Tíminn - 26.03.1986, Qupperneq 19
Tíminn 19
Miðvikudagur 26. mars 1986
llllllllllllllllliilllllllll PLÓTUR
Rocky 4 - Ýmsir
Kröftugt líkamsræktarrokk
Það hefur mikið vatn runnið til
sjávar síðan Maynard Ferugson blés
ágætt lag í fyrstu kvikmyndinni um
boxarann Rocky. Myndimar eru
orðnar fjórar og verða sífellt vin-
sælli, enda ytri búningurinn glæstari
með hverri myndinni. Núna þykir
ekki nægilegt að hafa eitt lag í hverri
mynd, nei það er hver bragurinn á
eftir öðrum, nægilega mörg lög til að
fylla heila hljómplötu
Þó tónlistin skipi stóran sess í
Rocky myndunum eru þær langt frá
því að vera tónlistarmyndir, enda
músíkin uppfyllingarefni og ekki
ýkja burðug.
Reyndar hafa þrjú lög úr Rocky 4
komist á vinsældalista hérlendis, en
að mér læðist sá grunur að áróðurs-
máttur kvikmyndarinnar ráði þar
miklu meiru en gæði laganna. Tón-
listin er nánast sú sama og þegar
Survivor flutti Eye Of the Tiger í
Rocky 3, kröftugt líkamsræktar-
rokk, með þungum boxaratakti.
Það er hljómsveitin Survivor sem
er í aðalhlutverki á nýju Rocky
plötunni og lag sem allir hafa heyrt,
Burning Heart, sami taktur og sama
sánd og fyrr. Mér finnst reyndar Eye
Of the Tiger alltaf ágætt lag, en þau
bíólög sem hljómsveitin hefur sent
frá sér síðan eru öll geldar eftirlík-
ingar. I'að er því ágætt að hafa það
lag með á plötunni, það markar
tímamót bæði hjá Survivor og í
líkamræktarrokkinu sem síðan hefur
komið út.
En það eru miklu fleiri en Survivor
sem eiga lag í myndinni. Gamli
jálkurinn James Brown syngur þarna
Living In America ágætt lag í
skemmtilegum flutningi þessa sex-
tuga tánings. Annars er textinn þrúg-
andi ættjarðaróður þeirra amerísku
og ku hafa haft tilætluð áhrif.
Annað ágætt lag er Double Or
Nothing, dúett með Gladis Nigth og
Kenny Loggins, lag sem er örlítið
mýkra en boxaralögin og með pínu
melódíu.
Hitt er steypt í sama mótið, Ro-
bert Tepper reynir sig við rokkið í
No Easy Way Out, lagi sem komst á
lista, en er í sjálfu sér lítið annað en
endurtekning á því sem amerískir
rokkarar hafa verið að gera. Þessi
fyrrum guðspjallarokkari er nýbú-
inn að senda frá sér sólóplötu þar
sem nefnt lag verður í öndvegi, en
litla möguleika held ég að sú plata
hafi á evrópskum markaði, en Kan-
inrí kann kannski að meta þetta.
Platan með tónlistinni úr Rocky 4.
er kröftugt líkamræktarrokk, tónlist
sem fáir setja á fóninn ef slappa á af
heima í stofu, en ágæt í bílnum
þegar rúntað er heilu næturnar um
helgar og styðja þarf við töffaraí-
myndina.
ÞGG
Fine Young Cannibals - FYC
GÆDAVARA
Elvis Presley er réttnefndur kon-
ungur rokksins. Hann var töffari
síns tíma, konur fengu skjálfta í
hnén og strákarnir stældu hann.
En lögin sem hann söng voru fæst
meistaraverk, þau voru einfaldir
og réttnefndir slagarar, lög sem
hæfðu tíðarandanum.
