Gunnlaugur Óskarsson var
kjörinn í fjórða sæti og Gunn-
ar Ö. Guðmundsson í fimmta
sæti.
Miðstjórnarfund-
ur Framsóknar:
Hafnar breyt-
ingum á LÍN
Á fundi miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins komu málefni
Lánasjóðs íslenskra náms-
manna til umræðu. Lögðu
menn áherslu á að tryggja bæri
jafnrctti til náms og að hafna
bæri þeim hugmyndum sem
komið hafa fram hjá sjálfstæðis-
mönnum að setja ný lög um
L.Í.N. í ályktun fundarinsscgir
m.a.: „Tryggja verður jafnrctti
til náms og beita félágslegum
ráðum íþvískynieinsogFram-
sóknarflokkurinn hcfur jafnan
stuðlað að og haft forgöngu
um. Miðstjórnin skorar á al-
þingismenn Framsóknar-
flokksins að standa vörð um
það jafnræði til nánts sem nú-
verandi lög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna tryggja.
Framsóknarflokkurinn:
Ný f ramkvæmdastjórn kjörin
Fjórir úr röðum yngri manna
Á miðstjórnarfundi Fram-
sóknarflokksins var kjörin ný
framkvæmdastjórn flokksins.
Samkvæmt lögum flokksins
eiga þar sæti 9 menn og þrt'r til
vara. Þá skipa framkvæmda-
stjórn auk þess formaður
flokksins, varaformaður, rit-
ari, gjaldkeri og formaður
Sambands ungra framsókn-
armanna.
Framkvæmdastjórn fer með
yfirstjórn flokksskrifstofunnar
og fer með umboð miðstjórnar
milli miðstjórnarfunda.
Erlendur Einarsson, for-
stjóri, sem átt hefursæti í fram-
kvæmdastjórn frá 1956gafekki
kost á sér til endurkjörs. Það
sama gcröu einnig Jón Sveins-
son, Hákon Sigurgrímsson og
Valgerður Sverrisdóttir.
Kosningu í framkvæmda-
stjórn hlutu:
Níels Árni Lund, 77 at-
kvæði, Valur Arnþórsson. 74
atkvæði, Dagbjört Hösk-
uldsdóttir, 64 atkvæði, Sigrún
Magnúsdóttir, 60 atkvæði,
Drífa Sigfúsdóttir, 54 atkvæði.
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir,
49 atkvæði, Hákon Hákonar-
son, 48 atkvæði, Páll Péturs-
son, 46 atkvæði og Jónas Jóns-
son 40 atkvæði. Varamenn
voru kjörnir Snorri Þorvalds-
son, Gerður Steinþórsdóttir og
Jón Kr. Kristinsson.
I framkvæmdastjórn eiga nú
sæti 4 úr röðum yngri manna.
„Það væri alveg fráleitt að loka Miklagarði sem verslun. Hins
vegar er það okkar skoðun að vöruverðiö hér sé verra en annars
staðar, t.d. mun dýrara að ntörgu leyti en í Hagkaup. Ef við
hefðum ekki lagt leið okkar í Miklagarð nú þá færum við sjá.lf-
sagt þangað.“
María Haraldsdóttir:
„Það snertir mig ákaflega
lítið. Skiptir ekki miklu
máli.Ég hcf ekki veitt því at-
hygli að vöruverð hér sé öðru-
vísi en í öörunt stórmörkuð-
um. Ef Mikligarður væri ekki
til staðar færi ég líklega í Víði
eða Hagkaup.“
SigurbjörgSigurjóns-
dóttir:
„Ég cr á móti því að rnissa
þessa verslun. Það er mjög
skemmtilegt að versla héi í
Miklagarði og hér eru mörg
tilboð sent hægt er að nýta
sér.
Brynja Ólafsdóttir og Frímann Frí mannsson:
Júlíus Friðriksson:
„Það er fráleitt af íhaldinu
að ætla að loka Miklagarði.
