Tíminn - 26.03.1986, Page 9
O h O'i.'.n
./ ‘ ;r/
Miðvikudagur 26. mars 1986
Edda Heiðrún Backman og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum í myndinni „Eins og skepnan deyr“.
Eins og skepnan deyr - Stjörnubíó
...AD NEYTA
ÞVÍ MEIRI ORKU
Eins og skepnan deyr
Framleiðandi: Jón Ólafsson
Leikstjóri: Hilmar Oddsson
Handrit: Hilmar Oddsson
Kvikmyndun: Sigurður Sverrir Pálsson
Hljóð: Gunnar Smárl Helgason.
Tónlist: Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson,
Hilmar Oddsson, Wolfgang Amadeus Moz-
art
Klipplng: Hllmar Oddsson, Kristín Páls-
dóttir, Valdís Óskarsdóttlr, Ólafur Rögn-
valdsson
Leikendur: Þröstur Leó Gunnarsson, Edda
Heiðrún Backman, Jóhann Sigurðsson.
íslenskir kvikmyndagerðarmenn
hafa lent í hlutverki nútíma úti-
legumanna, gangandi um í kuln-
uðu vori með aleiguna á bakinu á
leið til byggða, - þar sem þeirra
bíða fáskiptar móttökur. Þar eru
fyrir margir forgöngumenn þeirra,
kvaldir af samviskubiti yfir að
hafa veðsett húsin ofan af fjöl-
skyldu þeirra, nagandi fingurna og
kalnir á sálinni,
En enn finnast garpar haldnir
heilagri geggjun er freistast til að
láta gamla drauma rætast, ana af
stað og vonast til að sleppa nokk-
urn veginn ósárir úr hildarleiknum.
Eitthvað á þessa leið er sú mynd
sem gefin er upp í fjölmiðlum af
þessari stétt sem gerir tilkall til
þess að nefnast listamenn og kjósa
að vinna við kvikmyndina, - þann
miðil sem er hvað markaðastur af
ódýrri afþreyingarframleiðslu. Og
fjölmiðlarnir eru elskari að hin-
um yngri og jafnvel hinum óbornu,
því þrjóska eldri mannanna minnir
um of á Bjart, sem er persóna er
fer illa í fjölmiðlum. Þeir kæra sig
lítið um menn sem eru slegnir
niður, - og er sama um hvort þeir
standi upp á eftir eða ekki.
Hilmar Oddsson hefur lent í því
að vera elskaður af fjölmiðlum.
Maðurinn sem kom út úr tóminu
og stefndi beint austur á firði þar
sem hann ætlaði sér að gera kvik-
mynd þrátt fyrir að aðrir lægju í
valnum, sárir eftir sama leik. Með
reglulegu millibili hafa okkur verið
færðar fréttir af kvikmynduninni,
þrengslunum í húsinu í Loðmund-
arfirðinum, fengið að lesa viðtöl
við leikara og leikstjóra og heyrt
álit þeirra á myndinni.
Svo er okkur sýnd myndin og við
komumst að því að forsaga kvik-
myndar getur verið miklu
skemmtilegri en kvikmyndin sjálf.
Þetta er þekkt dæmi úr kvikmynda-
sögunni og fleiri sögum og ekkert
við því að gera því listin er nátengd
lífinu og jafnvel fjölmiðlunum.
En þetta snertir ekki þá sem
stóðu að myndinni, nema fyrir það
að umtal getur aldrei skaðað góðar
kvikmyndir.
Eins og skepnan deyr fjallar um
tvær persónur, Helga og Láru, sem
hafa lítinn stuðning af öðrum þátt-
um en Loðmundarfirðinum
sjálfum. Aðrar persónur eru lítil-
vægar; Baldur, bróðir Helga, færir
þau í og úr firðinum, hinn dularfulli
og ósýnilegi nábúi til að skapa
spennu þegar samband aðalpers-
ónanna dugir ekki til, varðskips-
menn þverskallast við tilmælum
Helga og skapa alvarleika í lokin.