En frá þessu eru heiðarlegar
undantekningar. Einstaka lög sem
kappinn flutti hafa verið endurlífg-
uð, og sum oftar en einu sinni. Eitt
þeirra laga er Suspictious Minds,
sem finna má á plötu hljómsveitar-
innar Fine Young Cannibals, sem
kom út í lok síðasta árs. Útsetning-
in þar er keimlík ríflega 20 ára
gamalli útsetningu Presleys og það
furðulega er að lagið sker sig ekki
á nokkurn hátt frá öðrum lögum
plötunnar, sem öll eru frumsamin.
Þetta segir nokkuð um hljómsveit-
ina Fine Young Cannnibals og
plötuna sem hér er til umfjöllunar.
Hljómsveitin Fine Young Cann-
ibals er að stofni til skipuð þremur
blökkupiltum, strákum sem sann-
arlega kunna að spila saman. Fyrst-
ur er nefndur Roland Gift, hinn
frábæri söngvari sveitarinnar.
Raddbeitingin hjá stráknum er
hreint frábær, hann er kraftmikill,
tregafullur og seiðandi. Að hinum
ólöstuðum er hann maður sveitar-
innar. Andy Cox sér um gítarleik-
inn og nær skemmtilegu sándi á
gamla kassabelginn. Um bassa (og
reyndar píanóleikinn líka) sér Da-
vid Steel og þá hefur verið talið
upp hið ágæta tríó, en þeim til
aðstoðar er skemmtilegur trompet-
leikari, Graeme Hamilton og
trommuleikarinn Martin Parry,
trymbill sem fellur vel inn í hópinn
og að skaðlausu mættu báðir þessir
aðstoðarmenn vera fastamenn í
hljómsveitinni, þeirra hlutur lýtir
ekki plötuna.
Dálítið erfitt er að skilgreina
tónlist FYC í einu orði eða tveim-
ur. Um er að ræða hálf blúsað en
mjög einfalt rokk, oft með pínu-
lítilli sveiflu. Lögin eru hvert öðru
betra, Roland gift fer á kostum í
Couldn’t Care More, Jonny Come
Home og Suspicious Minds eru
þau lög plötunnar sem mest hafá
heyrst, góð lög en hin sem ónefnd
eru standa þeim ekki að baki.
Hraðari lögin tvö, Couldn’t Care
More og Like A Stranger hafa
skemmtilegt „beat“ og í einu orði
sagt er platan hin áheyrilegasta og
kemur mér alltaf í gott skap.
Og þá er bara að vona að
eitthvað verði úr þeim orðrómi
sem segir Fine Young Cannibals
koma hingað til lands á listahátíð.
Við bíðum og vonum. ÞGG
Miðvikudagur
26. mars
7.00 Veðuriregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Beta,
heimsmeistarinn" eftir Vigfús Björns-
son Ragnheiður Steindórsdóttir les (8).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar,
þulurvelurog kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurður G. Tómas-
son flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.40 Hin gömlu kynni Valborg Bentsdóttir
sér um þáttinn.
11.10 Norðurlandanótur. Ólafur Þórðar-
son kynnir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12 20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
1 £ 30 I dagsins önn - Frá vettvangi skól-
ans Umsjón: Kristin H. Tryggvadóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Á ferð um ísrael
vorið 1985“ Bryndís Víglundsdóttir segir
frá (8).
14.30 Hljómskála- og Óperettutónlist. a.
Filharmóníusveit Vínarborgar leikur tón-
list eftir Johann og Josef Strauss; Willy
Boskovsky stjórnar. b. Hljómsveit Mant-
ovanis leikur lög úr nokkrum óperettum
eftir Frans Lehár og Johann Strauss. c.
Fílharmóniusveit Vínarborgar leikur tón-
list úr balletinum „Svanavatninu" eftir
Pjotr Tsjaíkovskí.
15.15 Hvað finnst ykkur? Umsjón: Örn
Ingi. (Frá Akureyri).
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar a. „Porgy and
Bess", svita eftir George Gershwin og
Robert R. Bennett.