Hins vegar gct ég sagt að ég
kem hingað fyrst og fremst
vegna þess að það er stutt að
fara og grænmetið hér er
mjög gott. Vöruverðið er nú
ósköp svipað og í Hagkaup og
þangað færi ég líklega ef
Mikligarður væri ekki á sín-
um stað."
Björgvin Guðmunds-
son:
„Ég bý ekki í borginni
þannig að það er ckki hægt að
segja að ég sé fastur við-
skiptavinur hér. en hins vegar
yrði ég heldur óhress með það
ef Miklagarði yrði lokað.
Vöruverö hér er óneitanlega
betra en það sem tíðkast í
dreifbýlinu."
Kristjón Kolbeins:
„Ég vcrsla nú víðar en hér.
Þetta er svo stórt svæði. Ég
kem helst í Miklagarð þcgar
lítið er að gera og þá gct ég
ekki séð að t.d. aðkeyrslan sé
óheppileg. Vöruverðið hérer
í lagi. Hins vegar get ég tekið
fram að ég versla yfirleitt ann-
ars staðár vegna sérstakra
tengsla í þeirri verslun."
Verður Miklagarði lokað?
Framtíð Miklagarðs hefur mikið verið til umræðu að undanförnu, þar sem upphaflegt starfsleyfi
til 5 ára er nú útrunnið. Hafnarstjórn Reykjavíkur hefur haft málið til umfjöllunar og skilað því
áliti að ekki eigi að veita stórmarkaðnum leyfi til frambúðar. Borgarstjórnarincirihlutinn hefur
síðan tekið það álit upp á þann hátt að starfsleyfi verði veitt til bráðabirgða í 2 ár án þess að Ijóst sé
hvað við taki. Af þessu tilefni tók blaðamaður Tímans nokkra viðskiptavini Miklagarðs tali og
spurði þá álits á hugsanlegri lokun verslunarinnar.
Finnur Ingólfsson formaður
S.U.F. og nýkjörinn gjald-
keri Framsóknarflokksins.
Framsóknar-
flokkurinn:
Finnur
Ingólfsson
kjörinn
gjaldkeri
Á miðstjórnarfundi Fram-
sóknarflokksins sem haldinn
var um helgina var ný stjórn
flokksins kjörin.
Steingrímur Hermannsson
var kjörinn formaður með 86
atkvæðum, Halldór Ásgríms-
son varaformaður með 85 at-
kvæðum, Guðmundur
Bjarnason ritari með 91 at-
kvæði, Finnur Ingólfsson
gjaldkeri mcð 82 atkvæðum,
Ragnheiður Sveinbjörnsdótt-
ir vararitari með 80 atkvæð-
um og Sigrún Magnúsdóttir
varagjaldkeri með 78 at-
kvæðum. Fyrir fundinn ítrek-
aði GuðmundurG. Þórarins-
son sem verið hefur gjaldkeri
flokksins síðan 1979 þá
ákvörðun sína, sem hann lýsti
fyrir ári. að hann gæfi ekki
kost á sér lengur í þá stöðu.
Guðmundi voru þökkuð mik-
il og ágæt störf með lófataki
fundarmanna.
Finnur Ingólfsson er for-
maður Sambands ungra fram-
sóknarmanna og er þetta í
fyrsta skipti sem formaður
þess er kjörinn í aðalstjórn
flokksins. Þá má einnig geta
þess að aldrei hefur nýkjörinn
stjórnarmaður hlotið svo
góða kosningu sem Finnur
hlaut. I ávarpi sem Finnur
flutti þakkaði hann þetta
mikla traust sem honum væri
sýnt með þessari kosningu og
3Ó ekki síður það traust sem
Sambandi ungra framsókn-
armanna væri sýnt. Hann
taldi það vera vegna mikils
starfs þeirra að undanförnu
og að þessi kosning sýndi bet-
ur en nokkuð annað að Fram-
sóknarflokkurinn gæfi ungu
fólki tækifæri á að koma sín-
um skoðunum á framfæri og
væri tilbúinn að veita þeim
brautargengi.
Að öðru leyti skipa stjórn
hinir sömu og áður.