Tíminn - 26.03.1986, Side 11
Miðvikudagur 26. mars 1986
Tíminn 11
llííllllllilllllllllllll ÍÞRÓTTIR ' ^ ■ ^
Fimm liða mót í blaki:
KFUM Osló mætt
Keppir við íslensk úrvalslið um páskana
Noregsmeistararnir 1982 KFUM
Osló taka þátt í 5 liða móti sem
Blaksamband Islands heldur í Haga-
skóla nú um páskana.
Sá kunni blakmaður Tómas
Jónsson, sem leikið hefur 28 lands-
HM knattspyrna
„Þcir sem ferðast með Samvinnu-
ferðum-Landsýn til sumarhúsanna í
Hollandi fá nú nokkurn aukabónus
í ferðum sínum. Þeirgeta fylgst með
HM í knattspyrnu í beinni útsend-
ingu í allt að 66 klukkustundir eða
um 44 leiki,“ sagði Kjartan Pálsson
hjá Samvinnuferðum-Landsýn er
Tíminn hafði samband við hann í
gær.
„Við höfum náð góðum samning-
um við Hollendinga sem lækka verð-
ið á húsunum í Kempurvennen og
Meedal um 7-11 þúsund sem þó
kemur alls ekki niður á þjónust-
unni,“ sagði Kjartan ennfremur.
Þetta eru góðar fréttir fyrir knatt-
spymuunnendur og verður ekki
dónalegt að geta séð ieikina frá HM
í beinni útsendingu jafnframt því að
njóta sumarleyfisins.
íslandsmeistaramótið í karate:
Kristín vann Jónínu
leiki fyrir ísland, er þjálfari KFUM
Osló.
Björgólfur Jóhannsson landsliðs-
þjálfari mun tefla fram tveim liðum
úr landsliðshópi sínum og þjálfar-
arnir Gunnar Árnason og Hannes
Karlsson hafa í sameiningu valið
leikmenn í tvö lið og munu stjórr.a
þeim á mótinu.
Þetta mót er liður í undirbúningi
karlalandsliðsins fyrir Norðurlanda-
meistaramótið 1986, sem haldið
verður í fyrsta skipti á íslandi,
dagana, 9. og 10. maí í Digranesi í
Kópavogi. Þetta verður mikil próf-
raun fyrir landsliðshópinn.
Það verður örugglega hart barist
og ekkert gefið eftir á þessu móti:
Þetta er því kjörið tækifæri fyrir alla,
sem hafa gaman af blaki eða vilja
kynnast því, til að koma í Hagaskóla
og sjá þar blak eins og það gerist
best hér á landi og þaðan af betra,
þégar KFUM Osló leikur.
Kristjana Sigurðardóttir úr Gerplu horfir hér upp til Elínar Evu úr Þórshamri
með grimmdarsvip sem ekki dugði þó til sigurs. Á litlu myndinni er Sigurjón
GunnsteÍnSSOn KFR í kata. Timam.vndir Róbert
Heppnir kokkar
Það voru átta starfsmenn Veit-
ingahallarinnar sem áttu einu
röðina sem fram kom með 12
leikjum réttum hjá Getraunum
um síðustu helgi. Fengu þeir í
sinn hlut tæpa eina milljón. Það
komu fram 13 seðlar með 11
leikjum réttum og fyrir hvern
þeirra fengust um 28 þúsund
krónur.
- í uppgjöri bestu karatestúlknanna - Atli sigraði Ævar í harðri glímu - Hvolsvellingar
fá verðlaun - Mótið í harðara lagi og nokkuð um meiðsl
Molar...
■ Forráðamenn allra 22 liðanna
í 1. deild ensku knattspyrnunnar
samþykktu í fyrradag að stofna
nýja deild ef ekki yrði gengið að
kröfum þeirra um 10-liða breyt-
ingu á skipulagi ensku deildar-
keppninnar. Meðal þessara til-
lagna er að stóru klúbbarnir fái
stærri skerf af sjónvarpssamning-
um og styrktarpeningum. Fulltrú-
ar deildarliðanna hittast aftur
þann 21. apríl og þá kemur í Ijós
hvað gerist.
■ Svisslendingar unnu liða-
keppni heimsbikarkeppninnar á
skíðum en Austurríkismenn urðu
í öðru sæti. Mestu munaði um að
svissnesku konurnar unnu stóran
sigur í liðakeppni kvenna en karl-
amir urðu í öðra sæti á eftir
Austurríkismönnum.
■ Martina Navartilova undir-
strikaði stöðu sína í tennis kvenna
sem sú besta með því að sigra á
kvennameistaramótinu í tennis í
þriðja sinn i röð. Mótið fór fram
í New York ogyann Navratilova
Hönnu Mandlikovu í úrslitum 3-1.