17.00 Barnaútvarpið. Meðal efnis: „Dreng-
urinn frá Andesfjöllum“ eftir Christine von
Hagen. Þorlákur Jónsson þýddi. Viöar
Eggertsson les (7). Stjórnandi: Kristin
Helgadóttir.
17.40 Ur atvinnulífinu - Sjávarútvegur og
fiskvinnsla. Umsjón: Magnús Guð- .
mundsson.
18.00 Á markaði. Þáttur i umsjá Bjarna Sig-
tryggssonar.
18.15 T ónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Frá rannsóknum háskólamanna.
20.00 Hálftíminn. Elín Kristinsdóttir kynnir
popptónlist.
20.30 Iþróttir. Umsjón: IngólfurHannesson
20.50 Tónmál Umsjón: Soffía Guömunds-
dóttir. (Frá Akureyri)
21.30 Sveitin mín Umsjón: Hilda Torfadótt-
ir. (Frá Akureyri)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma (49)
22.30 „Sáttmáli við samviskuna“ Þáttur frá
UNESCO um. skáldið Anlon Tsjekhov.
Gunnar Stefánsson þýddi. Flytjendur
með honum: Hjalti Rögnvaldsson, Knútur
R. Magnússon og Margrét Guðmunds-
dóttir. (Áður útvarpað í september 1981).
23.10 Á óperusviðinu. Leifur Þórarinsson
kynnir óperutónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
■llT
10.00 Morgunþáttur. Stjórnandi: Kristján
Sigurjónsson.
12.00 Hlé.
14.00 Eftir tvö. Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00 Nú er lag. Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að hætti hússins.
16.00 Dægurflugur. Leopold Sveinsson
kynnir nýjustu dægurlögin.
17.00 Þræðir. Stjórnandi: Andrea Jónsdótt-
ir.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar i þrjár minútur kl.
11.00,15.00,16.00 og 17.00.
Miðvikudagur
26. mars
Ákveðið hefur verið að sjónvarpa í kvöld,
miðvikudag. Verður sýndur þáttur og kvik-
mynd sem áður var auglýst að vera ætti á
laugardag 29. mars.
Dagskráin í kvöld verður þannig:
19.45 Fréttir á táknmáli.
20.00 Fréttir
20.25 Kvikmyndakrónika
20.50 Svarti folinn. Bandarísk bíómynd.
22.45 Hótel. Hádramatik um starfsfólk á
gistihúsi og gesti þess.
Umboðsmenn Tímans:
Nafn umboðsmanns Heimili Simi
Hafnarfjörður Rósa Helgasdóttir Laufás4 53758
Garðabær RósaHelgadóttir Laufás4 53758
Keflavík Guöriöur Waage Austurbraut 1 92-2883
Keflavík Ingibjörg Eyjólfsdottir Suöurgötu 37 92-4390
Sandgerði Snjólaug Sigfúsdóttir Suðurgötu 18 92-7455
Garður Móna Erla Símonardóttir Eyjaholti 11 92-7256
Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-3826
Mosfellssveit Jonina Ármannsdottir Arnartanga57 666481
Akranes Aöalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-1261
Borgarnes Jenny Halldorsdóttir Kjartansgötu 25 93-7305
Stykkishólmur Erla Lárusdóttlr Silfurgötu 24 93-8410
Grundarfjörður Jóhanna Gustafsdóttir Fagurhólstúni 15 93-8669
Olafsvik Guöný H. Árnadóítir Gunnarsbraut 93-6131
Hellissandur Viglundur Höskuldsson Snæfellsási 15 93-6737
Rif EsterFriðþjófsdóttir. Háarifi 49 93-6629
Buöardalur Sólveig Ingvadóttir Gunnarsbraut 7 93-4142
Ísafjörður Ester Hallgrímsdóttir Seljalandsvegi69 94-3510
Bolungarvík Kristrun Beneditkstdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Suðavik Heiöar Guöbrandsson Neðri-Grund 94-4954
Flateyri Guörún Kristjánsdóttir Brimnesvegi2 94-7673
Suðureyri Sigrún Edda Edvardsdóttir Sætúni 2 94-6170
Patreksfjörður Laufey Jónsdóttir Bjarkargötu 8 94-1191
Tálknafjörður Orri Snæbjörsson Innstu-Tungu 94-2594