Helgi mótar söguþráð myndar-
innar og persóna Láru mótast af
viðbrögðum við gerðum hans.
Hann er rót- og ábyrgðarlaust
ungmenni sem hræðist manndóm-
inn, dreymir um að verða rithöf-
undur, en burðast með tilgangs-
leysistilfinningu.
Aumasti hégómi, segirprédikar-
inn, aumasti hégómi; allt er hégómi
og eftirsókn eftir vindi.
Þessum fræðum kynnist Helgi af
biblíu sem hann finnur í Loðmund-
arfirðinum og vinnur síðan skáld-
skap sinn úr. Því verða allir dagar
hans kvöl, og starf hans armæða;
jafnvel á næturnar fær hjarta hans
eigi hvíld. En einnig þetta er
hégómi, - eins og stendur í áður-
nefndum prédikara, sem gefur
myndinni nafn.
En öfugt við prédikarann sem
mælir fram hégómatal sitt af eld-
móði, springur Helgi í lokin og
öskrar „það skiptir ekkert máli“
dauðadrukkinn. Þar sver hann sig
í ætt við fyrirrennara sína í íslensk-
um bókmenntum, leikritum og
kvikmyndum, sem slæva uppgjör
með drykkju að hætti þorrablóta.
Lára er úr öðru efni en Helgi
Hún veit, - svo enn sé vitnað í
prédikarann, - að betri eru tveir en
einn, því að falli annar þeirra, þá
getur hinn reist félaga sinn á fætur.
Hún reynir því að líða Helga þrátt
fyrir alla hans skapvonsku og tikt-
úruskap, mun lengur en áhorfend-
um þykir eðlilegt.
Þessum tveim persónum er ætlað
að bera uppi myndina, spennan á
milli þeirra og inni í þeim á að
halda athygli áhorfandans.
Þetta þykir mér hafa mistekist.
Hvorugt hefur nóg til að hægt sé að
sökkva sér í þau og átökin á milli
þeirra eru of flöt og litlaus til að
skapa spennu. Áhorfendur kynn-
ast þeim lítið sem ekkert eftir því
sem líður á myndina og uppgjörið
í lokin hefur alltof veikan aðdrag-
anda til að geta talist trúverðugt.
Myndina skortir ris, hún sígur
áfram og missir af tækifærum til að
auðga persónurnar og söguþráð-
inn. Ég fékk það á tilfinninguna
þegar ég sat og horfði á myndina
að of fast hefði verið haldið við
handritið og myndin því orði jafn
stíf og raun er á.
Af frammistöðu einstakra að-
standenda ber fyrst að nefna Sigurð
Sverri Pálsson sem skilaði áferða-
fallegri mynd, sum skotin voru allt
að því ægifögur. Edda Heiðrún
Backman skilaði sínu hlutverki
með sóma og hefði verið skemmti-
legt ef hún hefði haft úr meiru að
moða. Þröstur Leó Gunnarsson
var mistækur í sínu hlutverki, stóð
sig betur í fyrri hluta myndarinnar
þegar minna mæddi á honum.
Jóhann Sigurðsson hafði þakklát
hlutverk þar sem hann var sá eini
sem áhorfendur höfðu trú á að gæti
gefið sér frí frá sambandi hjóna-
leysanna. Tónlist Hróðmars Inga
Sigurbjörnssonar var áheyrileg,
en stundum truflandi. Hljóðupp-
taka Gunnars Smára Helgasonar
var skýr.
Hilmar Oddsson hefði átt gæða
verk sitt meiri skáldskap, dýpt og
risi. Sagan hefði mátt að ósekju
vera risjóttari, fjölbreytilegri og
jafnvel pínulítið skemmtilegri. Því
eins og segir í margnefndum préd-
ikara - ef eggin er ekki brýnd, þá
verður maðurinn að neyta því
meiri orku.