■ Breska stjómin og knatt-
spymusambandið hafa látið gera
lista yfir þá menn sem valdið hafa
ólátum á leikjum í Englandi til að
reyna að koma í veg fyrir að
þessir sömu menn fari til Mexíkó
og geri skandal. Lista þessum
hefur verið komið til ferðaskrif-
stofa og annarra aðila sem hafa
með ferðir að gera og vonast
knattspyrnuyfirvöld þannig til að
sleppa við ólátaseggina.
■ Marc Girardelli varð sigur-
vegari í karlaflokki í heimsbikar-
keppninni á skíðum. Þetta er
annað árið í röð sem hann vinnur
samanlagða stigakeppni heims-
bikarkeppninnar.
íslandsmótið í karate var haldið
um helgina í Laugardalshöll. Að
sögn Karls Gauta Hjaltasonar for-
manns Karatesambands íslands þá
var mótið nokkuð vel heppnað en
helsti gallinn var að ekki fékkst
erlendur dómari til landsins. Dóm-
gæslan var þó ekki slök og í heild
betri en í fyrra en þó er hún enn sem
komið er höfuðverkur karatemanna
á íslandi. Gróska er í karateiðkun á
landinu og nú voru til dæmis kepp-
endur frá Hvolsvelli með á mótinu.
Keppnin var hörð og því miður
nokkuð um meiðsl hjá keppendum.
Rennum þá yfir úrslitin í einstök-
um flokkum.
Kata kvenna:
Jónína Olesen KFR, sigurvegar-
inn í þessri grein í fyrra sigraði nú
aftur með Kata Saifa. Þær Kristín
Einarsdóttir og Jónína voru í sér-
flokki í þessari grein.
Kata unglinga:
Haildór Narfi Stefánsson Þórs-
hamri, sýndi Kata Niju Shi-ho og
sigraði hér í annað skipti á íslands-
meistaramóti. Á hæla hans kom
Kristjana Sigurðardóttir Gerplu, og
loks efnilegur drengur úr Stjörn-
unni, Gísli Helgason.
Kata karla:
í þessum flokki skaut Árni Einars-
son KRF, sigurvegaranum síðan í
Tyrra, Atla Erlendssyni KFR, aftur
Týrir sig, en Ámi hefur verið í mikilli
frámför í Kata undanfarið og er
skemmst að minnast þess að hann
náði 10. sæti á EM í fyrra og 3. sæti
á NM.
Kumite kvenna:
Bestu karatestúlkur okkar kepptu
til úrslita um 1. sætið og varð sú
viðureign bæði mjög spennandi og
tæknilega góð. Kristín sigraði Jón-
ínu eftir jafna keppni, 3-2. Það er í
fyrsta skipti sem Gerpla hlýtur ís-
landsmeistaratitil.
Kumite -65 kg:
Árni Einarsson sigraði Halldór
Svavarsson 5-2 í léttleikandi glímu
þeirra um 1. sætið. Sölvi Rafnsson
Baldri, Hvolsvelli, sigraði Ágúst
Osterby Selfossi, í bráttuni um 3.
sætið, 1-0.
Kumite -73 kg:
Úrslit í þessum flokki komu vægast
sagt á óvart. Finnbogi Karlsson Kar-
ateskólanum í Reykjavík, komst í
1. sæti án mikillar mikillar fyrirhafnar
mundur ísak gaf sína glímu vegna
meiðsla sem hann hafði orðið fyrir
gegn sigurvegaranum í þessum
flokki frá því í fyrra, Atla Erlends-
syni. Atli missti þar af 1. sætinu
vegna of mikillar snertingar og þurfti
að sætta sig við 3. sætið.
Kumite —80 kg:
Konráð Stefánsson KFR sigraði
Sigurjón í framlengingu 1-0 eftir
langa og þreytta viðureign þeirra.
Víkingur Sigurðsson Þórshamri,
sigraði Einar Karl UBK, 1-0 í viður-
eign um 3. sætið.
Kumite +80 kg:
Úrslitaglíman milli Ævars Þor-
steinssonar Breiðablik og Ómars
ívarssonar KFR, var æsispennandi
og lengi vel hafði Ómar yfirhöndina
enda sýndi hann mjög góðan keppn-
isstíl og var lifandi í sókn sem vörn.
En Ævar náði sér síðan verulega á
strik og raðaði inn stigum í lokin.
Viðureigninni lauk því með sigri
Ævars 5-2.