Bildudalur Hrafnhildur Þor Dalbraut24 94-2164
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík Guöbjörg Stefándóttir Bröttugötu 4 95-3149
Hvammstangi Baldur Jenssen Kirkjuvegi 95-1368
Blönduos Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Brynjar Pétursson Hólabraut 16 95-4709
Sauðárkrókur Guttormur Óskarsson Skagfirðingabr. 25 95-5200
Hofsós Steinar Már Björnsson Kirkjugötu 21 95-6389
Siglufjörður Friðfinna Simonardóttir Aðalgötu 21 96-71208
Akureyri HalldórÁsgeirsson Hjaröarlundi 4 96-22594
Grenivik Omar Þór Julíusson Túngötu 16 96-33142
Dalvik Brynjar Friðleifsson Ásvegi 9 96-61214
Olafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö8 96-62308
Húsavik Hafliöi Jósteinsson Garöarsbraut53 96-41765
Reykjahlið Þuriður Snæbjarnardóttir Skútahraum 13 96-44173
Kópasker Þóra Hjördis Pétursdóttir Duqauqeröi 9 96-52156
Raufarhöfn Ófeigur I. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Jóhanna Aöalsteinsdóttir 97-3251
Egilsstaðir Páll Pétursson Arskogum 13 97-1350
Seyðisfjörður Svanur Sigmarsson Oddagötu 4 97-2360
Borgarfj. eystri Hallgrimur Vigfússon Vinaminni 97-2936
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiöarvegi 12 97-4119
Eskifjörður Jónas Bjarnason Strandgötu 73 97-6262
Neskaupstaður Hlif Kjartansdóttir Miðstræti25 97-7229
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Eiríksdottir Hlíöargötu 8 97-5239
Stöðvarfjörður Stefán Magnússon Undralandi 97-5839
Breiðdalsvík Jóhanna Guömundsdóttir Selnesi 36 97-5688
Djupivogur RúnarSigurösson Garöi 97-8820
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-8255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Erna Valdimarsdóttir Heiöarbrun32 99-4194
Þorlákshöfn Hafdis Haröardóttir Oddabraut3 99-3889
Eyrarbakki Ragnheiöur Marteinsdóttir Hvammi 99-3402
Stokkseyri Lúövik RúnarSigurðsson Stjörnusteinum 99-3261
Hella Hrafnhildur Þórarinsdóttir Geitasandi3 99-5904
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimum 99-8172
Vík GuörúnÁrnadóttir Mánabraut 14 99-7233
Vestmannaeyjar ÁsdisGisladóttir Bústaðabraut 7 98-2419
býður þér þjónustu sína við ný-
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Við sögum i steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
- bæði f vegg og gólf.
Ennfremur kjarnaborum við fyrir lögnum i veggl og gólf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þú þarft að láta fjarlægja reykhafinn þá
tókum við það að okkur.
Hífir leitast við að leysa vanda þlnn fljótt og vel, hvar sem þu ert
busettur á landinu.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Fífuseli 12
109 Reykjavík
sími 91-73747
Bílasími 002-2183
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
i~i i..■ ■ i ■ i i i i i i t—r
Laus staða
hjá Ólafsvíkurkaupstað
Laus er til umsóknar staöa skólastjóra við tónlistarskóla
Ólafsvíkur. Laun samkv. launakerfi opinberra starfs-
manna. Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k. Nánari
upplýsingar veita bæjarstjóri Ólafsvíkur í síma 93-6153
og skólanefnd tónlistarskólans (Erla) í síma 93-6180.
Bændur athugið
Óska eftir að kaupa mykjudælu 3 (m)
og 3 til 4 þúsund lítra mykjutank.
Upplýsingar í síma 94-7655.