Megi Guð forða aðstandendum
þessarar myndar að bíða fjárhags-
legt tjón af því að reyna að færa
okkur hinum kvikmynd að horfa á,
og megi hann gefa þeim möguleika
á að þroskast í list sinni.
Gunnar Smári Egilsson
llllllilllllllllllllllilllll KVIKMYNDIR lllllllllllllllllllllilllllllllllliilllllllllllllllllllllllllllllllllillll^
Tíminn 9
Nýr rektor við
Skálholtsskóla
Skólanefnd Skálholtsskóla hefur
einróma ráðið séra Sigurð Árna
Þórðarson sóknarprest að Staðarfelli
í Köldukinn sem rektor Skálholts-
skóla til tveggja ára.
Séra Sigurður Árni var vígður til
prestsþjónustu árið 1984. Hann hef-
ur verið virkur í æskulýðsstarfi hér
heima og erlendis og unnið margvís-
leg störf á vegum Unglingaathvarfs
Reykjavíkur og ýmissa sjúkrastofn-
ana. Kona hans er séra Hanna
María Pétursdóttir sóknarprestur að
Hálsi í Fnjóskadal og eiga þau eina
dóttur barna.
Séra Sigurður Ámi Þórðarson.
Guðbjöm Jónsson tckur við verðlaununum úr hendi Grétars Haraldssonar
markaðsstjóra Kreditkorts hf. en með á myndinni era Helgi Jóhannsson
framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýn og Fanný Clausen eiginkona
Guðbjöms og dóttir þeirra hjóna.
Happdrættisfarmiði
- hjá Kreditkorti og Samvinnuferðum
Nýjasta leiðin til að spila í happ-
drætti er að kaupa sér sumarleyfis-
ferð með Samvinnuferðum-Landsýn
og borga með Euro-korti. Þetta
gerðu þau hjónin Guðbjörn Jónsson
og Fanný Clausen, með góðum ár-
angri, því þau hrepptu vinning upp
á 20 þúsund krónur sem gengur upp
í Mallorca ferð sem þau ætla í í
sumar. Til þess að verða gjaldgengur
í þessa keppni hjá Samvinnuferðum
og Kreditkorti hf. þarf viðkom-
andi að hafa greitt staðfestingargjald
inn á einhverja af ferðum Samvinnu-
ferða með Eurocard korti. Þá eru
menn sjálfkrafa með í keppninni, en
til þess að verða gjaldgengur vinn-
ingshafi þurfa menn að hafa staðið í
skilum á kortinu. Vinningar eru
dregnir út mánaðarlega og er upp-
hæðin ávallt sú sama, kr. 20 þúsund.
-BG
Núverandi og fráfarandi formaður kvenréttindafélagsins. Lára V. Júlíusdótt-
ir og Esther Guðmundsdóttir.
NÝR FORMADUR í
KVENRÉTTINDAFÉL.
Kvenréttindafélag fslands hélt
aðalfund sinn mánudaginn 17. mars
s.l. Fráfarandi formaður, Esther
Guðmundsdóttir, flutti skýrslu
stjórnar fyrir síðastliðið ár, sem var
lokaár kvennaáratugar Sameinuðu
þjóðanna og var starfsemi félagsins
óvenjuleg á margan hátt þess vegna
og víða komið við.
Við stjórnarkjör baðst Esther
Guðmundsdóttir undan endurkjöri
sem formaður og var Lára V. Júlíus-
dóttir kosin formaður í hennar stað.
Stjórnin er að öðru leyti þannig
skipuð: Arndís Steinþórsdóttir vara-
formaður, Jónína Margrét Guðna-
dóttir, Erna Bryndís Halldórsdóttir.
Ásthildur Ketilsdóttir, Helga Sigur-
jónsdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir.
Valgerður Sigurðardóttir, Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, Kristín
Jónsdóttir, Dóra Guðmundsdóttir,
Edda Hermannsdóttir. Dóra Ey-
vindardóttir og Sólveig Ólafsdóttir.