Kumite opinn flokkur:
Fyrirfram var búist við mestri
keppni í þessum flokki, sú varð og
raunin. Atli og Ævar komust í úrslit,
Ævar eftir að hafa sigrað Árna 2-0
og Atli eftir að hafa sigrað Sigurjón
KRF, 6-0. Úrslitaglíman varð mjög
spennandi. Atli byrjaði að skora
með högg að andliti 1 -0. Síðan fengu
þeir báðir refsistig fyrir ógrundaða
tækni, staðan 2-1 fyrir Atla. Atli
skoraði annað högg að andliti, stað-
an orðin 3-1 Atla í vil og þá ar komið
að Ævari að skora, fyrsta spark að
andliti og minnkaði muninn í 3-2 og
að lokum kom hann Atla úr jafnvægi
og skoraði Ippon með höggi að
andliti og þá var staðan orðin 4-3
Ævari í vil. Síðan kom eitt leiðinleg-
asta atvik mótsins, þeir lentu í
samstuði og Atli hlaut meiðsl sem
urðu til þess að Ævari var dæmt
refsistig og Atla dæmdur sigurinn.
Árni hlaut 3. sætið eftir að hafa
gjörsigrað félaga sinn Sigurjón 6-0.
Áhorfendur voru milli 200 og 300
á mótinu og keppendur 43 frá 8
félögum. Mun fleiri félög hlutu verð-
laun nú en í fyrra og sýnir það að
breiddin í karate er að aukast.
Gullverðlaunin skiptust á 5 félög og
bar þar hæst KFR sem hlaut 5 gull
en þeir hlutu 6 í fyrra. Gerpla
Frá Júdósambandinu:
Sjö á NM
Næsta verkefni Judosambandsins
er keppni á Norðurlandameistara-
mótinu í júdó í Eskilstuna, Svíþjóð,
29. og 30. mars n.k.
Þangað verða sendir 7 keppendur,
þeir Eiríkur Ingi Kristinsson, Karl
Erlingsson, Halldór Guðbjömsson,
Halldór Hafsteinsson, Magnús
Hauksson, Bjami Ásgeir Friðriks-
son og Sigurður Hauksson.
Baldur og Karateskólinn bættu
árangur sinn frá fyrra móti.
Dómgæslan var mun betri nú en í
fyrra, en hún er enn sem fyrr helsti
veikleiki karatemóta hérlendis.
Nokkuð bar á meiðslum keppenda,
og að sögn yfirdómara mótsins Ólafs
Walleviks er um að kenna lítilli
keppnisreynslu hérlendis.
Sveitakeppni karla og drengja í júdó:
KA kom á óvart
Sveitakeppni drengja, yngri en 15
ára og karla í júdó var haldin í
íþróttahúsi Kennaraháskólans sunnu-
daginn 23. mars s.l.
í sveitakeppni drengja tóku þátt 6
sveitir frá tveim félögum, Ármanni
og KA, Akureyri. 5 keppendur eru
í hverrri sveit drengja og voru þær
allar fullskipaðar nema C-sveitirnar,
í þeim voru 4 í hvorri.
Leikar fóru þannig í A-riðli að
áfram í undanúrslit komust KA B
með 4 stig og Ármann A með 2 stig,
en úr B-riðli komust KA A með 4
stig og KA C með 2 stig.
I undanúrslitum kepptu því ann-
ars vegar KA B og KÁ C og fóru
leikar þannig að B-sveitin sigraði
með 4 vinninga gegn einum. Hins
vegar kepptu Ármann A og KA A,
þar sem KA-sveitin fór með sigur af
hólmi með 5 vinninga gegn engum.
KA-sveítirnar A og B kepptu þar
með til úrslita.
Varð það hin skemmtilegasta
viðureign, sem lyktaði með sigri
A-sveitarinar, 3 vinningar og 25
tæknistig gegn 2 vinningum og 10
tæknistigum B-sveitarinnar. í 3. sæti
urðu svo Ármann A og KA C.
Sigursveit KA skipuðu þeir Krist-
ján Ólafsson, Friðrik Hreinsson,
Auðjón Guðmundsson, Aðalsteinn
Jóhannesson og Freyr Gauti Sig-
mundsson. Bestum árangri einstakl-
inga náðu þeir Rúnar Þórarinsson,
B-sveit KA með 4 vinninga og 35
tæknistig, Friðrik Hreinsson, A-
sveit KA með 4 vinninga og 33
tæknistig, Firðrik Hreinsson, A-
sveit KA með 4 vinninga og 33
tæknistig og Auðjón Guðmundsson
með 4 vinninga og 30 tæknistig.
í sveitakeppni karla tóku þátt 3
sveitir allar frá Ármanni og lauk
með yfirburðasigri A-sveitar
Ármanns. Sigursveit Ármanns skip-
uðu þeir Eiríkur Ingi Kristinsson,
Magnús Kristinsson, Karl Erlings-
son, Halldór Hafsteinsson, Páll M.
Jónsson, Arnar Marteinsson og
Bjami Ásgeir Friðriksson.
Þær urðu margar byltumar í júdókeppninni uni helgina. Tímamynd Ámi Bjarnu